Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 21

Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 ✝ Heba Ásgríms- dóttir ljósmóðir fæddist á Akureyri 10. febrúar 1938. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 8. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Ásgrímur Garibaldason, f. 12. desember 1901, d. 7. febrúar 1985, og Þórhildur Jónsdótt- ir, f. 13. mars 1904, d. 30. júní 1992. Systkini Hebu eru Margrét Arndís, f. 1933, og Jón Ævar, f. 1942, d. 2019. Eiginmaður Hebu er Hall- grímur Skaptason skipasmiður, f. 23. desember 1937 á Akureyri. Þau giftust 5. ágúst 1961. For- eldrar Hallgríms voru Skapti Ás- kelsson, f. 20. júní 1908, d. 3. júlí 1993, og Guðfinna Hallgríms- dóttir, f. 8. júlí 1910, d. 16. júlí 1979. Börn Hebu og Hallgríms eru: 1) Skapti, f. 22. apríl 1962, kvæntur Sigrúnu Sævarsdóttur, f. 13. júlí 1963. Dætur þeirra eru Arna, f. 1988, Alma, f. 1994, og Sara, f. 1997. 2) Guðfinna Þóra, f. 7. febrúar 1966, gift Sigurði Kristinssyni, f. 4. apríl 1966. Dætur Guðfinnu og Stefáns Frið- leifssonar eru Bára, f. 1988, d. Akureyri, Húsmæðraskólanum á Laugalandi og Ljósmæðraskóla Íslands. Fram yfir fermingu vann Heba við að passa börn en síðar starf- aði hún um tíma í Braunsverslun og að því loknu í tvö ár í kjörbúð KEA við Ráðhústorg. Eftir nám í Húsmæðraskólanum á Lauga- landi veturinn 1957 til 1958 vann Heba sem gangastúlka á fæðing- ardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og hóf nám við Ljós- mæðraskóla Íslands haustið 1959. Námið var einn vetur og í kjölfar- ið starfaði hún annan vetur á Landspítalanum. Heba hóf störf sem ljósmóðir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri í september 1961 og starfaði þar samfleytt í 46 ár, til ársins 2007. Á þeim tíma tók Heba á móti um það bil 1.000 börnum. Samhliða starfinu á fæðingar- deildinni vann Heba árum saman á leitarstöð Krabbameinsfélags- ins og í mæðraeftirlitinu. Útför Hebu fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 19. nóvember, klukkan 13. Allir eru velkomnir en vegna sóttvarna þarf að fram- vísa neikvæðri niðurstöðu úr Covid-hraðprófi við inngang- inn í kirkjuna. Prófið má ekki vera eldra en 48 klukkustunda. Heimapróf eru ekki tekin gild. Grímuskylda er í kirkjunni. 2014, Lilja, f. 1995, Heba Þórhildur, f. 1997, og Sigríður Kristín, f. 2000. Sambýlismaður Lilju er Guðjón Jónasson. Unnusti Sigríðar Kristínar er Arnar Níelsson. Sonur Sigurðar Kristinssonar er Sveinn, f. 1986. Eiginkona hans er Ashlan Falletta-Cowden, synir þeirra eru Stefán Björn og And- ers Kristófer. 3) Ásgrímur Örn, f. 13. mars 1973, kvæntur Lenu Rut Birgisdóttur, f. 4. júní 1976. Börn þeirra eru Heba Karitas, f. 2000, Birgir Orri, f. 2004, og Valur Darri, f. 2008. Unnusta Birgis Orra er Álfrún Freyja Heiðars- dóttir. Dóttir Hallgríms og Ingibjarg- ar Sigurðardóttur er Sólveig, f. 28. mars 1960. Sambýlismaður hennar er Birgir Þór Jónsson. Sonur Sólveigar er Unnar Þór Sæmundsson. Sambýliskona hans er Agnes Ýr Ingadóttir. Börn þeirra eru Anna Bára, Birna, Sólveig Magnea og Birgir Ágúst. Heba ólst upp í Munkaþverár- stræti á Norðurbrekkunni. Hún stundaði nám í Barnaskóla Akur- eyrar, Gagnfræðaskólanum á Enginn sólargeisli er bjartari en mamma, enginn eyfirskur sunnanandvari hlýrri, heiður sum- arhiminn aldrei blárri og bjartari en augun hennar. Engin uppfinning guðs, sem hún trúði svo heitt á, er mýkri en faðmurinn, ekki blíðari en hand- takið, ekki fallegri en brosið. Guð gefi þér góða nótt, elskan. Skapti. Árið 2013 var orðið ljósmóðir valið fegursta orð íslenskrar tungu. Fegurðin var líka aðals- merki Hebu Ásgrímsdóttur ljós- móður, sem nú hefur kvatt eftir stutt en átakanleg veikindi. Hún gerði allt fallega, hvort sem það var að bjóða upp á bláberjapæ eða taka á móti barni. Hún klæddi sig fallega og kom fallega fram við aðra. Hún lagði fallega á borð og hugsaði fallega til fólksins síns. Hún hélt fallegt heimili og söngl- aði fallega í amstri dagsins. Sjálf var hún fegurðin holdi klædd. Heba var bæði ljósmóðir og húsmóðir en þó kannski fyrst og síðast móðir og ættmóðir. Tæpu ári eftir að hún lauk ljósmæðra- náminu hafði hún sjálf fætt sitt fyrsta barn, fjórum árum síðar annað og eftir sjö ár til viðbótar það þriðja. Móðurhlutverkið tvinnaðist þannig saman við ljós- móðurhlutverkið á 46 ára langri starfsævinni. Þegar barnabörnin bættust svo við hvert af öðru varð hlutverk ömmu og ættmóður sí- fellt stærra. Öllum hlutverkunum náði hún að sinna létt á fæti og létt í lund. Hún var lífsins móðir sem lét plöntur blómstra og ungbörn hjala. Í þessum móðurhlutverkum birtist einstakt næmi Hebu fyrir líðan og þörfum annarra ásamt yfirburðafærni í að sýna um- hyggju í verki. Hún hafði sann- kallaða þjónustulund í bestu merkingu þess orðs, ávallt boðin og búin að taka á sig byrðar ann- arra þegar á þurfti að halda án nokkurra skilyrða eða væntinga. Þetta gerði hún fumlaust, hratt og örugglega. Þegar einhverjum leið illa hafði hún einstakt lag á að hughreysta og styðja án þess að þykjast hafa svör eða búa yfir töfralausnum. Oftast var þó ein- mitt það sem hún gerði töfra- lausnin sem á þurfti að halda. Heba var ekki einungis næm á fólk heldur líka á fegurðina í kringum sig. Hún var unnandi góðra lista og dugleg að sækja menningarviðburði. Einkum var það þó tónlist og tónleikar sem áttu hug hennar allan og hún hafði góðan smekk fyrir ýmiss konar klassískri tónlist. Það sem var vandað og vel var gert höfðaði til hennar. Þessi smekkvísi endur- speglaði á vissan hátt hvernig hún sjálf leysti verk sín af hendi og kom fram við aðra, af vandvirkni og öryggi án þess að láta mikið á því bera. Hógværð hennar, snerpa og næmi fyrir því sem þurfti við hverju sinni varð til þess að oft var eins og hlutirnir gerðust af sjálfu sér og allir nutu góðs af. Þessir eiginleikar Hebu kölluðu fram traust og kærleika hjá þeim sem hana þekktu. Við treystum á hana og trúðum henni fyrir því sem okkur var kærast. Nú þegar hennar nýtur ekki lengur við er veröldin eins og í lausu lofti, stoðin og styttan horfin á braut og minn- ingarnar einar eftir. Ég kveð tengdamóður mína með miklum söknuði en umfram allt þakklæti. Mannkostir Hebu komu einstaklega vel fram í því hvernig hún tók við mér og syni mínum inn í fjölskylduna á sínum tíma þegar við Guðfinna tókum saman. Þar gekk ég óundirbúinn inn í hlutverk stjúpföður og fæ aldrei fullþakkað stuðninginn sem Heba og Halli veittu mér á því hála svelli. Það var mín gæfa. Ég mun geyma minninguna um Hebu Ásgrímsdóttur, móður ljóssins og lífsins, á meðan ég sjálfur lifi. Sigurður Kristinsson. Elsku besta amma í heimi. Það er risasprunga í hjartanu mínu sem mun aldrei lagast. Ég finn fyrir yfirþyrmandi sorg en ég reyni eins og ég get að hugsa um allar góðu stundirnar okkar sam- an til að hlýja hjartanu mínu, því þær voru svo sannarlega margar. Ég gæfi allt til að fá eitt knús og einn koss frá þér. Þú varst einstök manneskja, það er enginn eins og þú. Hláturinn þinn og brosið þitt lýsti upp öll herbergi sem þú komst í. Þú hefur verið mín stoð og stytta í gegnum erfiða jafnt sem góða tíma í gegnum tíðina. Lífið verður ekki eins án þín gullið mitt. Ég elska þig endalaust og mun sakna þín sárt. Guð gefi þér góða nótt amma mín. Heba Þórhildur Stefánsdóttir. Að elska er tilfinning sem býr innra með okkur öllum. Móðir sem elskar barn, systir sem elskar systkin, amma sem elskar barnabarn, frænka sem elskar frændsystkin. Elsku amma Heba. Þú varst elskuð og dáð af öllum sem þig þekktu og þótt það hafi ekki verið sjálfgefið þá elskaðir þú alla jafn mikið til baka. Hvort sem þú varst strunsandi á göngutúr um göturnar eða hoppandi upp á stóla til að sækja eitthvað í efstu skápa, þá var alltaf nóg að gera hjá þér. Hvort sem það var að taka utan um okkur þegar við þurftum eða að koma óvænt og sækja lang- ömmufiskinn þinn (fiskinn hans Vals Darra) og fara með hann heim í stað þess að koma og gefa honum einhvern smá mat, þá hugsaðir þú alltaf svo vel um okk- ur enda hjarta þitt einstakt. Það varst þú sem tókst á móti okkur þegar við komum í heiminn og það vorum við sem sátum hjá þér daginn sem þú kvaddir. Við vonum að við munum sjá heiminn eins og þú, því líf sem inniheldur ást er líf sem hefur verið lifað að fullu. Það er mun erfiðara að upplifa slíka sorg þegar það er ekki hægt að halda í þína hönd. Guð gefi þér góða nótt, elsku amma okkar. Heba Karítas, Birgir Orri og Valur Darri. Heba ljósmóðir vann stóran hluta sinnar starfsævi á fæðingar- deild Sjúkrahússins á Akureyri. Þar átti hún samleið með mörgum ljósmæðrum, hjúkrunarfræðing- um, sjúkraliðum, læknum og öðru starfsfólki. Við sem enn störfum á deildinni minnumst Hebu með hlýju. Í okkar huga var hún ein- stök kona sem kom fram við sam- ferðafólk sitt af virðingu og um- hyggju og það voru forréttindi að fá að starfa henni við hlið. Heba og Hallgrímur opnuðu heimili sitt í allmörg skipti fyrir öllum starfsmannahópnum á fæð- ingardeildinni þegar við héldum kalkúnakvöldin góðu sem n.k. árshátíð deildarinnar. Móttökurn- ar voru ætíð höfðinglegar og ákaf- lega glatt á hjalla. Eftir að Heba hætti störfum á deildinni hélt hún sambandi við kollega sína, m.a. í gegnum Norðurlandsdeild Ljósmæðrafé- lagsins. Hún var einn af stofn- félögum þar og mætti glaðreif á fundi og viðburði félagsins á með- an heilsan leyfði. Við þökkum Hebu fyrir sam- fylgdina og sendum Hallgrími og öðrum ættingjum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þegar komstu þá var hlýtt, þau voru okkar kynni, allt var göfugt, gott og blítt er gafst í návist þinni, ef að jarðlífs mæddu mein mest var kærleiksdáðin, skorinorð og hjartahrein hollust gafstu ráðin. (Höf. ók.) F.h. starfsfólks fæðingadeildar SAk, Birgitta, Ingibjörg og Edda. Heba Ásgrímsdóttir ✝ Páll Pálmason fæddist í Vest- mannaeyjum 11. ágúst 1945. Hann lést 6. nóvember 2021 á Heilbrigð- isstofnun Vest- mannaeyja eftir erfiða baráttu við heilabilun. Foreldrar hans voru Pálmi Sig- urðsson, f. 21.7. 1920, d. 25.11. 2011, og Stefanía Mar- inósdóttir, f. 25.6. 1924, d. 19.9. 2016. Systkini Páls: Ragna María Pálmadóttir, f. 27.3. 1941, maki Sigþór Magn- ússon, Guðbjörg Pálmadóttir, f. 23.12. 1941, maki Geir Haukur Sölvason, Sigmar Pálmason, f. 23.3. 1943, maki Kristrún Axelsdóttir og Haf- þór Pálmason, f. 22.2. 1954, d. 10.9. 1977. Hinn 6. apríl 1969 kvæntist Páll Guðrúnu Kristínu Guð- jónsdóttur, f. 21.6. 1946. Börn: 1) Stefanía, f. 9.1. 1964, móðir Eygló Kjartansdóttir. Börn: Ester f. 25.12. 1984, faðir Bragi Halldórsson, börn: Jón Bragi Kristinsson, f. 8.7. 2007 og Freyja Ósk Viðarsdóttir, f. 29.9. 2012. Harpa, f. 15.4. 1987 og Erla Hrund, f. 18.12. 1995, knattspyrnu með Knattspyrnu- félaginu Tý og átti farsælan knattspyrnuferil í um 20 ár með meistaraflokki ÍBV sem markvörður. Hann varð bik- armeistari með ÍBV árin 1968, 1972 og 1981 og Íslandsmeist- ari árið 1979. Árið 1980 var hann valinn íþróttamaður Vestmannaeyja, en alls spilaði hann tæplega 400 leiki fyrir ÍBV. Páll var um skeið í lands- liði Íslands, spilaði fjölmarga æfingaleiki með því og var um tíma varamaður landsliðsins. Árið 1969 var hann aðalmark- maður landsliðsins í leik við Bermúda á útivelli. Hann ferð- aðist oft og víða í Evr- ópukeppni með ÍBV og eftir að knattspyrnuferlinum lauk var hann aðstoðar- og markmanns- þjálfari með Kjartani Mássyni 1984-85 og Snorra Rútssyni 1994. Snóker varð ástríða Páls, sérstaklega eftir að knatt- spyrnuferlinum lauk, og varð hann margfaldur Vestmanna- eyja- og Kiwanismeistari. Hann var félagi í Kiwanis- klúbbnum Helgafelli um árabil og gegndi þar trúnaðar- störfum. Útför Palla Pálma fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 19. nóvember 2021 kl. 13 og verður streymt af vefnum landakirkja.is. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat faðir Gunnar M. Konráðsson, barn Erlu: Gunnlaugur Óttarsson, f. 6.5. 2015. 2) Hörður, f. 21.2. 1966, maki Kolbrún Matthías- dóttir, börn: Matt- hías Páll, f. 22.8. 1993, Guðný Char- lotta, f. 20.3. 1997 og Bogi Matt, f. 7.9. 2004. 3) Grét- ar Víðir, f. 15.9. 1975, maki Lilja Logadóttir, börn: Hekla Þöll, f. 22.1. 2015, Veigar Elí, f. 4.3. 2003 og Nökkvi Páll, f. 4.9. 2004, móðir bræðranna Sandra Dögg Pálsdóttir. Bergdís Líf, f. 25.11. 1996, Magdalena, f. 25.12. 2002 og Logi Veigar, f. 1.11. 2005, börn Lilju. Páll útskrifaðist úr Stýri- mannaskóla Vestmannaeyja 1967 og vann nokkur ár við sjómennsku. Árið 1970 varð Páll verkstjóri í Fiskimjöls- verksmiðju Vinnslustöðvar- innar til starfsloka hans 2010. Páll og Guðrún hófu búskap í Hlíðarhúsum, svo í Hásteins- blokkinni fram að Heimaeyj- argosinu. Dverghamar 7, sem þau byggðu, varð síðan þeirra heimili í 45 ár. Á sínum yngri árum lék Páll Elsku bróðir minn og mágur Páll Pálmason verður jarðsung- inn í dag, 19. nóvember. Það er margs að minnast. Það var stutt á milli okkar bræðra og því vor- um við mikið samferða í gegnum lífið. Það voru mörg prakkara- strik og líf og fjör hjá okkur. Ég gleymi því ekki þegar við ásamt fleirum vorum á bryggjunni þeg- ar Esjan var að leggja að, Palli var sennilega um átta ára og í troðningnum datt hann út í höfn- ina á milli skips og bryggju. Prúðbúinn Halldór Ágústsson stakk sér á eftir honum í sjóinn og dró hann upp og bjargaði þar með lífi hans, sem var svakalegt afrek, honum var ekki ætlað að kveðja þá sem betur fer. Palli bróðir var tveimur árum yngri en ég og þegar við fórum í Lautina í fótbolta vinirnir og hann fékk að fara með var hann yngstur og minnstur og var því sendur í markið. Hann tók þá stöðu og gerði hana að sinni, enda var mjög snöggur og lipur markmaður. Hann varð betri og betri og svo síðar einn besti markmaður sem Eyjamenn hafa átt. Átti m.a. stórleik í Evrópu- leik í Búlgaríu 1969 og spilaði landsleik fyrir Ísland gegn Ber- múda. Við bræður urðum sam- ferða í gegnum fótboltann og spiluðum marga góða leiki sam- an. Annað sem sameinaði okkur líka var auðvitað enski boltinn og liðið okkar Liverpool, en við bræður höfum horft á ófáa leik- ina saman í gegnum árin og nú síðustu ár með vinum okkar í Kiwaniskjallaranum. Palli var ekki bara góður markmaður, hann var líka frábær snókerspil- ari og vann til margra verðlauna á snókermótum. Ég man svo vel þegar við vor- um peyjar, þá vorum við sendir í sveit eins og tíðkaðist þá, hvor á sinn bæinn í Mýrdalnum. Við vorum bara smá peyjar. Palli stakk stundum af frá bænum sem hann var á og kom yfir til mín þar sem ég var í sveit, enda tveimur árum yngri. Sem unglingar fórum við sam- an á sjó á Halkion VE og eitt sinn var sérstaklega siglt í land svo Palli gæti varið markið fyrir ÍBV. Við Palli misstum yngri bróður okkar Hafþór í bílslysi árið 1977 og það fráfall markaði alltaf fjölskylduna. Hann var að- eins 23 ára gamall. Eftir að Palli og Gunna felldu hugi saman átt- um við hjónin góðar samveru- stundir, og fórum við nokkrum sinnum saman utan í frí. Það var erfitt að sjá veikindi hans taka yfir og missa samband við hann undir lokin. Við heim- sóttum hann á hverjum degi á spítalann og stundum náðum við að spjalla um lífið og tilveruna en aðra daga var erfiðara að eiga samskipti. Ég fann þó að hann vissi af mér og þekkti mig enn undir lokin og kallaði nafnið mitt viku áður en hann kvaddi. Palli var góður bróðir og vinur sem við munum sakna sárt. Takk fyr- ir allt. Sigmar og Kristrún. Nú er elsku besti mágur minn hann Palli búinn að fá hvíldina eftir baráttu við harðvítugan sjúkdóm. Ég kveð með þakklæti í huga fyrir að hafa átt hann í fjölskyld- unni áratugum saman og verið þátttakandi í gleði hans og sorg- um. Hann, eins og margir aðrir, fór ekki varhluta af áföllum og sorgum sem settu sitt mark á hann. Sorgum sem hann lifði við af æðruleysi sem var eitt af per- sónueinkennum hans. Kímni, fallegt blik í auga og bros einkenndu hann og ég minnist þess að móðir mín talaði oft um það hvað það væri gott að fá Palla í heimsókn, hann væri svo hlýr og brosmildur. Ósér- hlífni hans hefur eflaust gengið mjög á líkamlega heilsu hans með árunum. Hvort sem það var í fótboltamarkinu, í vinnunni eða daglegum störfum hlífði hann sér ekki. Gekk til allra verkefna óhikað, af vandvirkni og sam- viskusemi. Allt sem hann lagði hönd á var fallega og vel gert. Margar flottar myndir eru til af honum í fótboltamarkinu að höndla boltann og þar sést að þarna var maður sem var ekki að hika. Hann var afreksmaður í víðum skilningi þess orðs. Palli og Gunna voru samhent hjón sem bjuggu sér fallegt heimili á Dverghamrinum þar sem þau áttu heima í 45 ár. Þar á heimili var öllum gestum tekið opnum örmum og alltaf voru glæsilegar veitingar fram born- ar, hvernig sem á stóð. Ég er þakklát fyrir að hafa átt góðar stundir í ferð með þeim hjónum í sólina í janúar 2019. Palli naut þeirrar dvalar vel þrátt fyrir að veikindin væru farin að setja mark sitt á hann, en þetta var hans síðasta utanlandsferð. Palli á stóran part í hjarta mínu og hans verður sárt saknað, en við eigum margar fallegar minningar um hann sem vekja gleði og sefa söknuðinn. Hugur minn er hjá fjölskyldu hans og ástvinum sem ég sendi innilegar samúðarkveðjur. Erla Guðjónsdóttir. Mig langar að minnast Páls Pálmasonar, eða Palla eins og hann var kallaður. Við vorum jafnaldrar, skólabræður um tíma og urðum vinir ungir, áttum heima í nágrenni hvor við annan. Á unglingsárum okkar var hálfgert skellinöðruæði í Eyjum og gátum við látið þann draum rætast að kaupa okkur hjól ásamt fleiri félögum og áttum skemmtilegan tíma saman. Leiðir okkar lágu saman í fót- boltanum og vorum við liðsfélag- ar þegar ÍBV varð í fyrsta sinn bikarmeistari í meistaraflokki í knattspyrnu árið 1968. Palli var afburðaíþróttamaður og varði mark Eyjamanna til fjölda ára og vann fleiri titla með liðinu á næstu árum. Hann var einnig mjög góður í snóker og vann til fjölda verðlauna. Palli fór ungur á síldveiðar og varð oft að fá hann lausan af sjónum þegar mikilvægir knatt- spyrnuleikir voru fram undan hjá ÍBV. En lengstan starfsaldur átti hann hjá Fiskimjölsverk- smiðjunni FIVE. Við Jóna vottum Gunnu, konu hans, og öðrum aðstandendum samúð okkar. Sigurður Ingi Ingólfsson. Páll Pálmason - Fleiri minningargreinar um Pál Pálmason bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.