Morgunblaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 40 ÁRA Melkorka er Reykvíkingur, ólst upp í Árbænum en býr í Vesturbænum. Hún lauk B.Mus.-gráðu í flautuleik frá Konung- lega konservatoríinu í Haag, meistaragráðu frá Konservatoríinu í Amsterdam, meistara- gráðu með sérhæfingu í hljómsveitar- og kammertónlist við Guildhall School of Music and Drama í London, MBA-gráðu frá Edin- borg og meistaragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Melkorka er verkefnastjóri sérverkefna í Hörpu. „Ég hef verið að sjá um afmælisárið og ýmsa dagskrárliði tengda því. Svo erum við að opna barnarými í Hörpu í samstarfi við ÞYKJÓ. Það er það sem er mest spenn- andi núna.“ Harpa fagnar tíu ára afmæli í ár og meðal helstu viðburða voru tónleikar Concertgebouw-hljómsveitarinnar í Amsterdam, einnar fremstu sinfóníu- hljómsveitar í heimi, 10. nóvember sl. Melkorka kom að heimsókn hljóm- sveitarinnar til Íslands, en hún lærði hjá fyrsta flautuleikara Concertgebouw og spilaði stundum með hljómsveitinni þegar hún bjó í Amsterdam. „Það tek- ur almennt a.m.k. tvö ár að fá svona stóra hljómsveit í heimsókn. Jónas Sen gagnrýnandi sagði að þetta hefðu verið bestu tónleikar ársins og ég er alveg sammála honum!“ Melkorka hefur ekki sagt skilið við flautuna og spilaði á tónleikum Bjarkar nýverið í Hörpu og fer síðan í tónleikaferð með henni til Bandaríkjanna í jan- úar og febrúar. Melkorka stundar einnig ritstörf og er í ljóðahópi sem heitir Svikaskáld. „Við erum í jólabókaflóðinu núna, með fyrstu skáldsöguna okkar, en hún heitir Olía. Við erum sex konur sem skrifum hana saman og það gekk furðu vel, við erum svo góður hópur.“ Til að rækta heilsuna stundar Melkorka utanvegahlaup, jóga og gönguskíði. FJÖLSKYLDA Sambýlismaður Melkorku er Haraldur Jónsson, f. 1961, myndlistarmaður. Sonur þeirra er Heiðbjartur Óli, f. 2019. Foreldrar Melkorku eru Sigrún Helgadóttir, f. 1949, líffræðingur og rithöfundur, og Ólafur S. Andrésson, f. 1951, erfðafræðingur og prófessor við HÍ. Þau eru búsett í Árbænum. Melkorka Ólafsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Nú er úr vöndu að ráða svo þú skalt ekki skrifa undir neitt fyrr en þú hefur kynnt þér smáa letrið. Kapp er best með forsjá. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er í svo mörg horn að líta að þér finnst verkefnastaðan yfirþyrmandi. Reyndu ekki að stytta þér leið, því þá verð- ur árangurinn annar og minni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er bráðnauðsynlegt að missa aldrei sjónar á markmiðinu, hvert svo sem það er. Taktu þér tak, annars áttu á hættu að verða verkefnalaus. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ef þú vilt styrkja vináttuböndin skaltu muna að góðir vinir geta verið sam- an bæði í sorg og gleði. Gefðu vini tíma til að jafna sig á erfiðum tíma í lífi sínu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Berðu framtíðaráform þín undir vini og vandamenn. Að skulda greiðslukorta- reikning eða vini góðan greiða getur truflað þig óstjórnlega. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þér gefst tækifæri til að kynnast nýju fólki, og það veldur þér gleði. Mundu að anda djúpt og telja upp að tíu áður en þú segir eitthvað í hita leiksins. 23. sept. - 22. okt. k Vog Gengur þér allt í haginn, eða þarftu að endurskoða einhverjar hugmynda þinna? Enginn verður óbarinn biskup. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Nýjar hliðar á vandasömu verkefni krefjast allrar þinnar athygli. Láttu eftir þér að fara í nudd eða kaupa þér eitt- hvað fyrir þig. Þú átt það skilið. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Samband virðist vera að þróast hratt í ranga átt. Sem betur fer þarf bara eitt orð til þess að hreinsa andrúms- loftið. Ekki lofa upp í ermina á þér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Hópvinna lætur ekki bara dag- inn líða hraðar, hann verður líka skemmti- legri. Gefðu þér tíma til að hugsa málið þegar þú ert beðin/n að segja álit þitt. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Erfið verkefni munu útheimta mikið hugrekki af þinni hálfu. Þú vekur at- hygli fyrir skemmtilega framkomu og fata- stíl. Sumir vina þinna líta upp til þín. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þrátt fyrir góðan ásetning geta af- skipti orðið til þess að færa mál til verri vegar. Látið börnin njóta vafans. G uðlaug Rakel Guðjóns- dóttir er fædd 19. nóv- ember 1961 í Reykja- vík. Hún ólst fyrst upp í Smáíbúðahverfinu en flutti 6 ára í Vesturbæ Reykjavíkur. „Ég fór á hverju sumri til afa og ömmu í Breiðuvík á Snæfellsnesi. Þrír kílómetrar voru á milli bæja afa og ömmu í föðurætt og afa og ömmu í móðurætt og í minningu er það mjög sterkt þegar ég labbaði á þjóð- veginum milli bæjanna, Þetta var svona dagleið.“ Rakel gekk í Melaskóla, fór í Kvennaskólann í Reykjavík síðan Menntaskólann í Reykjavík og varð stúdent þaðan 1981. Hún lauk B.Sc- gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1986. Hún er með MBA- gráðu og próf í lýðheilsuvísindum. Hún hefur enn fremur stundað end- urmenntun af ýmsum toga tengda heilbrigðismálum og fór í leiðsögu- nám í Menntaskólanum í Kópavogi vorið 2019. „Ég ákvað að fara í leið- sögunám til að fræðast meira um land og þjóð, menningu og náttúru. Það var ótrúlega skemmtilegt.“ Eftir útskrift úr hjúkrunarfræði hóf Rakel störf sem hjúkrunarfræð- ingur á Vífilsstöðum og hefur í 20 ár verið í stjórnunarstöðum í opinbera heilbrigðisgeiranum, einnig var hún í fimm ár þar í einkageiranum. Frá 2019 hefur hún verið framkvæmda- stjóri meðferðarsviðs Landspítala en 12. október síðastliðinn var hún settur forstjóri Landspítala til ára- móta sem síðan hefur verið fram- lengt til 1. mars 2022. „Ég hef líkt því starfi við að fara umhverfis spítalann á 80 dögum. Ég hélt aldrei að ég myndi verða mann- eskja sem stæði í stafni og talaði fyrir framan annað fólk, því ég var mjög feiminn krakki. En heilbrigðis- þjónustan er mín ástríða og ég hef stöðugt verið að ýta mér fram á brúnina. Ég hef átt mér margar sterkar fyrirmyndir. Mér finnst að við þurfum öll að leggja eitthvað til samfélagsins og skila því betra en það var, hvort sem það er í heil- brigðismálum eða öðru.“ Rakel hefur átt frumkvæði að og stýrt nokkrum nýsköpunarverk- efnum. Hún stóð fyrir einni fyrstu rannsókninni á áhrifum efnahags- hrunsins á heilbrigðisþjónustuna, nánar tiltekið um áhrif efnahags- hrunsins árið 2008 á komur á bráða- móttöku. Hún stóð einnig fyrir, ásamt fleirum, á þróun rauntíma ár- angursvísum á bráðamóttöku sem hlaut Nýsköpunarverðlaun í opin- berum rekstri árið 2014. Hún hlaut einnig Stjórnendaverðlaun Stjórn- vísis árið 2014 sem millistjórnandi ársins. Síðan má nefna að Rakel hélt enn fremur erindi fyrir David Cameron, þáverandi forsætisráð- herra Bretlands, þegar hann kom hingað í heimsókn 2015. Rakel hefur lagt sitt af mörkum í félagsmálum. Hún var m.a. formað- ur jafnréttisnefndar Sjúkrahúss Reykjavíkur í nokkur ár og formað- ur jafnréttisnefndar Landspítala. Hún var í stjórn Ledernes Netværk i Norden 2011, var formaður 2014- 17. Árið 2014 var hún skipuð í sam- norrænan heilbrigðisviðbúnaðarhóp, en samstarfshópurinn sér um fram- kvæmd norræns samnings um heil- brigðisviðbúnað. Svo hefur hún ver- ið í ýmsum faghópum sem tengjast hennar starfi, eins og farsóttarnefnd Landspítala. Hún hefur einnig kom- ið að ýmsum öðrum félagsmálum, gegnt ýmsum nefndarstörfum og er í Rótarýklúbbnum Borgum. „Áhugamál mín eru mörg en ég stunda þau af mismiklu kappi. Ég Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, starfandi forstjóri Landspítala – 60 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Rakel, Guðjón, Karen Birna, Gyða Rut og Bryndís. Heilbrigðisþjónustan er ástríða Barnabörnin Saman komin heima hjá afa og ömmu jólin 2019. Hjónin Rakel og Guðjón stödd við Jökulsárlón. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.