Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 26

Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 26
MITT SJÓNARHORN Philipp Lahm @philipplahm Xavi er mættur aftur. Með hann sem þjálfara vill Barcelona endurlífga gullaldarskeið félagsins. Þökk sé tækni hans og yfirsýn var Xavi heimsklassaleikmaður sem lék með hag liðsins í huga. Hann studdi við liðsfélaga sína sem miðstöð spils, hann setti sviðið á nákvæman hátt, hann fann alltaf lausnir. Það virtist ómögulegt að aðskilja hann frá bolt- anum, jafnvel þótt hann væri um- kringdur andstæðingum. Þegar Xavi var upp á sitt besta var spænska landsliðið nánast ósigr- andi þar sem þeir urðu Evr- ópumeistarar, heimsmeistarar og aftur Evrópumeistarar í röð. Í úr- slitaleikjum EM árin 2008 og 2012 lagði hann upp fjögur mörk. Á þessu skeiði drottnaði hann yfir Meist- aradeild Evrópu með Barcelona þar sem hann vann keppnina tvisvar og komst einnig í undanúrslit á þessum fjórum árum. „Þetta var besta lið sem við höfum nokkru sinni mætt,“ sagði Sir Alex Ferguson, þáverandi þjálfari Manchester United, nokkr- um árum eftir að liðið tapaði úrslita- leik Meistaradeildarinnar árið 2011, þegar Tiki Taka-fótboltinn var á há- punkti sínum. Á miðjunni studdi Xavi full- komlega við Andrés Iniesta. Xavi lét allt tikka og Iniesta rak boltann áfram. Þeir tveir skiptu verkum á milli sín á svipaðan hátt og Luka Modric og Toni Kroos hjá Real Madríd, sem tók við af Barcelona sem viðmiðið í félagafótbolta. Xavi deilir einnig með Kroos miklum gæðum í löngum sendingum. Xavi passaði fullkomlega inn í hugmyndafræði Barcelona. Undir handleiðslu Pep Guardiola end- urspegluðu þeir Xavi, Iniesta, Puyol og Messi, bestu knattspyrnumenn heims á þessum tíma, þá sýn Guar- diola að allir geti gert allt. Í samein- ingu færðu þeir jafnvægið á milli sóknar og varnar á nýtt stig. Lík- amsstærð skipti ekki öllu máli, ekki einu sinni í sókn og vörn. Breyttir tímar Á þessum tíma hefði ég getað skipt yfir til Barcelona. Það hefði verið frábær reynsla að fá að vera á vellinum með þessum goðsögnum. Ég lít til baka með tár á hvarmi en einnig bros. Sem strákur frá Mün- chen vildi ég gjarna vinna Meist- aradeildina með félaginu mínu, Bay- ern. Ég hefði aldrei fyrirgefið sjálfum mér ef ég hefði ekki verið hjá félaginu þegar við unnum keppnina á Wembley árið 2013. Á þeim tíma var Barcelona fyrirmynd alls heimsins á öðru sviði: félagið var með UNICEF sem auglýsingu á treyjunni sinni. Nú eru breyttir tímar. Leikmenn eru jafnvel enn mikilvægari en áður þegar kemur að því að knýja fram úrslit. Barcelona vann síðast Meist- aradeildina árið 2015. Síðan þá hefur liðið ekki komist í úrslitaleikinn og þess í stað minnist fólk stórra tapa: 2:8 gegn Bayern München, 0:4 í Liv- erpool, 0:3 í Róm, 1:4 gegn París og nú nýlega 0:3 í Lissabon. Það er gall- inn við þessa tegund fótbolta, sem krefst bestu mögulegu tækni og gíf- urlegra knattspyrnugáfna allra sem eiga í hlut, en um leið er líkamlegt atgervi ekki í forgangi. Þetta getur stundum sprungið í andlitið á liðum. Það sem áður vakti hrifningu við Barcelona hefur minnkað og spurn- ingar hafa vaknað um áherslu Barca á að stjórna leikjum og halda bolt- anum 70 prósent leiktímans eða lengur. Strax árin 2010 og 2012 tókst Inter Mílanó og Chelsea að múra fyrir mörk sín og slá Barce- lona út í undanúrslitum í báðum til- vikum. Í dag hafa öll þessi lið leik- aðferðina sem snýr að því að „hafa alla fyrir aftan boltann“ fullkomlega á hreinu. Það eina sem virkar oft gegn henni eru mörk sem krefjast styrks í líkamlegum þáttum – föst- um leikatriðum, skyndisóknum og annarra harðgerðari lausna í þeim dúr. Nýjar hetjur í aðalhlutverki Fótboltinn er orðinn hraðari, kröftugri og líkamlegri. Meira að segja Guardiola hefur aðlagast í Manchester, fínstillt spilamennska liðs hans er enn auðsjáanleg en hann lætur það spila meiri varnarleik. Í nútímanum eru nýjar söguhetjur í aðalhlutverki á vellinum: Trent Al- exander-Arnold, Paul Pogba, Viní- cius Júnior, Alphonso Davies eða Erling Haaland – allt eru þetta íþróttamenn sem eru líkari Usain Bolt heldur en hinum 170 senti- metra háa Xavi. Og Lionel Messi leikur í París. Það er í raun komin til efnahagsleg samkeppni sem er ný af nálinni. Árið 2011 voru Barcelona og Real Madríd félögin sem voru með mesta veltu í heiminum og voru langt á undan Manchester United (365 milljónir evra), Bayern (320 milljónir) og Chelsea (250 milljónir). Í dag er ver- ið að fjárfesta stórt víðs vegar. Í Evrópu eru um tíu félög sem eru með árlega veltu upp á um hálfan milljarð evra eða meira. Á meðan keppa um tvöfalt fleiri félög um bestu leikmennina. Fjöldi félaga er nú í eigu mjög ríkra eigenda, nú einnig Newcastle United. Verkanin sem þessi markaður hefur komið á fót nær einnig til þjálfara, sem eru einnig ráðnir eins og stjörnur. Eitt sinn urðu Arsène Wenger, Sir Alex Ferguson eða Joh- an Cruyff að stofnunum hjá félögum sínum vegna hugmyndafræði sinnar. Í þýsku 1. deildinni mun Christian Streich brátt fagna tíu ára starfs- afmæli sem aðalþjálfari Freiburg. Hver þekkir enn til Guy Roux, sem þjálfaði Auxerre frá 1964 til 2000? Auxerre og Freiburg eru sértæk dæmi þar sem hinn litríki Roux naut og Streich nýtur mikillar virðingar. Leiddi með persónutöfrum Það tók meira að segja Jürgen Klopp fjögur ár að byrja að vinna titla með Liverpool. Það að þjálfarar fái tíma er eitthvað sem heyrir til undantekninga nú til dags. Hjá Barcelona entust síðustu tveir for- verar Xavi í minna en tvö ár sam- anlagt. Flestir þeirra þjálfara sem eru í topp 10 eða svo í heiminum, eins og Mauricio Pochettino, Thom- as Tuchel, Antonio Conte eða Carlo Ancelotti, skipta um félag á tveggja til þriggja ára fresti og fara til fjár- hagslega vel stæðra félaga í Lund- únum, Madríd og París. Það er þeim mikilvægast að skapa gott andrúms- loft innan liðsins og að vera sam- þykktir af stjörnum þess. Zinedine Zidane, sem vann Meist- aradeildina þrisvar í röð með Real Madríd frá 2016 til 2018, segir um sjálfan sig: „Ég er ekki besti þjálf- arinn þegar kemur að taktík.“ Hann leiddi liðið sitt með persónutöfrum. Þetta er orðinn mest afgerandi þátt- urinn, ekki langtímaþróun á hug- myndafræði um hvernig sé best að spila; Liverpool reiðir sig meira að segja á gervigreind þegar kemur að liðsskipulagi. Xavi býr yfir þessum nauðsynlegu persónutöfrum. Það eru fáir sem hafa náð að uppfylla hugsjón Barce- lona jafn vel og hann, fáir sem end- urspegla gullaldarskeiðið á jafn sannfærandi máta. Nú á hann að endurskapa þetta skeið undir ólík- um kringumstæðum. Það verður ær- ið verkefni. Ærið verkefni sem bíður Xavi hjá Barcelona - Fáir sem hafa uppfyllt hugsjón Barcelona jafn vel og spænski miðjumaðurinn AFP Spánn Xavi Hernández skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Barcelona í nóvemberbyrjun en honum er ætlað að snúa gengi liðsins við. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 Meistaradeild kvenna A-RIÐILL: Wolfsburg – Juventus.............................. 0:2 Chelsea – Servette ................................... 1:0 Staðan: Chelsea 4 3 1 0 13:4 10 Juventus 4 2 1 1 8:4 7 Wolfsburg 4 1 2 1 10:7 5 Servette 4 0 0 4 0:16 0 _ Chelsea, Juventus og Wolfsburg berjast um sæti í útsláttarkeppninni. B-RIÐILL: Breiðablik – Kharkiv................................ 0:2 Real Madrid – París SG........................... 0:2 Staðan: París SG 4 4 0 0 13:0 12 Real Madrid 4 2 0 2 6:6 6 Kharkiv 4 1 1 2 2:6 4 Breiðablik 4 0 1 3 0:9 1 _ PSG er komið áfram í útsláttarkeppnina. Real Madrid og Kharkiv berjast um annað sæti riðilsins. 4.$--3795.$ Olísdeild karla Haukar – Valur..................................... 26:26 Staðan: Haukar 9 6 2 1 269:235 14 Valur 8 5 2 1 234:203 12 FH 8 5 1 2 223:200 11 ÍBV 7 5 0 2 211:204 10 Stjarnan 7 5 0 2 215:207 10 Afturelding 8 4 2 2 238:224 10 Fram 7 4 0 3 195:194 8 Selfoss 7 3 0 4 176:175 6 KA 8 3 0 5 219:237 6 Grótta 6 1 1 4 155:165 3 HK 7 0 0 7 175:204 0 Víkingur 8 0 0 8 170:232 0 Meistaradeildin A-RIÐILL: Kiel – Aalborg...................................... 31:28 - Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. _ Montpellier 11, Kiel 11, Pick Szeged 10, Aalborg 8, Elverum 8, Vardar 5, Zagreb 2, Meshkov Brest 1. B-RIÐILL: Barcelona – Kielce .............................. 30:32 - Sigvalda Birni Guðjónssyni og Hauki Þrastarsyni tókt ekki að skora fyrir Kielce. _ Kielce 12, Barcelona 9, Veszprém 8, Par- ís SG 7, Motor 6, Flensburg 5, Porto 5, Di- namo Búkarest 4. Evrópubikar kvenna 32-liða úrslit, fyrri leikur: Kristianstad – Yenimahalle ............... 28:23 - Andrea Jacobsen skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad. Þýskaland RN Löwen – Minden............................ 31:27 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. Bergischer - Erlangen ........................ 25:25 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer. Wetzlar – Balingen.............................. 33:21 - Daníel Þór Ingason skoraði tvö mörk fyrir Balingen. Oddur Gretarsson er frá keppni vegna meiðsla.. Frakkland Nancy – Saran...................................... 27:29 - Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyr- ir Nancy. Svíþjóð Lugi – Önnered.................................... 31:28 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. %$.62)0-# Subway-deild karla ÍR – KR ............................................... 107:85 Njarðvík – Breiðablik ...................... 110:105 Vestri – Grindavík ................................ 86:71 Stjarnan – Tindastóll ........................... 87:73 Staðan: Grindavík 7 5 2 580:551 10 Þór Þ. 6 5 1 577:551 10 Keflavík 6 5 1 527:488 10 Tindastóll 7 5 2 604:589 10 KR 7 4 3 651:637 8 Njarðvík 7 4 3 653:609 8 Valur 6 4 2 470:474 8 Stjarnan 7 3 4 620:609 6 ÍR 7 2 5 632:652 4 Vestri 7 2 5 573:602 4 Breiðablik 7 1 6 738:761 2 Þór Ak. 6 0 6 414:516 0 NBA-deildin Milwaukee – LA Lakers .................. 109:102 Phoenix – Dallas ................................. 105:98 Charlotte – Washington....................... 97:87 Detroit – Indiana.................................. 97:89 Atlanta – Boston................................. 110:99 Brooklyn – Cleveland......................... 109:99 Miami – New Orleans ........................ 113:98 New York – Orlando .......................... 98:104 Minnesota – Sacramento ................... 107:97 Oklahoma – Houston.......................... 101:89 Portland – Chicago........................... 112:107 4"5'*2)0-# Martin Hermannsson snýr aftur í íslenska landsliðshópinn í körfu- knattleik sem mætir Hollandi, 26. nóvember í Amsterdam, og Rúss- landi, 29. nóvember í Pétursborg, í 1. umferð undankeppni HM 2023 sem fram fer í Indónesíu, Japan og Filippseyjum. Ítalía leikur einnig í riðlinum en þrjú efstu liðin komast áfram í 2. umferð undankeppn- innar sem verður leikin á næsta og þar næsta ári. Martin var síðast í landsliðshópnum fyrir tveimur ár- um en hópinn má sjá í heild sinni á mbl.is/sport/korfubolti. Snýr aftur eftir langa fjarveru Morgunblaðið/Hari Mikilvægur Martin er algjör lyk- ilmaður í íslenska karlalandsliðinu. Tjörvi Þorgeirsson tryggði Hauk- um 26:26-jafntefli gegn Val þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, á Ás- völlum í Hafnarfirði í tíundu um- ferð deildarinnar í gær en Tjörvi jafnaði metin þegar nokkrar sek- úndur voru til leiksloka. Heimir Óli Heimisson var markahæstur Hauka með sex mörk en Arnór Snær Ósk- arsson og Benedikt Gunnar Ósk- arsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Val. Haukar eru með 14 stig í efsta sætinu en Valur með 12 stig. Valur á leik til góða á Hauka. Stál í stál í toppslagnum Ljósmynd/Kristinn Steinn 6 Heimir Óli Heimisson var marka- hæstur Hafnfirðinga á Ásvöllum. Philipp Lahm var fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð heimsmeistari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er mótsstjóri Evrópumóts karla sem fram fer í Þýskalandi árið 2024. Pistlar hans, „Mitt sjónar- horn“, birtast reglulega í Morgun- blaðinu og/eða mbl.is. Þeir eru skrifaðir í samvinnu við Oliver Fritsch, íþróttaritstjóra þýska net- miðilsins Zeit Online, og birtast í fjölmiðlum nokkurra Evrópulanda. Í níunda pistli sínum í dag fjallar Lahm um Xavi Hernández, nýráðinn knattspyrnustjóra Barcelona, og þau erfiðu verkefni sem bíða hans hjá uppeldisfélaginu. Pistlar frá Philipp Lahm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.