Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 29

Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 91% Melanie Ubaldo hlaut í gær styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands. Styrk- urinn er að upphæð ein milljón króna og er veittur árlega ungum og efnilegum myndlistarmönnum. Melanie fæddist árið 1992 á Fil- ippseyjum og flutti til Íslands árið 2005. Hún býr og starfar í Reykja- vík, hlaut BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og stundar nú meistaranám í myndlist við sama skóla sem ætlunin er að ljúki næsta vor. Hefur hún haldið bæði einkasýningar hér á landi og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði á Íslandi og erlendis. Og þrátt fyrir að vera önnum kafin í meistaranámi eru nokkrar sýningar fyrirhugaðar hjá Melanie á næstu mánuðum, m.a. samsýning í Gerðarsafni fyrir Lista- hátíð í Reykjavík næsta sumar og í janúar mun hún halda sína fyrstu einkasýningu erlendis, í Gallery Gudmundsdottir í Berlín. „Þetta er enginn smáheiður,“ seg- ir Melanie um styrkinn, „ég er í al- gjöru sjokki yfir því að ég sé að fá þetta á meðan ég er enn þá náms- maður.“ Melanie hefur verið starf- andi myndlistarmaður til fjölda ára og haft nóg að gera, eins og sjá má af ferilskrá hennar. „Ég er bara búin að vera kortér í „burnout“, liggur við, að vera bæði í námi og öllu þessu sýningahaldi. En listin gefur og gef- ur bara,“ segir Melanie. Hún er spurð að því hvað milljónin muni nýtast henni í og svarið næstu sýn- ingar og m.a. sú sem haldin verður í ársbyrjun í Berlín. Minnisvarðar um tilvistarleysi Í tilkynningu vegna styrksins seg- ir m.a. um listsköpun Melanie: „Mel- anie skapar minnisvarða um meint tilvistarleysi sitt (monuments to my unbelonging) og holdgerir það hvernig samfélagið hefur hafnað henni og hvernig tungumálið tekst á við það.“ Verk hennar eru sögð byggjast á hversdagslegum móðg- unum, hunsun, rangtúlkunum, smáárásum og augljósum kynþátta- fordómum; uppburðarlitlum feluleik haturs, kvenfyrirlitningu, kynþátta- fordómum og óskoruðu valdi hvítra, lítillækkun til undirgefni og þögg- unar sem hafi á stuttum tíma náð að skapa sér nafni í íslenskum list- heimi. Til að viðhalda ekki þessu mynstri vanþekkingar takist verkin hennar á við málfarslegan veikleika (e. linguistic vulnerability), því orð geti sært. „Enginn er óbrjótanlegur, en orð geta aldrei sært mig,“ skrifar Melanie og minnir á að orðum fylgi ábyrgð. Þess má að lokum geta að Melanie er einn af stofnendum Lucky 3, hóps íslenskra myndlistarmanna af filippseyskum uppruna sem hefur haldið sýningar í Kling & Bang, Listahátíðinni LungA og framið gjörning á Sequences-listahátíðinni. Melanie situr einnig í stjórn gallerís- ins Kling & Bang. helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Heiður Melanie Ubaldo tók við styrk upp á eina milljón króna úr sjóði Svavars og Ástu í Listasafni Íslands í gær. „Listin gefur og gefur“ - Melanie Ubaldo myndlistarmaður hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur Ein ástsælasta gamanmynd Íslands- sögunnar, Sódóma Reykjavík, verð- ur sýnd í fyrsta sinn á stafrænu formi í Bíó Paradís í kvöld að við- stöddum leikurum, leikstjóra og öðrum sem komu að gerð hennar. Verður það sannkölluð föstudags- partísýning og fer myndin í reglu- legar partísýningar að hátíðar- frumsýningu lokinni. Kvikmyndin er frá árinu 1992, leikstýrt af Óskari Jónassyni og með helstu hlutverk fara Björn Jör- undur Friðbjörnsson, Eggert Þor- leifsson, Helgi Björnsson, Sigurjón Kjartansson, Sóley Elíasdóttir og Margrét Gústafsdóttir. Í myndinni segir af ungum manni, Axel, sem býr enn heima hjá mömmu sinni og vinnur á bifreiða- verkstæði. Líf mömmu hans snýst að mestu um sjónvarpsgláp og þeg- ar fjarstýringin týnist dag einn fer af stað óvænt atburðarás þar sem glæpamenn og furðufuglar koma við sögu. Kostuleg Sódóma Reykjavik er álitin ein besta gamanmynd Íslandssögunnar. Stafræn Sódóma frumsýnd í́ bíó Næstu tónleikar tóneikaraðar- innar Síðdegis- tóna í Hafnar- borg fara fram í dag, föstudag, kl. 18. Þá leikur Kvartett Sunnu Gunnlaugsdóttur en í honum eru, auk Sunnu sem leikur á píanó, þau Leifur Gunnarsson á kontra- bassa, Svanhildur Lóa Bergsveins- dóttir á trommur og Andrés Þór Gunnlaugsson sem leikur á gítar. Kvartettinn mun leika fjölbreytta efniskrá íslenskra djassslagara og íslenskra dægurlaga í djassbúningi. Verða þar lög úr smiðju Magnúsar Eiríkssonar, Jóns Múla Árnasonar og fleiri þekktra lagahöfunda. Tónleikarnir fara fram í aðalsal Hafnarborgar á annarri hæð og standa yfir í um það bil klukku- stund. Kvartett Sunnu leikur í Hafnarborg Sunna Gunnlaugs Valgerður Ýr Walderhaug opn- ar sýninguna Kökur eru mál- verk, málverk eru kökur í Lista- sal Mosfellsbæjar í dag en ekki verður sérstök opnun vegna hertra samkomu- takmarkana. Sýningin er innsetning með mál- verkum, skúlptúrum og fundnu efni og sótti Valgerður innblástur í kök- ur og aðra eftirrétti, „hið girnilega og ógirnilega og samspil mannsins við umhverfi sitt og neyslumenn- ingu“, eins og segir í tilkynningu. Verkin eru gerð í óreiðukenndu og tilraunakenndu ferli þannig að um- hverfið minnir á eldhús þar sem allt er á rúi og stúi eftir langa, maníska bökunarnótt. Valgerður hefur ný- lokið framhaldsnámi við Lista- háskólann í Þrándheimi. Kökur eru málverk, málverk eru kökur Valgerður Ýr Walderhaug

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.