Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 32

Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 32
ER KOMINN Í HÚS DURANCE JÓLAILMUR 2021 MODULAX HÆGINDA- STÓLAR RAFSTILLANLEGIR HLEÐSLUSTÓLAR – FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI NÝ SENDING STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Gerðu frábær kaup fyrir jólin Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Tónleikar verða haldnir í Máli og menningu á Laugavegi í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20. Edda Borg og hljómsveit koma fram og leika efni af plötum hennar sem hafa að geyma djasstónlist af gerðinni „smooth jazz“. Edda Borg varð þekkt fyrir leik sinn á „keytarinn“ á níunda áratugnum og hefur nú dustað rykið af hljóðfærinu og mun leika á það í kvöld. Með Eddu í hljómsveitinni eru Benedikt Brynleifsson sem leikur á trommur, Bjarni Sveinbjörnsson sem leikur á bassa og Friðrik Karlsson sem leikur á gítar. Edda Borg og félagar halda djasstónleika í Máli og menningu FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Óvæntustu úrslit tímabilsins til þessa í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, litu dagsins ljós á Ísafirði í gær þegar nýliðar Vestra lögðu topplið Grindavíkur að velli í sjöundu umferð deildarinnar. Þrátt fyrir tapið er Grindavík áfram í efsta sæti deild- arinnar með 10 stig en Vestra er tíunda sætinu með 4 stig, tveimur stigum frá fallsæti. Þá vann Stjarnan 87:73-sigur gegn Tindastól í Garðabæ, Njarðvík lagði Breiðablik 110:105 í Njarðvík og ÍR vann öruggan sigur gegn KR, 107:85, í Breiðholti. »27 Nýliðar Vestra gerðu sér lítið fyrir og lögðu topplið Grindavíkur ÍÞRÓTTIR MENNING sókn sé ég æ betur hvað fólk af ís- lenskum ættum heldur góðu lífi í íslenskri menningu. Það er í raun stórkostleg upplifun og eins er merkilegt að sjá hvernig menn- ingin hefur blómstrað. Rithöfund- urinn Bill Valgardson hefur til dæmis oft sagt hvað hann væri heppinn að vera frá Gimli því þar hafi rithöfundar verið svo mikils metnir frá því Íslendingar settust þar að.“ Vestur-Íslendingar haldi vörð um íslensku arfleifðina og þeir leggi mikla áherslu á að koma til Íslands til þess að finna ræt- urnar. Metnaðarfullt þing bíður næsta árs og Hulda segir nóg að gera. Stefnt sé að því að Snorraverk- efnin fari aftur í gang og koma þurfi Snorrum í samband við ætt- ingja hérlendis, því það sé mik- ilvægur liður í tengingunni. „Fyrir þessa krakka jafnast ekkert á við það að kynnast íslenskum heim- ilum, að ég tali ekki um hjá frænd- fólki, og fá upplýsingar beint í æð um hvar og hvernig forfeðurnir bjuggu. Vel er tekið á móti okkur vestra og með því að borga í sömu mynt styrkjum við enn böndin.“ Hulda segir jafnframt að mikil- vægt sé að viðhalda fræðslu í grunnskólum landsins um vestur- ferðirnar og afkomendur Íslend- inga í Vesturheimi. „Þess vegna ákváðum við að styrkja skólaverk- efni í þessa veru og nemendur hafa sýnt þeim mikinn áhuga. Fræðslan hefur mikið að segja svo tengslin rofni ekki og sýnir að ástæða er til að útgefið námsefni um þennan þátt sögu okkar sé í stöðugri þró- un.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kórónuveirufaraldurinn hefur víða sett strik í reikninginn og til dæm- is varð að fresta Þjóðræknisþingi Þjóðræknisfélags Íslendinga, sem til stóð að halda á sunnudag, þar til næsta sumar. „Við höfum reynt að halda sjó í annarri starfsemi og sinna helstu málum en vegna sam- komutakmarkana höfum ekki get- að haldið þing síðan á 80 ára af- mælisárinu síðsumars 2019,“ segir Hulda Karen Daníelsdóttir, sem tók við sem formaður ÞFÍ það ár. Eitt af mikilvægustu verkefnum félagsins hefur tengst Snorraverk- efnunum undanfarin ár en ferðir Snorra til og frá Vesturheimi hafa eðlilega fallið niður í faraldrinum. Sömu sögu er að segja af reglu- bundnum fræðslufundum. Hulda Karen segir að samskiptunum hafi samt verið haldið gangandi á net- inu og stjórnin hafi haldið fundi mánaðarlega auk þess sem útgáfa rafrænna fréttabréfa hafi verið með eðlilegum hætti. „Við höfum haft um nóg að ræða og haldið úti reglulegri upplýsingagjöf á Facebook, jafnt frá starfi okkar og frá starfinu vestra.“ Merkileg saga Samskipti Íslendinga og Vestur- Íslendinga hafa verið góð undan- farna áratugi. Hulda Karen leggur áherslu á að viðhalda þeim og viðr- ar þá skoðun sína að Íslendingar eigi ekki aðeins að kynna sér sögu ættingja vestra heldur líka sögu annarra þjóðarbrota og tengsl þeirra. „Sagan er merkileg og fjöl- menningarlega samfélagið í Winni- peg og nágrenni er til dæmis sér- stakt rannsóknarefni út af fyrir sig.“ Í því sambandi bendir hún meðal annars á árlegu sumarhátíð- ina Folklorama. „Þarna býr fólk af mörgum þjóðarbrotum og gaman er að kynnast ólíkum lífsháttum á sama svæði.“ Hulda þekkir vel vesturíslenska samfélagið í Manitoba, var þar í námi og vann áður en hún flutti aftur til Íslands. Hún á kanadískan eiginmann og hefur haldið góðum tengslum vestur. „Ég bast fólkinu vestra traustum böndum, er í góðu sambandi við það og í hverri heim- Samskiptin skipta öllu - Snorraverkefni Þjóðræknisfélagsins aftur á dagskrá Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mörg verkefni Hulda Karen, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.