Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 4
Afkoma jökulárið 2020-2021
Vatnajökull
Hofsjökull
Langjökull
Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ,
Landsvirkjun og Veðurstofa Íslands
mH20
mH20
mH20
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sumarleysing á þremur stærstu
jöklum landsins, Vatnajökli, Lang-
jökli og Hofsjökli, var vel yfir með-
altali á jökulárinu 2020-2021 þrátt
fyrir kalt vor. Þannig var hún 30%
umfram meðallag fyrir Vatnajökul,
um 15% fyrir Langjökul og 13%
fyrir Hofsjökul. Heildarafkoma
þessara þriggja stærstu jökla
landsins á umræddu jökulári var
neikvæð eins og öll ár frá 1995 að
árunum 2015 og 2018 frátöldum.
Vatn skilar sér til virkjana
Afrennsli frá öllum þessum jökl-
um skilar sér að hluta til miðlana
og lóna Landsvirkjunar. Lands-
virkjun er í samstarfi við Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands um
afkomumælingar á Vatnajökli og
Langjökli. Veðurstofa Íslands
sinnir afkomumælingum á Hofs-
jökli og var sérstaklega fjallað um
þær og afkomu Hofsjökuls í Morg-
unblaðinu 6. nóvember sl.
Einnig eru gerðar afkomumæl-
ingar á öðrum minni jöklum,
gjarnan í samstarfi fyrrnefndra
stofnana auk Jöklarannsókna-
félags Íslands. Það á meðal annars
við um Mýrdalsjökul, Torfajökul
og Tungnafellsjökul.
Vorið var mjög kalt
Í samantekt Landsvirkjunar og
Jarðvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands um afkomumælingarnar á
jöklunum kemur fram að vetr-
arafkoman, það er hve mikið snjó-
aði á jökulinn yfir veturinn, var
15% undir meðaltali á Vatnajökli
miðað við fyrri athugunarár. Vetr-
arafkoman á Hofsjökli og Lang-
jökli var nálægt meðaltali allra at-
hugana eða +6% á Langjökli og
-6% á Hofsjökli.
Vorið var fremur kalt og úr-
komulítið, ekki ólíkt veðurfari að
vori undanfarin ár. Vorin 2016-
2021, að frátöldu vorinu 2019, voru
frekar svöl og nokkuð miklir
kuldakaflar í maí sem hægðu á
leysingu jökla. Nýliðinn maí var sá
kaldasti á árunum 1990-2021 og
júní var ekki langt frá því, sé tekið
mið af hálendi og jöklum landsins.
Metrennsli varð í ágúst
Síðustu vikuna í júní urðu mikil
umskipti í veðrinu. Við tók sam-
felldur hlýindakafli og urðu júlí og
ágúst í sumar með hlýjustu mán-
uðum á tímabilinu 1990-2021.
Þetta kom vel fram á rennsl-
ismælum Landsvirkjunar á há-
lendinu.
Rennsli í Hálslón, sem er að
mestu jökulleysing, var það
minnsta sem mælst hefur í maí frá
árinu 2006 og það þriðja minnsta í
júní á sama tíma. Svo skipti alveg
um og varð rennsli í júlí með því
mesta sem mælst hefur og rennsl-
ið í ágúst sló met.
Heildarafkoma jöklanna fæst
þegar reiknuð er heildarsumma
vetrarafkomunnar og sumarleys-
inga. Niðurstaðan sker úr um
hvort jöklarnir eru að tapa massa
eða bæta við sig.
Jöklarnir
rýrnuðu
Ljósmynd/Andri Gunnarsson
Jöklarannsóknir Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Hrafnhildur Hannesdóttir og Jacqueline Grech Licari greina borkjarna
sem tekinn var í Öræfajökli í vor. Unnið var að því að skrá afkomu. Einnig var tekið sýni til að greina örplast.
- Hofsjökull, Langjökull og Vatnajök-
ull skiluðu allir neikvæðri afkomu
Morgunblaðið/RAX
Vatnajökull Þessi mesti jökull á Íslandi og í Evrópu minnkaði í sumar eins
og hinir stóru jöklar landsins. Það bráðnaði meira en bættist um veturinn.
un HÍ,
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
GF Isabel ****
Costa Adeje
JÓL & ÁRAMÓT
Á TENERIFE
Flug og gisting á
huggulegu hóteli með
sundlaug, leikvelli og
barnalaug.
www.sumarferdir.is
info@sumarferdir.is | 514 1400
JÓL Á TENERIFE
23. desember - 06. janúar
GF Fanabe ****
Costa Adeje
Flug og gisting á vel
staðsettu hóteli með
góðu aðgengi að
ströndinni og verslunum.
23. - 28. desember
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir
karlmanni fyrir að hafa nauðgað þá-
verandi sambýliskonu sinni, meinað
henni útgöngu af heimili hennar,
hótað henni lífláti og beitt hana ým-
iss konar grófu ofbeldi, svo sem að
pota í augu hennar, þrengja að önd-
unarvegi konunnar, skalla hana,
sparka í hana og kasta þvagi yfir
hana.
Þá er hann einnig fundinn sekur
um að hafa ítrekað brotið nálgunar-
bann sem hann sætti vegna ógnandi
hegðunar og áreitis í garð konunnar.
Maðurinn braust einnig inn til kon-
unnar.
Áður hafði maðurinn fengið sex
ára dóm í héraðsdómi, en Landsrétt-
ur taldi rétt að þyngja dóminn í sjö
ár og að honum yrði gert að greiða
konunni fjórar milljónir í miskabæt-
ur, eða tvöfalda þá upphæð sem hér-
aðsdómur hafði dæmt konunni.
Brotin ófyrirleitin
Í dómi Landsréttar segir að brot
mannsins hafi verið „sérstaklega
ófyrirleitin og atlögur ákærða lang-
vinnar“. Þá er hann ekki sagður eiga
sér neinar málsbætur.
Í dómi héraðsdóms er farið nánar
yfir hvert brot fyrir sig, en þar kem-
ur meðal annars fram að hann hafi
nauðgað henni í byrjun árs 2020 og
haft í hótunum við hana. Þá tók hann
síma af konunni, skallaði hana, mein-
aði henni útgöngu af heimilinu og
dró hana um íbúðina þannig að stór
spegill féll á hana.
Þá hafi hann í framhaldinu kastað
þvagi á hana, skorið litla fingur með
skærum, haft í hótunum um að
klippa af henni fingurna og drepa
hana og slegið og bitið hana. Að lok-
um hafi maðurinn lagst ofan á kon-
una og brotið á henni kynferðislega.
Átti ofbeldið sér stað frá morgni
miðvikudags, en daginn eftir náði
konan að hringja í lögreglu.
Getur varðað 16 ára fangelsi
Eru brot hans heimfærð undir
ákvæði 218. gr. c í almennum hegn-
ingarlögum, en sú grein kom inn í
lögin með breytingum á lögum árið
2016. Er þar tekið á ítrekuðum og al-
varlegum brotum gegn núverandi og
fyrrverandi maka eða sambúðaraðila
eða niðja. Er maðurinn fundinn sek-
ur um brot gegn annarri málsgrein
laganna, en slíkt brot getur varðað
allt að 16 ára fangelsi.
Nauðgaði og
hótaði lífláti
- Engar málsbætur fyrir brotin