Morgunblaðið - 20.11.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.11.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 aryfirhafnir í úrvali LAXDAL er í leiðinni Skoðið laxdal.is Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ný jólalín FERÐAÞJÓNUSTU- FYRIRTÆKI Óska eftir að kaupa hvers konar fyrirtæki í ferðaþjónustu. Einnig kemur til greina að kaupa góða heimasíðu/sölusíðu. Vinsamlegast hafið samband 861 2319 eða 821 4331. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Í stefnumótunarplöggum landa í kringum okkur er markmiðið að ná daglegum reykingum fullorð- inna niður í 5%. Það má segja að við stefnum þangað hröðum skref- um,“ segir Viðar Jensson, verkefn- isstjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis. Í vikunni birtust nýjar tölur um reykingar á heimsvísu. Reykingar minnka ár frá ári og segir Viðar að sú sé einnig raunin hér á landi. Embætti landlæknis lætur gera könnun á reykingum landsmanna á hverju ári. Sú nýjasta er frá því í fyrra og mælir reykingar 18 ára og eldri. „Niðurstaðan er að 7,3% landsmanna á þessu aldursbili reykja,“ segir Viðar. Mikil notkun nikótínpúða Hann kveðst vonast til að þetta hlutfall minnki enn frekar á næstu árum, ekki síst vegna þess að reykingar hafi minnkað til muna hjá yngri aldurshópum. „Það sem er ánægjulegt er að tölur um reykingar ungmenna á framhalds- skólaaldri sýna að tíðnin er orðin mjög lág, eða um 1-2%. Árið 2018 reyktu í kringum 4% í þessum ald- urshópi og í kringum aldamót var þessi tala um 20%. Okkur tókst fyrir nokkru að ná niður tíðninni í grunnskólunum og nú er staðan sú að í framhaldsskólunum mælast mjög litlar reykingar. Þær hafa snarminnkað og það er mikið ánægjuefni.“ Í fyrra var í fyrsta skipti mæld notkun á nikótínpúðum hér á landi. Ljóst má vera að ungmenni hafa snúið sér að púðunum því þriðji hver á aldrinum 18-24 ára notar nikótínpúða annaðhvort dag- lega eða öðru hverju. Ekki er mik- ill munur á niðurstöðum eftir kynjum, að sögn Viðars. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að þótt reyk- ingafólki hafi fækkað hratt á síð- ustu árum þurfi áfram að berjast gegn ægivaldi tóbaksfyrirtækj- anna. Árið 2020 reyktu 1,3 millj- arðar manna í heiminum. Reyk- ingafólki hafði þar með fækkað um 20 milljónir frá árinu 2018. WHO segir að búast megi við áframhald- andi fækkun og árið 2025 muni 1,27 milljarðar reykja. Það eru um 20% jarðarbúa, 15 ára og eldri. Mikið hefur því áunnist frá alda- mótum en árið 2000 reykti næst- um því þriðjungur mannkyns. Mest reykt í Búlgaríu, Grikklandi og Lettlandi Eurostat, Hagstofa Evrópusam- bandsins, birti nýlega samantekt á reykingum í Evrópulöndum. Byggist sú samantekt á tölum frá árinu 2019 og þar kemur fram að 18,4% íbúa í ríkjum sambandsins 15 ára og eldri reykja daglega. Þar af reykja 12,6% færri en 20 sígarettur á dag en 5,9% reykja pakka eða þaðan af meira dag hvern. Ísland getur státað af því að vera það land innan Evrópusam- bandsins og EES-ríkja þar sem næstminnst er reykt. Aðeins í Sví- þjóð reykja hlutfallslega færri, en þar í landi reykja 6,4% lands- manna 15 ára og eldri. Tölur Ís- lands fyrir 2019 sýna að 7,5% landsmanna reyktu þá en af öðr- um löndum með lága tíðni reyk- inga má nefna Finnland (9,9%), Lúxemborg (10,5%), Portúgal (11,5%) og Danmörku (11,7%). Meðaltal í Evrópusambandsríkj- unum er 18,4% en mest er reykt í Búlgaríu, eða 28,7% landsmanna 15 ára og eldri. Í Grikklandi reykja 23,6% og í Lettlandi 22,1%. Þjóðverjar halda enn fast í rett- urnar en þar reykja 21,9% og litlu minna í Króatíu. Gleðiefni að unga fólkið reykir æ minna - Reykingar minnka - Aðeins Svíar reykja minna en við 2 9 % 2 4 % 2 2 % 2 2 % 2 0 % 2 0 % 19 % 18 % 18 % 18 % 18 % 17 % 15 % 15 % 14 % 12 % 12 % 10 % 10 % 7, 5 % 6 ,4 % Reykingar á Íslandi og í nokkrumEvrópulöndum B úl ga ría G rik kl an d Le tt la nd Þý sk al an d Au st ur rík i Sp án n Té kk la nd Li th áe n Pó lla nd E S B -m e ð a lt . Fr ak kl an d Íta lía H ol la nd B el gí a Ír la nd D an m ör k Po rt úg al N or eg ur Fi nn la nd Ís la nd Sv íþ jó ð Hlutfall reykingafólks árið 2019 Reykja innan við 20 sígarettur á dag Reykja 20 sígarettur á dag eða meira Heimild: Eurostat Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vinna við stjórnunar- og verndar- áætlun fyrir rjúpuna hófst fyrir ári og er stefnt að því að ljúka henni næsta vor. Áætlunin á að vera tilbúin þegar næsta rjúpnaveiðitímabil gengur í garð, að sögn Bjarna Jónasson- ar, auðlindafræð- ings og sérfræð- ings hjá Umhverfis- stofnun á sviði líf- ríkis og veiði- stjórnunar. Náttúrufræði- stofnun Íslands kemur einnig að vinnunni og veitir líffræðilegar upp- lýsingar og um vöktun. Einnig koma hagsmunaaðilar að verkinu. Áætlunin byggist á „Adaptive Har- vest Management“-hugmyndafræði. Það merkir að veiðistjórnun sé löguð að ástandi stofns á hverjum tíma. Henni hefur lengi verið beitt við veiði- stjórn í Bandaríkjunum og Evrópu. „Áætlanirnar miða að því að setja stjórnunarramma um hverja teg- und,“ segir Bjarni. „Í áætluninni verða líffræðilegar upplýsingar og helstu staðreyndir um tegundina. Höfð er samvinna við hagsmunaaðila. Þegar um er að ræða fugla sem eru veiddir þá eru það Skotveiðifélag Ís- lands, Fuglavernd, Bændasamtök Ís- lands og Samband íslenskra sveitar- félaga. Hugmyndin er að ná sátt um markmið áætlunarinnar. Í tilviki rjúpunnar er það að tryggja vernd- arstöðu tegundarinnar og um leið sjálfbæra nýtingu,“ segir Bjarni. Frumvarp um breytingu á lögum um villt dýr var sent Alþingi. Þar var m.a. kveðið á um stjórnunar- og verndaráætlanir. Frumvarpið fékk ekki afgreiðslu þá en verður væntan- lega tekið upp aftur. Engu að síður var ákveðið að halda vinnunni áfram. Bjarni segir að stjórnunar- og verndaráætlanirnar verði mikilvæg verkfæri til lengri tíma litið. Mikil- vægt sé að hafa hagsmunaaðila með í ráðum um nýtingu hinna ýmsu teg- unda. „Það verður misjafnt eftir teg- undum hvað þessar áætlanir verða endurskoðaðar oft. En það á að vera skýrt við lestur stjórnunar- og vernd- aráætlunar hvernig á að bregðast við ef eitthvað kemur upp á hjá hinum ýmsu dýrastofnum, eins og t.d. rjúp- unni. Við ætlum að reyna að finna ein- hver mörk og viðmið eins og t.d. ef stofninn nær lágmarki og hvernig brugðist verður við því. Eins ef stofn- inn verður mjög stór og hvaða áhrif það hefur.“ Hann segir að Náttúrufræðistofn- un hafi talið ásættanlegt að taka 9% úr hauststofni rjúpna. Ræða þurfi hvort það sé rétt viðmið og eins hvort það á að gilda jafnt þegar stofninn er mjög lítill eða mjög stór. „Það þarf að móta þessar reglur til lengri tíma svo við séum ekki alltaf í þessari óvissu varðandi veiðistjórnun rjúpunnar,“ segir Bjarni. Stjórnunar- og verndaráætlunin fyrir rjúpuna er sú fyrsta sem gerð er hér og vinnan við hana leggur línurn- ar. Stefnt er að því að gera fimm áætl- anir til viðbótar á næstu tveimur ár- um. Hugmyndin er að þær nái til ólíkra tegunda sem ýmist eru nýttar eða ekki. Má þar nefna grágæsastofn- inn sem nú stendur höllum fæti en veldur einnig tjóni, hugsanlega einnig einhverjar tegundir sem stundum eru nefndar vargfuglar og eru ekki nýttar til matar. Þannig getur fengist góð reynsla af áætlunargerð fyrir tegund- ir með ólík nýtingarsjónarmið. Stjórnunar- og verndaráætl- un fyrir rjúpuna er í smíðum - Reiknað með að áætlunin verði tilbúin í vor - Áætlanir fyrir fleiri dýrategundir Morgunblaðið/Lena Viderö Rjúpnaveiðar Stjórnunar- og verndaráætlunin fyrir rjúpuna er sú fyrsta sem gerð er hér og vinnan við hana leggur línurnar fyrir aðrar áætlanir. Bjarni Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.