Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ essar gjár geyma svo mikla sögu, þarna var setið í seli og einhvers staðar las ég að orðið gjálífi væri komið þaðan, enda voru haldin réttarböll í Búrfellsgjá. Þar er fjallskilarétt sem lagðist af árið 1920 en hún var hlaðin á nítjándu öld og skartar afar fallegum grjóthleðslum. Það er mik- il menningarsaga í þessum gjám sem er rosalega gaman að skoða, hugsa sér að þarna hafi verið dans- að og sungið og gjálífi stundað,“ segir Þuríður Sigurðardóttir mynd- listarkona um Búrfellsgjá í Garða- bæ og Selgjá, tvo af uppáhalds- stöðum hennar þar sem hún fer gjarnan til að ganga. Þura opnaði nýlega sýningu á málverkum sínum í Hörpu sem hún kallar Veggi. Við sköpun þeirra verka sótti hún inn- blástur í fyrrnefndar gjár, en mynd- efnið er þó aðallega frá Búrfellsgjá. „Álftanesið var ekki allt gras- lent, svo meðan beðið var eftir slætti ráku bændur fé sitt í sel í gjárnar. Á haustin ráku þeir svo féð til rétta í Búrfellsgjá, enda eina vatnsbólið þar í grennd á stóru svæði. Þarna er mikið af hellum og hellisskútum, gott afdrep fyrir smala og fólkið sem sat yfir fénu í seli.“ Þura segir upphaf þess að hún fór að færa veggi gjánna á striga liggja í því að hún fékk fyrir rúmu ári brjósklos í bak. „Á tímabili gat ég ekki farið út að ganga, ég var alveg draghölt, fann mikið til og þurfti að fara í að- gerð. Í því ástandi varð mér oft hugsað til gjánna minna og ég þráði að ganga þar. Ég fór því að mála stemningsmyndir þaðan, af ein- skærri löngun til að vera þar. Ég hugsaði þetta sem heilsubót sem varð í framhaldinu hluti af bataferli mínu.“ Dvergur frammi fyrir vegg „Mig langaði til að skila tím- anum í gegnum verkin mín, eins og við sæjum í gegnum bergið í þess- um veggjum, umbrotin frá því þetta forna hraun rann, en þetta er átta þúsund ára saga. Þarna býr eldur- inn, storknunin og seinna kemur gróðurinn, sem er það nýjasta í tíma. Mér fannst líka spennandi að veggir sem geta verið svo umlykj- andi og verndandi geta á sama tíma verið hindrun. Mér fannst gaman að fást við þessar áskoranir, en þegar ég byrjaði á þessum verkum vissi ég ekkert hvað ég væri að fara að gera. Ég stóð fyrir framan hvítan striga, dvergur frammi fyrir tveggja metra háum auðum ógnandi vegg. Þetta er allt unnið af ástríðu og af ást á þessu svæði úti í náttúrunni. Ég er að ögra sjálfri mér með því að tak- ast á við þetta, því það er svo mik- ilvægt í öllum listum að fara út fyrir normið og ögra. Frá því ég útskrif- aðist árið 2001 úr Listaháskólanum hef ég alltaf málað eitthvað sem kallar á mig en ekki eftir neinum öðrum lögmálum,“ segir Þura og bætir við að hún hafi í vikunni geng- ið í Búrfellsgjá til að þakka fyrir sig. „Ég talaði við veggina, því þeir hafa eyru eins og við vitum. Þegar ég kyssti veggina voru allir litir farnir, enda kominn vetur, en allt vaknar að nýju til lífs í vor. Þessi sí- breytileiki lita og áferðar eftir árs- tíðum er heillandi, það er alltaf hægt að sjá eitthvað nýtt á sama stað. Ég heimsótti ákveðna hluta af veggjunum sem ég var með í huga á hverju málverki, en eftir að ég hef málað þá eru þeir svolítið óþekkjan- legir af því ég fer ekki sömu hönd- um um þá og náttúran. Ég er ekki að skrásetja, heldur eru verkin mín unnin út frá tilfinningu.“ Kraftur hins mjúka er mikill Þuríður segist hafa verið upp- tekin af því að undanförnu, þegar hún hefur verið að mála náttúruna, hversu lífsviljinn er ótrúlega sterk- ur í náttúrunni og sum verkin á sýn- ingunni bera þess glöggt merki, þar má sjá litríkan lággróður í hörðu bergi, skófir, lyng og mosa. „Lífið kviknar í holum, syllum og sprungum. Lífið er alltaf að leita leiða og við vitum meira að segja dæmi um mjúkar jurtir sem brjóta sér leið upp í gegnum malbik, í átt til ljóss og lífs. Slíkur er kraftur hins mjúka. Þetta er góð áminning fyrir okkur um að leita ævinlega að ljósinu, láta ekki neikvæðni ráða för. Við þurfum á jákvæðni að halda, förum út í náttúruna og leikum okk- ur þótt við séum hömluð vegna samkomutakmarkana. Náttúran stendur allri fjölskyldunni til boða, hún er alltaf heilandi og tekur vel á móti öllum, alveg sama hvernig veðrið er, þetta er bara spurning um að klæða sig. Við erum svo rík að búa að þessari náttúru og allt í seilingarfjarlægð. Þessi lækninga- máttur náttúrunnar verður seint of- metinn.“ Komst aftur á hestbak Þura segist alltaf sjá eitthvað nýtt þegar hún kemur í Búrfellsgjá. „Þar er mikil fjölbreytni ef maður gefur sér tíma til að horfa. Þar má vel sjá hvernig hraunið hef- ur runnið, það eru miklar lóðréttar línur í sléttari flötum bergveggj- anna. Ég var byrjuð að mála þessi verk þegar ég gekk að gosinu í Geldingadölum og það var enn virkt, en við að finna lyktina og sjá storknunina þar, að sjá hvernig land verður til, þá bættist við tilfinningu mína gagnvart átta þúsund ára hrauninu í Búrfellsgjá. Hægt er að ganga ofan í gamla gíginn þar, en við það að standa á botni hans finn- ur maður sterkt fyrir allri þessari orku. Allt þetta hraun þar, sem er 24 ferkílmómetrar, það rann í einu gosi. Þetta er eldborg sem lætur ekki mikið yfir sér, en hún er ótrú- leg náttúrusmíð. Þetta eru svo mikil undur,“ segir Þura og bendir á eitt verka sinna þar sem hún líkt og horfir inn í vegginn, frá því að hann rann fyrir þúsundum ára, þar er glóð, gamall eldur býr að baki. Þura var heilt ár að ná fullum bata eftir brjósklosaðgerð, það tók tímann sinn að vinna úr því með sjúkraþjálfun og seinna göngum til gjánna. „Það skilaði árangri, með nátt- úrunni, hún er hluti af mínu bata- ferli. Ég gat aftur farið á hestbak í sumar, sem var yndislegt, því ég hef verið í hestamennsku allt mitt líf. Mér fannst mjög erfitt að missa hreyfigetu og geta hvorki farið út að ganga né á hestbak, því hluti af mínu lífi hefur verið að njóta úti- veru. Ég hef gert mikið af því að ganga á fjöll og hestaferðir eru fast- ir liðir. Það var huggun harmi gegn að geta farið út í náttúruna með því að mála málverk. Ég lít á það sem forréttindi.“ Horft í gegnum bergið Hér horfir Þura aftur í tímann, glóð frá fornu fari. Sterkur lífsvilji Líf kviknar á syllum, enda leitar lífið alltaf leiða til ljóss. Náttúran hluti af bataferli mínu „Á tímabili gat ég ekki farið út að ganga, ég var alveg draghölt, fann mikið til og þurfti að fara í aðgerð. Í því ástandi varð mér oft hugsað til gjánna minna og ég þráði að ganga þar. Ég fór því að mála stemningsmyndir þaðan, af einskærri löngun til að vera þar,“ segir Þuríður Sigurðardóttir myndlistarkona og hestakona um tilurð verka á sýningu hennar, Veggir. „Náttúran er heilandi og tekur vel á móti öllum.“ Ljósmynd/Ragnheiður Arngrímsdóttir Þuríður Hér er hún við hluta af einu verki sýningarinnar, þar sem mosi sprettur fram í sprungum bergsins. Ljósmynd/Úr einkasafni Búrfellsgjá Þura á þessum uppáhaldsstað, þaðan sem hún fékk innblástur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.