Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 16
Fréttir Frétt úr Morgunblaðinu um slysið sem varð nærri Kirkjubæjar-
klaustri um verslunarmannahelgina 2013 þegar tvær stúlkur létust.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta er slys sem alltaf situr í minni
mér og sú hugsun sækir á mig að
þarna hefðu bílbeltin ef til vill bjargað
mannslífum,“ segir Elís Kjartansson,
lögreglufulltrúi á Suðurlandi. Tvær
unglingsstúlkur létust þegar fólksbíll
valt á þjóðveginum í Eldhrauni,
nokkru fyrir vestan Kirkjubæjar-
klaustur, 4. ágúst 2013. Fernt var í
bílnum, allt fólk frá Póllandi.
Stúlkurnar voru í aftursæti og köst-
uðust út úr bílnum í veltunum. Talið
er að önnur hafi látist samstundis, en
hin lést á vettvangi. Lífgunartilraunir
sjúkraflutninga- og björgunarmanna
báru ekki árangur. Í framsætum voru
fullorðinn karl og kona, sem slösuðust
mikið og voru flutt á sjúkrahús með
þyrlum Gæslunnar. Konan var móðir
annarrar stúlkunnar sem létust, en
hin var hér á landi í heimsókn hjá
þessu vinafólki sínu.
Fór út af veginum
og eldur kviknaði
Árlegur alþjóðlegur minningardag-
ur um fórnarlömb umferðarslysa er á
morgun, sunnudag. Eins og segir frá í
hliðargrein hér á síðunni er athygli að
þessu sinni beint að mikilvægi notk-
unar öryggisbelta. Í því efni er þörf á
vitundarvakningu. Íslendingar eru í
17. sæti Evrópuþjóða hvað notkun ör-
yggisbelta varðar, en um 7% vegfar-
enda nota ekki belti samkvæmt vett-
vangskönnun sem Samgöngustofa lét
gera nýlega.
En aftur að slysinu í Eldhrauni,
sem varð á sunnudegi um verslunar-
mannahelgi. Bílnum var ekið í aust-
urátt, hvar hann fór út af slitlaginu á
veginum hægra megin. Ökumaður
reyndi að bregðast við með því að
rykkja bílnum af vegöxlinni og inn á
akbrautina. Með því fór bíllinn hins
vegar út af veginum og nokkrar velt-
ur og því næst af veginum vinstra
megin. Þar kviknaði í bílnum og var
fólkinu í framsætum bjargað úr
brennandi flakinu. Önnur stúlkan
hafnaði skammt frá bílnum og var lát-
in þegar að var komið. Hin kastaðist
upp á hraunhól 20-30 metra frá bíln-
um.
Rökrétt að belti hefðu bjargað
„Sú stúlka var með lífsmarki sem
fjaraði út. Aðkoman að þessu slysi
var hræðileg,“ segir Elís, sem fór frá
Selfossi til rannsókna á vettvangi í
Eldhrauni. Á staðinn voru áður
komnir tveir lögreglumenn úr héraði,
björgunarsveitarmenn, slökkvilið og
læknar frá Vík og Kirkjubæjar-
klaustri.
Samkvæmt hraðaútreikningi sem
gerður var í þágu rannsóknar máls
var niðurstaðan sú að bílnum hefði
verið ekið á að minnsta kosti 114 km/
klst en ekki hraðar en 134 km/klst.
Áætlaður hraði þegar slysið varð var
124 km/klst. Vegurinn var þurr og
veður ágætt.
Málið fór fyrir dóm og var ökumað-
urinn dæmdur í skilorðsbundið níu
mánaða fangelsi vegna dauða tveggja
farþega og stórfelldrar líkamsmeið-
ingar á farþega í framsæti. Einnig til
ökuleyfissviptingar í tvö ár og til
greiðslu á öllum máls- og sakarkostn-
aði, sem var nokkrar milljónir króna.
„Bílbeltin urðu án vafa fólkinu í
framsætunum til lífs. Því tel ég rök-
rétt að álykta að stúlkurnar hefðu lif-
að hefðu þær líka verið í beltum,“
segir Elís.
Efasemdir um skyldunotkun
Frá fyrri tíð minnist Elís efasemda
og jafnvel andstöðu ýmissa þegar tal-
að var fyrir skyldunotkun bílbelta,
sem á endanum var lögfest af Alþingi.
„Innilokunartilfinning var ein rök-
semdin gegn bílbeltum, hjartasjúk-
dómar annar eða að mjög reyndi á
axlir að spenna beltin. Til var fólk
sem fékk jafnvel læknisvottorð með
tilbúnum rökum fyrir því að þurfa
ekki að nota bílbelti. Svona þekkist
ekki lengur. Eftir 33 ár í lögreglunni
hef ég komið að mörgum umferðar-
slysum. Minnist í því sambandi meðal
annars veltna, þar sem fólk kastaðist
út um glugga bíla sem það fékk svo
yfir sig og lést. Slík slys voru nokkur
fyrr á tíð, enda fóru viðbúnaður og
aðgerðir lögreglu og sjúkraflutninga
alltaf á hæsta stig þegar við fengum
tilkynningar um bílveltur. Í dag eru
svona tilvik fátíðari og almennt slepp-
ur fólk mun betur frá árekstrum,
veltum og öðru slíku nú en áður. Þar
kemur til að vegir og bílar eru örugg-
ari og betri, þótt hinn mannlegi þátt-
ur ráði alltaf mestu um umferðarslys-
in,“ segir Elís Kjartansson að
síðustu.
Ekki í belti og aðkoman hræðileg
Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi
Slys Á vettvangi í Eldhrauni í umræddu slysi. Eftir veltur brann bíllinn, sem
fólk í framsæti var dregið út úr. Stúlkurnar í aftursætunum köstuðust út.
Lögreglumaður Eftir 33 ár í lögreglunni hef ég komið að mörgum umferðarslysum, segir Elís Kjartansson. Minnist
í því sambandi sérstaklega bílveltna þar sem fólk kastaðist út og fékk ökutækið svo jafnvel rúllandi yfir sig.
- Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er á morgun, sunnudag - Tvær stúlkur létust í um-
ferðarslysi í Eldhrauni árið 2013 - Með lífsmarki sem fjaraði út - Bílar og vegir öruggari nú en áður
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Á árlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
á morgun, sunnudag, er kastljósi beint að afleiðingum
þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Athöfn verður við
björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík, sem hefst
kl. 14. Þar verða forseti Íslands og samgönguráðherra
viðstaddir og flytja ávörp. Þeir, ásamt fulltrúum þeirra
stofnana sem sinna aðgerðum á vettvangi umferðar-
slysa, kveikja á kertum til minningar um þá sem látist
hafa. Boðuð verður einnar mínútu þögn sem landsmenn
eru hvattir til að taka þátt í. Streymt er frá athöfninni
meðal annars á vefnum minningardagur.is.
Sautján viðburðir eru skipulagðir um land allt og verða
flestir þeirra í beinu vefstreymi. Á Suðurlandi koma
fulltrúar björgunarsveita, lögreglu, slökkviliðs og fleiri
saman undir Ingólfsfjalli við athöfn, sem hefst kl. 18. Ein-
kennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í
flutningi hans og Ellenar systur hans, en það var samið
til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í
Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt á útvarps-
stöðvum á morgun kl. 14.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum
Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóv-
ember ár hvert þessu málefni. Um það bil 3.600 manns
láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í
heiminum á degi hverjum, segir í fréttatilkynningu frá
Samgöngustofu. Tilgangur þessa alls er að minnast
þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að
ábyrgð hvers vegfaranda, segir enn fremur.
Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25.
ágúst 1915 hafa alls 1.592 látist í umferðinni hér á landi.
Það sem af er þessu ári hafa sjö látist í umferðarslysum
á Íslandi, jafn margir og allt árið í fyrra.
Ábyrgðin er vegfarenda
MINNINGARDAGUR UMFERÐARSLYSA VIÐBURÐUR Á HEIMSVÍSU
Minning Björgunarfólk á minningarstund við Ingólfsfjall 2019.
Mörg slys hafa orðið á leiðinni milli Reykjavíkur og Selfoss.