Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Kristalshellir er nafn við hæfi,“
segir Gunnar Guðjónsson fjalla-
maður. Hann starfar hjá ferðaþjón-
ustufyrirtækinu Sleipnir tours en
starfsmenn þess og Amazing tours
fundu nýlega íshellinn í sunnan-
verðum Langjökli sem sagt var frá í
Morgunblaðinu á dögunum.
Gunnar, sem hefur þvælst mikið
um hálendið, segir staðkunnuga
lengi hafa leitað íshella í Langjökli í
því skyni að finna staði sem gætu
orðið aðdráttarafl í ferðaþjónustu.
Sjónir og áherslur manna beind-
ust að Suðurjökli, sem liggur frá
meginjöklinum til norðausturs
nærri Bláfellshálsi.
„Á gervitunglamyndum, sem
teknar voru fyrir nokkrum mán-
uðum, sést vatnssvelgur í Suður-
jökli, sem var horfinn þegar við
komum á staðinn í haust. Slíkt gaf
vísbendingu um að eitthvað gæti
leynst undir,“ segir Gunnar.
Í könnunarferðunum á Lang-
jökul komu menn fyrst niður á
nokkra litla íshella, sem komast
mátti í hættu- og fyrirhafnarlítið.
Áfram var þó haldið og höggvið í
hjarnið. Leið þá ekki á löngu uns
komið var í hellinn mikla, en af
yfirborði eru um 15 metra löng
göng inn í hvelfingu. Litið af þrepi
þegar komið er inn í hellinn sé hann
40-50 metrar á breidd og þaðan af
hærri.
Breytingar með hlýnun
„Þessi staður er mikilfenglegur
og kemur á óvart,“ segir Gunnar
Guðjónsson sem hefur verið á Suð-
urjökli síðustu vikur. Þar hefur
mannskapur verið að grafa göng
og höggva til tröppur að hellinum,
en kapp var lagt á að skapa örugga
leið sem væri öllum fær. Samhliða
þessu hefur verið sett upp lýsing í
hellinum.
Fyrir um einum og hálfum mán-
uði var fyrsti leiðangurinn með
ferðamenn á Kristalshelli. Einnig
var starfsfólki í ferðaþjónustuu
boðið á svæðið til að kynna sér nýj-
an áhugaverðan viðkomustað. Í
boði eru þjár ferðir á viku í hellinn,
miðvikudag, föstudag og laugar-
dag. Lagt er upp frá Skjóli, sem er
rétt austan við Geysi í Haukadal.
Tekur hver leiðangur fjórar til
fimm klukkustundir og fimmtíu
manns komast í hvern þeirra. Farið
er ýmist á vélsleðum eða átta hjóla
ofurtrukk sem Sleipnir gerir út.
„Við væntum þess að Kristals-
hellir haldist í svo sem þrjú ár héð-
an í frá. Allt er þetta hluti af þeim
breytingum í náttúrunni sem nú
eiga sér stað með hlýnun andrúms-
loftsins,“ segir Gunnar.
Undur Augað nemur alltaf eitthvað nýtt á óvenjulegum stöðum.
Kristalshellir
kemur á óvart
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kynjamyndir Horft yfir hellinn mikla sem er 40-50 metrar á breidd og þaðan af hærri. Fólk á stalli í hellisbotni.
Landkönnuðir Maðurinn má sín lítils í þessu stórbrotna
umhverfi, þar sem klofa þarf skafla og fara yfir ís til þess
að komast í undraveröldina undir hjarnbreiðunni.