Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 22
VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lögfræðistofan BBA//Fjeldco er með starfsstöð í London, sem aðstoðar ís- lenska aðila í tengslum við fjárfest- ingar í London og annars staðar er- lendis sem og erlenda aðila vegna fjárfestinga þeirra á Íslandi. Í kjölfar sameiningar BBA og Fjeldco fyrir tveimur árum var blásið nýju lífi í skrifstofu BBA í London. Nú starfa fjórir lögmenn á henni en tilheyra eft- ir sem áður hópi ríflega 30 lögmanna sem einbeita sér alfarið að fyrirtækja- lögfræði. Gunnar Þór Þórarinsson er í hópi eigenda stofunnar og hann fer fyrir starfseminni í London. Morgunblaðið náði tali af honum nú fyrir helgina þar sem hann var staddur á skrifstofunni þar í borg en hún er til húsa í Berke- ley Square House í Mayfair-hverfinu í London. „Við finnum nokkuð stöðuga aukningu í áhuga á Íslandi meðal fjár- festa hér í Bretlandi. Horfa meira út á við Fyrir því kunna að vera ýmsar ástæður en ein þeirra er sennilega sú að Bretar horfa nú meira út á við í leit að tækifærum en þeir gerðu meðan þeir voru enn hluti af Evrópusam- bandinu,“ segir Gunnar Þór. Hann segir að þótt Theresa May, þáverandi forsætisráðherra Breta, hafi útskýrt útgöngu landsins á þann hátt að Brexit þýddi Brexit (e. Brexit means Brexit) hafi menn fljótlega áttað sig á að myndin væri talsvert flóknari en svo. Hins vegar skapist nú tækifæri sem m.a. lúti að orkuöflun og þar sé eðlilegt að Bretar horfi m.a. til Ís- lands. „Hlutirnir snúast mikið um orku og þá ekki síst endurnýjanlega orku eins og COP26-fundurinn í Glasgow undir- strikar svo vel. Bretar flytja inn mikla orku og horfa þar m.a. til tækifæra á Íslandi, en einnig í löndum á borð við Noreg. Það eru tækifæri í samvinnu við Breta nú, sem ekki hefðu verið til staðar ef þeir hefðu haldið sig innan ESB.“ Gunnar Þór segir mikilvægt fyrir fyrirtæki á borð við BBA//Fjeldco að hafa fasta starfsstöð í London. Þannig sé auðveldara að þjónusta markaðinn. „Við fáum talsvert af símtölum og beiðnir um fundi til þess að skýra frá stöðunni heima á Íslandi. Það á við um orkumálin en fleiri svið einnig. En starf okkar í London er ekki aðeins hefðbundið starf lögfræðinga. Við er- um einnig að leita tækifæra sem við teljum að geti nýst og erum þannig að kynna áhugaverða fjárfestingarkosti sem við þekkjum til heima. Stundum skilar það verkefnum innan skamms tíma en stundum verða þau að veru- leika innan einhverra ára. Stór hluti vinnunnar er þannig í raun landkynn- ing, að sumu leyti ekki ósvipað því sem sendiráðið er að gera en sendi- herra Íslands, Sturla Sigurjónsson, hefur verið óþreytandi að vinna í þágu íslenskra hagsmuna.“ Stór verkefni og lengra komin Bendir Gunnar Þór á að í orkumál- unum lúti verkefnin sem stofan hefur komið að bæði að stórverkefnum sem enn eru á hugmyndasviði en einnig þeim sem lengra eru komin og tengj- ast m.a. grænni orku eins og vindorku sem og fyrirtækjum sem sinna rann- sóknum eða þróunarstarfi á sviði orkuframleiðslu eða annarri nýsköp- un. Í starfinu í London kemur bak- grunnur Gunnars Þórs sér vel en á ár- unum eftir bankahrun fór stór hluti tíma hans í störf fyrirerlenda kröfu- hafa föllnu bankanna. Hann segir að sú vinna hafi fært sér heim sanninn um að mörg tækifæri hafi skapast í eftirleik hrunsins. „Það var tvíþætt. Annars vegar losnaði úr læðingi mikill kraftur með því fólki sem kom út úr bönkunum. Það missti margt hvert vinnuna og beindi kröftum sínum í uppbyggingu fyrirtækja sem eru að springa út núna. Það á t.d. við um Controlant og fleiri fyrirtæki. Hitt er að stórar og öflugar fjármálastofnanir keyptu kröfur og tóku að kynna sér stöðu mála á Íslandi. Þar hefur byggst upp mikil þekking sem ekki var áður fyrir hendi. Á grundvelli þeirrar þekkingar eru fulltrúar sömu stofnana að leita spennandi tækifæra í íslensku efna- hagslífi.“ Samskiptin á góðum nótum Spurður út í meint harðræði ís- lenskra stjórnvalda gagnvart kröfu- höfunum við uppgjör slitabúanna seg- ir Gunnar Þór að það virðist ekki hafa komið að sök. „Niðurstaðan í þeim málum var ásættanleg fyrir alla aðila. Ef kröfu- hafarnir hefðu talið sig illa brennda eftir samskiptin við stjórnvöld á Ís- landi þá hefðu þeir einfaldlega haft sig á brott. Þess í stað eru þeir enn að fjárfesta í hagkerfinu.“ Blaðamaður beinir þá aftur talinu að Brexit og eftirmálum þess. For- vitnilegt er að heyra álit lögfræðings sem starfar á markalínum bresks og íslensks efnahagslífs á því hvort út- gangan hafi kallað yfir fyrirtæki óbærilegt flækjustig. „Það held ég alls ekki og raunar miklu minna en búist var við. Það hafa sannarlega verið byrjunar- örðugleikar á inn- og útflutningi sem og við umsókn atvinnuleyfa og verið ákveðið flækjustig í fjármálastarf- semi en það er meiratæknilegs eðlis. Við höfum því ekki þurft að sinna mörgum erfiðum úrlausnarefnum hvað þetta varðar og getað beint kröftunum í aðra átt.“ Líkt og að framan greinir eru starfsmenn stofunnar í London fjórir talsins. Gunnar segir það ekki mark- mið í sjálfu sér að stækka starfsstöð- ina þar í borginni. Því fylgi eðlilega kostnaður að halda úti starfsemi í borg á borð við London. Markmiðið er fyrst og fremst að veita góða þjón- ustu. „Við höfum fjölgað í hópnum vegna verkefna sem kalla á það og ef um- svifin aukast er ekki loku fyrir það skotið að við munum fjölga frekar en það er alls ekki markmið í sjálfu sér.“ Mikill áhugi í Bretlandi á tækifærum á Íslandi London Gunnar fyrir utan skrifstofur BBA//Fjeldco í Mayfair-hverfinu. Fókus á Englandi » Gunnar Þór Þórarinsson hlaut lögmannsréttindi á Ís- landi árið 2002. » Hann er með lögmannsrétt- indi í Englandi og Wales frá árinu 2011. » Með honum á skrifstofunni í London starfa lögmennirnir Claire Brommhead, Emma Hickman og Anna Björg Guð- jónsdóttir. - Lögfræðistofan BBA/Fjeldco færir út kvíarnar í Bretlandi - Hrunið opnaði tækifæri 22 VIÐSKIPTI Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 20. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.16 Sterlingspund 176.78 Kanadadalur 104.09 Dönsk króna 20.01 Norsk króna 14.951 Sænsk króna 14.798 Svissn. franki 141.57 Japanskt jen 1.1483 SDR 183.71 Evra 148.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6699 « Hagnaður Landsvirkjunar á fyrstu níu mán- uðum ársins nam 103 milljónum bandaríkjadala eða rúmum 13 mö.kr., en var 61 milljón dala á sama tíma í fyrra, eða átta milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagns- liði nam 154 millj. dala, eða 20 mö.kr., og hækkar um 66,6% frá sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur námu 397 m. dala, eða 51,6 mö.kr, og hækkuðu um 21% frá sama tímabili árið áður. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkj- unar segir í tilkynningunni að rekstrar- umhverfi fyrirtækisins hafi haldið áfram að batna á þriðja fjórðungi ársins. Hag- ur viðskiptavina hafi haldið áfram að vænkast, en þeir hafa jafnt og þétt auk- ið raforkunotkun sína og keyri flestir á fullum afköstum, auk þess sem eftir- spurn eftir framleiðslu þeirra hafi náð fyrri styrk og sé í mörgum tilvikum meiri en hún var í upphafi faraldursins. „Raforkukerfi Landsvirkjunar nálgast það nú að vera fullnýtt. Meðalálverð á tímabilinu var nærri helmingi hærra en á sama tíma árið áður, auk þess sem raforkuverð á Nord Pool-markaðinum fimmfaldaðist, eftir sögulega lágt verð í fyrra,“ segir Hörður. Landsvirkjun hagnast um 13 milljarða króna Hörður Arnarson STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Pálmar Harðarson, framkvæmda- stjóri Þingvangs, segir fyrirtækið komið á réttan kjöl eftir endurskipu- lagningu og góðan gang í sölu eigna. Fyrsta skóflustungan var tekin í gær að fyrsta fjölbýlishúsinu af átján sem Þingvangur mun reisa í Breiðumýri á Álftanesi en þar verða alls 252 íbúðir. Hvert hús með 14 íbúðum. Pálmar áætlar að uppbyggingin taki þrjú til fjögur ár. Fjölbýlishúsin munu rísa við Lambamýri, Grá- steinsmýri og Hestamýri. Kvöð er um bílastæði í kjallara á fyrsta bygg- ingarreit en það er valkvætt á næstu tveimur reitum. Hluti íbúðanna er ætlaður fyrstu kaupendum. Ekki er gert ráð fyrir að bílastæði í kjallara fylgi íbúðum fyrir þann hóp. Pálmar væntir mikillar eftir- spurnar. „Það er enda ekki ein ein- asta íbúð í sölu á Álftanesi. Reyndar myndi ég frekar kalla Álftanesið Vesturbæ Garðabæjar. Sveitarfélög- in hafa verið sameinuð og eru að renna saman,“ segir Pálmar. Þingvangur var sem fyrr segir endurskipulagður. Hluti af því var að færa lóðir í nýtt systurfélag, Hús- bygg, þ.m.t. á Álftanesi. Þingvangur átti fimm dótturfélög en í upphafi síðasta árs voru tvö, Víðines og Skagatorg, sameinuð félaginu. Þá seldi Þingvangur fjárfestingareignir til að styrkja eiginfjárstöðuna en vegna taprekstrar í fyrra lækkaði eigin fé fyrirtækisins töluvert. Hins vegar hefur verið góður hagnaður af rekstrinum í ár og hefur eiginfjárstaðan styrkst mikið. Þingvangur var á siglingu eftir vel heppnaða uppbyggingu á Granda- vegi í Vesturbæ Reykjavíkur. Uppbygging 70 íbúða á Brynjureit í Reykjavík reyndist félaginu hins vegar þungur baggi. Offramboð skapaðist af nýjum og dýrari íbúðum í miðborginni á tímabili og hægðist á markaðnum í kjölfar gjaldþrots WOW air í mars 2019 og minni eft- irspurnar eftir íbúðum í skammtíma- leigu. Ein afleiðingin var gjaldþrot Skelfisksmarkaðarins en Þingvang- ur átti húsnæðið. Þá tafði kórónu- veirufaraldurinn uppbyggingu hjá félaginu, m.a. vegna röskunar á smíði forunninna byggingareininga. Félagið náð vopnum sínum Þingvangur hefur, að sögn Pálm- ars, síðan náð vopnum sínum. Sala 37 íbúða í háhýsi á Akranesi gekk vel og sömuleiðis uppbygging íbúða fyr- ir Bjarg á Hallgerðargötu á Kirkju- sandi (80 íbúðir) og fyrir Upphaf á Kársnesi í Kópavogi (129 íbúðir). Síðast en ekki síst seldi Þingvangur heilt fjölbýlishús við Elliðabraut 4-6 í Norðlingaholti, alls 83 íbúðir, til leigufélagsins Öldu í október sl. Þótt uppbyggingin á Kirkjusandi og Kársnesi hafi gengið vel varð tap af verkefnunum, að sögn Pálmars, vegna röskunar í faraldrinum. Teikning/Arkþing Uppbygging Fyrirhuguð fjölbýlishús sem Þingvangur reisir á Álftanesi. Byggir 18 fjölbýlishús á Álftanesi - Þingvangur er kominn á réttan kjöl eftir bakslag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.