Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingar Byggingafyrirtæki getur bætt við sig verkum Uppslátt á húsum og sökklum. Þakendurbætur, tek niður pantanir fyrir næsta ár 2022, geri tilboð í verk. Stálgrindarhús, geri tilboð, er í samstarfi við innflutningsaðila. Sumarhús, breytingar eða byggja nýtt hús, geri tilboð. Nánari upplýsingar , Bjössi smiður á google, s 893-5374 nybyggd@gmail.com Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Verð kr. 6.500 Stærð 6-24 Verð kr. 2.500 Stærð S-XXL netverslun www.gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Raðauglýsingar 569 1100 Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is HÚSNÆÐISÖFLUN HSS Í REYKJANESBÆ Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að taka á leigu skammtímahúsnæði fyrir heilsugæslu, ásamt aðstöðu fyrir geðheilsuteymi, fyrir HSS í Reykjanesbæ. Einnig er gefinn kostur á að bjóða húsnæði aðeins fyrir heilsugæslu eða húsnæði aðeins fyrir geðheilsuteymi. Afmörkun verkefnis Miðað er við að taka á leigu þegar byggt húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 6-12 mánaða frá undirritun leigusamnings, samkvæmt kröfum leigjanda. Gerð er krafa um staðsetningu í Reykjanesbæ, í nálægð við stofnbrautir og almenningssamgöngur. Gert er ráð fyrir að leigutími verði 5 ár auk mögulegrar framlengingar. Gott aðgengi skal vera fyrir alla þ.m.t. hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og nægilegur fjöldi bílastæða fyrir skjólstæðinga og starfsfólk. Óskað er eftir verðhugmyndum fyrir boðið húsnæði í samræmi við þær kröfur sem settar eru fram í meðfylgjandi húslýsingu sem líta ber á sem dæmi um kröfur til tilvonandi húsnæðis. Ferlið Fyrsta skrefið í þessu ferli er að óska eftir upplýsingum frá markaðnum um framboð á húsnæði sbr. kröfur sem fram koma í húslýsingu á svæði verkefnisins í TendSign, hinu rafræna útboðskerfi Ríkiskaupa. Að könnun lokinni verður tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir tilboðum í samræmi við hefðbundið leiguferli eða hvort samið verði við tiltekinn aðila á grundvelli þessarar könnunar. Leigjandi áskilur sér rétt til að semja við tiltekinn aðila á grundvelli könnunar þessarar ef hagstætt húsnæði er boðið á grundvelli könnunarinnar og uppfyllir fyrrnefndar kröfur. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss, skipulag húsnæðis út frá fyrir- hugaðri starfsemi, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu. Spurningar til áhugasamra fyrirtækja Þess er óskað að þau fyrirtæki sem telja sig uppfylla ofangreindar kröfur svari eftirfarandi spurningum: 1. Hvert er nafn fyrirtækisins eða samstarfsfyrirtækjanna og kennitala/–tölur? 2. Óskað er eftir upplýsingum um verðhugmyndir fyrir húsnæði að þessari stærð og í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt reynslu viðkomandi. 3. Staðsetning húsnæðis sem boðið er til leigu. 4. Vill fyrirtækið/-in koma einhverjum upplýsingum eða athugasemdum á framfæri í tengslum við fyrirhugað leiguverkefni ? Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila um almennt ástand húsnæðis, t.a.m. að það sé laust við raka og myglu. Fyrirspurnir varðandi verkefni 21607 skulu sendar rafrænt í gegnum TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnartími rennur út föstudaginn 26. nóvember 2021. Þess er óskað að svörum sé skilað í gegnum vefinn Tendsign.is eigi síðar en föstudaginn, 3. desember 2021 kl. 12:00. Allar nánari upplýsingar um ferlið og þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/. Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa. Vakin er athygli á því að leiði markaðskönnun þessi til undirritunar samnings eru slíkir leigusamningar undanskildir lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Sjá nánar á www.utbodsvefur.is MARKAÐSKÖNNUN Tilkynningar Tilboð/útboð Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is HÚSNÆÐISÖFLUN FYRIR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ - ÆFINGASALUR Ríkiskaup f.h. Framkvæmdarsýsluna - Ríkiseignir óska eftir að taka á leigu tímabundið æfingasal fyrir Þjóðleikhúsið. Afmörkun verkefnis Stefnt er að því að taka á leigu æfingasal fyrir Þjóðleikhúsið. Leigutími er 5 ár með möguleika á framlengingu. Húsnæðið þarf að vera staðsett miðsvæðis í Reykjavík og æskilegt að það sé staðsett innan við 1 km göngufæri frá Þjóðleikhúsinu, Hverfisgötu 19, Reykjavík. Óskað er eftir verðhugmynd fyrir húsnæði að þessari stærð í samræmi við kröfur sem settar eru fram í kröfulýsingu. Upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar í rafræna útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/. Fyrirspurnir varðandi verkefni 21606 skulu sendar rafrænt í gegnum TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnartími rennur út föstudaginn 26. nóvember 2021. Þess er óskað að svörum sé skilað í gegnum vefinn Tendsign.is eigi síðar en föstudaginn, 3. desember 2021 kl. 12:00. Allar nánari upplýsingar um ferlið og þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/. Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa. Vakin er athygli á því að leiði markaðskönnun þessi til undirritunar samnings eru slíkir leigusamningar undanskildir lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Sjá nánar á www.utbodsvefur.is MARKAÐSKÖNNUN Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is BRAUTARHOLT 6, 105 REYKJAVÍK ATVINNUHÚSNÆÐI Á 1. OG 2. HÆÐ TIL SÖLU Ríkiskaup leita tilboða í 1. og 2. hæð í eigninni við Brautarholt 6, 105 Reykjavík, sem er fyrrum lagerhúsnæði Þjóðskjalasafns Íslands. Birt stærð eignarhlutans er 1059,8 m2 sem skiptist í 671,3 m2 jarðhæð og 388,5 m2 á 2. hæð. Góð lofthæð er á 1. hæðinni. Vel staðsett eign í nálægð við miðbæinn. Mikil uppbygging er í hverfinu, stutt í verslun og þjónustu. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is Verð: Tilboð Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.