Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 29
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Vefuppboð nr. 574
Stórval
stendur til 29. nóvember
Forsýning á verkunum hjá
Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is
JÓLAPERLUR 2021
á uppbod.is
Jón Engilberts
Jóhan
n
es
S.K
jarval
R
ússar náðu efsta sæti eftir
sjöttu umferð af níu í
opnum flokki Evrópu-
móts landsliða sem lýkur
um helgina í Terme Cate í Slóveníu.
Rússneska sveitin, sem ekki hefur
tapað skák í keppninni, sigraði þá
ungversku með minnsta mun,
2½:1½, í 6. umferð og náði 10 stig-
um. Næst koma sveitir Aserbaídsj-
an, Úkraínu, Spánar, Armeníu og
Hollands með níu stig.
Íslenska sveitin tapaði þremur
fyrstu viðureignum sínum. Það virt-
ist ætla að rofa til á fimmtudaginn
þegar útlit var fyrir sigur á Svíum
en Jóhann Hjartarson missti þá nið-
ur unnið tafl í tap og niðurstaðan
varð jafntefli, 2:2, og sveitin í 31.
sæti af 39 þátttökuþjóðum.
Eitthvað vantar upp á öryggið.
Átta tapskákir í fyrstu fjórum um-
ferðunum og það gegn þremur frem-
ur slökum liðum er óviðunandi.
Guðmundur Kjartansson hefur
hlotið fimm vinninga af sex og á
möguleika á borðaverðlaunum. Hin-
ir eru talsvert frá sínu besta. En
vonandi nær liðið sem ein heild að
hrista af sér slenið því að góður loka-
sprettur getur þrátt fyrir allt skilað
viðunandi niðurstöðu.
Besta frammistaða kvennasveit-
arinnar kom í 4. umferð þegar sigur
vannst á sterkri sveit Tyrkja.
Lenka Ptacnikova skilaði þar
sínu:
EM landsliða 2021; 4. umferð:
Ekaterina Atalik – Lenka Ptacni-
kova
Svartur er peði undir en sterkur
riddari á d4 hlaut að gefa einhverja
von. Sú tyrkneska sá sér nú leik á
borði …
39. De7??
… og svarið kom um hæl …
39. … Bh3+!
Drottningin fellur og hvítur gafst
upp.
Íslenska kvennaliðið var í 30. sæti.
Mér sýnist af umfjöllun um þetta
mót að athygli áhorfenda víða um
heim beinist nú mjög að Alireza
Firouzjan en hann hefur hlotið 5½
vinning af sex mögulegum á 1. borði
fyrir Frakka og er í 3. sæti á „lif-
andi“ stigalistanum rétt á eftir Liren
Ding og Magnúsi Carlsen. Það er
alltaf eitthvað að gerast í kringum
hann.
Eftirfarandi skák er óvenjuleg að
því leyti að hvítur hrókaði langt og
opnaði síðan á kóngsstöðuna með því
að þeyta peðunum fram. Síðan lét
hann drottninguna af hendi:
EM landsliða 2021; 4. umferð:
Alireza Firouzja – Mustafa Yil-
maz
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3
Be6 8. Dd2 Rbd7 9. 0-0-0 Be7 10. h3
b5 11. g4 Hc8 12. Kb1 Rb6 13. g5
Rh5 14. h4
Hvítur hefur oft teflt liði sínu
svona fram með peðið á f3. Í þessari
stöðu er g3-reiturinn hins vegar
valdaður. Það gæti skipt máli.
14. … Rc4?! 15. Bxc4 Hxc4 16.
Rd5 Bxd5 17. Dxd5 Dc7
Það er eitthvað bogið við stöðu
svarts. Riddarinn á vart nokkurn
reit né heldur biskupinn.
18. Rd2!
Skemmtilega leikið, 18. … Hxc2 er
svarað með 19. Hc1 og svartur tapar
c-línunni.
18. … Hc6 19. Hc1 0-0 20. c3 g6
21. Hc2 Hb8 22. Hhc1 a5 23. b4 Hc8?
Slakur leikur. „Vélarnar“ mæla
með 23. … Rf4.
24. a4!?
Hugmyndin með þessum óvænta
leik nær fram að ganga. En senni-
lega var 24. Dxb5 betra því nú á
svartur hiklaust að leika 24. … bxa4
25. b5 Db8! en hann gengur í gildr-
una.
24. … axb4?
25. Dxc6! Dxc6 26. cxb4
Víki drottningin fellur hrókurinn á
c8. Svartur fær engum vörnum við
komið í endataflinu.
26. … Dxc2+ 27. Hxc2 Hb8 28. a5
Rf4 29. Hc7 Bd8 30. Hd7 Rd3 31. a6
Rxb4 32. a7 Ha8 33. Hxd6 Bc7 34.
Hd7 Ra6 35. Hd5 Ba5 36. Rb3
- og svartur gafst upp.
Rússar efstir
á EM landsliða
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Gunnar Björnsson
Góð frammistaða Guðmundur Kjartansson hefur náð bestum árangri
íslenska liðsins og er með 5 vinninga eftir sex umferðir.
Undanfarin misseri
hef ég velt því fyrir
mér að bjóða mig
fram til varafor-
manns Kenn-
arasambands Ís-
lands, sem ég svo
gerði hinn 16. nóvem-
ber, að vel athuguðu
máli.
Frá aldamótum
síðustu hef ég starfað
á vettvangi leikskóla,
grunnskóla og við virkniúrræði
ungmenna á aldrinum 16-24 ára
sem ekki hafa fundið sig í hinu
almenna og hefðbundna mennta-
kerfi framhaldsskólans.
Ég hef átt í góðu samstarfi við
stjórnendur og aðra fagaðila
meðal annars innan framhalds-
skólanna, Menntamálastofnunar
og Vinnumálastofnunar. Á þeim
rúmum 20 árum sem ég hef
starfað á vettvangi kennslu, fyrst
sem leiðbeinandi, svo sem kenn-
ari, stjórnandi og náms- og
starfsráðgjafi, hafa verkefnin
verið afar fjölbreytt og lærdóms-
rík. Segja má að þau hafi mótað
mig og hugsjónir mínar að miklu
leyti en á sama tíma hefur þekk-
ing mín, hæfni og reynsla aukist.
Ég er afar stolt af minni fag-
stétt og tel hana gera kraftaverk
á hverjum degi. Í skólum lands-
ins, á öllum skólastigum, fer
fram mikilvægt starf þar sem
mannauður er mikill og dýr-
mætur. Það er því nauðsynlegt
að hlúa að þessum mannauði og
skapa gott og öruggt starfsum-
hverfi. Ánægja starfsmanna skil-
ar sér í betri starfsanda og
vinnubrögðum sem skila sér
beint til nemenda og hafa áhrif á
gæði kennslunnar og árangur
nemenda. Samstarf aðila innan
skólans sem utan er einn þeirra
þátta sem skipta hvað mestu
máli. Við þurfum og eigum að
hlusta á raddir kennaranna,
vinna saman að settum mark-
miðum, skapa sameiginlega sýn
og ávallt hafa hagsmuni nemend-
anna að leiðarljósi. Ég hef alla
tíð talað fyrir þessum hugsjónum
mínum við mitt sam-
starfsfólk.
Lengi má gott
bæta! Við eigum það
því miður of mikið til
að ræða meira um
það sem miður hefur
farið en það sem vel
hefur verið gert. Það
er mín skoðun að við
ættum að láta það
heyrast betur þegar
vel gengur. Við ætt-
um að huga betur að
gæðum starfsins með
fjölbreyttari leiðum
en nú þegar er gert, bæði hvað
varðar kennsluhætti, stjórnun og
samstarf, með árangur nemenda
okkar í huga.
Varaformaður KÍ starfar í
nánu samstarfi við formann fé-
lagsins þar sem þeir leiða saman
hesta sína í öflugu samstarfi við
aðildarfélögin átta. Ég tel að
með faglegum og sveigjanlegum
stjórnunarháttum, heiðarlegu og
opnu samtali ásamt lausnamið-
uðum nálgunum og valdeflingu
kennara náum við árangri í sam-
einingu.
Ég tel mig hafa það sem til
þarf og er tilbúin að leiða þessa
öflugu fylkingu við hlið nýkjörins
formanns. Ef ég verð fyrir valinu
og mér treyst fyrir þessu stóra
og mikilvæga verkefni mun ég
leggja mitt af mörkum við að
vinna ötullega að hagsmunum fé-
lagsmanna aðildarfélaganna allra
í góðu og öflugu samstarfi.
Gerum þetta saman
Eftir Hjördísi Báru
Gestsdóttur
»Með faglegum og
sveigjanlegum
stjórnunarháttum,
heiðarlegu og opnu sam-
tali ásamt lausna-
miðuðum nálgunum og
valdeflingu kennara
náum við árangri.
Hjördís Bára
Gestsdóttir
Höfundur gefur kost á sér í embætti
varaformanns Kennarasambands Ís-
lands hjordis1970@gmail.com
Guðjón Petersen fæddist 20.
nóvember 1938 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru hjónin
Lauritz Petersen, f. 1906 í
Óðinsvéum, d. 1972, vélstjóri, og
Guðný Guðjónsdóttir Petersen,
f. 1907, d. 1971, húsfreyja.
Guðjón lauk skipherraprófi á
varðskipum ríkisins 1965. Hann
starfaði m.a. sem stýrimaður
hjá Landhelgisgæslunni 1962-
1971, sem fulltrúi hjá Almanna-
vörnum 1971-1979 og sem fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
1979-1996. Guðjón var bæjar-
stjóri í Snæfellsbæ 1996-1998 og
framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra skipstjórnarmanna
1999-2004.
Guðjón sat í fjölda nefnda í
tengslum við störf sín, þar á
meðal landgrunnsnefnd, al-
mannavarnanefnd NATO og
skipulagsnefnd jarðvísinda-
deildar UNESCO. Þá var hann
ráðgjafi Sameinuðu þjóðanna
um almannavarnir á Niue í
Kyrrahafi, á Möltu og Asoreyj-
um. Hann starfaði einnig í sókn-
arnefndum Árbæjarsóknar og
Fella- og Hólasóknar, var for-
seti Rótarýklúbbsins Reykja-
vík-Breiðholt og varaforseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins.
Eiginkona Guðjóns er Lilja
Benediktsdóttir, f. 1939, búsett í
Reykjavík. Börn þeirra eru tvö.
Guðjón lést 2. ágúst 2017.
Merkir Íslendingar
Guðjón
Petersen