Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 32

Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Hrefna Gísla- dóttir, fyrrverandi tengdamóðir mín, hefur kvatt þennan heim, ríflega 100 ára. Hún var Skagfirðingur, alin upp á Hofs- ósi og þar lágu ræturnar. Það var unun að fara með henni á æskuslóðirnar, að heimsækja Hjalta bróður og Svövu systur á Hamarstíginn á Akureyri. Hrefna lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1942 sem var í raun eina tækifæri ungra stúlkna úr sveit til að öðl- ast menntun á þessum tíma. Tíminn í skólanum var henni dýrmætur sem hún ræddi oft um, sérstaklega dansæfingarnar sem haldnar voru reglulega. Henni þótti þó verst að hún átti bara eitt skópar, klossa, og voru ekki beint heppilegasti fótabún- aðurinn. En Hrefna setti það þó ekki fyrir sig. Hún stundaði kennslustörf í tæp 10 ár, síðast á Selfossi og hafði mikla unun af. En eftir að hún kynntist eig- inmanni sínum Ögmundi bónda í Stóru-Sandvík var ekki um annað að ræða en að hætta kennslunni. Húsmóðurstarfið á stóru heimili í sveit var fullt starf og ekki í boði að vinna ut- an heimilis. En Hrefna saknaði alltaf kennslustarfsins. Það var mikil gæfa fyrir mig sem unga konu að hafa Hrefnu mér við hlið á þeim mótunar- tíma sem fylgir því að stofna heimili og fjölskyldu ásamt því að koma sér fyrir á vinnumark- aði. Hún var alltaf til staðar, reiðubúin til að styðja og að- stoða án þess að vera uppá- þrengjandi. Á fyrstu vikum eftir Hrefna Gísladóttir ✝ Hrefna Gísla- dóttir fæddist 27. ágúst 1921. Hún lést 5. nóvember 2021. Útför Hrefnu fór fram 19. nóvember 2021. fæðingu hvers barns kom Hrefna á hverjum degi með eitthvað mat- arkyns, jólaköku, nautahakk eða ýsuflak. Þá skúraði hún gólf, braut saman þvott eða gerði annað sem henni þótti þurfa. Hún tók ábending- um mínum um að þetta væri alger óþarfi, vel en mætti svo næsta dag og hélt sínu striki. Dýrmætasta framlag Hrefnu eru þó gjafir hennar til barna- barnanna. Þar naut kennslukon- an sín vel. Hún kenndi þeim um dyggðir, að unna náttúrunni, bera virðingu fyrir bæði fólki og dýrum og að meta ljóð og sögur, flest um það hvernig maður verður góð manneskja. Hún lagðist með börnunum í grasið til að horfa á skýin hreyfast, kenndi þeim að þekkja plöntur og fugla, rækta grænmeti, þekkja lífríki fjörunnar og tala af virðingu um dýrin. Þau máttu t.d. ekki segja belja heldur kýr, sem fór nú alla vega þegar kom að beygingunum. Hún las fyrir börnin ljóð og sögur og hafði þannig mikil áhrif á hvernig þau tileinkuðu sér málið. Eldri dótt- ir mín hafði til að mynda, við þriggja ára aldur, tileinkað sér málfar skálda á 19. öld. Þá gekk hún um grænar grundir og spurði hver dræpi á dyr þegar einhver bankaði. Hún veitti því líka athygli þegar sólin hneig til viðar. Hrefna reyndi einnig að hafa áhrif á okkur foreldrana með ýmis konar uppeldisráðum án þess að því væri nokkru sinni tekið sem afskiptasemi. Til dæmis minnti hún okkur á það fyrir hver jól hvað það væri mikilvægt að kenna börnunum að gefa, ekki bara að þiggja. Hrefna var ekki kona sem hrópaði á torgum, Hún var hóf- stillt í framkomu og hlý. Hún ræktaði garðinn sinn bæði í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Arfleifð hennar lifir áfram í af- komendum hennar. Ég minnist Hrefnu af virðingu og verð henni eilíflega þakklát fyrir samfylgdina. Anna Kristín Sigurðardóttir. Hægum föstum skrefum fikr- aði hún sig yfir móðuna miklu á allra heilagra/ sálna messu. Þegar himnarnir og heimarnir mætast og létt er að skipta um svið. Þar sem ástvinirnir bíða endurfundanna. Það gefur auga- leið að margt af samferðafólki Hrefnu er farið, þegar rúmlega 100 ára ferðalagi hennar lýkur hér á jörð. Það eru líka tímamót hjá Stóru-Sandvíkurfjölskyldunni þar sem Hrefna fer síðust tengdabarna og barna Sigríðar Kr. Jóhannsdóttur og Hannesar Magnússonar. Ég minnist Hrefnu, kennslu- konunnar hávöxnu, grönnu með þykkt ljóst hár og toppinn yfir enninu, rúllaðan upp, festan með spennu, með rólegt festu- legt yfirbragð. Hún var fyrsta kennslukonan við nýbyggðan barnaskóla á Selfossi 1946. Hrefna kenndi þá yngstu börn- unum. Skólaárið 1947-48 kenndi hún mér, 12 ára gamalli, handa- vinnu. Síðan höfum við fylgst að meira og minna alla ævi. Ég man að frændur mínir Jóhann og Sigurður, kankvísir í Vikur- iðjunni í Stóru-Sandvík, báðu mig að skila kveðju til kennslu- konunnar – þeir voru að glettast við Ögmund – sem brosti í kampinn! Hinn 16. júní 1951 giftist Hrefna Ögmundi föðurbróður mínum, Hannessyni, f. 3. apríl 1918, d. 28. nóvember 1984. Ég man þegar Ögmundur flutti hana heim að Sandvík á Gamla- Stormi, heimilis-vörubílnum. Síðar eignuðust þau „drossíu“ með Sigurði, bróður Ögmundar. Þeir skiptust svo á þegar til kom að nota bílinn annan hvern sunnudag með fjölskyldum sín- um! Það var mikið gæfuspor fyrir Stóru-Sandvíkurheimilið þegar Hrefna kom. Það vita allir sem þekkja til að hún gekk inn í stóra fjölskyldu sem var há- vaðasöm og ólík henni að mörgu leyti, en gagnkvæm virðing og kærleiksbönd þróuðust brátt. Hún deildi íbúð, eldhúsi og elda- vél með tengdamóður sinni og fjölskyldu hennar í 10 ár. Þá var mikill gestagangur í húsinu, m.a. hélt Hjalti Gestsson þar búnaðarnámskeið fyrir unga menn í febrúarmánuði ár hvert 1951-55. Nemarnir voru í fæði í íbúðum Ara Páls og Ögmundar en kennt var og gist á rishæð- inni. Maður getur rétt ímyndað sér að lítið prívatlíf hafi verið fyrir ungu konuna með litlu drengina sína. Aldrei haggaðist Hrefna. Hún tók alltaf fallega á móti gestum og naut öll Sand- víkurættin þess. Hrefna var í saumaklúbbi með vinkonum sem tengdust Hlíð í Hreppum. Hrefna mjólkaði, fór út að raka, og gaman var þegar hún kom í rófugarðinn og við sung- um slagara alla leiðina heim. Hrefna lagði mikla alúð við blómsturgarðinn. Síðast vann hún í garðinum komin yfir ní- rætt. Hrefna afhenti Ara Páli syni sínum búið 1986, tveimur árum eftir lát Ögmundar. Hrefna og Sigríður systir mín, nágranni hennar, sem lést 2008, áttu fallegt vináttusam- band. Upp úr aldamótum flutti Hrefna í Grænumörk 2 á Sel- fossi þar sem hún tók þátt í starfi eldri borgara. M.a. málaði hún mikið og fallega á postulín sem hún gaf mér og mörgum öðrum. Eftir áfall og heilsubrest flutti hún á Sólvelli á Eyrar- bakka 2015. Þar leið henni vel allt til loka. Vil ég þakka starfs- fólkinu þar fyrir kærleiksríka umönnun Hrefnu vinkonu minn- ar. Bið ég afkomendum og ást- vinum Hrefnu blessunar Guðs sem vakir yfir öllum. Rannveig Pálsdóttir. Ég hitti Hrefnu fyrst sumarið 1976. Sigrún Sigurjónsdóttir amma mín og Hrefna voru frænkur, og var ég svo heppin að fá að fara í sveit í Stóru Sandvík hjá Hrefnu og Ög- mundi manninum hennar. Ég var hjá þeim í fjögur sumur og fékk að njóta þess að vera í sveit, umgangast og hugsa um dýr, taka þátt í heyskap og hjálpa til að taka upp kartöflur og rófur. Mér þykir graslyktin enn góð (og minnir hún mig á sumrin í sveitinni) og finnst enn gaman að heimsækja bændur og sjá nútímatækni í fjósum, heyskap og öðru. Hrefna var dugleg og hress og lærði ég heilmikið af henni. Til að mynda finnst mér eft- irminnilegt að hún sólaði salt- fisk að ég held að norðlenskum sið. Hún var líka dugleg að baka kökur og kleinur, og sérstak- lega man ég eftir hvað heima- tilbúnu flatkökurnar voru góð- ar. Hrefna átti fallegt heimili, og var ég hrifin af klukkunni sem var á vegg inni í stofunni hennar. Hún hafði gott skop- skyn, og þegar ég heyrði að hún væri farin var hláturinn hennar það fyrsta sem ég hugsaði um. Þótt ég búi erlendis hef ég haldið sambandi við Hrefnu, Palla son hennar og fjölskyldu og heimsæki ég þau þegar ég get. Þau taka alltaf mjög vel á móti okkur, jafnvel þegar þau fá lítinn sem engan fyrirvara, og virðast alltaf eiga góðgæti að bjóða gestum. Þegar ég hitti Hrefnu síðast fyrir nokkrum ár- um á Eyrarbakka var hún hress að vanda og sagði mér að ég hefði ekkert breyst. Mér þótti gaman að sjá hana á þessum fal- lega stað, með stofuklukkuna sína hjá sér, glaðlynda og skemmtilega eins og alltaf. Mér finnst ég hafa verið al- veg sérlega heppin að fá að fara í sveit hjá Hrefnu og Ögmundi í Stóru Sandvík og upplifa lífsstíl- inn og menninguna þar. Það hefur mótað mig á margan hátt, bæði með því að auka tengsl við náttúruna og að kynnast öðrum venjum og siðum. Takk fyrir samveruna Hrefna. Hvíldu í friði. Sigrún Andradóttir. Hrefna Gísladóttir frá Stóru- Sandvík er látin. Okkar kynni hófust þegar við fjölskyldan fluttum á Selfoss, en við vorum báðar aldar upp á Hofsósi. For- eldrar hennar voru sem afi minn og amma þar í mínum uppvexti þótt óskyld væru. Við urðum strax góðar vinkonur, fórum saman í öldungadeildina, máluðum á postulín og margt fleira. Það var mín gæfa að eiga hana fyrir vinkonu og mikið nutum við þess að eiga stundir saman. Hrefna var traust og hlý manneskja og alltaf lagði hún gott til málanna og benti á betri leiðir. Heimilið hennar bar vott um listhneigð og smekkvísi og var þar mikið af alls konar mun- um eftir húsfreyjuna. Postulín, útsaumur og ýmislegt annað en hlýjan var í fyrirrúmi hvort sem var í Sandvík eða þegar hún flutti upp á Selfoss og síðan á Eyrarbakka. Hrefna fór ekki varhluta af sorginni og þar sýndi hún stillingu og æðruleysi sem einkenndi hana alltaf. Þannig hefur það verið alla tíð og er enn að virðing og trún- aður góðs vinar er meðal þess besta sem lífið getur gefið okk- ur. Einlægar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar frá okkur öll- um. Guð blessi minningu Hrefnu Gísladóttur. Kristín Ruth Fjólmundsdóttir. ✝ Björn Jónsson (Dengsi) fædd- ist á Höfn 16. des- ember 1944. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skjól- garði 10. nóvember 2021. Móðir hans var Guðrún Björns- dóttir talsímakona frá Dilksnesi. Eina systur átti Björn, sammæðra, Lovísu Hönnu Gunn- arsdóttur, hún lést 18. mars sl. Eiginmaður Lovísu var Þórörn Jóhannsson loftskeytamaður, f. 28. júlí 1922, d. 5. júlí 1991. Sonur þeirra er Gunnar Þór, f. 1959. Kona hans er Guðný Björg Jens- dóttir, f. 1961. Börn þeirra eru: a) Lovísa Þóra, f. 1981. Maður henn- ar er Finnur Eiríksson, f. 1978, og börn þeirra eru Sævar Þór, f. 2008, Dagmar Hekla, f. 2011, og Kolbrún Katla, f. 2015. b) Eyþór Jens, f. 1988. Björn giftist Anitu Paradillo og bjuggu þau saman í fimm ár. Þau slitu samvistir. Minnast börn hennar hans með hlýju. Eiginkona Björns frá árinu 2003 var Maria Victoria Ramas Paraiso. Victoria. Lést hún úr krabbameini eftir stutta sjúkdóms- legu á Landspítalanum 1. júlí 2018. Við tók erf- iður tími og hallaði undan fæti. Skömmu eftir lát Victoriu fékk Björn blóðtappa í höf- uð, sem gerði honum erfitt fyrir með dagleg verkefni. Á Skjólgarði, hjúkrunarheimili Hornafjarðar, dvaldist hann frá júnímánuði 2020. Björn ólst upp á Höfn, fór fljótt að taka þátt í ýmsum störfum í ört vaxandi bæ. Vann lengst af sem tækjamaður hjá bæjarfélaginu, ásamt smíðaverkefnum og öðru sem til féll. Vann um tíma hjá Fiskimjölsverksmiðju Horna- fjarðar, mikið við vörubílaakstur. Útförin fer fram frá Hafn- arkirkju í dag, 20. nóvember 2021, klukkan 11. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstand- endur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á www.hafn- arkirkja.is. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Þá er hann Dengsi frændi bú- inn að kveðja. Þessi skemmtilegi og glaði frændi sem alltaf var hluti af okkar lífi. Minningin sem lifir er af glöð- um, góðum, líflegum frænda. Frænda sem segir okkur sögur af liðinni tíð, prakkaralegar sögur sagðar í notalega borðkróknum á Fiskhól við dillandi hlátur. Frændi sem alltaf var tilbúinn að hjálpa ef þörf var á og mætti gal- vaskur með uppbrettar ermar, hvort sem verkefnið var að moka skurð eða losa burt geitungabú svo fátt eitt sé nefnt. Þegar við systkinin komum heim í Fjörðinn fagra eftir að hafa verið í burtu í einhvern tíma var hann alltaf manna fyrstur að koma og heilsa, alltaf áhugasam- ur um það sem var að gerast í okkar lífi. Heimili okkar stóð honum allt- af opið enda kom hann þar oft en mamma var Dengsa eins og syst- ir. Þar var gagnkvæm virðing og vinátta og Dengsi ráðfærði sig oft við bæði mömmu og pabba með hin ýmsu mál. Þá er okkur of- arlega í huga hversu fallega hann talaði um þá sem honum þótti vænt um. Dengsi er sannarlega eftirminnilegur maður sem gerði lífið litríkara og skemmtilegra. Takk fyrir allt elsku Dengsi. Við munum alltaf minnast þín og glaðværðar þinnar og erum rík- ari fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér. Minningin mun lifa áfram í hjarta okkar allra. Elvar, Dóra og Selma. Björn Jónsson Okkar ástkæri HERMANN HANS HERMANNSSON, Michigan, BNA, lést 4. nóvember. Ingibjörg Guðbjörnsdóttir Hermann McEnhill og Sarah McKinney Elizabeth og Aaron Green Elskuleg móðir okkar og systir, HILDEGUNN BIELTVEDT, er látin. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Carine Gourjon Nino Thierry Gourjon Bieltvedt Brit Bieltvedt Ole Anton Bieltvedt Ástkær móðir okkar, amma og langamma, BJÖRG RAGNHEIÐUR ÁRNADÓTTIR, lést fimmtudaginn 18. nóvember. Sverrir Gaukur Ármannsson Helga Ragna Ármannsdóttir Björg Ragnheiður Pálsdóttir Ármann Jakob Pálsson Áslaug Guðmundsdóttir Lúkas Páll og Elías Logi Jakob Dagur, Arney Helga og Rakel Birta Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN ÞÓRA ALBERTSDÓTTIR, Heiðargerði 29, Vogum, lést á Landspítalanum Hringbraut föstudaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 26. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt. Selma Kristín Jónsdóttir Sigurður Rúnar Arnarson Harpa Ósk Sigurðardóttir Jón Páll Arnarson Örn Ingi Arnarson Mikhael Máni Sigurðsson Sindri Þór Sigurðsson Helgi Valur Jónsson Róbert Rúnar Jónsson Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.