Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
Karl Ormsson
mágur minn er í
dag til grafar bor-
inn. Myndskeið úr
fortíðinni hrannast upp. Það eru
að nálgast 70 ár síðan hann kom
eins og stormsveipur inn í fjöl-
skyldu mína. Kvikur í hreyf-
ingum, brosmildur og fljótur að
bregðast við. Hann tók glað-
hlakkalega á móti stórum yngr-
isystkinahópi kærustu sinnar
enda sjálfur úr stórum systk-
inahópi. Hann lék við okkur fyr-
ir utan húsið okkar í Lönguhlíð-
inni, dró okkur á eftir sér í
kerru á fleygiferð um garðinn
sem var mjög gaman og vakti
óskipta athygli nágrannanna.
Hann var mjög skemmtileg við-
bót við fjölskylduna.
Við systkinin áttum mikið af
leikföngum sem pabbi pantaði
frá Ameríku og voru umfangs-
mikil útgerð af kerrum og far-
artækjum sem við gátum ekið
um á. Allir fengu að vera með
og tækin fengu óblíða meðferð
og þurftu mikið viðhald sem
Kalli sá að verulegu leyti um og
var hlýlega hugsað til hans þeg-
ar hann kom einhverju biluðu
tæki aftur í umferð.
Hann var ótrúlega hagur
verkmaður og bjargaði hverju
því sem bilaði eða þurfti með-
höndlunar við. Mamma treysti
alfarið á hann til slíks viðhalds
fjölskyldugóssins og biðu hans
gjarnan verkefni sem hann
leysti góðfúslega úr þegar hann
Karl Jóhann
Ormsson
✝
Karl Jóhann
Ormsson
fæddist 15. maí
1931. Hann lést 5.
nóvember 2021.
Útförin fór
fram 19. nóv-
ember 2021.
kom í heimsókn á
sunnudögum með
fjölskylduna. Pabba
var ekki sýnt um
viðgerðir á öðru en
því sem hann hafði
lært til, sem var
saumavélin, öðru
bjargaði Kalli.
Hlýjar minningar
um hann munu lifa
lengi með okkur.
Ólafur Ólafsson.
Það eru fáir í stórfjölskyld-
unni frá Rauðalæk 59 sem
muna eftir þeirri veröld sem
var áður en Karl Ormsson
bættist í hópinn. Hann var eig-
inmaður Ástu Bjargar, sem var
elst systkinanna á heimilinu,
barna Sigrúnar Eyþórsdóttur
og Ólafs Ólafssonar. Karl var
fyrstur tengdabarna þeirra og
elstur.
Í áratugi kom fjölskyldan
saman á sunnudögum og
stórhátíðum á Rauðalæk, fékk
nýbakaðar pönnukökur hjá Sig-
rúnu og í nefið hjá Ólafi, ef fólk
vildi.
Karl lét sig aldrei vanta, sat
inni í stofu og sagði sögur. Nýj-
ar kynslóðir barnabarna og
barnabarnabarna kynntust
þannig Borgnesingnum af
Ormsson-ættinni, sem auk arf-
bundinnar alvisku um raftæki
og –lagnir hafði siglt um höfin
blá á flutningaskipum og kunni
sjómennsku upp á hár.
Ekki var síður gott að vera
Karli samferða í helgarferðum á
stór-Borgarnessvæðinu því
hann kunni skil á vegaspottum,
bæjum og bændum. Náttúran
var honum líka eins og opin
bók, fuglar, blóm og fiskar.
Nú er Karl farinn, en hann
lifir áfram í minningum okkar
og í afkomendum þeirra Ástu
Bjargar, sem öll eru hjartahlýj-
ar og yndislegar manneskjur
eins og þau.
Við þökkum langa samferð
og vottum fjölskyldu hans sam-
úð okkar.
Dröfn Ólafsdóttir og
Guðmundur Einarsson.
„Gull af manni“ er það fyrsta
sem kemur upp í hugann þegar
ég hugsa um þig afi minn, um-
hyggjusamur, hjálpsamur og
örlátur.
Þegar eitthvað bjátaði á var
alltaf hægt að leita til þín og þú
varst tilbúinn að hlusta og
miðla visku þinni. Það var engin
launung að þú varst mikill fjöl-
skyldumaður og nánustu ætt-
ingjar þínir voru það sem hélt
þér gangandi. Það var eins og
eldsneyti á tankinn fyrir þig að
hitta og heyra í þínu nánasta
fólki, enda hringdir þú reglu-
lega og spurðir frétta.
Þegar ég sagði þér fréttir af
mér hlustaðir þú alltaf af áhuga
og ég upplifði það sterkt að þú
varst minn stærsti aðdáandi.
Ég held að við barnabörnin höf-
um öll upplifað það frá þér,
áhugann og hvatninguna sem
þú veittir okkur.
Það var gaman þegar þú
sóttir mig í skólann á mínum
yngri árum, ég hugsa oft um
þegar við sátum í bílnum þínum
og röbbuðum saman um daginn
og veginn. Sögurnar sem þú
sagðir voru skemmtilegar, þú
hafðir mjög gaman af Bessa
Bjarnasyni og Dýrunum í
Hálsaskógi. Þú lékst oft eftir
Mikka ref og sagðir við mig:
„Hann afi þinn var rugludall-
ur!“ í sama tóni og Bessi
Bjarnason. Ég þrætti fyrir það,
enda fannst mér afi alls ekkert
vera rugludallur, bara skemmti-
legur.
Það er hægt að læra margt
af þér hvað varðar framkomu
og klæðaburð. Þú varst alltaf
svo vel til hafður, flott klæddur,
jafnvel bara á venjulegum
mánudegi varstu uppstrílaður í
jakkafötum og með bindi. Það
fór enda þínum karakter vel,
því þú varst sannkallaður
herramaður. Komst alltaf svo
vel fram við ömmu og hugsaðir
vel um hana fram á síðasta dag
hennar. Góð fyrirmynd þarna
eins og í svo mörgu öðru.
Samveran með þér kenndi
mér að meta náttúruna, því þú
varst afar tengdur náttúrunni
og dýralífinu sem þar leynist,
eitthvað sem fæstir koma auga
á með berum augum eða leiða
nokkuð hugann að. Þú hafðir
eins konar sjötta skilningarvit
þegar kom að því að finna
hreiður, varðst einn með nátt-
úrunni. Það var magnað að
fylgjast með þér, þar sem lítið
hljóð úr hreiðri eða fugl á vappi
gat komið þér á sporið. Eins og
Sherlock Holmes varðst þú var
við eitthvert smáatriði sem eng-
inn annar skynjaði. Hvað það
var sem þú skynjaðir þarna,
hvort það var hljóð, ummerki,
hreyfing eða lykt veit ég ekki
en það brást ekki, þegar þú
fékkst þessa tilfinningu hafðir
þú alltaf rétt fyrir þér, þú
fannst hreiður sama hversu vel
það var falið milli steina, inni í
rjóðri eða undir tré. Ég hef
reynt að finna hreiður á sama
hátt en aldrei tekist, því enginn
getur leikið þetta eftir þér.
Við hittumst aftur einn dag-
inn afi minn, það er ég sann-
færður um. Ég kveð þig hér að
sinni með orðum Veru Lynn úr
laginu „We‘ll meet again“ eða
„Sjáumst á ný“ eins og það út-
leggst á íslensku í þýðingu Óm-
ars Ragnarssonar:
Sjáumst á ný björtu sólskini í
þótt um stað og stund við vitum ekki
nú.
Bros gegnum tár munúum ókomin ár
bægja öllum skýjum burt, það er mín
trú.
Björn Vignir Magnússon.
Félagi okkar og
vinur Páll Pálma-
son lést 6. nóv. sl.
á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja eftir erfið veikindi.
Með Palla Pálma eins og hann
var ávallt kallaður er genginn
félagi sem um langt árabil var
burðarás í knattspyrnuliði okk-
ar Eyjamanna. Hann hóf að
leika knattspyrnu með Knatt-
spyrnufélaginu Tý árið 1958,
þá þrettán ára gamall. Hann
lék svo með meistaraflokki
ÍBV frá árinu 1962 aðeins 17
ára gamall sem aðalmarkmað-
ur liðsins. Palli varði mark ÍBV
árið 1967 þegar liðið vann sig
upp í fyrstu deild í fyrsta sinn.
Hann var á sínum tíma einn
besti markvörður landsins og
var m.a. valinn til að spila með
landsliði Íslands og lék hann í
markinu í landsleik við lið frá
Páll Pálmason
✝
Páll Pálmason
fæddist 11.
ágúst 1945. Hann
lést 6. nóvember
2021.
Útför Páls fór
fram 19. nóvember
2021.
Bermúda. Hann
varð þrisvar sinn-
um bikarmeistari
og lék til úrslita
fimm sinnum í bik-
arkeppninni og
varð jafnframt Ís-
landsmeistari með
ÍBV árið 1979.
Palli spilaði ekki
knattspyrnu með
öðru liði en liði
okkar Eyjamanna
og lék sinn síðasta leik með
meistaraflokki, þá 41 árs gam-
all. Palli var valinn íþróttamað-
ur Vestmannaeyja 1980. Hann
kom jafnframt í áratugi að
starfsemi þrettándans í Eyjum
og lék þar hlutverk jólasveins
með miklum sóma. Þegar
knattspyrnuferlinum lauk hóf
hann að spila snóker af krafti
og var einn besti snókerleikari
Eyjanna og vann þar til
margra verðlauna. Með Palla
er genginn góður félagi sem
setti sterkan svip á bæjar- og
íþróttalíf okkar Eyjamanna.
Íþróttahreyfingin kveður með
söknuði góðan félaga og þakk-
ar honum með virðingu sam-
fylgdina. Við sendum eiginkonu
Páls Pálmasonar og ættingjum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
F.h. ÍBV íþróttafélags,
Þór Í. Vilhjálmsson
formaður.
Hvað segir greifinn núna?
Þannig heilsaði Palli manni
gjarnan, glaður og hlýr; síðan
tók við fjörlegt spjall um lífið
og tilveruna. Undirtónninn
jafnan hressileiki og glettni
samfara umhyggjusemi; nær-
veran notaleg. Páll var kominn
af rótgrónu Eyjafólki í báðar
ættir, harðduglegum sjósókn-
urum og kvenskörungum, skip-
stjórum og útgerðarmönnum
og hafði sjálfur stýrimannsrétt-
indi. Hann var mótaður af ver-
tíðarsamfélagi Eyjanna, bjó þar
og starfaði alla tíð, lengst verk-
stjóri hjá Vinnslustöðinni. Við
Páll kvæntumst systrum svo
samleið okkar er orðin nokkuð
löng, símtölin mörg ef allt væri
talið, hann jafnan í Eyjum, ég á
fastalandinu. Ýmislegt eftir-
minnilegt tókum við okkur fyrir
hendur með þeim systrum og
fjölskyldum okkar, innan lands
og utan, sem ánægjulegt er að
minnast. Það síðasta var för til
Grænhöfðaeyja sem heppnaðist
vel eins og allt hitt. Ég á eftir
að sakna glaðværðarinnar sem
jafnan fylgdi Páli og léttleikans
sem leiddi af öllum samskiptum
við hann; hann var ljúfur mað-
ur, snyrtimenni, vinmargur og
tryggur; börn og unglingar löð-
uðust að honum. Lífsgleði Palla
fylgdi líka ómæld kappsemi
sem einkenndi allt hans fas;
þar bjó kraftur og dugnaður.
Keppnisskap Palla og snerpa
fann sér greiðan farveg innan
íþróttanna, einkum innan
knattspyrnunnar sem var hans
stóra áhugamál alla tíð, enda
afreksmaður á því sviði og
reyndar í fleiri íþróttagreinum.
Hans stóra sorg var hins vegar
þegar tengslin rofnuðu við eldri
soninn og hans fjölskyldu,
harmleikur sem Palli botnaði
aldrei í og komst aldrei yfir.
Það hefur síðan tekið á að
horfa á þennan öfluga mann
takast á við bráðan hrörnunar-
sjúkdóm sem hafði hann undir
á skömmum tíma. Þar gekk
góður drengur hið dimma fet
fyrr en skyldi. Ég vil að leið-
arlokum votta Páli og minningu
hans virðingu mína og okkar
Erlu, þakka vináttu og samveru
í áratugi og bið þann sem gætir
okkar allra að styðja Gunnu og
fjölskyldurnar sem nú syrgja
sinn mann.
Þorgeir Magnússon.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
okkar og langamma,
ARNDÍS KRISTÍN DAÐADÓTTIR,
Dísa frá Hamraendum, Snæfellsnesi,
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða
Akranesi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða
laugardaginn 6. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
23. nóvember klukkan 13 með nánustu fjölskyldu og vinum.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða, Akranesi.
Sigrún Olgeirsdóttir Friðrik Bergsveinsson
Daði Friðriksson Soffía Dögg Halldórsdóttir
Margrét Friðriksdóttir Elvar Örn Reynisson
Arndís Friðriksdóttir Sigfús Kristjánsson
Olgeir Sveinn Friðriksson Guðlaug Rós Hólmsteinsdóttir
Kristín Margrét Gísladóttir Júlíus Steinar Heiðarsson
og langömmubörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÓLÖF KRISTÍN GUÐNADÓTTIR,
Óla Didda,
Lækjarmel 4, Hvalfjarðarsveit,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi laugardaginn 13. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
26. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir. Streymt
verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju www.akraneskirkja.is.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Þorsteinn Ingason
Rúna Hrönn Kristjánsdóttir Pálmi Hafþór Halldórsson
Friðmey Þorsteinsdóttir Einar Már Ríkarðsson
Arnór Þorsteinsson
Karen Þorsteinsdóttir Þorgeir Stefán Jóhannsson
og ömmubörnin
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Sonur okkar og bróðir,
ELVAR SNÆR JÓNSSON,
Steinahlíð 1, Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu 15. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 23. nóvember klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar og
vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt á
https://youtu.be/5qbsDYBfLgs
Lilja Ingibjörg Jóhannsdóttir Jón Sævar Alfonsson
Arnar Freyr Jónsson
Andri Örn Jónsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR EGGERT STEFÁNSSON
sjómaður
frá Grímsey,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
á Akureyri sunnudaginn 14. nóvember.
Útförin fer fram frá Höfðakapellu á Akureyri fimmtudaginn
25. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis
nánustu aðstandendur verða viðstaddir athöfnina. Athöfninni
verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Höfðakapellu –
beinar útsendingar.
Theodóra Kristjánsdóttir Teitur Björgvinsson
Ingibjörg Unnur Pétursdóttir Eyjólfur Jónsson
barnabörn, makar og langafabörnin
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR MORITZ STEINSEN
verkfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 12. nóvember. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
25. nóvember klukkan 11 með nánustu ættingjum og vinum.
Streymt verður frá athöfninni á http://laef.is/gunnar-steinsen
Snorri Gunnarsson Hróðný Njarðardóttir
Lilja Anna Gunnarsdóttir Birgir Rafn Birgisson
Kristrún Sjöfn Snorradóttir