Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
✝
Guðrún Gísla-
dóttir fæddist í
Lágu-Kotey í Með-
allandi 4. sept-
ember 1926. Hún
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Klausturhólum á
Kirkjubæj-
arklaustri 11. nóv-
ember 2021.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Gísli
Tómasson, f. á Steinsmýri í
Meðallandi 25. ágúst 1887, d.
27. september 1990, og Guðný
Runólfsdóttir frá Iðu í Bisk-
upstungum, f. 11. janúar 1902,
d. 15. ágúst 1953. Fjölskyldan
flutti síðar að Melhól í Með-
allandi þar sem Guðrún ólst
upp með systkinum sínum
1974, maki Kjartan Örn Þor-
geirsson, synir þeirra eru Krist-
ófer Halldór, Þorgeir Sölvi og
Alexander Goði.
Guðrún giftist árið 1966 síð-
ari eiginmanni sínum, Sig-
urgeiri Jóhannssyni, f. 26. nóv-
ember 1918, d. 21. desember
1997. Þau voru bændur í
Bakkakoti II í Meðallandi eða
þar til Guðrún flutti á Klaust-
urhóla árið 2013. Sonur þeirra
er Steinar, f. 21. desember
1966. Synir hans með Margréti
Árnadóttur, f. 13. ágúst 1966,
eru Árni Sólon, Marteinn Ísak
og Sigurgeir Daníel. Maki Árna
er María Dögg Guðmunds-
dóttir, sonur þeirra er Sólon
Grétar. Sambýliskona Steinars
er Margrét I. Ásgeirsdóttir, f.
26. nóvember 1966.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Langholtskirkju í Meðallandi í
dag, 20. nóvember 2021, klukk-
an 14.
fimm: Elínu, Tóm-
asi og Ragnari sem
eru látin, Sigrúnu
og Magnúsi sem
lifa systur sína.
Guðrún giftist
Ólafi Erasmussyni,
f. 15. nóvember
1916, d. 30. apríl
1954. Þau voru
bændur á Rofabæ í
Meðallandi. Dóttir
þeirra er Guðfinna,
f. 13. janúar 1949, maki Halldór
Guðbjörnsson, f. 21. september
1946. Dætur þeirra eru tvær:
Guðrún, f. 12. janúar 1972, börn
hennar eru Sóley, faðir Þröstur
Sigmundsson, Svandís Dóra,
Steindór Óli og Halldór Viðar,
faðir Jón Haukur Stefánsson,
og Guðbjörg Sif, f. 30. maí
Ég hugsaði stundum að ef ég
ætti eftir að eignast tengdamóð-
ur þá óskaði ég þess að okkur
mundi semja vel og hún væri hlý
og góð. Sú ósk rættist þótt seint
væri og tími okkar Guðrúnar
Gísladóttur frá Melhól, síðar hús-
freyju og bónda að Bakkakoti í
Meðallandi, væri ekki langur
saman.
Guðrún var nægjusöm kona af
kynslóð sem nú er við það að
hverfa, sem fæddist í torfbæ og
upplifði miklar framfarir og
breytingar á sínu æviskeiði. Guð-
rún átti drauma sem ekki allir
rættust, en draumur hennar um
að verða bóndi og sinna skepn-
unum sínum og ræktun rættist.
Síðustu árin bjó hún á Klaust-
urhólum á Kirkjubæjarklaustri
og hafði útsýni úr glugganum
sínum yfir aðkomuna að húsinu
og tjaldstæði ferðamanna. Hún
gat því fylgst með hverjir komur
og fóru og hversu margir ferða-
menn væru á tjaldstæðinu hverju
sinni, í tjöldum og húsvögnum.
Hún var alveg stálminnug, kunni
ótal vísur, kvæði og gamlan fróð-
leik. Fróð um ættir og fylgdist
með þegar börn komu í heimin og
aðrir hurfu á braut. Dillandi hlát-
ur og naut þess að hlusta á söng
og tónlist. Mikinn kærleik bar
hún til afkomenda sinna og fylgd-
ist með þeim, mundi afmælidaga
og hringdi þá gjarnan. Engum
var kalt í kringum Guðrúnu því ef
ekki var kærleikurinn sem yljaði
þá voru það ullarfötin frá henni.
Hún sá um að afkomendur og
vinir ættu hlýja sokka, vettlinga
og lopapeysur. Voru það lista-
verk sem af prjónunum hennar
komu. Ullarsokkarnir hennar
voru vinsælir og góðir með sér-
stökum hæl sem fór vel á fæti og í
skó. Í handavinnuna fór hún allt-
af eftir hádegi en tók sér stund-
um frí á sunnudögum. Hún var
iðin fram á síðasta dag og kláraði
að prjóna síðustu ullarsokkana
nokkrum dögum áður en hún fór
yfir í Sumarlandið.
Guðrún átti góð ár á Klaust-
urhólum og naut umhyggju
starfsfólks, fór reglulega í hár-
greiðslu, litun, hand- og fótsnyrt-
ingu. Hún hafði fallegar hendur
og bleikt naglalakkið naut sín vel.
Sérstaklega hafði hún gaman af
litríkum fallegum fötum og
skarti, nokkuð sem hún hafði
ekki geta veitt sér framan af æv-
inni.
Okkar mestu ánægjustundir
voru þegar við ferðuðumst sam-
an þegar hún átti erindi til
Reykjavíkur og ánægjulegast
var þegar hún 93 ára gömul kon-
an gisti í fyrsta skipti á Hólel
Sögu, í Bændahöllinni. Það var
góð ferð.
Þau verða ekki fleiri símtölin
og spjallið á milli okkar. En
minning góðrar og kærleiksríkr-
ar tengdamóður lifir og fyrir það
er ég þakklát.
Samúðarkveðjur til ættingja,
vina og íbúa og starfsfólks á
Klausturhólum.
Margrét I. Ásgeirsdóttir.
Á kveðjustund streyma fram
góðar minningar frá því ég var
lítil skotta á sumrin hjá þér í
sveitinni. Ég var ekki há í loftinu
þegar ég byrjaði að dvelja hjá
ykkur sumarlangt og dvaldi hjá
ykkur Sigurgeiri öll sumur þang-
að til ég var fimmtán ára. Veð-
urfræðilega séð er besta veðrið í
kringum Kirkjubæjarklaustur og
í barnsminninu var sól allt sum-
arið, bara alltaf sól. Það er ein-
hvern veginn þannig að sumum
tekst að hafa allt gott í kringum
sig og gera gott úr öllu. Þannig
varst þú, komst vel fram við alla,
tókst vel á móti öllum og vildir
allt fyrir alla gera. Enda varstu
vinmörg og margir stoppuðu við
hjá ykkur á Bakkakoti. Fyrir-
myndar íslenskt sveitaheimili
þar sem gestrisnin var í hávegum
höfð.
Þú hafðir frá mörgu að segja
og sagðir oft sögur frá gamla
tímanum sem gaman var að
hlusta á. Þú hafðir gaman af vís-
um og reyndir að kenna mér þær
nokkrar. Það var margt annað
sem þú kenndir mér sem hefur
verið gott veganesti út í lífið. Ég
var ekki há í loftinu þegar ég var
að farin að rogast með kaffi og
nýbakað bakkelsi út á tún þar
sem Sigurgeir var að slá. Á
hverju sumri voru nokkrir
krakkar hjá ykkur í sveit og oft
mikið líf og fjör. Allir þurftu að
vinna og hjálpa til enda nóg að
gera og þú varst alltaf með næsta
verkefni tilbúið og fékkst alla til
að vinna verkin í gleði. Garðrækt
var þér hugfólgin, ræktaðir alls
kyns rótargrænmeti og plöntur í
blómgarðinum þínum, eins og þú
kallaðir garðinn þinn.
Mér er afskaplega kær minn-
ingin þegar við fórum saman til
Boston að heimsækja Ásdísi vin-
konu þína og frænku frá Segl-
búðum. Með í för voru hjónin
Svava og Helgi frá Hraunkoti.
Fyrsta og eina skiptið sem þú
fórst utan. Þetta var yndisleg
ferð þar sem margt var skoðað.
Ásdís dekraði við æskuvini sína
og þér leið eins og prinsessu.
Lífsgleði og kærleikur var það
sem einkenndi þig fram á síðasta
dag. Kvöldið áður en þú kvaddir
þennan heim spjölluðum við í
síma og þú sagðir mér spennt frá
því sem þú hafðir nýlokið við að
prjóna og frá næstu prjónaverk-
efnum. Þú prjónaðir alla tíð gríð-
arlega mikið og sást til þess að
ömmubörnin ættu alltaf vettlinga
og hlýja sokka.
Takk elsku amma fyrir allt
sem þú hefur kennt mér og gert
fyrir mig og mína.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson, Gili)
Guðrún Halldórsdóttir
og börn.
Guðrún Gísladóttir
✝
Geirlaug Ingv-
arsdóttir fædd-
ist 26. september
1932 á Balaskarði í
Laxárdal í Austur-
Húnavatnssýslu.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands á
Blönduósi 11. nóv-
ember 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Ingvar Stef-
án Pálsson bóndi á Balaskarði, f.
1895, d. 1968, og Signý Bene-
diktsdóttir húsfreyja, f. 1900, d.
1991.
Systkini Geirlaugar voru Ást-
ar móður og systurinni Elsu eftir
að Ingvar féll frá og síðan bættist
Signý dóttir Geirlaugar í tölu
bændanna á Balaskarði.
Geirlaug tók þátt í félagsstarfi
sveitarinnar, kvenfélagi og var í
kór Höskuldsstaðakirkju. Hún
lamaðist í kjölfar heilablóðfalls
árið 1995 og dvaldi síðari hluta
ævi sinnar í aldarfjórðung á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands á
Blönduósi.
Útför Geirlaugar verður gerð
frá Hólaneskirkju á Skagaströnd
í dag, 20. nóvember 2021, og
hefst athöfnin kl. 13.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
mar, f. 1923, d.
1977, Björg, f. 1926,
d. 2014, og Elsa, f.
1932, d. 2007.
Dóttir Geirlaug-
ar var Signý Gunn-
laugsdóttir, f. 1967,
d. 2015.
Geirlaug ólst upp
á Balaskarði, naut
þeirrar kennslu sem
bauðst í farskóla í
sveit á þeim tíma en
var síðar að auki einn vetur í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
Hún bjó og starfaði á Balaskarði
mestan hluta starfsævinnar. Með
foreldrum sínum framan af, síð-
Elsku Gilla mín. Þegar ég
hugsa til baka er ég þakklát fyrir
allt sem þú hefur kennt mér í
gegnum tíðina og öll samtölin
sem við áttum um heima og
geima. Fyrstu minningarnar eru
um annan í jólum í eldhúsinu á
Balaskarði að hlýja sér við gömlu
eldavélina. Sitjandi á kistlinum
með gærunni. Maulandi smákök-
ur eftir að hafa rennt niður hlíð-
ina fyrir ofan bæinn ótal sinnum
og tíma ekki að fara inn í hlýjuna.
Svo var keppst um að ná sætinu
við eldavélina þegar manni var
orðið kalt í gegn þrátt fyrir allan
ullarfatnaðinn sem maður fékk
prjónaðan frá Balaskarði. Þetta
var svo spennandi dagur því svo
fékk maður kakó og ótalmargar
kræsingar á eftir. Allt svo hátíð-
legt og notalegt. Sitjandi að dást
að fallegu jólakirkjunni sem ég
mátti aldrei snerta nema fyrir
einn hring með lyklinum af spila-
dósinni áður en ég færi heim (nú
mun ég kveikja á henni fyrir mín
börn). Daginn áður hafði maður
borðað hangikjöt frá ykkur systr-
um sem var ómissandi partur af
jólahaldinu. Mikið sakna ég þess.
Svo kom sumarið, spennan að
sækja kalda mjólk í lækinn og að
fylgjast með ykkur mjólka allar
þessar kýr sem sýndist vera leik-
ur einn. Ég uppgötvaði svo
seinna þegar ég ætlaði að sýna
hæfileika mína hjá tengdaömmu
minni (eftir að hafa horft á
frænkur mínar vera eld snöggar
að þessu) að líklega hefði þetta
sýnst vera töluvert auðveldara en
það var í raun og veru og var
ótrúlegt hversu mikilli elju þið
systur og frænka mín bjugguð yf-
ir öll þessi ár. Seinna þegar ég
hóf starfsferilinn minn í umönn-
un 17 ára gömul varð sambandið
okkar öðruvísi og ég lærði svo
margt. Svo fór ég á árshátíð MA í
upphlutnum þínum uppfull af
stolti og eina skilyrðið var mynd.
Þú geymdir hana alltaf. Þú varst
svo einstaklega orðheppin og
lúmskt fyndin. Þú vissir svo
margt og minnið þitt ótrúlegt
þrátt fyrir allt sem á undan var
gengið og þú náðir að koma mér á
óvart alveg þar til yfir lauk. Þú
stólaðir á mig um tíma og mér
þótti vænt um það traust. Við
höfum deilt saman erfiðum
stundum og aðstæðum sem
kenndu mér svo margt fyrir lífið.
Sú síðasta var þín lokastund og
að geta verið til staðar fyrir þig
var mér afar dýrmætt. Það var
svo sérstakt að á þínu síðasta
kvöldi barst inn um gluggann
hangikjötslykt af næsta bæ og
þar með helltist yfir okkur minn-
ingaflóð. Líklega var verið að
sækja þig. Loksins fékkstu frið-
inn. Ég á þér svo margt að þakka
elsku frænka mín. Hvíl í friði.
Kveðja
Eydís Inga Sigurjónsdóttir.
Geirlaug Ingvarsdóttir
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DAGMAR J. ÓSKARSDÓTTIR,
lengstum búsett á Eskifirði,
lést á Hrafnistu við Sléttuveg í Reykjavík
10. nóvember.
Útför verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. nóvember
klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni. Hlekk má nálgast á
mbl.is/andlat.
Hólmfríður Garðarsdóttir
Olga Lísa Garðarsdóttir Sigurkarl Stefánsson
Arna Garðarsdóttir
Garðar Eðvald Garðarsson Svava I. Sveinbjörnsdóttir
Óskar Garðarsson Benný Sif Ísleifsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA UNNUR VALDIMARSDÓTTIR,
Efri-Miðvík í Aðalvík,
lést í faðmi ástvina sunnudaginn
14. nóvember á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 24. nóvember klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir athöfnina. Streymt
verður frá youtubesíðu Grafarvogskirku.
Guðmundur Rúnar Heiðarss. Birna Björk Sigurðardóttir
Ingibjörg Guðrún Heiðarsd. Jón Guðbjartur Árnason
Þórný María Heiðarsdóttir Halldór Þórólfsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR SVERRIR GUNNARSSON
byggingafræðingur,
Suðurholti 3, Hafnarfirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar föstudaginn
12. nóvember. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 15.
Þeir sem vilja vera viðstaddir þurfa að sýna fram á neikvætt
covid-hraðpróf við innganginn, ekki eldra en 48 klst.
Útförinni verður einnig streymt á https://bit.ly/utfor-Sverris
Sigríður Gísladóttir
Sigrún Sverrisdóttir Davíð Már Bjarnason
Svanhvít Sverrisdóttir Axel Axelsson
Elísa Sverrisdóttir Ársæll Þór Ársælsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
ritari,
Hæðargarði 54,
lést á Landspítalanum Fossvogi
fimmtudagskvöldið 11. nóvember.
Útförin fer fram fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er beint á Krabbameinsfélagið eða FBSR.
Streymt verður frá athöfninni og slóðin að henni verður á
https://www.mbl.is/andlat/
Stefán Bjarnason
Ólafur Stefánsson Guðlaug Eiríksdóttir
Helga Stefánsdóttir Jóhann Ingi V. Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar kæra og ljúfa
PETRA JÓNSDÓTTIR
frá Siglufirði
lést á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi
sunnudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 22. nóvember klukkan 13. Viljum við þakka
starfsfólki Höfða fyrir alúð og góða umönnun. Vegna
samkomutakmarkana verður aðeins nánasta fjölskylda við
útförina. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni:
www.akraneskirkja.is og mbl.is/andlat.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Vilborg Jónsdóttir
og systkinabörn