Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 36

Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 „Stærsti vinning- ur lífsins er að hafa góð áhrif á líf ann- arra.“ Þessi orð lýsa lífsgöngu Skúla mágs míns afar vel. Hann Skúli var einstakur maður. Jákvæður, duglegur, glettinn, umhyggjusamur, músík- alskur, mikill fjölskyldumaður, góður vinur og fleira væri hægt að telja upp. Kynni okkar hófust þegar litla systir hún Ólöf kom og kynnti hann fyrir okkur á Kirkjuvegin- um. Það var drifið í hlutunum, byggt hús í Hrísholtinu, byggt hesthús í Suðurtröðinni, keypt söðlasmíðaverkstæði og hafinn rekstur í kjallara Gamlabankans. Svo var líka keyrður póstur i Grafninginn og Þingvallasveitina. Jafnframt var sveitaballaspilerí og hélt áfram eftir að flutt var norður. Tónlistin átti alltaf ítök í Skúla og þegar árin liðu fór hann í gítarnám og söngnám. Söng líka í karlakór og stóð að jólatónleikum o.fl. Þegar fjölskyldan flutti norður á Tannstaðabakka voru tvær dæt- ur komnar í fjölskylduna, þær Laufey Kristín og Eyrún Ösp. Guðrún Eik og Ólafur Einar bætt- ust svo í hópinn. Þetta er samrýnd og falleg fjölskylda og barnabörn- in eru orðin níu. Í búskapnum á Tannstaða- bakka voru mörg verkefni og stöð- ugt verið að byggja eða rækta flög. Hef fyrir satt að þetta hafi stundum verið tekið fyrir á þorra- blótum og sumir undruðust hversu sólarhringurinn var drjúg- ur hjá Skúla og ekki má gleyma frúnni hans sem gekk í öll verk líka. Þegar Skúli varð sextugur og styttist í sextugsafmæli Ólafar buðu þau til veislu, opið hús í Fé- lagsheimilinu á Hvammstanga. Fullt af skemmtiatriðum, m.a. frá tónlistarskólakennurum. Hjónin afþökkuðu persónulegar gjafir, en frjáls framlög voru sett í sjóð sem var gefinn Tónlistarskólanum til hljóðfærakaupa. Önnur rausnarleg gjöf kom frá Skúla þegar hann hafði lokið rúm- Skúli Einarsson ✝ Skúli Ein- arsson fæddist 29. maí 1955. Hann lést 14. nóvember 2021. Útför Skúla var gerð 19. nóvember 2021. lega 40 ferðum suð- ur til að fara í geisla- meðferð gegn krabbameininu sem hann barðist við. Hann fékk ferðapen- inga frá Sjúkra- tryggingum og fannst rétt að Krabbameinsfélagið fengi þá peninga. Skúli var svo góð- ur og umhyggjusam- ur. Þegar ég varð einstæð og svo- lítið týnd hvatti hann mig til að koma í sveitina sína og þar áttum við dóttir mín góða daga að vori til. Margar góðar stundir höfum við í minni fjölskyldu átt með þeim hjónum og fyrir þær erum við æv- inlega þakklát. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Vertu kært kvaddur elsku Skúli. Samúðarkveðjur til fjöl- skyldu þinnar. Sigríður Ólafsdóttir. Mér fannst Guð ekki vera góð- ur sunnudaginn 14. nóvember, a.m.k. ekki sanngjarn, því það kvöld fréttum við af andláti Skúla Einarssonar bónda á Tannstaða- bakka í Hrútafirði. Við vorum búin að fá fréttir af versnandi veikindum Skúla vinar okkar, fjárans krabbinn var að taka einn öðlinginn enn, en ein- hvern veginn er maður alltaf óundirbúinn þegar teknir eru frá okkur kærir vinir, það er bara þannig. Við Skúli vorum miklir vinir og áttum mörg sameiginleg áhuga- mál, s.s. tónlist, kúabúskap o.fl., gripum stundum í hljóðfæri ef við sáum fram á að fá smá frið til að glamra saman, hann á gítarinn eða trommurnar og ég á hljóm- borð eða píanó. Ég kynntist Skúla og yndislegu konunni hans Ólöfu Ólafsdóttir fyrir u.þ.b. 10 árum þegar ég var starfandi sem ráðgjafi um tíma með svæðið frá Holtavörðuheiði í vestri og að Djúpavogi í austri og þegar ég kom fyrst í Tannstaða- bakka var Skúli á hlaupum fram og aftur alveg eins og hann ætti lífið að leysa, fremur lágvaxinn, snaggaralegur og algjörlega ófeiminn, og ég heilsaði honum og kynnti mig. Hann horfði um stund á mig, var greinilega að meta ein- takið, og sagði síðan: „Ja Kristján minn, ég má ekki vera að því að sinna þér núna, það er að koma „ungabíll“ að sunnan og ég get ekki frestað því að setja þá inn í hitahús, en ef þú vilt frekar hanga úti í bíl og klóra þér í svona rúman klukkutíma eða svo, en samt ef þú ert sæmilega duglegur og vilt síð- ur sitja á rassinum en gera gagn, ja, þá gerirðu það, en svo geturðu hjálpað mér að taka á móti rúm- lega 8.000 hænuungum og þá komumst við fyrr í mjólkina.“ Ég asnaðist til að segja grobbinn: „Já, auðviðtað fer ég með þér í hænu- ungana!“ Það lifnaði yfir bóndan- um og hann sagði: „Heyrðu, það er yfir 35 stiga hiti í ungahúsun- um, þú ferð í sérstígvél, geril- sneydd, og dauðhreinsaðan sam- festing, eina vitið að vera á nærbuxunum innan undir. Setur upp húfu og berð ungana inn í enda á húsinu og hellir þeim á gólfið og svo hleypurðu út og allur skarinn á eftir þér, en þú mátt ekki stíga á þá.“ Ég var gjörsamlega búinn þeg- ar þessu fuglafári lauk og flaut í svitakófi, en samt gaman og ég átti eftir að gera þetta aftur en þá með frúnni, Ólöfu. Það myndaðist strax mikill og sterkur vinskapur hjá okkur Skúla ásamt Ólöfu konu Skúla, Jónu konu minni og sameiginleg- um vinum okkar beggja, Arnheiði Aðalsteinsdóttur og manni hennar Jóni Inga Guðmundssyni. Þessi sex manna hópur kom oft saman og söng og spilaði og einnig voru þrír í hópnum með parkinson og áttu því sameiginlegt vandamál. Skúli var mjög músíkalskur og lék listavel á gítar og trommur, var söngvari góður og var fjölmörg ár í hljómsveitum. Ég sakna mikið þessa frábæra vinar, og segi að lokum: Elsku Ólöf mín, Laufey, Eyrún, Guðrún og Ólafur og börnin ykkar, Guð blessi minningu Skúla og gefi ykk- ur í fjölskyldunni á Tannstaða- bakka rúm til að jafna ykkur á missinum. Það verður aldrei annar Skúli á Tannstaðabakka. Kristján Gunnarsson, Jóna Svanhildur Árnadóttir. Fallinn er frá góður samborg- ari, Skúli Einarsson bóndi á Tann- staðabakka í Húnaþingi vestra. Skúli notaði þann tíma sem honum var úthlutað í lífinu mjög vel og var fær í öllu sem hann gerði. Við kynntumst í hjómsveitinni Lexíu og samstarf þar var mjög gott. Skúli sá um akstur, söng og trommuleik. Ef hann varð syfjað- ur á heimleiðinni skrúfaði hann bara niður rúðuna og keyrði stundum berfættur. Þetta sýnir hvað hann var harður af sér. Hann hóf söngnám í Tónlistar- skóla Húnaþings vestra og ann- aðist ég undirleik fyrir hann. Söngnámið gekk mjög vel, enda hafði hann góðan kennara, Ólaf Einar Rúnarsson. Skúli lauk grunnprófi og stefndi á miðpróf, en heilsan brást. Hins vegar lauk hann miðprófi í tónfræði, sem krafðist mikillar vinnu, sem hann skilaði mjög vel. Ég kenndi hon- um í því námi og var samvinna okkar mjög góð. Hann stóð alla tíð vörð um tón- listarskólann og gerði við tæki og tól án endurgjalds. Þau hjón Skúli og Ólöf Ólafsdóttir kona hans færðu skólanum höfðinglega pen- ingagjöf eftir tugafmæli þeirra. Skúli sat í byggingarnefnd fyrir tónlistarskólann í nýrri skóla- byggingu sem nú er tekin í notkun hér á Hvammstanga. Skúli var mjög sannur og rétt- látur maður og fylginn sér í öllu sem hann tók að sér. Má þar nefna Jólahúnana, tónlistarverkefni sem tengdust aðventu og jólum, þar var hann skipuleggjandi og fékk til liðs við sig fjölda fólks. Ég sendi Ólöfu konu hans og allri fjölskyldunni mínar bestu samúðarkveðjur. Megi minning Skúla Einarssonar lifa. Elinborg Sigurgeirsdóttir. Það er dýrmætt og alls ekki sjálfgefið að eignast vini þegar komið er yfir miðjan aldur. Hóp- urinn sem hittist á Reykjalundi fyrir bráðum sex árum er dæmi um slíka vináttu. Hópurinn small saman og ekki var það verra að makarnir gerðu það líka. Við höld- um fast í samband okkar því þessi stuðningshópur er engu líkur. Einlæg vinátta, traust og trún- aður varð til í sameiginlegri bar- áttu okkar við parkinsonsveikind- in. Þar var Skúli aldrei langt undan með gítarinn sinn, gleði- gjafinn sjálfur sem alltaf átti nóg að gefa öðrum. Skúli var einstakur vinur, hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Síðast þegar við hittumst í Árnesi var það hann sem hélt uppi fjörinu. Og ekki lét hann sig muna um það að spila ásamt hljómsveit á sveitaballi í Húnaveri þrátt fyrir að krabbinn væri farinn að taka sinn toll. Nú þegar Skúli hefur kvatt ylj- um við okkur við fallegar og ljúfar minningar um einstakan félaga og vin. Við minnumst helgarinnar sem hópurinn átti á Tannstaða- bakka hjá Ólöfu og Skúla, göngu- túrs í fjörunni, dekurs í mat og drykk, gítarspils og söngs fram á rauðanótt. Þessi samhentu hjón voru höfðingjar heim að sækja. Þegar leiðin lá svo til Eyja létu Tannstaðahjónin sig ekki muna um að útbúa eins og eina söngbók með Eyjalögunum og þá var sko spilað, trallað og sungið. Heima- menn höfðu meira að segja orð á því að aldrei hefðu „Glóðir“ hljóm- að betur. Þetta frábæra lag Odd- geirs Kristjánssonar og Lofts Guðmundssonar er eitt af okkar uppáhaldslögum. Það er sungið þegar við hittumst og við munum syngja það áfram í minningu okk- ar elskulega Skúla. Um dalinn læðast hægt dimmir skuggar nætur og dapurt niðar í sæ við klettarætur. Ég sit og stari í bálsins gullnu glóðir og gleymdar minningar vakna mér í sál. Ógleymanleg var stundin þegar við tókum „Ég veit þú kemur“ á bát inni í Klettshelli þar sem hóp- urinn sat í andakt undir fallega söngnum hans Skúla. Stórt skarð er höggvið í hópinn nú þegar stuðboltinn hefur kvatt. Þá hefur sjálfsagt vantað góðan gítarleikara á himnum. Það eru tveir úr hópnum fallnir frá, en áður höfðum við kvatt stríðnispúkann hann Óskar. Við treystum því að þið félagarnir séuð aldrei langt undan þegar hópurinn kemur saman. Elsku hjartans Ólöf, missir þinn er mikill og máttur orðanna lítill á svona stundu. Það er sárara en tárum taki að Skúli hafi þurft að kveðja svona fljótt. Hann sem hafði svo margt að gefa og svo margt að lifa fyrir. Hugur okkar er hjá þér, börn- unum ykkar og fjölskyldunni allri. Megi Guð og allar góðar vættir vera með ykkur á þessum erfiðu tímum og góðar minningar um einstakan eiginmann, föður, tengdaföður og afa lýsa ykkur í framtíðinni. Blessuð sé minning Skúla Ein- arssonar. Arnfríður Aðalsteinsdóttir og Jón Ingi Guðmundsson, Einar Guðnason og Sigrún Símonardóttir, Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir, Magnús Þorkelsson og Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þórunn Kolbrún Árnadóttir. Ég á mér draum, um dýrð og frið. Um drauminn þann, saman stöndum við. Veljum ást og kærleik, allra allra helst. Í aðstæðunum þessum, enginn hugur kvelst.. Viljum vera vinir, varast bæði stirð og erfið spor,. ræktum ást og yndi, inn í okkar sál og hjörtu vor.. Ég á mér draum, já jóladraum. Ég á mér draum, um ást og trú. Yfir ógnarfljót, byggjum trausta brú. Byrgjum ekkert inni, höfum opinn hug. Bæði í sál og sinni, sýnum okkar dug. Best að vinna saman, varast vondan hug og beiska sál,. vera glöð í bragði, segja oftast „þetta er ekkert mál“.. Ég á mér draum, já jóladraum. (Texti: Skúli Einarsson, lagboði: I have a dream, ABBA) Skúli Einarsson var driffjöður og aðalskipuleggjandi Jólahúna, tónleikaraðar sem lýsir upp skammdegið og færir Húnvetn- ingum góða blöndu af jólastuði og hátíðleik á aðventunni. Ekki var skipulagið látið duga, því textinn hér að ofan er saminn í tilefni þessara tónleika, saminn, sunginn og spilaður af frumkraftinum Skúla. Þegar við fluttum í Húnaþing vestra fyrir um tíu árum, leið ekki á löngu þar til við kynntumst Skúla. Samband okkar og vin- skapur óx með hverjum deginum og fyrr en varði var Skúli kominn í klassískt söngnám hjá mér með þeim orðum að „það gæti varla skaðað að læra smá raddtækni“. Skúli tók áfangapróf í söng með fyrirtakseinkunn, hann hélt áfram þrátt fyrir að veikindin ágerðust „því ekki þýðir að hætta að lifa“. Húnaþing vestra á þeim hjón- um Skúla og Ólöfu eiginkonu hans mikið að þakka, bjartsýni þeirra, dugnaður og jákvæð sýn á lífið gerir samfélagið betra og mann- legra. Hinn bráðsmitandi kraftur, ást og umhyggja er til eftir- breytni. Alltaf var Skúli fremstur í flokki, hvort sem það var að spila á böllum, syngja og dansa í Jesus Christ Superstar, eða að halda öðrum tenórnum uppi í karlakórn- um, þegar hinir tenórarnir skruppu til Tenerife í mánuð. Við Kristín þökkum fyrir okk- ur, minning um góðan dreng mun lifa og ég, sem Skúli plataði til þess að útsetja fyrir rythmíska hljómsveit, eitthvað sem mér datt ekki í hug að ég gæti, þakka fyrir hönd þeirra fjölmörgu sem unnu með okkur í Jólahúnunum. Ólafur Rúnarsson tónlistarmaður. Við kynntumst Skúla á Tann- staðabakka þegar sonur okkar Indriði og Laufey fóru að búa saman. Skúli var athafnasamur og féll aldrei verk úr hendi. Hann var alltaf með mörg járn í eldinum enda handlaginn og útsjónarsam- ur með eindæmum. Áður en einu verki lauk var hann farinn að skipuleggja það næsta. Þegar hugsað er til þess hversu miklu hann áorkaði þá fannst okkur oft að hann hlyti að hafa fleiri klukku- tíma í sólarhringnum en við hin. Þau hjónin, Ólöf og Skúli, byggðu upp myndarlegt bú á Tannstaðabakka og var alltaf gott að koma þar og ræða málin yfir kaffibolla. Tónlistin var Skúla hjartans áhugamál. Þar lét hann til sín taka og var í hljómsveitum, söngleikj- um og kórum og stóð m.a. fyrir góðgerðartónleikum á jólum í Húnavatnssýslum. Alltaf mætti hann með gítarinn í barnaafmælin og þar var afmæl- issöngurinn sunginn við gítarund- irspil og oft flutu nokkur aukalög með. Nú hefur Skúli kvatt þessa jarðvist eftir erfiða baráttu við krabbamein sem hann tókst á við með æðruleysi og dugnaði. Við vit- um að vel hefur verið tekið á móti honum í sumarlandinu. Elsku Ólöf, Laufey, Eyrún, Guðrún, Ólafur og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur, ljúf minning lifir. Soffía og Einar. Genginn er góður granni. Betri nágranna en Skúla og Ólöfu á Tannstaðabakka er vart hægt að hugsa sér. Fyrir nær 30 árum þegar við tókum við búi var Skúli boðinn og búinn að miðla sinni hagnýtu reynslu af búskap við Hrútafjörðinn. Hann var mjög öt- ull við jarðræktina, búinn að rækta upp falleg og grasgefin tún. Þó Skúli hefði mun meira að gera en flestir kom hann og stillti plóg- inn með unga bóndanum og öll handtök hans til árangurs. Oft höfum við leitað til Skúla og allt gerði hann til þess að hlutirnir gætu gengið sem best, hvort sem það var lán á verkfærum og tækj- um eða góð ráð. Alltaf hvetjandi og jákvæður. Skúli var mikill baráttumaður í félagsmálum og var meðal margs annars lengi formaður Nautgripa- ræktarfélags V-Hún. Með harð- fylgni og staðföstum rökum tókst honum ásamt öðrum félagsmönn- um að ná fram breytingum sem kúabændur á svæðinu búa svo sannarlega að í dag. Auk margs annars var tónlistin honum í blóð borin og var gítarinn oft með í för. Á mörgum böllum (bæði fullorðins- og jólatrés-) höf- um við dansað við undirleik hans á trommur eða gítar og oftar en ekki söng. Takk Skúli. Elsku Ólöf, Laufey, Eyrún, Guðrún, Óli og fjölskyldur, okkar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar. Guðný og Jóhann, Bessastöðum. Innilegar þakkir fyrir auðýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, HLÖÐVERS GUÐMUNDSSONAR bólstrara, síðast til heimilis á Dalsbrún 48, Hveragerði. Steinvör Esther Ingimundardóttir börn og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA KRISTJÁNSDÓTTIR, Bylgjubyggð 27, Ólafsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 27. nóvember klukkan 13. Útförinni verður einnig streymt og slóð á vefstreymi verður á facebooksíðu Ólafsfjarðarkirkju. Skjöldur Gunnarsson Kristín Emma Cordova Sigursveinn Jónsson Rebekka Cordova Jakob Ásmundsson og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA S. BERGMANN, Eiðistorgi 9, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 22. nóvember klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Flateyjarkirkju, 0309-26-012652, kt. 550169-5179. Vegna sóttvarna eru kirkjugestir beðnir að sýna neikvætt Covid-hraðpróf við inngöngu, ekki eldra en 48 klst. Heimapróf eru ekki tekin gild. Sigfús Jónsson Kristbjörg Antonsdóttir Jóhannes Gísli Jónsson Þorsteinn Jónsson Jón Gunnar Jónsson Tómas G. Guðmundsson Eva Bliksted Jensen barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.