Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
„NEFNDU ÞAÐ BARA. ÉG ER AÐ SAFNA
FYRIR ÞAÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að deila saman
sérstökum stað.
SKO, ÞAÐ KEMUR
TEYMI FRÁOKKUR
KLUKKAN 10.30…
VIÐ VERÐUM
FARNIR Á
SLAGINU
FIMM
VIÐ BYRJUM Í
ELDHÚSINU OG EFTIR
ÞAÐ FÖRUM VIÐ Í
MATARBÚRIÐ…
MAURAR ERU SVO
SKIPULAGÐIR
STÍGÐU Á VIGTINA! ÉG VIL AÐ ÞÚ LÉTTIR ÞIG UM
15 KÍLÓ, STRAX!
HVERNIG?
TAKTU GULLBÓKASTOÐIRNAR
MÍNAR ÚR VÖSUNUM !
„EF VIÐ EIGUM AÐ EIGA EINHVERN SÉNS
Á AÐ BJARGA SAMBANDINU ÞARFTU AÐ
HÆTTA AÐ ÁVARPA MIG SEM „AÐALVITNI
SAKSÓKNARANS“.“
Ég tel því þær varla með sem
áhugamál. Svo eru það skíðin og ör-
lítil veiði á sumrin. Þá held ég nú að
afþreyingin sé upptalin. Ég hef frá
menntaskólaárum verið í sauma-
klúbbi. Þar hefur yndislegur vin-
skapur verið ræktaður reglulega og
verður ekkert lát á. Ég hef verið
einstaklega heppin með fólkið í
kringum mig, fjölskyldu og tengda-
fjölskyldu, góða æskuvini og sam-
starfsmenn hvarvetna. Þegar allt
kemur til alls þá er það nú einmitt
fólkið á lífsleiðinni sem gerir áfanga
eins og fimmtugsafmæli svo
ánægjulega.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Glúmur
Jón Björnsson, f. 19.9. 1969, efna-
fræðingur. Þau búa á æskuslóðum
Sigríðar í Vesturbæ Reykjavíkur.
Foreldrar Glúms eru hjónin Hild-
ur Björg Sverrisdóttir húsmóðir, f.
26.3. 1947, og Björn Búi Jónsson
fyrrv. menntaskólakennari, f. 24.9.
1947. Þau búa í Reykjavík.
Dætur Sigríðar og Glúms eru: 1)
Brynhildur, f. 2005, nemandi við
Menntaskólann í Reykjavík; 2)
Áslaug, f. 2009, nemandi í Landa-
kotsskóla.
Bræður Sigríðar eru Kristinn
Andersen, f. 1958, prófessor við raf-
magns- og tölvuverkfræðideild HÍ
og forseti bæjarstjórnar í Hafnar-
firði, býr í Hafnarfirði, og Ívar And-
ersen, f. 1963, verslunarmaður, býr
í Reykjavík.
Foreldrar Sigríðar eru hjónin
Brynhildur K. Andersen, f. 28.5.
1938, d. 11.3. 2019, starfaði á skrif-
stofu dvalarheimilisins Grundar, og
Geir. R. Andersen, f. 8.9. 1934,
fyrrv. hótelstjóri og veitingamaður,
síðar blaðamaður. Geir býr enn í
nágrenni við Sigríði í vesturhluta
borgarinnar.
Sigríður Ásthildur
Andersen
Hans Andersen
klæðskeri í Reykjavík
Helga Jónsdóttir Andersen
húsmóðir í Reykjavík
Harald Andersen
klæðskeri í Aðalstræti í Reykjavík
Ásta Björnsdóttir Leví
símamær á Blönduósi, síðar
húsmóðir í Reykjavík
Geir R. Andersen
blaðamaður í Reykjavík
Björn Leví Guðmundsson
símstjóri og skósmiður
á Blönduósi
Guðlaug Sigríður Sveinsdóttir
húsmóðir á Blönduósi
Kristján Jóhannsson
kennari í Laxárdal, Dal.
Kolþerna Guðbrandsdóttir
húskona í Laxárdal, Dal.
Kristinn Kristjánsson
deildarstjóri hjá
Gjaldheimtunni í Reykjavík
Sigríður Ásthildur Guðjónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Halldóra Hildibrandsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðjón Jónsson
járnsmiður í Reykjavík
Ætt Sigríðar Á. Andersen
Brynhildur K. Andersen
húsmóðir og skrifstofumaður
í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Köttur oft þar unir sér.
Einatt með sér dauða ber.
Áhlaupsveður gerði í gær.
Gjarnan ást það vakið fær.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Í skoti kattarskömmin er.
Skotið dauða með sér ber.
Veðraskot um foldu fer.
Frúin skotin er í mér.
Þannig leysir Guðrún B. gátuna:
Kötturinn, hann kúrir innst í skoti,
en kálfi grandar skot og í því hvín.
Í veðraskoti í gær kom byljabloti
og Björgu hitti skot við fyrstu sýn.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una svona:
Köttur oft í skotið skreið.
Af skoti margur dauða beið.
Hríðarskot hér gerði í gær.
Gjarnan skot ást vakið fær.
Þá er limra:
Ef rosaleg reiði greip Tuma,
þann rummung og drykkfellda guma,
sem hótaði að skjóta
alla horngrýtis þrjóta,
þá fór nú að fara um suma.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Morgunskíman skírist veik,
skal því hafa mig á kreik,
gátu þarf að ganga frá,
getur hér að líta þá:
Tossa þangað vísað var.
Varðar lagaflækjurnar.
Golþorskana ginna kann.
Í glímu skaltu varast hann.
Um gagn tóbaksins segir í göml-
um fræðum: „Hvað mikil mæti því
nafnfræga ölmususkáldi, hinum
sæla Kolbeini, hafi þótt á því, má
sjá af hans sorgardikt, er hann
kvað, þá hann þröngvaðist af ör-
birgð þessarar eðlaperlu, segjandi:
Gleðin mundi geysilig,
grátinn mikla sefa,
ef að núna upp í mig
einhver vildi gefa.
Þessi tóbaksvísa er tilfærð í
Skraparotsprédikun:
Skyni, heyrn og skarpri sýn
skatnar mega því hæla,
án þess kunni hún amma mín
aldrei gott að mæla.
Gömul vísa:
Meydómur er mesta hnoss
meðan hann er um tvítugt
en getur orðið kvalakross
komist hann yfir þrítugt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þau eru mörg skotin