Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 40
FÓTBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Ari Freyr Skúlason tilkynnti í liðinni viku að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna. Ari, sem er 34 ára leik- maður Norrköping í Svíþjóð, lék alls 83 landsleiki frá árinu 2009 og kom sá síðasti í undankeppni HM 2022 gegn Rúmeníu fyrr í mán- uðinum. Hann kveðst ganga sáttur frá borði þótt tilfinningarnar séu vissulega blendnar. „Það verður náttúrlega söknuður þegar strákarnir hittast í landsliðs- ferðum. Ég held að ég sé búinn að missa af einni ferð á síðustu 10-11 árum, sem var vegna höfuðmeiðsla. En það er kominn tími á að leyfa ungu strákunum að taka við. Svo er ég líka sjálfur að hugsa um minn líkama og mína fjölskyldu í þessum landsleikjahléum. Börnin skilja ekki alveg hversu mikið stolt fylgir því að vera valinn í landsliðið og spila fyrir þjóð sína. Þegar þau eru komin á þennan ald- ur sem þau eru á núna og farin að skilja þá er alltaf svo leiðinlegt þegar pabbi er að fara svona mikið, sem maður skilur alveg. Þegar maður fær landsleikjapásu vill maður nýta tímann með börnunum og fjölskyldunni á þessum síðustu árum manns sem fótboltamaður,“ sagði Ari í samtali við Morgun- blaðið. Stórmótin og umspil EM 2020 Spurður hvað hafi staðið upp úr á 12 ára landsliðsferli sagði hann svarið liggja í augum uppi. „Það er náttúrlega að komast á tvö stór- mót, það er alveg ótrúlegt. Við gerðum það og árangurinn sem við höfum náð síðustu ár er auðvitað frábær. Fyrsti landsleikurinn minn kemur árið 2009 úti í Íran. Það var auðvitað frábært að fá fyrsta lands- leikinn en hann var ekkert „hipp, hipp, húrra“ fyrir mig, það er frek- ar árangurinn sem maður hefur tekið þátt í að ná síðustu ár. Þessi hópur og þessi vinskapur sem við höfum átt, það er það sem maður hugsar mest til.“ Ekki stóð heldur á svari þegar Ari var inntur eftir því hver mestu vonbrigðin á landsliðsferlinum væru: „Það er leikurinn í Ung- verjalandi, hann situr ennþá í manni. Við vorum grátlega nálægt þessu. En við höfum verið heppnir í gegnum árin líka og ýmislegt dottið með okkur þegar við höfum unnið okkur inn stig. Fótboltinn er bara svona, hann er grimmur.“ Leikurinn gegn Ungverjalandi sem Ari vísar til er úrslitaleikurinn í umspili fyrir EM 2020 fyrir rétt rúmu ári þegar Ungverjar skoruðu tvívegis í blálok leiksins, tryggðu sér þannig 2:1-sigur og komust á EM. „Hvenær skorarðu?“ Í 83 landsleikjum auðnaðist Ara aldrei að skora mark. „Já maður er búinn að fá að heyra þetta í gegn- um árin. „Hvenær ætlarðu að fara að skora fyrsta markið?“ Ég var alltaf að vonast til þess að fá þetta mark á móti Katar skráð á mig. Það hefði verið fínt ef einhver hefði getað verið góður og skráð það á mig. En þetta er ekkert sem ég pæli í, maður er búinn að vera varnarmaður í landsliðinu þannig að maður er ekkert mikið í víta- teignum,“ sagði hann, en markið gegn Katar sem Ari nefnir var skráð sem sjálfsmark eftir að hann hafði skotið beint úr aukaspyrnu í 2:2-jafntefli í vináttuleik árið 2018. Blaðamaður benti Ara enda góð- fúslega á að hann hefði í gegnum árin gert sig gildandi sem auka- spyrnusérfræðingur, þar sem hann hefði til að mynda skorað mörg glæsileg mörk í Svíþjóð. „Já, en það er samt þannig að þegar mað- ur hefur haft Gylfa Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson við hliðina á sér – þeir eru líka and- skoti góðir í að skjóta úr auka- spyrnum – þá hefur maður ekki fengið mörg tækifæri til þess að taka þær,“ útskýrði Ari og hló við. Vil spila eins lengi og ég get Hann sagðist ekki vera búinn að ákveða hvort hann lyki ferlinum er- lendis eða hér heima. „Ég er ekki búinn að hugsa svo langt en svo lengi sem líkaminn leyfir og ég er í góðu standi vil ég spila eins lengi og ég get, hvort sem það er hérna í Svíþjóð eða á Íslandi. Ástríða mín fyrir þessum leik er ennþá það sterk að ég er ekki tilbúinn að hætta þessu bara sisvona. Ég á eitt ár eftir hér. Á þessu tímabili er ég búinn að spila 23 leiki af 27. Ég er ennþá í fínu standi og vonandi verð ég bara heppinn með meiðsli. Þótt ég sé meiddur núna var þetta væg- ara en maður bjóst við, sem er mjög jákvætt.“ Í síðasta landsleik sínum gegn Rúmeníu meiddist Ari á nára og fór því snemma af velli. „Ég fékk litla rifu í nárann, alveg upp við festinguna. Það eru tvær til þrjár vikur, þrjár í mesta lagi. Þá er tímabilið búið hérna þannig að við erum ekkert að stressa okkur og tökum þessu bara rólega,“ sagði hann. „Fótboltinn er og hefur verið líf mitt í svo langan tíma. Ég vil spila og ég vil taka þjálfararéttindin með fótboltanum og sjá svo til hvað maður gerir eftir ferilinn,“ bætti Ari við. Að svo stöddu er hann ekki byrjaður að taka þjálfararéttindin en mun gera það á næstunni. „Ég er að koma inn núna, ég rétt missti af þessu síðast þegar ég flutti aftur til Svíþjóðar þannig að ég er bara að bíða þangað til næstu námskeið hefjast,“ sagði Ari enn fremur í samtali við Morgunblaðið. Ástríða mín fyrir fót- bolta er enn svo sterk - Ari Freyr er hættur með landsliðinu - Þó hvergi nærri hættur að spila Morgunblaðið/Eggert 83 Ari Freyr Skúlason lék 83 leiki fyrir íslenska A-landsliðið yfir 12 ára skeið. Glæstum landsliðsferli er nú lokið. 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Þýskaland Augsburg – Bayern München................ 2:1 - Alfreð Finnbogason var ekki í leik- mannahópi Augsburg vegna veikinda. Staðan: Bayern München 12 9 1 2 41:13 28 Dortmund 11 8 0 3 28:17 24 Freiburg 11 6 4 1 18:9 22 Wolfsburg 11 6 1 4 12:12 19 RB Leipzig 11 5 3 3 23:11 18 Leverkusen 11 5 3 3 24:17 18 Mainz 11 5 2 4 15:11 17 Union Berlin 11 4 5 2 17:17 17 Gladbach 11 4 3 4 13:14 15 Hoffenheim 11 4 2 5 19:17 14 Köln 11 3 5 3 17:20 14 Bochum 11 4 1 6 10:18 13 Hertha Berlín 11 4 1 6 12:24 13 Frankfurt 11 2 6 3 12:16 12 Augsburg 12 3 3 6 11:21 12 Stuttgart 11 2 4 5 15:20 10 Arminia Bielefeld 11 1 5 5 7:16 8 Greuther Fürth 11 0 1 10 8:29 1 Holland B-deild: Jong Ajax – Volendam............................ 4:4 - Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 70 mínúturnar með Ajax. Danmörk OB – Viborg.............................................. 2:3 - Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 72 mín- úturnar með OB. Staða efstu liða: Midtjylland 15 11 1 3 29:13 34 København 15 8 5 2 30:11 29 AaB 15 7 4 4 23:16 25 Randers 15 7 4 4 19:17 25 Brøndby 15 6 6 3 22:19 24 Silkeborg 15 5 8 2 24:14 23 B-deild: HB Köge – Esbjerg.................................. 3:0 - Ísak Óli Ólafsson lék allan leikinn með Esbjerg en Andri Rúnar Bjarnason er meiddur. 4.$--3795.$ Olísdeild kvenna Stjarnan – Fram................................... 25:26 Staðan: Fram 8 6 1 1 217:198 13 Valur 7 6 0 1 203:160 12 KA/Þór 7 5 1 1 198:181 11 Haukar 8 4 1 3 220:215 9 HK 8 3 1 4 190:199 7 Stjarnan 8 2 0 6 191:215 4 ÍBV 7 2 0 5 180:183 4 Afturelding 7 0 0 7 149:197 0 Grill 66 deild karla Selfoss U – Afturelding U ................... 29:25 Haukar U – ÍR...................................... 26:28 Evrópubikar kvenna 32-liða úrslit, fyrri leikur: AEP Panorama – ÍBV ......................... 20:26 Frakkland Aix – Cesson Rennes ........................... 25:24 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 8 mörk fyrir Aix. B-deild: Billere – Nice ....................................... 28:25 - Grétar Ari Guðjónsson varði 5 skot í marki Nice. Svíþjóð Bikarinn, 8-liða úrslit, seinni leikur: Guif – Lugi............................................ 36:36 - Aron Dagur Pálsson skoraði 2 mörk fyr- ir Guif og markvörðurinn Daníel Freyr Ágústsson skoraði 1 mark. _ Lugi vann samanlagt 74:65. %$.62)0-# Markvörðurinn Adam Ingi Bene- diktsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska knattspyrnufélagið Gautaborg. Adam Ingi, sem er 19 ára gamall, gekk til liðs við Gautaborg frá HK árið 2019 og hefur leikið með U19 ára liði félagsins undanfarin tíma- bil. Adam Ingi hefur nú verið kall- aður inn í æfingahóp aðalliðsins en hann var varamarkvörður liðsins gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeild- inni í september. Gautaborg er í tí- unda sæti sænsku úrvalsdeild- arinnar með 34 stig. Samdi til þriggja ára Ljósmynd/Göteborg 3 Adam Ingi Benediktsson hefur leikið í Svíþjóð frá árinu 2019. Augsburg, lið Alfreðs Finn- bogasonar, kom geysilega á óvart í þýsku bundesligunni í knattspyrnu í gær og skellti stjörnuliði Bayern München 2:1. Alfreð var fjarri góðu gamni í gær vegna veikinda en samherjar hans náðu í þrjú dýrmæt stig gegn nágrönnunum frá München. Mads Pedersen og Andre Hahn komu Augsburg í 2:0 en Robert Lew- andowski minnkaði muninn fyrir hlé. Meistararnir í Bayern eru eins og áður á toppnum en Augsburg lyfti sér af fallsvæðinu. Mögnuð úrslit hjá Augsburg AFP Óvænt Benjamin Pavard og Andi Zeqiri í skallaeinvígi í gær. Subway-deild karla Þór Þ. – Þór Ak. .................................. 110:81 Keflavík – Valur.................................... 79:78 Staðan: Þór Þ. 7 6 1 687:632 12 Keflavík 7 6 1 606:566 12 Grindavík 7 5 2 580:551 10 Tindastóll 7 5 2 604:589 10 KR 7 4 3 651:637 8 Njarðvík 7 4 3 653:609 8 Valur 7 4 3 548:553 8 Stjarnan 7 3 4 620:609 6 ÍR 7 2 5 632:652 4 Vestri 7 2 5 573:602 4 Breiðablik 7 1 6 738:761 2 Þór Ak. 7 0 7 495:626 0 1. deild karla Fjölnir – ÍA ........................................... 95:73 Sindri – Skallagrímur .......................... 77:92 Selfoss – Álftanes ................................. 74:83 Hrunamenn – Hamar........................... 98:80 Haukar – Höttur................................... 90:89 Staðan: Haukar 9 8 1 929:667 16 Höttur 8 7 1 805:649 14 Sindri 9 6 3 818:759 12 Álftanes 9 6 3 831:756 12 Skallagrímur 9 4 5 751:751 8 Hrunamenn 9 4 5 774:857 8 Selfoss 9 4 5 767:793 8 Fjölnir 8 3 5 685:739 6 Hamar 9 2 7 700:823 4 ÍA 9 0 9 671:937 0 4"5'*2)0-#

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.