Morgunblaðið - 20.11.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 20.11.2021, Qupperneq 48
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda tónleika í dag í syrpunni 15:15 í Breiðholtskirkju og bera þeir yfirskriftina Heiðríkjan og Don Kíkóti. Á efnisskrá verða Sónata í A-dúr eftir Schu- bert, sem var upphaflega samin fyrir fiðlu og píanó, og heiðríkjan svífur einnig yfir vötnum í nýrri tónsmíð Páls Ragnars Pálssonar, Notre Dame, sem frumflutt verður á tónleikunum. Don Kíkóti er svo efniviður hollenska tónskáldsins Jurrians Andriessens í Tveimur kansónum Don Kíkóta sem einnig verða fluttar. Verk eftir Pál frumflutt í 15:15 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Það verður náttúrulega söknuður þegar strákarnir hittast í landsliðsferðum. Ég held að ég sé búinn að missa af einni ferð á síðustu 10-11 árum, sem var vegna höfuðmeiðsla. En það er kominn tími á að leyfa ungu strákunum að taka við. Svo er ég líka sjálfur að hugsa um minn líkama og mína fjölskyldu í þessum lands- leikjahléum,“ segir knattspyrnumaðurinn Ari Freyr Skúlason meðal annars í viðtali í blaðinu í dag en hann tilkynnti í liðinni viku að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna. »40 Ari Freyr missti einungis af einni landsliðsferð á rúmum áratug ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Einstaklingar geta keypt leirhlut í listasmiðjunni Noztru í Vesturhöfn á Grandagarði 14 í Reykjavík, sest þar niður og málað hann, skilið hann eftir og fengið hann síðan glerjaðan og hreinsaðan og þar með fullfrágenginn viku síðar. „Svona skapandi smiðja er þekkt víða erlendis og er afþreying fyrir alla,“ segir Unnur Knudsen Hilmarsdóttir, listrænn stjórnandi fyrirtækisins, en smiðjan var form- lega opnuð í gær. Um 140 mismunandi vöruflokkar eru í boði. Þar má nefna bolla, diska, vasa, styttur og fleira. Meðalverðið er um 5.000 krónur fyrir allan pakkann, þ.e. hlutinn, verkfærin, litina, aðstöð- una, hreinsunina og glerjunina. Leir- hlutirnir eru framleiddir víða um heim en Noztra, sem tvenn hjón standa að og reka, kaupir þá og litina frá bandarískum birgi. „Við fórum á netnámskeið hjá þessu fyrirtæki til þess að kynna okkur hvernig á að standa að uppsetningu og rekstri á svona stúdíói,“ segir listkennarinn, en auk smiðjunnar reka þau kaffihús í húsnæðinu og eru með vínveitinga- leyfi. Fyrir alla Unnur er með MA-gráðu í list- kennslu. Hún kom að stofnun ný- sköpunar- og listabrautar í Verzl- unarskóla Íslands fyrir 14 árum, hefur verið verkefnisstjóri hennar síðan og haldið utan um alla hönn- unar- og listkennslu í skólanum. „Ég held áfram í skólanum en hef minnk- að við mig vegna nýja starfsins.“ Hún leggur áherslu á að vinnan í smiðjunni sé sérstök upplifun. „Þetta snýst ekki um að eignast enn einn bollann heldur um að koma saman með vinum eða fjölskyldu, sitja sam- an í sérstöku umhverfi og iðka ein- hvers konar listir. Í starfi mínu í Verzlunarskólanum hef ég lært hve valdeflandi það er fyrir einstakling að sitja við listiðkun. Það gefur fólki ótrúlega mikið.“ Smiðjan (noztra.is), sem er í gamla Slysavarnahúsinu, er hugsuð fyrir alla, jafnt unga sem aldna. „Allir ráða við þetta og í reynslutímum hef ég verið með allt frá þriggja ára barni upp í rúmlega áttræða foreldra mína og allir hafa staðið sig með sóma.“ Unnur segist hafa orðið vör við vakningu fyrir þessari afþreyingu, sem geri fólki mögulegt að gleyma sér um stund og losna þannig frá áreiti eins og símanum á meðan. Samstarfsmenn mæti í svona smiðjur til þess að efla hópandann og málunin tengi fjölskyldur og vini. Fólk panti tíma á netinu og hópar geti verið út af fyrir sig, en gert sé ráð fyrir að málun á einum hlut taki tvo tíma. Smiðjan sé opin klukkan 10-19 alla daga en auk þess sé hægt að panta kvöldtíma fyrir fjölmennari hópa. „Fólk heldur oft að það sé ekki skapandi, kunni hvorki að teikna né mála, en hér eru engin inn- tökuskilyrði og þetta er fyrir alla, meira að segja manninn minn, sem hefur aldrei komið nálægt list heldur rekið fyrirtæki alla tíð,“ áréttar Unn- ur. Listin leynist víða - Listasmiðja fyrir almenning opnuð á Grandagarði Tímamót Unnur Knudsen Hilmarsdóttir í listasmiðjunni Noztru. Fjölbreytni Nokkrir fullbúnir munir í smiðjunni á Grandagarði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.