Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021
Sími 555 2992 / 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Kardemommubærinn var sýndur á
Þórshöfn í liðinni viku, ekki einu
sinni heldur þrisvar sama daginn.
Það voru nemendur Grunnskólans
á Þórshöfn sem settu upp þetta
skemmtilega leikverk eftir Thor-
björn Egner en eftir langan og
strangan undirbúning og æfingar
varð ljóst að vegna samkomutak-
markana kæmust ekki allir á eina
sýningu.
Frekar en að hætta við leikritið
og hafa það eingöngu á netinu eins
og gert var með árshátíðarleik-
verkið í fyrra, þá var ákveðið að
hafa bara fleiri sýningar sama dag-
inn.
Byrjað var með morgunsýningu
sem jafnframt var generalprufa
þar sem leikskólabörnum og starfs-
fólki var boðið en svo voru haldnar
tvær almennar sýningar síðar um
daginn. Áhorfendur skemmtu sér
vel og leikgleðin var í hámarki hjá
öllum íbúum Kardemommubæjar.
Uppsetning og vinna við stórt
leikverk felur í sér mikið nám fyrir
nemendur; lestur, hlustun, fram-
sögn, tjáningu, listsköpun og sam-
vinnu, svo eitthvað sé nefnt, því
nám er ekki bara það að sitja inni í
kennslustofu með bækur. Bún-
ingar, förðun og leikmyndir eru í
höndum nemenda með aðstoð kenn-
ara, en einnig læra elstu nemendur
að stjórna leikhljóðum, tónlist og
ljósum.
Það voru því þreyttir en ánægðir
nemendur sem fóru heim á fimmtu-
dagskvöldi eftir langan og vel
heppnaðan sýningardag.
Þrefaldur Karde-
mommubær á Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Sýning Leikgleðin var mikil hjá yngstu íbúum Kardemommubæjar þegar sýningar voru haldnar á fimmtudag.
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Skólahald verður tekið upp að nýju í
Kársnesskóla í dag eftir fjögurra
daga frí. Greint var frá því á mbl.is á
fimmtudag að hópur foreldra barna
við skólann vildi ekki senda börn sín í
skólann eftir að tugir greindust smit-
aðir þar í síðustu viku. Á fimmtudag
var haldinn starfsdagur til þess að
meta stöðuna og skólahald svo fellt
niður á föstudag.
„Við funduðum í gær með almanna-
vörnum og yfirstjórn bæjarins og
bæjarstjóra og sáum þá að tölurnar
voru farnar að lækka. Það var stað-
fest síðan í morgun þegar við fengum
nýjar tölur,“ sagði Björg Baldurs-
dóttir, skólastjóri Kársnesskóla, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Við sjáum að við erum að ná svolít-
ið betri tökum á þessu, þannig að við
treystum okkur fyllilega til þess að
opna skólann.“
Sótthreinsuðu skólann
Að sögn Bjargar fór helgin í að
sótthreinsa skólann og endurskipu-
leggja skólahaldið í samræmi við
stöðuna. „Við erum með hertar að-
gerðir innan skólans, pössum upp á
alla blöndun og íþróttir eru kenndar
úti. Þetta eru alls konar aðgerðir sem
við höfum gripið til.“
Spurð hvort hún sé ánægð með
hvernig skólahaldi hefur verið háttað
á önninni eða hvort eitthvað hefði
mátt gera betur segir hún:
„Já, auðvitað getum við haft alls
konar skoðanir á því. Það er alltaf
hægt að horfa til baka en við höfum
reyndar stigið aðeins stærri skref í
Kársnesskóla. Við höfum heimildir til
þess.“
Þá bætir hún við að engan hefði
grunað að veiran myndi leggjast á
yngsta stigið eins og raunin hafi orðið.
„Þetta breiðist út á einum til tveim-
ur dögum. Þetta er greinilega bráð-
smitandi. Ég veit ekki hvort nokkrar
aðgerðir hefðu getað stöðvað það svo
sem, þegar þetta er komið inn á annað
borð. Þetta er vond staða og maður
hefur auðvitað áhyggjur af þeim fjöl-
skyldum og börnum sem eru veik eða
eru í sóttkví. En samstaða fólksins
hérna á Kársnesinu og starfsfólksins
er alveg einstök. Við vonum að þetta
sé komið núna.“
Opna skólann
aftur eftir smitin
- Virðast vera að ná tökum á veirunni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kársnes Skólastjóri Kársnesskóla
segir samstöðuna þar einstaka.
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
verður önnur yngsta konan til að
taka sæti á Alþingi og fimmta yngst
allra þingmanna þegar nýtt þing
kemur saman á morgun. Hún skip-
aði annað sæti á lista Framsóknar í
Norðvesturkjördæmi.
Lilja tók fyrst sæti á Alþingi árið
2018 en þá varð hún yngst kvenna til
að taka sæti á Alþingi sem varamað-
ur og fjórða yngst allra. Hún segist
hafa haft áhuga á stjórnmálum frá
unga aldri og stefnan alltaf verið að
taka sæti á Alþingi.
200 kílómetrar á dag
Lilja er 25 ára tveggja barna móð-
ir úr Borgarbyggð sem stundar
grunnskólakennaranám með
áherslu á samfélagsfræði við Há-
skóla Íslands. Meðfram námi hefur
hún starfað á leikskólanum í Búðar-
dal, Hjallastefnunni á Bifröst og sem
skólaliði í Grunnskóla Borgar-
fjarðar. Nú verður námið lagt til
hliðar í einhvern tíma þar sem þing-
mennskan tekur við á morgun.
Ólíkt mörgum öðrum landsbyggð-
arþingmönnum ætlar Lilja ekki að
flytja á höfuðborgarsvæðið. Hún
stefnir á að keyra að minnsta kosti
200 kílómetra á dag en segir það
ekkert mál enda kunni hún að nýta
tímann vel.
„Ég nýti tímann og hringi. Ef ég
er ekki að hringja hlusta ég bara á
tónlist og öskursyng með. Önnur
leiðin er sirka einn söngleikur.“
Spurð um uppáhaldssöngleik sinn
nefnir hún bandaríska verkið Ham-
ilton. „Pólitík og söngleikur saman,
hversu fullkomið er hægt að hafa
þetta?“
Ættu ekki allir að þurfa
að búa á Stúdentagörðunum
Frá unga aldri hefur Lilja haft
áhuga á stjórnmálum en hún segir
þau einmitt hafa verið stærsta
áhugamál sitt síðan í grunnskóla.
Hún byrjaði aðeins 17 ára í starfi
Framsóknar og gegndi meðal ann-
ars formennsku í Sambandi ungra
framsóknarmanna í þrjú ár.
Stærstu áherslumál Lilju á Al-
þingi verða menntamál og byggða-
mál. Hún segist lengi hafa talað fyrir
aukinni áherslu á fjarnám í HÍ þar
sem ekki sé nauðsynlegt að mæta á
staðinn í mörgum bóklegum áföng-
um og mun hún halda áfram að tala
fyrir því á Alþingi.
„Á Alþingi mun ég leggja áherslu
á að allir geti stundað nám, sama
hvar þeir búa. Það er í raun aðal-
ástæðan fyrir því að ég fór í pólitík.
Mér fannst frekar fúlt að það þyrfti
heimsfaraldur til að bjóða fjarnám
sem valkost. Þegar fullorðið fólk er í
námi á það að gera það á sínum for-
sendum. Háskólinn á ekki að ákveða
forsendur þess. Það eiga ekki allir
að þurfa að búa á Stúdentagörð-
unum.“
Aldur ekki hæfniviðmið
Framsókn á nú þrjá unga þing-
menn og eru þeir allir nýir á þingi.
Lilja kveðst finna fyrir því að flokk-
urinn sé að laða að sér ungt fólk í
auknum mæli og telur hún ástæðuna
stefnu flokksins í mennta- og fé-
lagsmálum.
Lilja segir það geta hjálpað sér að
vera ung á þingi þar sem hún er enn
í háskólanámi og á börn í leikskóla,
en hún vill ekki að fólk horfi bara á
hana sem unga þingmanninn.
„Ég heyri allt aðra umræðu og tek
þátt á samfélagsmiðlum á allt annan
hátt en margir aðrir á þingi. Fólk lít-
ur þó á aldur sem hæfniviðmið, sem
það er alls ekki. Mér finnst frábært
að vera komin í þessa stöðu en ég vil
ekki bara vera unga þingkonan.“
Ekki bara unga þingkonan
- Stefnan alltaf verið á Alþingi - Mun leggja áherslu á
mennta- og byggðamál - Framsókn laði að sér ungt fólk
Ný Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.