Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 8

Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Það er út af fyrir sig viðeig- andi að frambjóðandi Við- reisnar, sem ekki náði kjöri til Alþingis, skuli ætla að „vísa mál- inu“ til erlends dómstóls, Mann- réttindadómstóls Evrópu. - - - Þetta er viðeig- andi vegna þess að Viðreisn hefur það á stefnu- skrá sinni að koma Íslandi undir er- lent vald. Og Viðreisn getur ekki beðið eftir að þessi áform nái fram að ganga, heldur kýs að taka forskot á sæluna og afsala völdunum fyrirfram út fyrir land- steinana. - - - Og það á ekki einu sinni að bíða niðurstöðu Alþingis eða rökstuðnings, frambjóðandi Við- reisnar hefur þegar ákveðið að „vísa málinu“ út fyrir landstein- ana fái hann ekki sæti á Alþingi út á fyrri talningu í Norðvestur- kjördæmi, talningu sem vitað er að var vitlaus. - - - Og frambjóðandinn fallni bætir því við að aldrei hafi sést „með jafn skýrum hætti hvort þingmenn ætli að stilla sér upp eiginhagsmuna-megin eða al- mannahagsmuna-megin. Ég held að við munum bara sjá það svart á hvítu á fimmtudaginn.“ - - - Er líklegt að það muni sjást á fimmtudaginn? Það er ekki víst, raunar ólíklegt. - - - En það er alveg víst að barátta hins fallna frambjóðanda ber öll merki eiginhagsmunapots. - - - Ætli hægt sé að benda á skýr- ara dæmi um slíkt pot? Guðmundur Gunnarsson Eiginhagsmunir frambjóðanda STAKSTEINAR Svört vika Selásbraut 98, 110 Reykjavík, sími 419 7300, sportval.is Netsprengja 20% afsláttur af öllum vörum dagana 22.-29. nóvember Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tillögur eru gerðar um eflt samstarf á sviði viðskipta, heilbrigðismála og menntunar milli Íslands og Færeyja í tillögum starfshóps á vegum utan- ríkisráðherra. Skýrslan, sem unnin var undir forystu Júlíusar Hafstein sendiherra, hefur nú verið tekin til umfjöllunar í stjórnkerfinu. Meðal annars er lagt til að viðskipasam- starf milli landanna verði formfest og hindrunum rutt úr vegi, svo flutn- ingar milli landanna meðal annars með ferskvöru verði skilvirkari. Um ferjusiglingar er lagt til að kanna hvort koma megi á ferðum milli Færeyja og hafna á suðvestur- horninu á Íslandi. Slík tenging gæti þá styrkt siglingar Norrænu til Seyðisfjarðar, sem fyrir eru. Þá er lagt til að ferðum í reglulegu áætl- unarflugi milli Færeyja og Íslands verði fjölgað og löndin kynnt sitt á hvað sem áhugaverður viðkomustað- ur íbúum landanna beggja. Einnig er lagt til að útbúið verði námsefni fyrir íslenska grunnskóla þar sem fjallað yrði um tengsl þessara landa og þjóða sem þau byggja. Íþróttir eru einnig nefndar í til- lögum, svo sem möguleiki á gagn- kvæmum heimsóknum íþróttaliða. Einnig er vikið að kvikmyndaiðnaði og lagt til að komið verði á samstarfi, til dæmis um tökustaði. sbs@mbl.is Samstarf milli landanna verði eflt - Ísland og Færeyjar - Viðskipti og flutningar - Kvikmyndir og íþróttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Færeyjar Eyjaferja kemur inn til hafnar við Þinganes í Þórshöfn. Steven „Búdda“ Kav- anagh, fyrrverandi grafískur hönnuður á auglýsingadeild Morg- unblaðsins, lést 19. nóv- ember á Írlandi, 68 ára að aldri. Steven fæddist í Lundúnum 2. júní 1953, sonur þeirra Charlies og Betty Kav- anagh. Hann fluttist sex mánaða í bæinn Wicklow suður af Dyfl- inni og ólst þar upp. Hann átti sex systkini. Í fríi á Spáni kynntist Steven hinni íslensku Súsönnu Rós Westlund og árið 1982 fluttist hann með henni til Íslands og þau giftust. Með Súsönnu eignaðist Steven þrjú börn: Söru Rós árið 1986, Önnu Lísu 1989 og loks Daníel Charles ári síðar, 1990. Barnabörn Stevens eru fjögur talsins: Benja- mín, Stefán, Sandra og Súsanna. Steven bjó á Íslandi í 32 ár og elsk- aði landið jafn heitt og Írland. Hér á landi vann hann við grafíska hönnun, fyrst á auglýsingastofu Sambandsins og síðar á Morgunblaðinu. Í fyllingu tímans skildu þau Steven og Sús- anna. Árið 2010 kynntist hann Shar- on Kavanagh og lifðu þau hamingju- samlega saman í tíu ár. Þau fluttust aftur til Wicklow árið 2015. Uppáhaldsstaður Stevens á Íslandi var hin þekkta írska krá The Dubliner, þar sem hann eignaðist fjölda góðra vina. Á Írlandi þótti honum fátt betra en að gera sér glaðan dag á staðnum Ta Se, þar sem kráareigand- inn talaði írsku, en nafn staðarins, „Ta Se“, er írska yfir „hann er“. Þeir sem þekktu Steven vita að hann var mikil fé- lagsvera og lifði lífinu til fulls. Hann var sjálflærður á gítar og spilaði í nokkrum hljómsveitum um árin. Að auki varð hann ágætis listmálari og málaði mörg málverk. Steven var vinmargur og af vinum hans voru margir tónlistarmenn líkt og hann. Fátt fannst honum betra en að troða upp með góðum vinum en hann á marga vini hér á Íslandi sem og á Írlandi, auk landa á borð við Spán, Bretland, Ástralíu og Nýja- Sjáland. Útför Stevens fer fram á morgun, þriðjudaginn 23. nóvember, frá St. Patrick’s Church í Wicklow. Andlát Steven Kavanagh grafískur hönnuður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.