Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við stefnum inn í pestavetur,“ segir Óskar Reykdalsson, for- stjóri Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. Algengt hefur verið síðustu misserin að fólk haldi sig til hlés og forðist kórónuveiruna. Þannig hafa margir líka sloppið við algengar umgangspestir. Úr læknisfræðinni er þó þekkt að þegar algengar sýkingar í önd- unarfærlum liggja í láginni eitt árið koma þær inn af miklum þunga nokkru síðar. Pestir blandast saman „Ef spár ganga eftir má reikna með talsvert miklu álagi á heilbrigðiskerfið af völdum al- gengra pesta á næstunni. Þetta geta verið Covid-19, inflúensa með hátum hita og beinverkjum og svo venjulegar leikskólapestir með til dæmis nefrennsli og slappleika. Allt getur þetta blandast saman svo erfitt getur reynst að greina hvers eðlis veik- indin eru. Því er mikilvægt sem aldrei fyrr að fólk fari í covid- próf við minnstu einkenni,“ segir Óskar. Hann minnir á að inflú- ensan fari yfirleitt að láta á sér kræla í janúar og febrúar. Því hafi fólk enn ágætt svigrúm til að fara í flensusprautu. Kórónuveiran hefur í dag talsvert aðra birtingarmynd en var í upphafi heimsfaraldurs fyr- ir tæpum tveimur árum. Vegna bólusetninga verða veikindi fólks; hiti, hósti, þreyta og skert skyn gagnvart bragði og lykt, yfir– leitt vægi nú en áður. Slíkt gerir Covid-19 hins vegar klárlega lúmskara nú en áður. Því er meiri hætta en áður á útbreiðslu veirunnar, eins og tölur síðustu vikna sýna vel. Örvunar- bólusetningar eins og nú bjóðast eru því sérstaklega mikilvægar, segir forstjórinn sem útilokar ekki að viðbótarskammtar gegn veirunni kunni að verða fleiri – jafnvel reglulegir í framtíðinni. „Í Svíþjóð hafa andlát af völdum kórónuveirunnar verið hlutfallslega tíu sinnum algeng- ari en hér á landi, þar sem þau eru liðlega þrjátíu. Sú tala stað- festir að einhverju leyti að minnsta kosti að þær varúðar- ráðstafanir og takmarkanir sem gripið hefur verið til hér á landi í því skyni að hefta útbreiðslu veir- unnar hafa verið réttar,“ segir Óskar. Heilsugæslan oftar fyrsti viðkomustaður Alls hafa í dag 89% lands- manna 12 ára og eldri verið full- bólusett fyrir Covid-19. Um 30.000 manns hafa hins vegar ekki mætt í neinar sprautur. Slíkt segir Óskar vera nokkurt áhyggjuefni og mikilvægt sé að ná til þess hóps á næstunni. Vís- bendingar séu um að þarna eigi einkum í hlut ungt fólk og svo ungir karlar af erlendum upp- runa. Hugsanlegt sé að strax í þessari viku hefjist skipulagðar ferðir heilbrigðisstarfsfólks til dæmis að stórum vinnustöðum, skólum og á annan slíkan vett- vang til að ná til óbólusettra. Í yfirstandandi heimsfaraldri hefur fengist góð reynsla af vefn- um heilsuvera.is. Þar getur fólk skráð sig í veirupróf, er boðað í sprautur, fær upplýsingar, vott- orð og svo framvegis. Einnig fær það endurnýjun lyfja, svör við einföldum spurningum og fleira. „Þetta hefur sparað mikla vinnu og í raun gert mögulegt að tak- ast á við þetta risastóra verkefni sem heilbrigðisþjónusta í heims- faraldri er. Þegar kannski er ver- ið að taka 5.000 sýni á dag hefði verið nánast ógerningur að hringja í alla með niðurstöður úr prófunum eða halda utan um öll mál. Heilbrigðisráðuneytið og Landlæknir ákváðu strax í upp- hafi faraldursins að efla Heilsu- veru meðal annars með því að ráða til dæmis inn fleiri forritara. Allt hefur þetta virkað vel og ráðstafanir reynst réttar – og leitt til þess að heilsugæslan er í vaxandi mæli fyrsti viðkomu- staður fólks í kerfinu þegar veik- indi ber að höndum. Að slíku hef- ur lengi verið unnið og er að skila sér ágætlega nú; léttir álagi af öðrum stofnunum og sjúkra- húsum eins og þurfti.“ Andleg heilsa þróast til hins verra Starfsemi Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðsins er fjölþætt. Ársveltan er um 12 milljarðar og starfsmenn nærri 1.000 í 750 stöðugildum. Ýmsir nýir þættir hafa bæst við starfsemina á síð- ustu misserum, svo sem skimum fyrir leghálskrabbameinum, heil- brigðisþjónusta við fangelsið á Hólmsheiði, þjónusta við börn með þroska- og geðvanda og svo mætti áfram telja. Þunginn í starfseminni er þó hin almenna heilsugæsla sem læknar, hjúkr- unarfræðingar og aðrar fag- stéttir sinna. Þá hefur geðheil- brigðisþjónusta verið styrkt til muna á síðustu misserum – svo sem með sálfræðiþjónustu á öll- um heilsugæslustöðvum, aukinni áherslu á geðheilsu í mæðra- og ungbarnavernd og svo mætti áfram telja. „Fólk leitar í dag meira eftir geðheilbrigðisþjónustu og fengist hafa auknir fjármunir til þess að efla þann þátt í starfsemi heilsu- gæslunnar. Vísbendingar eru um að andleg líðan landsmanna hafi þróast til hins verra í heimsfar- aldri. Einsemd, ótti og almennar áhyggjur um heilsufar hafa eðli- leg áhrif á fólk, sem leitar eftir hjálp. Veiran hefur áhrif á allt samfélagið – og við getum ekki gert neitt annað en að halda bar- áttunni áfram, hversu langt sem kann að vera til lands. En þá er líka mikilvægt að heilsugæslunni séu tryggðir þeir fjármunir sem þarf og í því efni finnst mér við njóta skilnings,“ segir Óskar. Heilsuvera og tæknivæðing hafa létt undir í baráttunni við heimsfaraldur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forstjóri Við getum ekki annað en haldið baráttunni áfram, segir Óskar, sem alltaf grípur í læknisstörfin jafnhliða stjórnunarhlutverkinu. Umgangspestirnar eru til alls líklegar Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Fólk flykkist nú í Laugardalshöll og fær örvunarskammt mótefnis fyrir kórónuveirunni. Sprauturnar gætu orðið fleiri. Orkubú Vestfjarða (OV) hefur samið við Skógræktina um ráðgjöf vegna skógræktar á þremur jörð- um í Arnarfirði sem allar eru í eigu fyrirtækisins. Samtals er ráðgert að rækta skóg og binda kolefni á um 235 hekturum. Jarðirnar þrjár eru Hjallkárs- eyri, Rauðstaðir og Borg, sem eru innst norðanvert við Arnarfjörð, nærri Mjólkárvirkjun. Í fyrsta áfanga verður unnið með 70 hekt- ara svæði. Markmiðið er að til verði kolefnisbinding í skógrækt og náttúrulegu skóglendi og miðað er við að verkefnið fullnægi kröfum svo það sé tækt til vottunar í lofts- lagsskrá Íslands. Að sögn Elíasar Jónatanssonar orkubússtjóra fellur samningurinn vel að loftslagsstefnu (OV) þar sem markmiðið sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starf- seminni og fækka kolefnissporum. Orkubú Vestfjarða stefnir að því að vera kolefnishlutlaust fyrirtæki árið 2030. Skógræktin í Arnarfirði er fyrsta vottaða kolefnisverkefnið á Vestfjörðum. Elías segir æ mik- ilvægara fyrir orkufyrirtæki að geta sýnt fram á að þau taki fullan þátt í því með heimsbyggðinni að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda. „Fyrirtækið er í almannaeigu og hefur þannig ríkar skyldur til að taka fullan þátt í stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. Það er mikilvægt fyrir viðskiptavini Orkubúsins að þeir geti treyst því að stefnunni sé fylgt eftir og kolefnisbindingin sé vottuð,“ segir orkubússtjórinn í til- kynningu. sbs@mbl.is Kolefnisskógur í Arnarfirðinum - Ræktað verður við Mjólkárvirkjun Landsréttur sýknaði á föstudag ís- lenska ríkið af kröfu fyrrverandi landeigenda á Geysissvæðinu í Haukadal. Í Morgunblaðinu á laug- ardag sagði að krafan hefði hljómað upp á rúman milljarð króna, en rétt er að aðalkrafa fyrrverandi landeig- endanna í málinu var 1.100.113.020 krónur að frádregnum 1.009.278.000 krónum, sem íslenska ríkið innti af hendi 20. júní 2019, og nam því rúm- lega 90 milljónum króna. LEIÐRÉTT 90 milljóna krafa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.