Morgunblaðið - 22.11.2021, Page 12

Morgunblaðið - 22.11.2021, Page 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Margt var um manninn á viðburði í Berlín í byrjun síðustu viku þar sem Brandr-vísitalan (e. Brandr index) var kynnt fólki úr þýska markaðs- og auglýsingageiranum. Friðrik Larsen er maðurinn á bak við Brandr en um er að ræða tæki til að mæla styrk vörumerkja og er það félagið Brandr Global sem stend- ur að baki útrás verkefnisins. Á Íslandi hafa yfir hundrað fyrirtæki nýtt sér vörumerkjavísi- tölu Brandr og standa vonir til að þýsk fyrirtæki nýti þjónustuna á komandi misser- um. Upplýsir Friðrik að einnig sé fyrirhugað að sækja inn á Noregsmarkað á næstu þremur mánuðum en draga lærdóm af þessum tveimur markaðssvæðum áður en ráðist verður í frekari útrás. Hafa notað röng mælitæki „Brandr á rætur sínar í doktors- námi mínu við Háskóla Íslands þar sem ég rýndi í hvernig orkufyrirtæki geta búið til sterk vörumerki,“ út- skýrir Friðrik en störf hans á sviði markaðsmála orkugeirans leiddu til þess að hann efndi til fyrstu CHARGE-ráðstefnunnar þar sem markaðsmál orkugeirans eru í fyrir- rúmi. Síðan þá er CHARGE orðið að alþjóðlegum viðburði og eru næstu ráðstefnur á dagskrá í Houston í Texas í maí á næsta ári og í Reykja- vík í október. „Greining á vörumerkj- um orkufyrirtækja kom mér á þá skoðun að fyrirtæki væru ekki að nota réttu tólin til að gera sínar mæl- ingar, og að þau tól sem hafa verið í notkun gæfu ranga mynd af styrk- leikum og veikleikum vörumerkja. Úr varð að skapa nýtt mælitæki og þar með var komið uppleggið að vörumerkjavísitölu orkufyrirtækja, eBBI – Energy branding bench- marking index.“ Til að gera langa sögu stutta afréð Friðrik að útvíkka þær aðferðir sem hann þróaði til að geta mælt styrk vörumerkja fyrirtækja af öllum toga. Verkfærið hefur hann prófað á millj- ónum gagnapunkta og borið styrk- leika vörumerkja saman við aðrar stærðir sem mæla árangur og fram- tíðarhorfur fyrirtækja. Segir hann styrk vörumerkja haldast í hendur við góðar rekstrarhorfur og að betri skilningur á veikleikum og styrkleik- um vörumerkja geri stjórnendum fært að efla fyrirtæki sín með mark- vissari hætti. „Styrkleika vörumerkja má reikna út frá ótal atriðum, en Brandr-vísital- an einangrar þessi atriði niður í fjóra yfirþætti og þrjátíu undirþætti sem mæla má með skoðanakönnun. Til að sjá hvar þau standa senda fyrirtæki spurningalista til afmarkaðs úrtaks, s.s. viðskiptavina, og söfnum við svörunum í gagnagrunn og reiknum út hvar fyrirtækin standa. Útkoman er 90 blaðsíðna skýrsla sem við för- um vandlega yfir með stjórnendum.“ Eftirsóknarverðir vinnustaðir Styrkur vörumerkis snýst um miklu meira en sýnileika og auglýs- ingakaup eða að vera betur í stakk búin til að taka á erfiðum málum þegar þau koma upp. Segir Friðrik að kjarninn í styrk vörumerkis sé að framkalla jákvæðar og sterkar til- finningar í huga neytenda og við- skiptavina. „Mjög sterk fylgni er á milli styrkleika vörumerkja og arð- semi fyrirtækja, og ætti það eitt og sér að fá stjórnendur til að vilja sinna þessum þætti í rekstrinum rétt. Með því að mæla styrk vöru- merkisins af nákvæmni má líka bet- ur sjá hvar þarf að gera betur og þannig nýta markaðsfé með skil- virkari hætti,“ útskýrir hann. „Ávinningurinn ætti ekki bara að skila sér í batnandi sölutölum held- ur hjálpar styrkleiki vörumerkja líka til að laða að hæfasta starfs- fólkið. Það er ekki bara launanna vegna að allir vilja vinna hjá fyr- irtækjum eins og Google, Apple og Tesla.“ Styrkur vörumerkis og arðsemi haldast í hendur AFP Færiband Verksmiðja BMW í Bæjaralandi. Þýskaland býr að sumum sterkustu vörumerkjum heims. Lykilstærð » Styrkur vörumerkis snýst ekki bara um auglýsingakaup og há- markssýnileika » Sterk fylgni er á milli þess hver arðsöm fyrirtæki eru og hve sterku vörumerki þau búa að » Öflugustu vörumerkin framkalla jákvæðar og sterkar tilfinningar hjá fólki » Mæling fer fram með spurningalista sem viðskipta- vinir eru beðnir að svara - Vonir standa til að vörumerkjavísitalan Brandr nái fótfestu í Þýskalandi og Noregi Friðrik Larsen 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 22. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.13 Sterlingspund 176.1 Kanadadalur 103.69 Dönsk króna 19.875 Norsk króna 14.709 Sænsk króna 14.639 Svissn. franki 141.27 Japanskt jen 1.1527 SDR 183.27 Evra 147.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.7901 « Á föstudag fór bandaríska Nasdaq- vísitalan í fyrsta skipti yfir 16.000 stig og mælist styrking vísitölunnar ríflega 26% það sem af er þessu ári. Nasdaq-vísitalan styrktist um 1,2% í vikunni sem leið en S&P 500-vísitalan hækkaði um 0,3% á sama tíma. Dow Jones lækkaði um 1,4% og hefur því lækkað í tvær vikur samfleytt. Veiking Dow Jones-vísitölunnar er einkum rakin til ótta við að lönd í Evr- ópu kunni enn á ný að grípa til harka- legra sóttvarnaaðgerða vegna fjölg- unar kórónuveirusmita, en stjórnvöld í Austurríki tilkynntu nýverið að þar yrði sett á útgöngubann. Bitnuðu þessar áhyggjur m.a. á hlutabréfaverði flug- félaga og skemmtisiglingafélaga. Bankavísitala S&P lækkaði um 1,6%, og orkufyrirtækjavísitala S&P um 3,9%. Tæknifyrirtæki, og fyrirtæki sem njóta góðs af að neytendur haldi kyrru fyrir, sóttu í sig veðrið s.s. streymis- veitan Netflix og örgjörvaframleiðand- inn Nvidia. ai@mbl.is Nasdaq yfir 16.000 stig AFP Grænt Bandarískur hlutabréfa- markaður hefur átt gott ár. STUTT Talið er líklegt að japönsk stjórnvöld muni tappa af olíuforða landsins vegna hækkana á heimsmarkaðs- verði. Reuters greinir frá þessu og hefur eftir fréttaveitunni Kyodo. Fumio Kishida, sem tók við emb- ætti forsætisráðherra í október, kveðst vilja svara kalli Joes Bidens en Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir því að leiðtogar stærstu hagkerfa heims taki þátt í að stemma stigu við hækkandi olíuverði með því að ganga á þær olíubirgðir sem löndin sitja á í öryggisskyni. Það torveldar Kishida að nýta olíu- forðann að samkvæmt japönskum lögum má aðeins ganga á neyðarforð- ann vegna náttúruhamfara eða ef röskun hefur orðið á olíuflutningum. Var forðinn m.a. nýttur þegar Persa- flóastríðið brast á á 10. áratugnum, og árið 2011 þegar öflugur jarðskjálfti og flóðbylgja ollu miklum skemmdum og manntjóni á austurströnd Japans. Kishida tjáði blaðamönnum að stjórn- völd myndu stíga næstu skref með til- liti til þess hvað lögin leyfa, með það fyrir augum að leggja sitt af mörkum ásamt Bandaríkjunum og öðrum samstarfsþjóðum. Japan er háð innflutningi á olíu og hefur það komið illa við hagkerfi landsins hvað heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað hratt. Til að gera illt verra hefur japanska jenið veikst töluvert gagnvart bandaríkjadal. Á föstudag kynntu japönsk stjórnvöld nýjan aðgerðapakka sem m.a. felur í sér fjárstuðning við japanskar olíu- hreinsistöðvar með það fyrir augum að lækka smásöluverð á eldsneyti. ai@mbl.is AFP Þrýstingur Fumio Kishida vill svara kalli Bidens Bandaríkjaforseta. Vilja nýta neyðarforðann - Japan kann að ganga á olíuforða landsins til að stemma stigu við hækkandi verði - Jenið hefur verið á niðurleið Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.