Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021
Þú finnur fallegar
og vandaðar
jólagjafir hjá Eirvík
Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkj-
unum, Kanada, Ísrael og nokkrum
fleiri ríkjum eru byrjuð að bólu-
setja börn á aldrinum fimm til ell-
efu ára. Bólusetning fyrir þennan
hóp er ekki hafin á Íslandi.
Kanada heimilaði bólusetningu
gegn Covid-19 fyrir börn í þessum
aldurshópi á föstudag. Börnin fá
bóluefni frá bóluefnaframleiðend-
unum Pfizer og BioNTech.
„Eftir ítarlega og óháða vísinda-
lega skoðun á þeim gögnum sem
liggja fyrir hefur deildin komist að
þeirri niðurstöðu að ávinningur
bóluefnisins fyrir börn á aldrinum
fimm til ellefu ára vegi þyngra en
áhættan,“ sagði í opinberri yfirlýs-
ingu frá heilbrigðisráðuneyti Kan-
ada.
Gáfu 90% árangur
Ákvörðunin var tekin í kjölfar
umsóknar Pfizer og BioNTech, sem
lögð var fram 18. október, eftir að
hafa framkvæmt klíníska rannsókn
á þúsundum barna á þessum aldri.
Bóluefnið reyndist vera meira en
90 prósent árangursríkt við að
koma í veg fyrir Covid-19 og komu
engar alvarlegar aukaverkanir
fram.
Bóluefnið verður skammtað í 10
míkrógrömmum, í stað 30 míkró-
gramma sem notað er fyrir þá sem
eldri eru, og er gefið í tveimur
sprautum með þriggja vikna milli-
bili.
Kína, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin, Kambódía og Kólumbía eru
einnig byrjuð að bólusetja börn
undir 12 ára aldri, en með bóluefni
frá kínverskum framleiðendum.
ingathora@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Bóluefni Bólusetning 5-11 ára
barna er hafin víða um heim.
Kanada byrjar að
bólusetja börn
- Engar alvarlegar aukaverkanir
Víða var mótmælt í Evrópu um
helgina vegna þeirra hertu sótt-
varnaaðgerða sem Evrópuríki hafa
gripið til vegna fjölgunar smita. Þús-
undir mótmælenda komu saman úti
á götum í Hollandi, Belgíu, Austur-
ríki, Króatíu og Ítalíu.
Fyrr í vikunni varaði Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin (WHO) við út-
breiðslu Covid-19 í Evrópu þar sem
álfan berst við nýja bylgju farald-
ursins um þessar mundir.
Dr. Hans Kluge, svæðisstjóri hjá
WHO, varaði við því að 500.000 fleiri
dauðsföll gætu verið skráð fram að
byrjun mars nema gripið yrði til
brýnna aðgerða.
Köstuðu flugeldum að lögreglu
Í Belgíu hafa reglur um grímur
verið hertar og munu flestir Belgar
þurfa að vinna að heiman fjóra daga
vikunnar fram í miðjan desember.
Einnig eru áform uppi um að gera
bólusetningar fyrir heilbrigðis-
starfsmenn að skyldu.
Tugir þúsunda komu saman í
belgísku höfuðborginni Brussel til
að mótmæla aðgerðunum. Mótmæl-
endur köstuðu flugeldum að lög-
reglumönnum sem beittu mótmæl-
endur á móti táragasi og notuðu
vatnssprautur.
Mótmælendur mótmæltu aðallega
notkun covid-passa sem kemur í veg
fyrir að óbólusettir geti farið inn á
staði eins og veitingastaði eða bari.
Kveiktu í reiðhjólum
Í Hollandi var mótmælt í nokkr-
um bæjum og borgum á laugardag.
Hettuklæddir mótmælendur
kveiktu í reiðhjólum í Haag og not-
aði lögreglan hesta, hunda og kylfur
til að reka þá á brott. Embættis-
menn gáfu út neyðartilskipun í borg-
inni og voru að minnsta kosti sjö
handteknir.
Lögreglan sagði að steini hefði
verið kastað inn um glugga á sjúkra-
bíl sem var að flytja sjúkling á spít-
ala og fimm lögreglumenn hefðu
slasast, þar af einn verið fluttur með
sjúkrabíl vegna hnémeiðsla.
Þá voru tveir knattspyrnuleikir í
efstu deild stöðvaðir í stutta stund
eftir að stuðningsmenn brutust inn
og hlupu út á völlinn en áhorfendur
eru sem stendur bannaðir.
Mótmælin fylgdu í kjölfar mót-
mæla í Rotterdam þar sem borgar-
stjórinn fordæmdi þau sem „ofbeld-
isorgíu“. Lögreglan skaut byssu-
skotum þar sem hún taldi ástandið
lífshættulegt. Að minnsta kosti þrír
mótmælendur eru á sjúkrahúsi
vegna skotsára, að sögn lögreglu.
Yfirvöld hafa hafið rannsókn á mál-
inu.
Mótmæltu á Circus Maximus
Í Króatíu mótmæltu þúsundir í
höfuðborginni Zagreb skyldubólu-
setningum fyrir opinbera starfs-
menn.
Á Ítalíu komu nokkur þúsund
mótmælendur saman á hinum forna
Circus Maximus-vagnakappaksturs-
velli í Róm til að andmæla skírtein-
um sem nú er krafist á vinnustöðum
og í almenningssamgöngum.
Skírteinin eiga að sanna að ein-
staklingur sé bólusettur, búinn að fá
Covid-19 eða hafi fengið neikvætt úr
sýnatöku
Kveiktu í fyrirtækjum
Frönsk yfirvöld senda nú einnig
tugi lögreglumanna til að bæla niður
óeirðir á eyjunni Guadeloupe í Kar-
íbahafi. Mótmælendur rændu tugum
verslana og kveiktu í fyrirtækjum
eftir að mótmæli gegn Covid-passa
urðu ofbeldisfull. Gérald Darmanin
innanríkisráðherra sagði að sumir
mótmælendur hefðu beitt skotfær-
um gegn lögreglunni.
Heilbrigðisráðherra Bretlands,
Sajid Javid, hefur sagt að engin
áform séu uppi um að breyta ferða-
reglum milli Bretlands og Þýska-
lands í augnablikinu, í ljósi vaxandi
fjölda mála þar.
Hann sagði að þetta væri vegna
þess að Þýskaland væri að fást við
delta-afbrigðið: „Við erum nú þegar
með delta hér. Ég er ekki viss um að
það sé mikill ávinningur að því að
hafa fleiri reglur, en við fylgjumst
með öllum hugsanlegum nýjum af-
brigðum,“ sagði hann.
Harkaleg mótmæli víða í Evrópu
- Frakkar senda lögreglumenn til Karíbahafsins - Bretar fylgjast með hugsanlegum nýjum afbrigð-
um veirunnar - Króatar mótmæla skyldubólusetningum opinberra starfsmanna - Belgar vinna heima
AFP
Barist í Belgíu Tugir þúsunda Belga þustu út á götur Brusselborgar í gær og mótmæltu þar þeim aðgerðum sem yfirvöld hafa gripið til í nafni sóttvarna.