Morgunblaðið - 22.11.2021, Page 16

Morgunblaðið - 22.11.2021, Page 16
Ég verð að taka undir með Sigríði Á. Andersen, að það er alveg ótrú- legt að heyra það, sem Sigríður Dóra Magnúsdóttir heilsugæslulækn- ir segir, og hvernig hún talar í garð þeirra óbólusettu. Hún vænir þá um sérvisku og fordóma í garð bólusetningar, og dettur ekki í hug, að þeir gætu haft aðrar ástæður til að láta ekki bólusetja sig, t.d. eins og ofnæmi. Í hennar bókum finnst víst enginn, sem hefur lyfjaóþol eða -ofnæmi, og treystir sér þess vegna ekki í bólusetningu. Undirrituð er ein af þeim. Nei, þeir, sem ekki fara í bólusetningu, eru bara ein- hverjir eintrjáningar, sem eru með fordóma og sérvisku, og þeir skulu bara gera svo vel og koma sér í bólusetningu, hvort sem þeim líkar það betur eða verr, og hvernig áhrif, sem bólusetningin kynni nú að hafa á þá. Ég spyr hvað manneskjunni gangi til með þessum fordómum sín- um, m.a. í garð okkar, sem erum ofnæmissjúklingar? Þetta nær engri átt, finnst mér. Ég get ekki sagt annað. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Um bólusetninguna gegn pestarfjáranum 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Okkur var aldrei lof- að auðveldri ævi. Það eina sem öruggt var þegar við fengum dagsbirtuna í augun var að fyrr eða síðar myndu augu okkar bresta og hjartað hætta að slá. Það eina sem okkur var lofað var eilíf samfylgd af höfundi og fullkomn- ara lífsins. Tökum eftir öllum blessununum Það er sannarlega ómetanlegt að vera borinn áfram á bænarörmum og fá að upplifa blessanir Guðs nán- ast í öllum aðstæðum. En það er mikilvægt að taka eftir þeim í stóru sem smáu. Það eru ekki síst litlu kraftaverkin og blessanirnar sem varða veginn og bera okkur áfram. Og í öllum aðstæðum er svo gott að finna stuðning frá fólki sem er andlega örlátt í vanmætti sínum og smæð. Þar sem orð og andi umlykj- andi nærveru, jafnvel í fjarveru, fá að streyma fram til góðs. Frá hjarta til hjarta. Guð blessi alla sendiboð- ana, jarðnesku englana sem sendir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju, stuðning, styrk og skjól. Þeir fylla nútíðina innihaldi og veita bjarta framtíð- arsýn vegna tilveru sinnar og kærleiks- ríkrar nærveru með já- kvæðni sinni, uppörvun og hvatningu. Lífsakkerið í ólgusjó daganna Þegar þyrmir yfir hugann þá er ekkert betra en að leggja áhyggjurnar og stöðuna á herðar frelsaranum, Jesú, sam- kvæmt hans boði, sem er raunveru- legur og lifandi, umhyggjusamur og nærgætinn vinur okkar og bróðir. Hans sem er lífsakkerið í dagsins ólgusjó. Á góðum stað í Biblíunni segir: „Óttast þú ekki, því að ég er með þér. Vertu ekki hræddur, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með sigrandi hendi minni.“ Valinn í lið lífsins Hvað veist þú annars mikilvægara en að vera valinn í lið lífsins og fá að spila með til sigurs? Og þótt ein- staka viðureignir kunni að tapast munum við að lokum standa uppi sem eilífir sigurvegarar vegna kær- leikssigurs Jesú Krists á krossinum fyrir um tvö þúsund árum. Hann reis svo upp frá dauðum á þriðja degi og tileinkaði okkur sigur lífsins með sér. Hvílík óverðskulduð óend- anlega þakkarverð náðargjöf. Í lotningu fyrir lífinu, höfundi þess og fullkomnara segi ég því: Dýrð sé Guði! Friður hans, sem er ofar og æðri öllum okkar skilningi, varðveiti hjörtu okkar og hugsanir og náð hans sé yfir okkur og fylgi okkur öllum. Í Jesú nafni. Með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Litlu og smáu kraftaverkin og blessanirnar varða veginn Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Það er svo mikilvægt að taka eftir öllum litlu og smáu bless- ununum og kraftaverk- unum. Það eru ekki síst þau sem varða veginn og bera okkur áfram. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Sumt er þess eðlis að það þarf að endurtaka og endurtaka, og taka áhættuna á að það verði leiðigjörn síbylja, en veruleikinn kallar á þessar endurtekn- ingar. Sumt er svo satt að það kallar á síbylj- una, því hún er sann- leikurinn og hann verð- ur að síast inn, bæði hjá almenningi og ráðamönnum. Almenn- ingi, því við þurfum breiðfylkingu stuðn- ingskvenna og -manna, og ráðamanna, því þeir hafa valdið.* . Átta af hverjum tíu eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná end- um saman . Sex af hverjum tíu geta ekki mætt óvæntum útgjöldum . Fjórir af hverjum tíu búa við skort á efnislegum gæðum Viltu ekki verða einn af þeim? Höld- um áfram … . Níu af hverjum tíu einhleypum og einstæðum foreldrum eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman . Helmingur einstæðra foreldra og einhleypra býr við skort á efnis- legum gæðum . Fjórir af hverjum tíu einstæðum foreldrum geta ekki veitt börnum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja eða greitt kostnað vegna skipulagðra tómstunda Viltu enn ekki verða einn af þeim? Höldum þá áfram … . Átta af hverjum tíu hafa neitað sér um heilbrigðisþjón- ustu . Margir finna fyrir fé- lagslegri einangrun og meirihluti finnur fyrir fordómum . Talsverður vilji er meðal þeirra að vera á vinnumarkaði en heilsan er helsta fyr- irstaðan Eruð þið einhverju nær um um hverja ég er að tala? Gef ykkur eina vísbendingu í viðbót … . Sex af hverjum tíu segja mikilvægast að hækka örorkulífeyri og tengdar greiðslur spurðir um breyt- ingar á almanna- tryggingakerfinu.* Já, ég er að tala um fatlað fólk á Íslandi, ör- yrkja. Vilt þú verða einn af þeim? Finnst þér þetta eftirsóknarverð lífsgæði? Ef ekki slástu þá með og styddu okkur í baráttunni fyrir mannsæmandi lífi. Það veit enginn hver verður næstur. Nú hillir undir nýjan stjórnarsátt- mála og það verður forvitnilegt að sjá hvað verðandi ríkisstjórn hefur fram að færa í málefnum öryrkja. Hver verða framtíðarlífskjör öryrkja? Nú- verandi kjör, m.a. þessi sem ég taldi upp hér að ofan, eru óviðunandi, svo vægt sé til orða tekið. Við viljum rétt- læti, við viljum lífsgæði. Svo einfalt er það. *Niðurstöður Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Staða fatlaðs fólk á Ís- landi. Rannsóknin var unnin fyrir Ör- yrkjabandalag Íslands. September 2021. Vilt þú verða einn af þeim? Eftir Unni H. Jóhannsdóttur Unnur H. Jóhannsdóttir »Nú hillir undir nýjan stjórnarsáttmála og það verður forvitnilegt að sjá hvað verð- andi ríkisstjórn hefur fram að færa í málefnum öryrkja. Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. uhj@simnet.is Flestir kannast við hina frægu sögu um nýju fötin keisarans og barnið sem upplýsti lýðinn um falsið varð- andi fötin þegar keis- arinn birtist án klæða en sagður vera klædd- ur nýrri tegund fata- efnis. Sambærilegt við- fangsefni er í hávegum haft á 21. öld okkar tímatals og kallast kolefnisjöfnun. Sú bullkenning að aðgerðir manns- ins stefni hitastigi jarðar á hættulega braut er mjög undarleg í ljósi þeirra staðreynda er liggja fyrir um sveiflur á hitastigi á jörðinni í tugþúsundir ára. Ekki þarf að fara nema 500 til 700 ár aftur í tímann til að rekast á miklar sveiflur í hitastigi á jörðinni eða þeim hluta jarðarinnar sem kallast Evrópa. Tímabil þetta hefur verið kallað Litla ísöld. Sagnir herma að á því tímabili hafi verið svo lágt hitastig í Evrópu að uppskerubrestur hafi orðið og Tham- esá í Bretlandi hafi verið ísilögð að vetrarlagi og fólk gengið bakka á milli. Ekki hafa svokallaðir vísindamenn kennt gjörðum mannskepnunnar um þær sveiflur í breytingum á hitastigi jarðarinnar né aðrar sveiflur á hita- stigi á jörðinni sem þekktar eru, svo sem svokallaðar ísaldir. Í kolefnisjöfnunar-bull-kenning- unni er eingöngu fjallað um aukningu CO2 í andrúmslofti jarðar og annarra gastegunda, s.s. metans. Mannskepn- unni er kennt um; hún brenni svo miklu af jarðefnaeldsneyti. Á þessu tímabili, sem bullkenningin er miðuð við, eða rúm 100 ár, hefur mengunar- dýrinu manninum fjölgað um 150% til 250%, sem hvergi er minnst á hjá mengunarsérfræðingunum. Það er hvergi getið um aukningu á CO2-mengun mannsins við fjölgun fólks á við- miðunartímabilinu, auk fjölgunar svokallaðra húsdýra sem maðurinn elur sér til fæðuöflunar. Öll þessi dýr, maðurinn og húsdýrin, skila út CO2 við andardrátt. Viðurkenna verður þó að sóðaskapur mannsins með dreifingu á alls kon- ar rusli í kringum sig er ekki til fyrirmyndar og hefði mátt taka á því fyrr. Svokallaðir öskuhaugar eru vandamál sem hefði mátt huga að fyrr en gert er og um- breyting svokallaðs affalls (rusls) til endurnýtingar er vandamál. Sem dæmi um sveiflur í loftslagi á jörðinni má geta þess að samkvæmt skráðum heimildum er stórt svæði í Tyrklandi, sem áður var búsæld- arlegt og vel gróið land, orðið eyði- mörk á einhverjum áratugum, einnig hafi ákveðin svæði er nú falla undir Sahara-eyðimörkina verið vel gróin og lífvænleg landsvæði en breyst í eyðimörk vegna breytinga á veður- fari. Ekki eru heimildir til fyrir því að þær breytingar hafi orðið vegna brennslu jarðefnaeldsneytis af hálfu mannsins. Að auki má geta skráðra heimilda um vísbendingar um búsetu á Íslandi á svæði sem kom í ljós þegar skriðjökull hopaði og því má spyrja hvað orsakaði að skriðjökullinn skreið fram og kaffærði byggðar- lagið. Er ekki kenningin um orsök hlýn- unar jarðar bara bull? Nýju fötin keisarans Eftir Kristján S. Guðmundsson Kristján Guðmundsson » Bullkenning að aðgerðir mannsins hafi afgerandi áhrif á veðurfar á jörðinni. Höfundur er fv. skipstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.