Morgunblaðið - 22.11.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
30 ÁRA Selma er úr Árbænum en
býr í Mosfellsbæ. Hún er viðskipta-
fræðingur að mennt frá Háskólanum
á Bifröst og rekur hannyrðaversl-
unina MeMe Knitting. „Við vorum að
opna nýja og stærri verslun núna í
nóvember á Dalbraut í Laugarnes-
hverfi en ég er búin að vera með net-
verslun í þrjú ár. Einnig hanna ég og
skrifa prjónauppskriftir.“
FJÖLSKYLDAN Eiginmaður
Selmu er Róbert Ægir Hrafnsson, f.
1988, slökkviliðsmaður og bráða-
tæknir hjá Slökkviliðinu á höfuð-
borgarsvæðinu. Dætur þeirra eru
Emilía, f. 2017, og Ronja, f. 2021.
Foreldrar Selmu eru Guðlaug Katrín Þórðardóttir, f. 1956, bókari, og
Markús Örn Þórarinsson Jensen, f. 1962, framkvæmdastjóri. Þau búa í
Norðlingaholti.
Selma Markúsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fólki þykir mikið til þín koma í dag.
Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og
þú þarft að hafa fyrir þeim.
20. apríl - 20. maí +
Naut Haltu þig við áætlanir þínar og fáðu
alla þá í lið með þér sem þú mögulega get-
ur. Bjartsýni þín og kappsemi njóta sín.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Viljirðu ná málum fram af ein-
hverju viti þarftu að vera þolinmóður. Koma
tímar og koma ráð til að laga það sem
þarfnast lagfæringar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Eitthvað sem byrjaði sem áleitin
hugmynd yfirtekur allt í einu allan tíma
þinn. Leggðu áherslu á það að líta björtum
augum á tilveruna.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hikar ekki við að taka málstað ann-
arra og færð tækifæri til þess að láta í þér
heyra í dag. Forðastu samt að dragast inn í
deilur annarra.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu ekki eigin vangaveltur draga
athygli þína um of frá verkefnum dagsins.
Leitaðu hjálpar tafarlaust ef þú telur það
nauðsynlegt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þetta er ekki rétti tíminn til að efast
um sköpunarverkin. Farðu þér hægt og
hafðu alla fyrirvara uppi þegar þér eru gerð
einhver tilboð.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það er góð regla að vera á
varðbergi gagnvart ókunnugum. Temdu þér
skipulagningu og taktu ekki meira að þér en
þú ert maður til.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er hollt að setjast niður og
velta fyrir sér hvað maður vill fá út úr lífinu,
bæði í leik og starfi. Skoðaðu málin frá fleiri
en einni hlið því verkin tala sínu máli.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú hefur lengi ætlað að koma
málum þínum á framfæri en hefur ekki haft
tækifæri til þess. Hristu af þér slenið og
brjóstu út því þú hefur þá hæfileika sem til
þarf.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Flanaðu ekki að neinu, heldur
tékkaðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu
þegar þú grípur til aðgerða. Gakktu mark-
visst til verks og ljúktu verkefnum sem bíða.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er óvenju margt á borðinu hjá
þér svo þú þarft að skipuleggja daginn mjög
vel. Dekraðu við sjálfan þig í kvöld.
Theodór var meðal stofnenda
fyrirtækisins Austfars hf. sem sá um
móttöku ferjunnar og þjónustu við
farþega, var einn af stofnendum og
síðar Norrænu, til að sigla til Seyðis-
fjarðar, sem var upphafið að því að
gera bæinn að vinsælum ferða-
mannastað.“
T
heodór Blöndal fæddist
22. nóvember 1946 á
Seyðisfirði. „Það var gott
að alast upp á Seyðis-
firði. Við krakkarnir
byrjuðum að breiða saltfisk og salta
síld 10 til 12 ára. Síðan komu síldar-
árin, sem voru ævintýralegur tími.
Sumrin 1962 og ’63 var ég í hljóm-
sveit sem spilaði fyrir dansi í félags-
heimilinu Herðubreið, þrjú böll í
viku, og vann í Vélsmiðjunni Stáli.“
Eftir barnaskólann á Seyðisfirði
tók Theodór landspróf árið 1961 á
Akureyri en fór svo í Tækniskóla Ís-
lands. Árið 1966 fór hann í Tækni-
skólann í Þrándheimi og útskrifaðist
þaðan sem véltæknifræðingur 1969.
„Við hjónin áttum dásamleg ár í
Þrándheimi og eignuðumst marga
góða vini. Þegar við útskrifuðumst
ákvað útskriftarhópurinn að gefa út
tímarit sem kæmi út einu sinni á ári
(jólablað). Þetta höfum við nú gert í
54 ár. Jafnframt hittist hópurinn
reglulega og í sumar var það í 54.
skiptið frá stofnun 1969.“
Þegar heim var komið fór Theodór
að vinna hjá föður sínum og föður-
bróður í Vélsmiðjunni Stáli. „Þetta
var árið sem síldin hvarf og við þurft-
um að sækja á ný mið. Það heppn-
aðist ágætlega og þegar mest var
umleikis voru starfsmenn allt að 40
talsins. Ég hannaði mikið af því sem
smíðað var. Við rákum samhliða bíla-
verkstæði ásamt rekstri rútubíla og
snjóbíla sem sáu um fólksflutninga
yfir Fjarðarheiði, og Stálbúðina, sem
var alhliða byggingarvöruverslun.“ Í
15 ár var Theodór einnig verksmiðju-
stjóri í loðnuverksmiðjunni Hafsíld á
Seyðisfirði.
Theodór varð oddviti Sjálfstæðis-
flokksins 1974-1986 og 1990-1994 og
gegndi hann formennsku í bæjarráði
eða bæjarstjórn þennan tíma, en öll
árin var Sjálfstæðisflokkurinn í
meirihluta með Framsóknarflokki.
„Það var mjög skemmtilegt og gef-
andi að vera bæjarfulltrúi og sam-
staðan í bæjarstjórninni yfirleitt góð.
Mörgum góðum málum var komið til
leiðar og nefni ég þar byggingu
sjúkrahúss og fjarvarmaveitu, miklar
hafnarframkvæmdir sem urðu til
þess að við fengum ferjuna Smyril,
lengi stjórnarformaður Atvinnu-
þróunarfélags Austurlands, sat í
stjórn Sambands sveitarstjórna á
Austurlandi í nokkur ár, stjórnar-
formaður Málms, sambands vél-
smiðjueigenda, innan Samtaka iðn-
aðarins í 15 ár, sat í stjórn Samtaka
iðnaðarins og í miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins.
„Árin okkar á Seyðisfirði urðu 30
og um haustið 1999 fluttum við til
Reykjavíkur. Okkur hafði liðið vel
þessi ár og eigum bara góðar minn-
ingar frá þessum tíma. Það hefur
ávallt verið góður andi og mikill bæj-
arbragur á Seyðisfirði og ef eitthvað
bjátaði á eða sýna þurfti samstöðu
lágu bæjarbúar aldrei á liði sínu.“
Fyrstu tvö árin í Reykjavík var
Theodór verkefnastjóri hjá Stáltaki
hf. og síðan fór hann að vinna hjá
Varmaverki hf. og tók síðar við fram-
kvæmdastjórn þess og eftir samein-
ingu við Vélaverk hf. varð til Varma
& Vélaverk hf. Hann lét af störfum í
maí 2017. Frá þeim tíma hefur Theo-
dór verið stjórnarformaður í fyrir-
tækinu Iðnveri hf.“
Áhugamálin eru ferðalög og úti-
legur á sumrin. Theodór er í tveimur
Theodór Blöndal, tæknifræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri – 75 ára
Stórfjölskyldan Samankomin árið 2016 í tilefni af 70 ára afmæli þeirra hjóna og 50 ára hjúskaparafmæli.
Hugsar hlýlega til Seyðisfjarðar
Taj Mahal Hjónin á ferð um Indland með sínum bestu vinum frá Noregi.
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Ronja Róbertsdóttir
fæddist 7. maí 2021 kl. 9.54. Hún vó
3.570 g og var 49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Selma Markúsdóttir og
Róbert Ægir Hrafnsson.
Nýr borgari