Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 29

Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 91% Jason Mott hreppti banda- rísku National Book-verðlaunin í ár fyrir skáld- söguna Hell of a Book. Sagan fjallar um þrjá hörundsdökka menn: rithöfund á upplestrarferð, ungan pilt í suðurríkjunum en sá þriðji, The Kid, er hugarburður. Mott er ljóðskáld og hafði sent frá sér þrjár skáldsögur. Sagnfræðingurinn Tiya Miles hreppti verðlaunin fyrir bestu óskálduðu bókina, All That She Carried: The Journey of Ashley’s Sack, a Black Family Keepsake. Bókin segir sögu fjölskyldu gegn- um léreftspoka sem þræll gaf dótt- ur sinni þegar eigandi þeirra hugð- ist selja þær hvora í sína áttina. Skáldið Martín Espada hlaut verðlaun fyrir bestu ljóðabókina, Floaters, en í henni eru hylltir far- andverkamenn sem hafa drukknað í Rio Grande-fljótinu. Hell of a Book eftir Mott valin best Jason Mott Bandaríski skúlptúristinn Jimmie Durham, sem hlaut heið- ursverðlaunin Gullna ljónið á Feneyjatvíær- ingnum árið 2019 fyrir ævi- starfið, er látinn 81 árs að aldri. Durham var af ætt Cherokee-indíána og í írón- ískum og frumlegum verkum sínum vann hann með arfleifð frumbyggj- anna og birtingarmynd þeirra í samtímanum, svo ekki voru allir sáttir; á síðustu árum höfnuðu tals- menn Cherokee-ættbálksins honum og kölluðu svindlara. Durham hóf feril sinn sem bar- áttumaður fyrir réttindum frum- byggja en þegar hann hellti sér út í listsköpun notaði hann í verkin efnivið eins og húðir dýra og haus- kúpur, fjaðrir, perlur og skeljar. Skúlptúristinn Durham allur Jimmie Durham Þ jóðarávarpið er heiti bókar dr. Eiríks Bergmanns, prófessors við Háskólann á Bifröst. Undirtitill bók- arinnar er: Popúlísk þjóðernis- hyggja í hálfa öld. Markmiði sínu lýsir höfundur á þann veg að hann kryfji „framrás þeirrar nýþjóðernis- hyggju sem um margt einkennir okkar tíð“ og greini þannig eina „umfangsmestu þjóðfélagsbreytingu samtímans“, fráhvarfið frá frjáls- lyndu lýðræði eftirstríðsáranna í „átt að ófrjálslyndari og gerræðis- legri tegundum lýðræðis“. (8) Eiríkur hefur rannsakað þjóð- ernishyggju, popúlisma og dreifingu samsæriskenninga í pólitískri um- ræðu í marga áratugi og alþjóðlega fræðaforlagið Palgrave Macmillan hefur til dæmis gefið út fjórar bæk- ur hans um þessi og tengd málefni. Lesandinn kemur því ekki að tómum kofunum hjá Eiríki. Hann sníður sér ekki heldur þröngan stakk heldur fer um allan lýð- frjálsa heiminn og víðar með stiku sína og mælir hvert stefnir. Vegna þess hve víða er skoðað er ekki alls staðar farið nákvæmlega í saumana. Íslenskir stjórnmálaflokkar eru nefndir til sögunnar. Frjálslyndi flokkurinn er sagður hafa tekið „upp svipaða stefnu í innflytjendamálum haustið 2006 og þjóðernispopúlistar héldu úti víða í Evrópu“. (188) Ný forysta tók við Framsóknarflokkn- um í fjármálakrísunni og færði flokkinn „í allnokkuð popúlískari átt: gegn erlendum kröfuhöfum, alþjóða- stofnunum og loks að nokkru leyti gegn múslimum“. (224). Eiríkur seg- ir að „handfylli hálfpopúlískra stjórnmálamanna“ hafi sest á al- þingi. „Flokkur fólksins hneigðist til álíka velferðarrembings og sumir viðlíka flokkar í Norðurlandaríkj- unum.“ (274) „Velferðarrembingur“ er til dæmis að halda því fram að fé til félagslegrar aðstoðar við flótta- menn minnki getuna til að styðja innlenda öryrkja. Fyrstu tveir kaflar bókarinnar eru almennir: (1) Straumar og stefn- ur – ný heimsskipan eftir stríð; (2) Treyst þjóðarheit – þjóðir og þjóð- ernishyggja. Síðan koma sex kaflar reistir á heimssögulegum skilum: (3) Snögg lok sælutíðar – olíukrísan; (4) Skjálftahrinur frjálslynds lýðræðis – fall Berlínarmúrsins; (5) Menningar- átök okkar tíðar – árásin á Tvíbura- turnana; (6) Hnattrænt efnahags- öngþveiti – alþjóðlega fjármála- krísan; (7) Kenningin um útskiptin miklu – flóttamannakrísan; (8) Þrengt að borgaralegum réttindum – kórónuveirukrísan; og lokakaflinn: (9) Heimur nýþjóðernishyggjunnar – uppgjör og samantekt. Þá taka við skrár: tilvísanaskrá, heimildaskrá, myndaskrá og nafnaskrá. Allt rúm- ast þetta á 400 bls. Olíukrísan var 1972/73; Berlínar- múrinn hrundi 1989; ráðist var á Tvíburaturnana 2001; flóttamanna- krísuna bar hæst 2015 og kórónu- veirukrísan hófst 2020. Sagan nær því alveg fram á okkar daga. Eiríkur ræðir þetta allt með rann- sókn sína á popúlisma að leiðarljósi. Vegna efnisskipunar kemur óhjá- kvæmilega til endurtekninga. Eirík- ur leynir ekki skoðun sinni, honum er verulega í nöp við popúlista. Einfaldir merkimiðar duga ekki lengur. Þeir sem taldir eru hægri- sinnaðir út á við geta verið vinstri- sinnaðir við lausn á innanlands- málum. Hvort eru þeir popúlistar til hægri eða vinstri? Í bókinni er þeim eins og í fjölmiðlum gjarnan lýst sem hægriöfgamönnum. Eiríkur Bergmann er orðasmiður. Stundum hefði hann mátt auðvelda lesandanum skilning með því að hafa erlend orð innan sviga: „Útskiptin miklu“ er þýðing á franska hugtak- inu Grand Replacement, samsæris- kenningu um að mönnum verði rutt til hliðar í eigin þjóðríkjum. „Sjálfs- myndarstjórnmál“ er þýðing á identity politics. Þeir sem berjast undir merkjum þeirra leggja til dæmis áherslu á uppruna eða trúar- brögð þeirra sem mynda hópinn eða flokkinn. Orð eins og „handasann- leiksstjórnmál“ er gegnsætt á ís- lensku. „Djúpríkið“ er hugtak í sam- særiskenningafræðum um myrk öfl sem í raun hafi tögl og hagldir. Orðið „valtvennuvilla“ er sagt lýsa „fölsk- um andstæðum“, það er rangri full- yrðingu um að eitt leiði af öðru. „Hundablístru-rasismi“ er að gefa kynþáttuhyggju til kynna fremur en að orða hana beint. „Flóttamanna- kreppa ársins 2015 reyndist hvarf- punktur í sögu þýskra þjóðernis- sinna.“ (257) Hvarfpunktur er ímyndaður punktur í fjarvídd þar sem samsíða línur virðast renna saman í fjarska, segir á málið.is. Hvernig fellur það að setningu höf- undar? Fljótaskriftar gætir. Patriot Act, lög sett í Bandaríkjunum eftir árásina 2001, eru kölluð föðurlands- vinalögin (159) en síðar föðurlands- lögin (309). Franska dagblaðið Le Figaro er sagt tímarit. Bókarheitið sjálft segir ekkert um efni bókar- innar vegna þess hve ógagnsætt það er. Undir bókarlok segir: „Með því að halda því fram að fag- væðing stjórnmála hafi breytt ríkis- forystu í starfsgrein sem almenn- ingur hafi í reynd engan aðgang að hafa popúlistar reynt að kasta rýrð á atvinnustjórnmálamenn. Margur viðvaningurinn hefur komist til met- orða vegna þessarar af-fagvæðingar stjórnmálanna og margir reyndir stjórnmálamenn fallið í ónáð.“ Að setja þessa skoðun í þetta pop- úlíska samhengi skýrir ýmsa strauma í íslenskum stjórnmálum frá hruni. Talið um „stjórnmálastétt- ina“ til niðurlægingar er liður í mál- flutningi af þessum toga. Þá hefur hraði útskipta meðal alþingismanna stóraukist frá hruni. Málflutningur margra ný-stjórnarskrársinna er þessu marki brenndur. Bók Eiríks Bergmanns vekur spurningu um hvort nauðsynlegt sé að laga stjórn- málaumræður hér að skilgrein- ingum hans til að við ræðum pólitík- ina í takti við hinn stóra heim. Morgunblaðið/Unnur Karen Höfundurinn „Bók Eiríks Bergmanns vekur spurningu um hvort nauðsyn- legt sé að laga stjórnmálaumræður hér að skilgreiningum hans til að við ræðum pólitíkina í takti við hinn stóra heim,“ segir gagnrýnandinn. Stjórnmálafræði Þjóðarávarpið bbbmn Eftir Eirík Bergmann. JPV útgáfa, 2021. Kilja, 400 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Popúlískir straumar skýrðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.