Morgunblaðið - 22.11.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.11.2021, Qupperneq 32
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is 19.-28. nóvember GULUR FÖSTUDAGUR Allt að50% afsláttur af* (*á meðan birgðir endast) K7 Premium Smart Control – Háþrýstidæla 89.091 Háþrýstidæla Áður 98.990 SC 2 Gufuhreinsitæki Fyrir Heimili 25.492 Gufuhreinsitæki Áður 29.990 VC 4s Handryksuga rafhlöðu 36.743 Ryksuga Áður 48.990 ProPuzzi 8/1 C Djúphreinsivél 106.877 Djúphreinsivél Áður 118.752 34.889 Ryksuga Áður 38.765 NT 22/1 AP L Ryksuga FC 7 Þráðlaus skúringarvél fyrir heimili 80.023 Skúringarvél Áður 94.145 JuiceBox Snjallhleðslustöð 188.293 Hleðslustöð Áður 268.990 Í Y galleríi í Hamraborg Kópavogs var um helgina opnuð sýningin „Leppar, pungur og skjóða“ með verkum eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur. Inn- blástur við sköpun verk- anna sótti Guðlaug Mía í íslenska þjóðmenningu og segir hún hann jafn- framt sóttan í nær- umhverfi Íslendinga fyrri alda. Guðlaug útskrif- aðist með BA-gráðu frá LHÍ og stundaði síðar meistaranám í myndlist í Gent í Hollandi. Í verkum sínum skoðar hún gjarnan skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi. Y gallerí er í fyrrverandi bensínstöð í bílakjallara Hamraborgar og hefur vakið athygli fyrir metnaðarfullar sýningar á verkum ungra listamanna. Guðlaug Mía sýnir leppa, pung og skjóðu í Y galleríi í Hamraborg MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 326. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Grótta sleit sig frá neðstu liðum Olísdeildar karla í handbolta í gærkvöldi með því að vinna 26:22-útisigur á Víkingi. Úrslitin þýða að Grótta er með fimm stig, fimm stigum meira en HK og Víkingur sem eru að helt- ast úr lestinni. HK og Víkingur fóru saman upp úr 1. deildinni á síðustu leiktíð en hafa átt í erfiðleikum í deild þeirra bestu og enn ekki náð í eitt einasta stig. Hinum megin eru Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH í tveimur efstu sætunum. »26 Nýliðarnir að heltast úr lestinni ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Söngvarinn Geir Ólafsson varð að fresta þrennum jólatónleikum í fyrra en þar sem hann sé innan fjölda- takmarkana trufli ekkert fyrirhug- aða ferna tónleika í Gamla bíói í næstu viku eða 2., 3., 4. og 5. desem- ber. „Ég er svo heppinn að hugsa ekki um peninga heldur gæði og því komast aðeins 320 manns á hverja tónleika og þar af 170 í þriggja rétta kvöldverð í glæsilega skreyttum salnum,“ segir tónlistarmaðurinn. Sem fyrr verður úrval tónlistar- manna á sviðinu. Sjö manna stór- hljómsveit píanóleikarans Dons Randis kemur frá Bandaríkjunum en hana skipa auk hans Bernie Dresel trymbill, Chris Roy bassa- leikari, John de Patie gítarleikari, Harry Kim trompetleikari, Chuck Findley trompetleikari og Brandon Fields saxófónleikari. Þar fyrir utan koma fram íslensku tónlistarmenn- irnir Þórir Baldursson orgelleikari, Vilhjálmur Guðjónsson saxófónleik- ari, Heimir Ingi Guðmundsson, sem leikur á básúnu, Birgir Niels slag- verksleikari og Ástvaldur Trausta- son píanóleikari með meiru, að ógleymdum Geir Ólafssyni, en Guðný Guðmundsdóttir konsert- meistari verður sérstakur gestur. Stefán Henrýsson leikur undir borð- haldi, Eva Þórisdóttir sér um skreyt- ingar í sal og Selma Karlsdóttir held- ur utan um viðburðinn. „Við höfum byggt tónleikana upp ár frá ári og sem fyrr er valinn mað- ur í hverju rúmi,“ segir Geir, en fyrstu jólatónleikar hans í anda sam- bærilegra tónleika í Las Vegas í Bandaríkjunum voru í desember 2016. Hann segist leggja áherslu á að bjóða upp á skemmtun þar sem ekk- ert sé til sparað og gestir eigi kost á að njóta góðs kvöldverðar og tón- leika í kjölfarið. „Aðalatriðið er að gera eins vel og hægt er til að upp- lifun gestanna verði sem best.“ Góðar viðtökur Don Randi kom til landsins fyrir jólin 2015 í þeim tilgangi að kynna sér jólatónleika hérlendis. „Hann er goðsögn í Bandaríkjunum og við höf- um unnið lengi saman. Við ákváðum að reyna eitthvað nýtt og úr varð sambland af mat og tónleikum, þar sem við buðum upp á unga, nýút- skrifaða og tiltölulega óþekkta gestasöngvara.“ Viðtökurnar hafi verið góðar á fyrstu tónleikunum 2016, tvennir tónleikar hafi verið ár- ið eftir og þrennir 2018 og 2019, en viðburðinum hafi verið frestað í fyrra vegna kórónuveirufaraldurs- ins. Margir hafi ákveðið að geyma miðana þar til í ár og því hafi þeir forgang en viðbótarmiðar séu komn- ir í sölu (tix.is). „Ég er sérstaklega þakklátur fyrir það að geta haldið tónleika fyrir fólkið sem geymdi miðana frá því í fyrra og geta boðið fleiri gestum til viðbótar,“ segir Geir. Hann vekur athygli á því að gestir þurfi að láta vita af sérþörfum í mat (svo sem ofnæmi, óþoli og veg- an) með að minnsta kosti viku fyrir- vara á gamlabio@gamlabio.is og all- ir verði að framvísa neikvæðu hraðprófi. „Svo verður þetta bara gaman,“ segir Geir, sem ráðgerir að gefa út plötu með eigin efni á næsta ári. Í Gamla bíói Geir Ólafsson fær til sín góða gesti og heldur ferna jólatónleika í næstu viku. Fámennt og góðmennt - Fernir jólatónleikar Geirs Ólafssonar í Gamla bíói

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.