Morgunblaðið - 24.11.2021, Blaðsíða 1
BYGGJA 8.400
FERMETRA
WORLD CLASS
FYRSTI SIGUR
CARRICKS
MEÐ UNITED
TVÍSÖNGUR
SAMTALSBÓK
HLIÐARSJÁLFA
MEISTARADEILDIN 22 BERGLIND MARÍA 24VIÐSKIPTAMOGGINN
.Stofnað 1913 . 276. tölublað . 109. árgangur .
M I Ð V I K U D A G U R 2 4. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Sölvi Melax framkvæmdastjóri
Heimaleigu segir að í dag séu 1.150
virk leigurými á höfuðborgarsvæð-
inu á Airbnb en til samanburðar hafi
þau verið 4.197 á þriðja ársfjórðungi
2018. Samdrátturinn er 73%.
„Ég geri ráð fyrir því að þessar
tölur muni fara aftur upp þegar Ís-
lendingar byrja að ferðast aftur
næsta sumar, eða flytja heim til for-
eldra sinna og leigja íbúðina út á
meðan.“
Spurður um þróun í Airbnb-út-
leigu segir Sölvi hana vera þá að
Reykjavíkurborg hafi þrengt mark-
visst að leigueignum í miðbænum
síðan lög um skammtímaleigu tóku
gildi árið 2017. „Aðalbreytingin varð
2017-2018 með skipulagsbreytingu
hjá Reykjavíkurborg. Þar segir að
þú þurfir að vera með eignina í
blandaðri byggð við aðalgötu. Vegna
þessa er í dag helst veitt leyfi fyrir
iðnaðarhúsnæði sem verið er að
breyta í íbúðir í hverfum utan mið-
borgarinnar.“
Lína dregin í sandinn
Sölvi segir að það góða við lögin
um skammtímaleigu sé að þau séu
mjög skýr varðandi hvenær um at-
vinnustarfsemi er að ræða og hve-
nær ekki. Lína hafi verið dregin í
sandinn. Mörkin liggi við tvær millj-
ónir króna á ári í leigutekjur og ekki
megi leigja meira en 90 daga á ári.
Sölvi segir að lögin geri einstak-
lingum erfiðara um vik að eiga íbúð
úti í bæ til að leigja út í skammtíma-
leigu. „Þetta er að færast meira út í
að vera starfsemi fyrir fjárfesta.“
»ViðskiptaMogginn
Airbnb dregist saman
um 73% á þremur árum
- Fjölgar næsta sumar - Þrengt að leigu í miðborginni
Morgunblaðið/Eggert
Leiga Airbnb-íbúðir voru tæplega 4.200 fyrir þremur árum.
Alþingi var sett við hátíðlega athöfn
í gær eftir 19 vikna hlé frá þing-
störfum. Þó voru augu flestra á því
hvað kæmi út úr fyrsta formlega
fundi kjörbréfanefndar, en sæti í
nefndinni tóku allir þeir sem sátu í
undirbúningsnefndinni. Birgir Ár-
mannsson, formaður nefndarinnar
og þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
staðfesti þá að meirihluti nefndar-
innar kæmi til með að bera upp þá
tillögu að seinni talningin skyldi
standa og kjörbréfin yrðu því sam-
þykkt. Meirihluti nefndarinnar sam-
anstendur þá af Sjálfstæðisflokki,
Framsóknarflokki og Flokki fólks-
ins. Athygli vakti að Svandís Svav-
arsdóttir, nefndarmaður Vinstri-
grænna, var ekki sammála þeirri
niðurstöðu.
Þá kom einnig á daginn að Björn
Leví Gunnarsson þingmaður Pírata
ákvað að skrifa ekki undir greinar-
gerð nefndarinnar og því í raun
vinnu nefndarinnar. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Björn að hann
hefði „ákveðnar stjórnsýslulegar
áhyggjur er sneru að formlegheitum
í kringum störf nefndarinnar“, því
hefði hann ekki skrifað undir. »4
Útlit fyrir að
kjörbréf standi
- Björn Leví vildi ekki skrifa undir
Morgunblaðið/Eggert
Vinnunni nærri lokið Birgir gengur
út af fundi nefndarinnar.
Alþingi var sett í 152. sinn í gær. Það kom í hlut
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns
Viðreisnar, að stýra þingsetningarfundinum þar
sem hún er starfsaldursforseti. Þorgerður Katr-
ín settist fyrst á þing árið 1999 og hefur setið síð-
an ef frá eru talin árin 2013 til 2016. Þórunnar
Egilsdóttur og Jóns Sigurðssonar, látinna þing-
manna, var minnst á fundinum en Þórunn hefði
sömuleiðis átt afmæli í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Starfsaldursforseti horfir upp og áfram
_ „Að finna forn íslensk handrit er
eins og að grafa niður á gull,“ segir
Bjarni Gunnar Ásgeirsson íslensku-
fræðingur. Við rannsóknir í British
Library í Lundúnum fyrir nokkru
fann Bjarni tvíblöðung og tvö önn-
ur íslensk handrit sem talin eru
vera úr Reynistaðarbók, safnriti
sem nunnur í klaustrinu á Reyni-
stað í Skagafirði tóku saman á 14.
öld. Í því riti má finna ýmsan fróð-
leik um sögu heimsins, dýrlinga,
kraftaverk og fleira.
Ástæða þess að handritið fannst
ytra er saga full af tilgátum. „Hér
fáum við betri innsýn í kraftaverka-
sögur fyrri alda,“ segir Bjarni
Gunnar um fund þennan. »4
Ljósmynd/Bjarni Gunnar Ásgeirsson
Handrit Reynistaðarbók er frá 14. öld og
segir þar meðal annars frá kraftaverkum.
Brot úr fornu hand-
riti fannst í London
_ Það sem af er þessu ári hefur
skatturinn tekið á móti 56.378 um-
sóknum um endurgreiðslu á virðis-
aukaskatti vegna vinnu, fjórðungi
fleiri en allt árið í fyrra. Flestar
beiðnir um endurgreiðslur koma frá
einstaklingum vegna íbúðar-
húsnæðis, 39.904 slíkar hafa borist
en allt árið í fyrra voru þær 31.683.
Um 15% fleiri umsóknir eru vegna
vinnu við bílaviðgerðir en í fyrra. »2
Umsóknum hefur
fjölgað um fjórðung