Morgunblaðið - 24.11.2021, Side 4

Morgunblaðið - 24.11.2021, Side 4
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Forn íslensk handrit finnast sjald- an og að því leyti er þetta merkur viðburður,“ segir Bjarni Gunnar Ás- geirsson íslenskufræðingur. Við rannsóknir í Brit- ish Library í Lundúnum fyrir nokkru fann Bjarni tvíblöðung og tvö önnur ís- lensk handrit sem ekki var vit- að um áður. Handrit þessi voru innan um handrit úr bóka- safni hertogans af Buckingham og Chandos í Stowe House á fyrri hluta 19. aldar. Safn þetta eignaðist British Library árið 1883. Sögur heimsins, dýrlinga og kraftaverka Bjarni, sem stundar doktorsnám í íslenskum fræðum við Háskóla Ís- landsi, hefur sýnt fram á að tvíblöð- ungurinn sé kominn úr Reynistað- arbók í Árnasafni, safnriti sem nunnur í klaustrinu á Reynistað í Skagafirði tóku saman á 14. öld. Í því riti má finna ýmsan fróðleik um sögu heimsins, dýrlinga, kraftaverk og dæmisögur hvers konar. En á hvaða öldum bárust brot úr þessu handriti til Lundúna? Bjarni Gunnar hefur legið yfir málinu að undanförnu og telur að Grímur Jónsson Thorkelin, sem er fræg- astur fyrir að hafa verið fyrstur til að gefa Bjólfskviðu út árið 1815 og þýða hana á latínu, sé gerandi í mál- inu. Hafi sennilega tekið umrætt handritsbrot með sér úr Reynistað- arbók í Árnasafni þegar hann fór í rannsóknarferð til Englands árið 1786. Á þeim tíma var handritið óbundið í Kaupmannahöfn – eins og fram kemur í lýsingu sjálfs Árna Magnússonar handritasafnara. Bætist við þekkingu Grímur gaf handritasafnaranum Thomas Astle tvíblöðunginn árið 1787, ásamt tveimur uppskriftum sem hann hafði gert sjálfur. Bjarni Gunnar getur sér til að með því hafi hann viljað liðka fyrir erindisrekstri sínum og rannsóknum á Englandi. Á tvíblöðungnum í British Library eru sögur af erkibiskupnum í Kantara- borg og heilögum Kúðbert. „Ég hef fengið sendar ljósmyndir af textanum og borið efni hans sam- an við aðrar heimildir. Hér bætist nokkuð við þekkingu og við fáum betri innsýn í kraftaverkasögur fyrri alda,“ segir Bjarni Gunnar um hand- ritafundinn sem betur verður greint frá í Griplu, tímariti Árnastofnunar, sem kemur út innan tíðar. „Að finna forn íslensk handrit er eins og að grafa niður á gull,“ segir Bjarni Gunnar ennfremur. Hann tel- ur að svona nokkuð hafi ekki gerst síðan um 1960 þegar Skarðsbók postulasagna fannst í Lundúnum. Var þá keypt af íslensku bönkunum á uppboði ytra og flutt hingað heim til varðveislu. Forn íslensk handrit fundust á safni í London - Brot úr Reynistaðarbók - Er frá 14. öld - Sögur af biskupi og Kúðbert Ljósmynd/Bjarni Gunnar Ásgeirsson Fornsaga Úr Reynistaðarbók. Handritið er borið saman við aðrar heimildir og rannsakað þannig Bjarni Gunnar Ásgeirsson 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Dagskrá: Staða og starfsemi Gildis á árinu 2021 Hækkandi lífaldur, hvernig bregðast lífeyrissjóðirnir við? Vegna samkomutakmarkana verðurfundurinn aðfullu rafrænn. Honum verður streymt á íslensku og ensku en nánari upplýsingar má finna á www.gildi.is. Sjóðfélagar eru hvattir til að taka þátt ífundinum og kynna sér stöðu og rekstur sjóðsins. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs Á morgun, fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 17:00 Gildi–lífeyrissjóður Rafrænn sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundur ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Eftir á fjórða tug funda lauk undir- búningskjörbréfanefnd störfum á mánudag og í gær tók formleg kjör- bréfanefnd við störfum. Sömu aðilar mynda kjörbréfanefndina og strax að lokinni þingsetningu fundaði nefndin. Meirihluti nefndarinnar, sem samanstendur af Sjálfstæðis- flokki, Framsóknarflokki og Flokki fólksins, mun leggja fram tillögu þess efnis að kjörbréfin sem gefin voru út í kjölfar seinni talningar í Norðvesturkjördæmi verði staðfest. Þrjár blokkir og Píratar sér Blaðamaður heyrði í þingmönnum frá öllum flokkum nema einum, en ekki tókst að ná í þingmenn Mið- flokksins við vinnslu fréttarinnar. Skipta má í raun landslaginu upp í þrjá meginhópa: Meirihlutann sem búast má við að kjósi með tillögunni; þá sem telja uppkosningu vænlegri leið og loks þá sem ekkert vildu gefa upp. Reyndar skera Píratar sig út úr þessari flokkun en þeir telja vænleg- ast að láta kjósa upp á nýtt á landinu öllu. Ljóst er þó að ekki er lagastoð fyrir slíkri tillögu og verður því að koma í ljós hvað þeir hafa í hyggju. Meirihluti líklegur á þinginu Diljá Mist Einarsdóttir og Vil- hjálmur Árnason, nefndarmenn Sjálfstæðisflokks, sögðu í samtali við Morgunblaðið að nú myndu þing- menn flokksins kynna sér gögn málsins og taka síðan ákvörðun út frá eigin samvisku, líkt og kveðið er á um í stjórnarskrá. Bæði bentu þau þó á að þau, ásamt Birgi Ármanns- syni, nytui fulls trausts þingflokks- ins við vinnu nefndarinnar og gáfu að vissu leyti í skyn að tilfinningin væri sú að meirihluti þingflokksins myndi kjósa með tillögunni. Ítrek- uðu þó að þingmenn væru bundnir eigin sannfæringu og ekki væri hægt að fullyrða neitt fyrr en á fimmtudag. Líneik Anna Sævarsdóttir, þing- og nefndarmaður Framsóknar, tók í svipaðan streng. Erfitt væri að full- yrða um einstaka þingmenn og nú myndu allir kynna sér gögnin og taka svo upplýsta ákvörðun. „Til- finning“ hennar væri samt sú að meirihluti yrði fyrir tillögunni á þingi. Inga Sæland frá Flokki fólks- ins sagði þá að „þingflokkurinn gengi í takt“ og myndi kjósa með til- lögunni. Hlynntari uppkosningu Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingar, var ekki sam- mála áliti meirihluta nefndarinnar og sagðist hún gera ráð fyrir því að þingflokkurinn yrði samstiga í því að kjósa gegn tillögu meirihluta nefnd- arinnar og því samþykkur uppkosn- ingu í kjördæminu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, vildi ekki tjá sig um sína eigin afstöðu en ljóst væri að þingmenn væru bundnir eig- in sannfæringu og innan þingflokks Viðreisnar hefði ávallt legið fyrir að engin skýr flokkslína yrði dregin í þessu máli. Þó er vert að minnast á að Hanna Katrín Friðriksson, þing- flokksformaður Viðreisnar, ritaði grein í blað dagsins þar sem veru- lega er gefið í skyn að hún muni kjósa gegn tillögunni og því með uppkosningu. Ekkert gefið upp og Píratar Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, tók í afar svipaðan streng og Þorgerður. Hún sagðist ekki geta talað fyrir hönd annarra þingmanna síns flokks. Nú myndu allir bara kynna sér gögn málsins og taka sína eigin ákvörðun byggða á samvisku sinni. Björn Leví Gunnarsson, nefndar- maður Pírata, tilkynnti á fundinum að hann myndi ekki skrifa undir greinargerð nefndarinnar þar sem hann hefði ákveðnar „stjórnsýslu- legar áhyggjur af ákveðnum form- legheitum tengdum vinnu nefndar- innar“. Þá sagði Björn Leví enn fremur að það væri einhugur meðal þingflokks Pírata um að álitlegast væri að kosið yrði upp á nýtt um landið allt. Allir nefndarmenn sem blaðamaður náði í sögðu að þessi ákvörðun væri gífurlega mikil von- brigði. Enginn þeirra hefði átt von á því, eftir á fjórða tug funda þar sem Björn Leví hefði starfað af heilind- um með nefndinni og haft áhrif á vinnuna að greinargerðinni sem nú liggur fyrir, að hann myndi neita að kvitta upp á vinnu nefndarinnar. Morgunblaðið/Eggert Kjörbréfanefnd Undirbúningskjörbréfanefndin skipti um hatt í gær og varð að formlegri kjörbréfanefnd. Uppkosning telst ólíklegri kosturinn - Meirihluti nefndarinnar sammála um seinni talningu Orka náttúrunnar hafði í gær betur í dómsmáli sem fyrirtækið höfðaði eftir að kærunefnd útboðsmála hafði ógilt útboð á svokölluðum hverfa- hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. Var það gert að kröfu Ísorku, keppi- nautar ON, sem taldi útboðið ekki hafa verið lögmætt. Þurfti ON í kjöl- farið að slökkva á stöðvunum, en mun verða kleift að opna þær aftur í vikunni. „Þetta er fagnaðarefni fyrir raf- bílaeigendur sem hafa treyst á þess- ar stöðvar. Við viljum þjónusta raf- bílaeigendur sem best og þessar hverfahleðslur henta þeim sem ekki geta hlaðið heima. Það er því mikið fagnaðarefni að við getum opnað þær aftur. Okkur fannst niðurstaða úrskurð- arnefndar byggjast á röngum for- sendum, undir það var tekið í hér- aðsdómi og sýnir að það var rétt að láta kanna þetta,“ segir Breki Loga- son, samskiptastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur, í samtali við Morgun- blaðið. Hverfahleðslur opnaðar á ný - „Fagnaðarefni fyrir rafbílaeigendur“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hleðslustöðvar Orka náttúrunnar opnar hleðslustöðvar sínar á ný.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.