Morgunblaðið - 24.11.2021, Side 24

Morgunblaðið - 24.11.2021, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Í BERG Contemporary-galleríinu á Klapparstíg 16 hefur verið opnuð sýning á fjölbreytilegum grafík- verkum eftir Dieter Roth (1930- 1998). Dieter var einn áhrifamesti myndlistarmaður Evrópu á seinni hluta 20. aldar. Hann bjó til marg- breytileg verk í ólíka miðla, ekki ein- ungis grafíkverk, teikningar, mál- verk, skúlptúra og bækur, heldur einnig innsetningar, hljóð-, mynd- bands- og ljósmyndaverk. Dieter er hvað þekktastur fyrir verk sín úr líf- rænum efnum, aðallega niður- brjótanlegum matvælum á borð við súkkulaði, ost og sykur. Að þessu sinni eru sýnd valin grafíkverk sem Dieter Roth gerði á árunum 1966 til 1995, sum í sam- starfi við aðra kunna listamenn, eins og Richard Hamilton (1922-2011) og Arnulf Rainer (f. 1929). Dieter Roth gerði alls 524 grafíkverk á ferli sín- um og eru mörg hver einstök prent – ekki í upplagi – með margs konar prentaðferðum. Sýningin er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 11-17, og laugardaga kl. 13-17. Grafík eftir Dieter í BERG Ljósmynd/BERG Contemporary Fjölbreytileg Frá sýningunni með grafíkverkum eftir Dieter Roth. - Margbreytileg og einstök verk Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Efni bókarinnar byrjaði að kvikna þegar ég var í námi fyrir tæpum ára- tug. Þá fékk ég hugmynd að því að gera hljóðfæri sem innblásin væru af hurdy-gurdy í þeim skilningi að vera handknúið og styðjast við hjólbúnað til að strjúka strengina,“ segir Berg- lind María Tómasdóttir um bókina Tvísöngur sem hún hefur sent frá sér. Í forgrunni bókar eru uppdikt- aðar tónlistarhefðir sem tengjast hljóðfærunum sem Berglind María hefur skapað og lýsir hún verkefn- inu öðrum þræði sem langvarandi gjörning um menningararfleifð, tengingar tónlistar og þjóðernis, hefða og uppruna. „Mig hafði lengi langað til að gera þessum rann- sóknum mínum og vangaveltum skil með áþreifanlegri hætti auk þess sem mér fannst mikilvægt að gera að nokkru upp þann farangur sem felst í klassískri tónlistarmenntun, sem í eðli sínu er mjög formfastur og býður ekki endilega upp á persónu- legar raddir.“ Hvað er satt og hvað logið? Bókin byggist á samtali tveggja persóna sem deila líkama Berg- lindar Maríu. Þetta eru annars veg- ar doktor BMT (sem er skamm- stöfun fyrir Berglind María Tómas- dóttir) og hin veraldarvana Rock- river Mary. „Það má í ákveðnum skilningi sjá þær sem nokkurs konar hliðarsjálf mín þar sem Rockriver Mary er villtari týpa og meira blátt áfram meðan BMT er mun varkárari týpa, stífari og bældari. Þær eru þannig báðar tvær ýktari útgáfur af mér,“ segir Berglind María og bend- ir á að bókin innihaldi samtal þeirra um tónlist og hefðir, hvað sé satt og hvað logið og ræða hljóðfærin hrokk og lokk. „Hrokkur er hljóðfæri sem samanstendur af tveggja strengja gítar sem festur er á viðarplötu og afturparti krakkareiðhjóls sem einn- ig er festur á plötuna,“ segir Berg- lind María sem útfærði hljóðfærið á námsárum sínum í Bandaríkjunum. „Lokkur er settur saman úr lang- spili og rokk, sem hvort tveggja er fest á ferkantað sófaborð,“ segir Berglind María, en hljóðfærið smíð- aði fiðlusmiðurinn Jón Marinó Jóns- son. „Í tengslum við bæði hljóðfærin hef ég verið að leika mér að því að kanna ímyndir og erkitýpur sem og tónlist sem félagslegt fyrirbæri. Þegar ég bjó til hrokkinn fór ég að leika mér að því að búa til ímyndaða tilbúna hefð sem þróast hefði meðal íslenskra innflytjenda í S-Kaliforníu. Mér fannst svo merkilegt að skoða hefð sem fyrirbæri, því allar hefðir eru í eðli sínu tilbúningur og pólitík. Það eru valdastrúktúrar sem ráða því hverju er hampað sem hefð og hverju ekki, auk þess sem hefðir tengjast oft ákveðnum söknuði,“ segir Berglind María og tekur fram að hún sé í bókinni líka að vinna með það hvernig konur eru ósýnilegar í sögunni. „Eftir að ég flutti heim tók ég upp þráðinn og langaði til að gera annað hljóðfæri sem væri meira raunverulega gamaldags,“ segir Berglind María og vísar þar til lokksins sem hún sér fyrir sér að rekja megi til Íslendingabyggða í Winnipeg. „Samhliða bókinni kemur út tónlist fyrir lokk á geisladiski og hljóðsnældu, og stafrænum veitum,“ segir Berglind María og rifjar upp að tónlistina hafi hún frumflutt á Listahátíð í Reykjavík 2015 þegar hún frumsýndi lokkinn. Geisladisk- urinn, sem kemur út á vegum þýsku útgáfunnar Backlash Music, inni- heldur verk fyrir lokk eftir Karólínu Eiríksdóttur, Lilju Maríu Ásmunds- dóttur, Þórunni Grétu Sigurðar- dóttur og mig,“ segir Berglind María, sem í tengslum við bókina sendir einnig frá sér hljóðsnældu með því sem hún kallar hljóðbréf (e. Reworks). Nostalgískur tónn „Ég sendi níu tónskáldum möppu með alls konar hljóðum úr lokknum og örfá úr hrokknum líka. Hver og einn bjó til verk upp úr þessum hljóðum,“ segir Berglind María, en tónskáldin eru auk hennar sjálfrar þau Bergrún Snæbjörnsdóttir, Clint McCallum, Elín Gunnlaugsdóttir, Erik DeLuca, Hafdís Bjarnadóttir, Kurt Uenala, Lilja María Ásmunds- dóttir, Rachel Beetz og Þóranna Björnsdóttir. „Hljóðsnældan fæst í áþreifanlegu formi auk þess sem hún er aðgengileg á Bandcamp- síðunni minni og Spotify,“ segir Berglind María og bætir því við að í raun megi líta svo á að öll þau formöt tónlistar sem notuð séu í dag séu orðin úrelt. Vísar hún þar jafnt til hljóðsnældunnar og vínilplöt- unnar. „Stór meirihluti fólks hlustar bara á tónlist á netinu. Það er nos- talgískur tónn í bókinni og því fannst mér vel við hæfi að gefa tónlistina líka út á kassettu,“ segir Berglind María og bendir á að hljóðsnældan sé það form tónlistar sem hún kynntist fyrst og bauð upp á mikla sköpun í formi „mixtape“ eða blandspólu. „Á Vimeo-síðunni minni má síðan sjá kvikmyndina mína sem nefnist Uppruni hlutanna og var enn ein birtingarmynd verkefnisins,“ segir Berglind María og lýsir mynd- inni sem „videóesseyja um hljóð, minni og sjálfsmyndir“. Myndin var sýnd í Norræna húsinu fyrr á árinu sem hluti sýningarinnar Í síkvikri mótun: vitund og náttúra. Eftir samferða tónskáld Af framangreindu má ljóst vera að Berglind María vinnur sem flautu- leikari og tónskáld þvert á miðla. Berglind María stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið áður en hún lauk doktorsprófi í flutningi samtíma- tónlistar frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2013. Hún er í dag pró- fessor við Listaháskóla Íslands. Sem flautuleikari hefur Berglind María komið fram á tónleikum víðs vegar um heiminn, nú síðast sem meðlimur í flautuseptettnum viibra sem kemur fram með Björk í tónleikhúsinu Cornucopia. Hún hefur jafnframt leikið inn á fjölda hljóðrita, meðal annars sem einleikari ásamt Sinfón- íuhljómsveit Íslands undir stjórn Vladimirs Ashkenazy. Verk Berg- lindar Maríu hafa verið pöntuð og flutt á vegum Flautusamtaka Bandaríkjanna, Norrænna músík- daga, Myrkra músíkdaga og Listahátíðar í Reykjavík. Á dögunum sendi Berglind María frá sér plötuna Ethereality sem inni- heldur verk fyrir flautu og elektró- ník. „Verkin eru eftir tónskáld sem ég hef verið samferða í námi og starfi,“ segir Berglind María og bendir á að elsta verkið sem jafn- framt er titilverk plötunnar, Ether- eality, samdi Anna Þorvaldsdóttir árið 2011 þegar þær voru báðar nemendur við Kaliforníuháskóla í San Diego. „Þar voru líka við nám Carolyn Chen og Clint McCallum sem eiga verk á plötunni,“ segir Berglind María, sem sjálf á eitt verk á plötunni sem nefnist Bambaló. „Það var samið að beiðni Banda- rísku flautusamtakanna fyrir keppni sem fór fram á vegum þeirra árið 2013. Loks eru verk eftir samstarfs- félaga mína við Listháskóla Íslands, Tryggva M. Baldvinsson, deildar- forseta tónlistardeildar LHÍ, og Lilju Maríu Ásmundsdóttur holl- nema sem ég kynntist þegar hún stundaði þar nám,“ segir Berglind María og bendir á að öll verkin á plötunni hafi verið samin fyrir hana nema verk sem hún samdi og verk Tryggva „sem hann samdi fyrir ítalskan flautuleikara og fjallaleið- sögumann árið 2015“. Tónlistin rati til sinna Platan hefur nú þegar fengið tvo jákvæða dóma, annars vegar á tón- listarbloggsíðunni 5against4.com og hins vegar hjá Jeremy Shatan sem skrifar á síðunni An Earful „Mér þykir gott að vita að platan hafi rat- að til hlustenda sem njóti hennar. Markmið mitt er ekkert endilega að platan rati sem víðast. Mikilvægara er að hún rati til sinna. Það er gef- andi að geta komið verkunum frá sér á aðgengilegt form, því maður leikur þau ekki mjög oft á tónleikunum,“ segir Berglind María, en þess má geta að platan kemur aðeins út í stafrænu formi. „Upptökurnar hófust í Akranes- vita, en þá var markmið mitt að taka þau upp sem vídeó og koma þeim þannig í dreifingu,“ segir Berglind María, en Erlendur Sveinsson kvik- myndagerðarmaður tók upp flutn- inginn á verkunum eftir Berglindu Maríu, Önnu, Chen og Tryggva. „Þetta kom til af því að ég hafði fengið styrk fyrir tónleikum sem ekki gat orðið af vegna Covid,“ segir Berglind María og rifjar upp að þó hún hafi upphaflega hugsað verk- efnið fyrst og fremst sem vídeó hafi hljóðið verið tekið upp af fagmann- inum Bergi Þórissyni. „Ég átti upp- tökur af verki Lilju og Clint og fannst því einboðið að gefa þetta út sem heild,“ segir Berglind María og tekur fram að það sé aldrei að vita nema platan rati út á hljóðsnældu í framhaldinu. Ljósmynd/Frankie Martin Strengir Berglind María Tómasdóttir með hrokkinn í eyðimörkinni. Handknúinn hjólbúnaður strýkur strengina. Ljósmynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson Berglind María Tómasdóttir „Báðar tvær ýktari útgáfur af mér“ - Berglind María Tómasdóttir sendir frá sér bókina Tvísöngur - Samtalsbók tveggja hliðarsjálfa sem velta fyrir sér hefðum, tónlist, uppruna og menningararfleifð - Hljóðsnældan heillar sem form

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.