Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 12
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is V ísindamenn við Lífeðlis- fræðistofnun Háskóla Ís- lands og á Landspítalan- um eru um þessar mundir að kanna hvort tækni, sem þróuð hefur verið innan skólans, nýtist við mælingar á breytingum í sjón- himnu fólks með alzheimersjúk- dóminn. Fjallað er um málið á vef háskólans. Alzheimer er sá tauga- hrörnunarsjúkdómur sem oftast veldur heilabilun. Engin lækning er til við sjúkdómnum enn sem komið er en áætlað er að heilabilun hrjái allt að 50 milljónir manna í heim- inum. Undanfarin ár hafa vísinda- menn beint athygli að því hvort breytingar á sjónhimnu augans geti gefið vísbendingar til að greina sjúkdóminn snemma og bregðast við honum. Nú nálgast menn þessa spurningu með því að notast við tækni sem tveir prófessorar, Einar Stefánsson og Jón Atli Benedikts- son háskólarektor, hafa þróað og varð grundvöllur sprotafyrirtæk- isins Oxymap. Um er að ræða tæki sem nýtist til súrefnismælinga í auganu. Mæla súrefnismettun í auga „Í verkefninu eru gerðar mæl- ingar á súrefnismettun í æðum sjónhimnu fólks með væga vitræna skerðingu eða alzheimersjúkdóm og þær mælingar bornar saman við niðurstöður úr heilbrigðum saman- burðarhópi. Mælingarnar byggjast á sérstakri myndatöku af sjónhimn- unni sem gerir kleift að nota lit blóðs í sjónhimnuæðum til að meta súrefnismettun. Að auki eru gerðar hefðbundnar mælingar á þykkt sjónhimnu með svokölluðu OCT- sneiðmyndatæki,“ segir Sveinn Há- kon Harðarson dósent í umfjöllun um málið á vef háskólans. „Sjónhimna augans er náskyld heilanum og vitað er að ákveðnar breytingar verða í sjónhimnunni í alzheimersjúkdómi. Kosturinn við sjónhimnuna umfram sjálfan heil- ann er að hægt er að skoða sjón- himnuna á frekar einfaldan hátt með sýnilegu ljósi í gegnum ljósop augans,“ segir Ólöf Birna Ólafs- dóttir lektor sem einnig starfar að verkefninu á Lífeðlisfræðistofnun. Ólöf segir að tilgátan sé sú að hrörnun í heila komi að einhverju leyti fram í hrörnun í sjónhimnunni og að hægt sé að nota breytta súr- efnisnotkun og/eða breytta þykkt sjónhimnu sem óbeinan mælikvarða á framgang heilasjúkdómsins. „Betri greining og mat á sjúkdómn- um gæti hjálpað til við meðhöndlun hans og þróun meðferðar,“ segir hún. Framhald fyrri rannsókna Verkefnið sem hópurinn vinnur að núna er framhald á fyrri rann- sóknum. Þær leiddu í ljós breyt- ingar á súrefnismettun í sjónhimnu fólks með væga vitræna skerðingu og í sjónhimnu fólks með alzheim- er. „Framhaldsrannsóknin er að hefjast og vonast er til að hún gefi nákvæmari mynd af breytingum í sjónhimnunni og svari því hvort augnmælingarnar nýtist til að meta sjúkdóminn,“ er haft eftir Sveini Hákoni. Fram kemur að verkefnið er angi af stærra rannsóknarverkefni um væga vitræna skerðingu og alz- heimersjúkdóminn, sem unnið er undir stjórn Jóns Snædal, öldr- unarlæknis á Landakoti. Augnmæl- ingarnar eru einn hluti heildarverk- efnisins en aðrir rannsakendur í hópnum vinna m.a. taugasálfræði- legt mat á þátttakendum, skoða líf- vísa í heila- og mænuvökva og seg- ulómun af heila og heilarafrit. Sjónmælingar til að greina alzheimer AFP Heilabilun Alzheimer og skyldir sjúkdómar eru algengir og alvarlegir. Unnið er að því að greina þá snemma og finna lyf sem hægt geta á þeim. 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Víðsvegar á meginlandi Evrópu er enn ein bylgja kór- ónuveirufaraldurs- ins risin og smit- tíðni hækkar ört í mörgum löndum. Ekki þó jafn- ört og ótti stjórnvalda við far- aldurinn, sem hafa í sumum löndum gripið til harðari að- gerða en nokkru sinni fyrr, sér- staklega gagnvart óbólusett- um, svo harkalegum að sjálf- sögð lýðréttindi hafa nær umhugsunarlaust verið upphaf- in í nafni sóttvarna. Í Austurríki er verið að gera það saknæmt að vera óbólu- settur og Þjóðverjar, Tékkar og Slóvakar virðast vera á sömu leið. Á Ítalíu er þeim meinað að sækja vinnu og víða um álfu eru ámóta aðgerðir í bí- gerð. Þessum ráðagerðum hef- ur víða verið mótmælt, en sum- staðar hefur mótmælendum verið haldið í skefjum með lög- regluvaldi, en í hinu frjálslynda og friðsama Hollandi skaut lög- regla á mótmælendur, þannig að nokkrir særðust hættulega. Þar hlýtur að vera komið til- efni til þess að spyrja hvað sé um að vera í þessum grónu lýð- ræðisríkjum, þar sem virðing fyrir mannréttindum og réttar- ríki hefur verið í hávegum höfð. Evrópusambandið hefur ekki hikað við að grípa til afar harðra viðbragða við ákvörðun- um og fyrirætlunum stjórn- valda í bæði Póllandi og Ung- verjalandi, sem því þótti ganga gegn „gildum, frumreglum og lögum“ Evrópusambandsins. Í liðinni viku hefur hins veg- ar hvorki heyrst hósti né stuna frá Brussel, Strassborg né Lúxemborg, þrátt fyrir að við blasi mun víðtækari brot á lýð- réttindum almennra borgara í Evrópusambandsríkjum með þessum nýjustu sóttvarna- aðgerðum. Hvernig stendur á því að Evrópusambandið stendur þögult hjá þegar stór hluti þessara lýðræðisþjóða í Mið-Evrópu – allt að þriðj- ungur landsmanna – á að sæta stofufangelsi? Það er vart hægt að hugsa sér harkalegri aðför að frelsi og mannréttindum en að ríkis- valdið setji tilteknum hópi stól- inn fyrir útidyrnar, hópi sem markast af heilbrigðisaðstæð- um. Og ekki um stuttan, af- markaðan tíma, heldur allar götur þar til annað verður ákveðið. Hvernig getur Evr- ópusambandið staðið þegjandi hjá og það með velþóknunar- svip? Það kann að vera erfitt fyrir Íslendinga að skilja hvað um er að vera þar ytra. Sóttvarna- aðgerðir hér hafa ekki alltaf vakið hrifningu, en þær hafa samt verið með hinum vægustu í álfunni. Í Evrópu, líkt og raunar víðar í heiminum, hefur hins vegar gilt út- göngubann mán- uðum saman, þar sem aðeins hefur mátt sinna nauð- synlegustu erind- um og það við strangar varúðarráðstafanir. Árangurinn hefur hins vegar verið ærið misjafn, eins og best sést á því að enn einu sinni rísa nýjar bylgjur og það einnig í löndum, þar sem bólusetning hefur tekist bærilega. Eina bót í máli er að mun færri veikjast alvarlega en áður og ástandið er viðráðanlegra en það var fyrir ári, en smit rísa og hníga sem fyrr. Samt sem áður grípa stjórn- málamenn enn og aftur til sömu ráða og ekki hafa dugað betur til þessa, því að auðvitað eru þeir logandi hræddir líka. Þeir óttast ekki aðeins farald- urinn, heldur kannski ekki síð- ur hitt, að stjórnvöld séu um margt vanmáttug gegn veir- unni. Vandinn er sá að það er ekki unnt að fást við faraldurinn líkt og hvert annað tæknilegt verk- efni, þar sem menn treysti bara vísindunum og láti faraldurs- fræðingana öllu ráða. Vísinda- menn hafa unnið glæsta sigra í baráttunni við kórónuveiruna, en það er ekki svo að þeim sé enn allt um hana og faraldurinn kunnugt. Baráttan hefur nefni- lega einnig félagslegar, efna- hagslegar og pólitískar hliðar, sem ekki má vanrækja, og hún vekur siðferðislegar spurn- ingar, sem við verðum að svara af hreinskilni og heiðarleika. Almannaheill hefur á sér fleiri en eina hlið og þar má ekki láta eitt ganga fyrir öllu öðru. Sótt- varnir geta ekki trompað öll lýðréttindi um óákveðinn tíma, hvað þá alla framtíð. Það kann að vera óskynsam- legt ef ekki heimskulegt að vilja af einhverjum ástæðum ekki láta bólusetjast, og það kann að bera vott um tillits- leysi og sjálfselsku, jafnvel vænisýki. En hafi fólk ekki lengur frelsi til þess að ákvarða sjálft hvaða læknismeðferð það þiggur eða hvaða lyf eða efni eru sett í líkama þess, þá er ekki mikið eftir af frelsi þess eða mannréttindum. Með því er ekki gert lítið úr skynsamlegum sóttvarna- aðgerðum og það er full ástæða til þess að hvetja fólk til bólu- setninga, líkt og þorri Íslend- inga hefur ákveðið fyrir sjálfan sig, hver fyrir sig. En ef beita á nauðung í nafni sóttvarna er voðinn vís. Þá hafa stjórnvöld tekið sér meira vald en þau eiga og afleiðingarnar geta reynst verri en vágesturinn. Það er lærdómurinn af megin- landinu þessa dagana, hve fljótt hin frjálslyndustu lýð- ræðisríki geta umhverfst þegar óttinn fær að ráða. Sóttvarnir geta ekki trompað öll lýðréttindi um óákveðinn tíma} Evrópa á valdi óttans Þ ingmenn í undirbúningskjörbréfa- nefnd Alþingis fengu risastórt verkefni í hendurnar eftir alþing- iskosningarnar 25. september; að meta áhrif ámælisverðra vinnu- bragða yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjör- dæmi á gildi kjörbréfa fjölda þingmanna víða um landið. Á morgun er Alþingi ætlað að skera úr um niðurstöðuna. Við upphaf vinnunnar lá fyrir sú bókun landskjörstjórnar að ekki hefði „borist stað- festing frá yfirkjörstjórn Norðvesturkjör- dæmis á að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningarstað í kjördæminu hafi verið full- nægjandi“. Þannig vakti landskjörstjórn at- hygli Alþingis á því að vafi kynni að vera á því að kjörgögn hefðu verið varin með þeim hætti að treysta mætti að þau endurspegluðu vilja kjósenda. Nefndin hefur lagt á sig mikla vinnu og af ástæðu. List- inn yfir það sem miður fór við talningu og meðferð kjör- gagna í Norðvesturkjördæmi er langur og upptalningin óþægileg svo ekki sé meira sagt. Alvarlegasti annmarkinn er auðvitað sá sem lýtur að vörslu kjörgagnanna á meðan yfirkjörstjórn gerði hlé á fundi sínum. Eins má nefna að meðferð vafaatkvæða var ekki í samræmi við lög og ekki hafa komið fram skýringar á þeim tilfærslum sem urðu á atkvæðatölum sem höfðu svo áhrif á úthlutun þingsæta í kjördæminu og úthlutun jöfnunarþingsæta. Hagsmunir hverra? Mun Alþingi staðfesta endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi eða kalla eftir uppkosningu þar? Það er auðvitað réttmætt sjónarmið að telja uppkosningu í einu kjördæmi ósanngjarna í ljósi þess að kjósendur þess kjördæmis viti kosninga- úrslit í öðrum kjördæmum þegar þeir kjósa að nýju. Það er hins vegar ekki verkefni Alþingis að svara þeirri sanngirnisspurningu heldur að meta meðferð og varðveislu kjörgagna í NV-kjör- dæmi. Var hún fullnægjandi svo hægt sé að meta kjörbréf þingmanna kjördæmisins gild? Gátu þeir fjölmörgu og um margt illskiljanlegu ann- markar sem voru á framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi haft áhrif á úrslit kosning- anna eða ekki? Lög kveða svo einfaldlega á um að ef kosning í einu kjördæmi er metin ógild þá skal fara fram uppkosning í því kjördæmi eingöngu. Í umræðunni um hagsmuni þingmanna eða þingflokka og hæfi þeirra til að tjá sig hefur aðalatriði málsins stundum gleymst. Við eigum öll hagsmuna að gæta, þeir hagsmunir eru hagsmunir kjósenda og traust á kosningum. Ef ekki hefur tekist að staðfesta að atkvæða- seðlar kjósenda í Norðvesturkjördæmi hafi verið tryggðir þarf vilji þeirra kjósenda að koma fram með öðrum hætti. Það verður við þessar aðstæður gert með uppkosningu með öllum þeim göllum sem hún vissulega felur í sér. Að leiða fram skýran vilja kjósenda trompar einfaldlega þá galla. hannakatrin@althingi.is Hanna Katrín Friðriksson Pistill Skýr vilji kjósenda? Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Með hækkandi meðalaldri í heiminum eykst tíðni heilabil- unar líkt og alzheimer. Vís- indamenn hafa bæði lagt kapp á að finna lyf við sjúk- dómnum og að finna leiðir til að greina hann snemma. Eng- in ný lyf hafa komið fram við alzheimer í meira en tvo ára- tugi. Nú er hins vegar verið að þróa líftæknilyf sem von- ast er til að geti hamlað framgangi sjúkdómsins. Helst er talið að þau hjálpi áður en sjúkdómurinn fer að þróast að ráði. Rannsóknir til að finna sjúkdóminn á byrjunar- stigi, eins og unnið er að hér á landi, eru því afar mikil- vægar. Íslenskir vísindamenn hafa unnið að rannsóknum á heila- glöpum í um þrjá áratugi. Undanfarin ár hafa minnis- móttakan á Landakoti og nor- rænar systurstofnanir hennar átt náið samstarf við íslenska og erlenda vísindamenn sem rannsaka alzheimer. Mikilvægt að greina fljótt HEILABILUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.