Morgunblaðið - 25.11.2021, Page 1

Morgunblaðið - 25.11.2021, Page 1
Gleðileg jól F I M M T U D A G U R 2 5. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 277. tölublað . 109. árgangur . JÓLAMATURINN, GJAFIRNAR OG JÓLAHEFÐIRNAR 128 SÍÐNA JÓLABLAÐ Líklegt er að vísindamenn fari að sjá rafleiðni í Gígjukvísl í dag eða næsta sólarhringinn, sem bendir til þess að hlaup sé þar hafið. „Mér finnst líklegt að við sæjum það eftir einn sólarhring eða tvo,“ sagði Eyjólfur Magnússon, jökla- fræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið skömmu áður en það fór í prentun. Eldgos hafa fylgt í kjölfar Grímsvatnahlaupa en ómögulegt er að segja til um hvort slíkt verði á þessari stundu. Eyjólfur segir ólíklegt að um falska viðvörun sé að ræða líkt og kom upp í fyrra. Þá hafi verið um að ræða óheppni þar sem mastur á nokkuð nákvæmu mælitæki tók að hallast og mældist því lækkun. „Það er ekkert svoleiðis í gangi núna. Það er greinilegt að það er sig núna,“ sagði Eyjólfur. Sterkar vísbendingar eru uppi um að vatn sé farið að renna úr Grímsvötnum en það sýni sig á ís- hellunni. Enn ekki aukin rafleiðni Ekki var hægt að merkja aukna rafleiðni í Gígjukvísl í gærkvöldi og því ekki hægt að gefa út að hlaup væri hafið ennþá. „Það er dálítið erfitt að segja, því við höfum aldrei verið með jafn nákvæma mælingu á hellunni eins og núna,“ segir Eyjólfur spurður hvenær búast megi við hlaupi. Ekki sé hægt að útiloka að það hafi farið af stað í nótt eða fari af stað í dag. Hlaup líklegt næstu daga - Gos í Grímsvötnum hefur fylgt hlaupi Vinna við uppsetningu og lagfæringu jóla- ljósa á Skólavörðustíg í miðbæ Reykjavíkur var í fullum gangi þegar ljósmyndara Morg- unblaðsins bar að garði eftir að rökkva tók í gær. Ekki veitir af þar sem heill mánuður af dimmustu dögum ársins er fram undan. hlakka til jólahátíðarinnar, með tilheyrandi gleði, gjöfum og hátíðarmat, og hækkandi sólar í kjölfarið. Starfsmaðurinn, sem sinnir þeirri nákvæmn- isvinnu sem uppsetning jólaljósa er, er ein- beittur á svip. Landsmenn geta þó farið að Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skammdegið lýst upp á Skólavörðustíg Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fjármálakerfið, jafnt bankar og líf- eyrissjóðir, hefur ekki risið undir skyldum sínum við að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa vilja til vaxtar. Þetta segir Sigmar Vil- hjálmsson athafnamaður sem vinnur nú að því að koma nýju félagi lítilla og meðalstórra fyrirtækja á laggirn- ar. Hann er gestur Dagmála í dag. Segir Sigmar skjóta skökku við að ekki sé hægt að fá lánafyrirgreiðslu hjá þessum stofnunum án þess að leggja fram veðandlag í formi hús- næðis. Slíkt sé ekki mögulegt í mörg- um tilvikum þar sem fyrirtæki stóli oft á stærri leigufélög í húsnæðis- málum. Segir hann að lífeyrissjóðir annars staðar á Norðurlöndum veiti lána- fyrirgreiðslu til minni fyrirtækja en að hér á landi sé öllu fjármagni sjóð- anna beint í fjárfestingar og fyrir- greiðslu gagnvart stærstu fyrirtækj- unum á markaðnum. Það sé einkar óheppilegt í ljósi þess að sjóðirnir hafi það verkefni með höndum að ávaxta lífeyrissparnað almennings, sem að stærstum hluta starfi hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Hann segir ótækt að kerfið hygli stærri fyrirtækjum eins og reyndin sé í dag. Þannig skjóti skökku við að prjónastofa á Hofsósi greiði sömu sekt, 600 þúsund krónur, fyrir að skila ársreikningi seint, og stærstu fyrirtæki landsins. Eins sé undarlegt að pylsusali í Kópavogi greiði jafn mikið til Ríkisútvarpsins og Ice- landair. „Ég er viss um að það eru miklu fleiri útvörp hjá Icelandair en hjá pylsusalanum,“ segir Sigmar. Draga þarf úr álög- um á lítil fyrirtæki - Fjármálakerfið styðji ekki við vöxt lítilla fyrirtækja Morgunblaðið/Hallur Már Nýjar áherslur Sigmar Vilhjálmsson telur nýjan málsvara nauðsynlegan. MSegir SA í klóm stórfyrirtækja »12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.