Morgunblaðið - 25.11.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
JÓL Á TENERIFE
EÐA ALICANTE
FJÖLSKYLDUSÓL YFIR JÓLIN
23. - 28. DESEMEBER
VERÐ FRÁ:106.500 KR.
22. - 29. DESEMBER
VERÐ FRÁ:73.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
Verð frá 133.500 kr. á mann m.v. tvo fullorðna
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn
Verð frá 88.900 kr. á mann m.v. tvo fullorðna
TENERIFE
ALICANTE
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Góð mæting var í bólusetningu
með örvunarskammti í Laugar-
dalshöll í gær að sögn Sigríðar
Dóru Magnúsdóttur, fram-
kvæmdastjóra lækninga hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins. Þar sem bólusetningin er
mannfrek lögðu sjúkraflutninga-
menn hjúkrunarfræðingum lið og
tóku þátt í að bólusetja en þeir
hafa öll tilskilin réttindi til þess.
„Við höfum annast þetta verkefni
náið með almannavörnum og lög-
reglunni og þetta er hluti af sam-
vinnunni. Þeir hafa starfsleyfi til
þess að sinna þessu,“ segir Sigríð-
ur. Þeir sem fengu síðustu bólu-
setningu fyrir að minnsta kosti
fimm mánuðum voru velkomnir í
örvunarskammt í Laugardalshöll-
inni í gær.
Alls greindust 147 smit innan-
lands í gær, þar af voru 70 í
sóttkví við greiningu. Alls voru 19
á sjúkrahúsi miðað við tölur gær-
dagsins, 11 þeirra óbólusettir. Af
þeim sem liggja á spítalanum eru
þrír á gjörgæslu, þar af tveir í
öndunarvél, 14 í einangrun og 11 á
smitsjúkdómadeild.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Bólusetning Góð mæting var í örvunarskammtinn að sögn Sigríðar Dóru, en opið hús var í Laugardalshöllinni í gær.
Sjúkraflutningamenn
gáfu bóluefni í höllinni
- Góð mæting í örvunarskammtinn - Bólusetningin mannfrek
200
175
150
125
100
75
50
25
0
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
3
.0
0
íg
æ
r
150 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
179 eru í
skimunarsóttkví1.758 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.290 einstaklingar
eru í sóttkví 19 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af þrír á gjörgæslu
júlí ágúst september október nóvember
Staðfest smit
7 daga meðaltal
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir segir ávinning af bólusetningum
barna á aldrinum 5-11 ára vega
þyngra en áhættuna af bólusetn-
ingum. Nú með tilkomu Delta-af-
brigðisins sýkj-
ast börn og
veikjast miklu
fremur en áður,
þótt enn sé tölu-
verður munur á
veikindum þeirra
og fullorðinna,
sem eru mun lík-
legri til að leggj-
ast inn á spítala.
Þá telur hann
yfirstandandi bylgju faraldursins
að miklu leyti drifna áfram af smit-
um meðal skólabarna, sem síðan
smita aðra heima fyrir.
Góð rök fyrir bólusetningu
Fyrr í faraldrinum talaði sótt-
varnalæknir fyrir því að halda
grunn- og leikskólum opnum á
þeim grundvelli að börn sýktust
síður en fullorðnir og yrðu auk
þess ekki jafn veik. Síðan þá hefur
hljóðið í Þórólfi breyst og til skoð-
unar er að bólusetja aldurshópinn
5-11 ára.
Sóttvarnalæknir segir erlendar
rannsóknir lofa góðu og má búast
við að ónæmissvarið hjá þessum
yngri aldurshópi sé á pari við
ónæmissvar unglinga, 12-16 ára,
sem er nokkuð gott.
„Þannig að það eru góð rök fyrir
því að bólusetningin muni virka
jafn vel hjá þeim,“ sagði Þórólfur.
Veikindin leggjast illa í börn
Hingað til hefur auk þess ekki
borið á neinum alvarlegum auka-
verkunum í kjölfar bólusetninga
meðal 5-11 ára. Hins vegar hefur
það sýnt sig að börn geta veikst al-
varlega af Covid-19-sjúkdómnum.
Nefnir sóttvarnalæknir þá aðallega
fjölkerfabólgusjúkdóm (MIS-C),
sem veldur alvarlegu bólgusvari í
líkamanum. Getur það leitt til
skemmda og bólgu í mörgum líf-
færum með alvarlegum afleiðing-
um fyrir viðkomandi. „Það geta
verið nýrun, hjartað, heilinn og
hvað sem er. Þetta er mjög alvar-
legt sjúkdómsástand.“
Bylgjan drifin
áfram af börnum
- Slæm veikindi vegna Delta-afbrigðis
Þórólfur
Guðnason
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Landspítalinn er ekki samkeppnis-
hæfur hvað viðkemur launakjörum
félagsráðgjafa að mati Steinunnar
Bergmann, formanns Félagsráð-
gjafafélags Íslands.
Hún hefur verulegar áhyggjur af
stöðu félagsráðgjafar á Landspít-
alanum. Þetta segir hún í samtali
við Morgunblað-
ið.
„Félagsráð-
gjafafélag Ís-
lands hefur und-
anfarin ár bent
stjórnendum
Landspítala á að
laun félagsráð-
gjafa á spítalan-
um hafa dregist
mjög aftur úr al-
mennri launaþróun félagsráðgjafa
hjá öðrum ríkisstofnunum og sveit-
arfélögum. Félagið fundaði með
spítalanum yfir nokkurra ára tíma-
bil til að ræða launasetningu og
launaþróun félagsráðgjafa en laun
félagsráðgjafa á spítalanum eru
mun lægri en gengur og gerist hjá
öðrum vinnuveitendum félagsráð-
gjafa. Viðræðurnar hafa verið án
árangurs,“ segir Steinunn.
Staðan verði verri og verri
„Við höfum verulegar áhyggjur af
stöðu félagsráðgjafar á Landspít-
alanum. Spítalinn hefur ekki treyst
sér til að koma til móts við þær leið-
réttingar sem við teljum nauðsyn-
legt að gerðar séu á stofnunarsamn-
ingi. Staðan verður bara verri og
verri.“
Steinunn segir spítalann góðan
vinnustað og því sorglegt að hann
mæti fólki ekki launalega séð.
„Landspítalinn borgar lökustu
launin, en það á auðvitað við um
fleiri stéttir en félagsráðgjafa.
Mikil eftirspurn er eftir fé-
lagsráðgjöfum hjá sveitarfélögum,
stofnunum ríkisins, félagasamtök-
um og á almennum markaði. Margir
þeirra leita því á önnur mið til að
eiga möguleika á betri launakjörum.
Landspítalinn situr eftir af því að
hann er ekki samkeppnishæfur um
laun.
Það er litið á Landspítalann sem
góðan og jákvæðan vinnustað. Hann
hefur verið eftirsóttur sem vinnu-
staður þannig að það er sorglegt að
hann nái ekki að mæta fólki launa-
lega.“
Steinunn segir mikilvægt fyrir
vinnuveitendur að borga góð laun
þar sem einn af þeim þáttum sem
ýta undir kulnun fólks í starfi sé að
það upplifi sig ekki metið að verð-
leikum til launa.
„Það er mikilvægt að hafa í huga
að einn þeirra stóru þátta sem ýta
undir kulnun í starfi er að fólk upp-
lifir sig ekki metið að verðleikum til
launa.“
Landspítalinn ekki
samkeppnishæfur
- Landspítalinn borgi lökustu launin
Steinunn
Bergmann Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landspítalinn Ekki hefur tekist
að semja um launaþróun.