Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
Fjórar staðsetningar voru boðnar
fram þegar ÁTVR auglýsti nýlega
eftir því að taka húsnæði á leigu und-
ir vínbúð. Engin þeirra er í miðborg
Reykjavíkur, Kvosinni. Framtíð vín-
búðarinnar í Austurstræti er enn í
óvissu en tíðinda er að vænta.
Eftirfarandi húsnæði var boðið
fram í kjölfar auglýsingarinnar:
Kirkjusandur (Hallgerðargata 19-
23), Fiskislóð 10 (áður útibú Ís-
landsbanka), Hallveigarstígur 1 og
Hringbraut 119-121 (JL-húsið).
„Það er verið að vinna úr gögnum
og skoða húsnæðið en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um næstu
skref,“ segir Sigrún Ósk Sigurðar-
dóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR.
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu
í lok október sl. að ástæða auglýs-
ingarinnar væri sú að til skoðunar
væri að loka vínbúðinni í Austur-
stræti. Húsnæðið í Austurstræti sé
frekar óhagstætt á tveimur hæðum,
þar sem lagerinn er á neðri hæðinni.
Einnig sé mjög þröngt með allan
flutning til og frá Vínbúðinni.
Margir urðu til að tjá sig á sam-
félagsmiðlum og lögðust gegn því að
vínbúðinni í Austurstræti yrði lok-
að. „Við höfum fengið nokkrar
ábendingar frá viðskiptavinum um
staðsetningu á vínbúð í miðbænum,“
segir Sigrún aðspurð. sisi@mbl.is
Framtíð vínbúðarinnar óráðin
- Fjórar staðsetningar voru boðnar
fram í kjölfar auglýsingar ÁTVR
Morgunblaðið/sisi
Austurstræti Vínbúðin þar á marga
velunnara á samfélagsmiðlunum.
Einkaaðili á markaði gæti þjónustað
þá gesti á sínu landi sem hafa nýtt
sér Laugardalinn hingað til, frekar
en að borgin útvegi land, setji upp
grunnþjónustu og sinni rekstri.
Þetta segir skipulagsfulltrúinn í
Reykjavík í svari við bréfi íþrótta-
og tómstundasviðs Reykjavíkur þar
sem óskað er eftir viðræðum við
skipulagsfulltrúa um mögulega
staðsetningu á svæði fyrir lang-
tímabílastæði fyrir húsbíla.
Á fundi borgarráðs 10. júní í sum-
ar var lagt fram bréf ÍTR um mál-
efnið. Í bréfi ÍTR kemur fram að
sumarið 2021 og fram á vorið 2022
verði þessi aðstaða á tjaldstæðinu í
Laugardal en nauðsynlegt sé að
horfa til framtíðarlausnar í þessu
sambandi. Ljóst sé af fenginni
reynslu að ekki fari alltaf vel saman
rekstur tjaldsvæðis fyrir innlenda
og erlenda ferðamenn og lang-
tímastæði fyrir húsbílaeigendur.
Óskaði ÍTR því eftir að kannaðir
séu mögulegir aðrir staðir í Reykja-
vík fyrir langtímabílastæði fyrir
húsbíla.
„Ekki er ljóst hvaða kröfur ÍTR
eða langtímagestir á svæðinu setja
um nýjar staðsetningar eða innviði
fyrir sína húsbíla né hvernig rekstri
og umsjón yrði háttað. Ekki eru því
listaðar upp mögulegar staðsetning-
ar á þessu stigi,“ segir skipulags-
fulltrúi í svari sínu. sisi@mbl.is
Einkaaðilar útvegi
stæði fyrir húsbíla
- Nauðsynlegt er að horfa til framtíðar-
lausna vegna tjaldstæðisins í Laugardal
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalur Húsbílar standa langtímum saman í röðum á tjaldstæðinu.
Sigurður Már Jónsson blaðamað-
ur fjallar í pistli á mbl.is um
þögn Trumps og rangfærslur sem
fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa
þurft að leiðrétta í fréttum um þenn-
an fyrrverandi for-
seta. Hann rifjar upp
að Trump er í banni
á helstu samfélags-
miðlum og getur því
lítt tjáð sig um þær
leiðréttingar sem
Washington Post
hefur þurft að birta
og breytingar sem
blaðið hefur þurft að
gera á fréttum um
Trump og meint
tengsl hans við rúss-
nesk stjórnvöld.
- - -
Og Sigurður Már
segir: „Þetta eru drastískar að-
gerðir og ekki bætir úr skák að sam-
kvæmt breska blaðinu The Inde-
pendent hefur Donald Trump hótað
að lögsækja stjórn Pulitzer-
verðlaunanna ef hún afturkallar
ekki verðlaun sem hún veitti blaða-
mönnum Washington Post fyrir
þessi skrif. Þau fengu blaðamenn
Washington Post og The New York
Times fyrir að hafa „afhjúpað“ af-
skipti Rússa af bandarískum kosn-
ingum. Menn deila eðlilega um hvað
standi eftir af þeim heiðri núna.“
- - -
Frásagnir af þessum málum eru
með miklum ólíkindum eins og
Sigurður Már lýsir í pistli sínum og
verða eðlilega til að draga úr trú-
verðugleika þeirra miðla vestanhafs
sem gleymdu sér algerlega í heift-
inni gegn Trump og ákváðu að taka
allar ásakanir á hann trúanlegar,
sama hversu fjarstæðukenndar þær
væru og illa rökstuddar.
- - -
En það eru ekki aðeins miðlar
vestanhafs sem gleymdu sér og
gerðust áróðurstæki í stað fjölmiðla.
Þeir finnast víðar, meðal annars hér
á landi.
Sigurður Már
Jónsson
Virtir miðlar
afhjúpast
STAKSTEINAR
Donald Trump
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/