Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
Dansarinn
Höf. Óskar Guðmundsson
Les. Daníel Ágúst Haraldsson
Sjö systur
Höf. Lucinda Riley
Les. Margrét Örnólfsdóttir
Nemesis
Höf. Jo Nesbø
Les. Orri Huginn Ágústsson
Fíkn
Höf. Rannveig Borg Sigurðardóttir
Les. Birna Pétursdóttir,
Haraldur Ari Stefánsson
Kastaníumaðurinn
Höf. Søren Sveistrup
Les. Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Morðin í Skálholti
Höf. Stella Blómkvist
Les. Aníta Briem
Hvunndagshetjan
Höf. Auður Haralds
Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Farangur
Höf. Ragnheiður Gestsdóttir
Les. Aníta Briem
vi
ka
46
Fjölskylda fyrir byrjendur
Höf. Sarah Morgan
Les. Sólveig Guðmundsdóttir
Fjórar systur
Höf. Helen Rappaport
Les. Vera Illugadóttir
TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hefur komið þægilega á óvart
hvað fólk hér í hverfinu er spennt fyr-
ir því að við opnum,“ segir Kikka M.
Sigurðardóttir rithöfundur. Hún und-
irbýr opnun kaffi-
húss í Skipholti 19
ásamt vinkonu
sinni, Dagnýju
Maggýjar.
Kaffihúsið
verður reyndar
aðeins meira en
bara kaffihús.
„Við fundum
þetta frábæra
húsnæði sem hef-
ur staðið lengi
autt. Þarna ætlum við að koma á fót
hverfiskaffihúsi og bókabúð en auk
þess vinnuaðstöðu fyrir höfunda og
jafnvel hönnuði og listamenn líka. Við
viljum sjá hvort það er ekki listafólk
sem hefur áhuga á því að vinna á
kaffihúsi, drekka gott kaffi og vinna
innan um fólk,“ segir Kikka.
Aukið líf hefur verið að færast í
hverfið. Byggð hefur þést í Holtunum
á síðustu árum og fram undan er upp-
bygging á Heklureitnum skammt
undan. Því munu ábyggilega margir
fagna tilkomu nýs hverfiskaffihúss.
Kaffihúsið hefur fengið nafnið
Bókasamlagið og hyggjast þær stöll-
ur bjóða athvarf fyrir upprennandi
rithöfunda. „Við sjáum fyrir okkur að
vera með námskeið fyrir verðandi
höfunda og bjóða þeim leiðsögn við
útgáfu,“ segir Kikka sem þekkir sjálf
vel til í bókmenntageiranum. Hún er
þekktust fyrir að vera höfundur
Ávaxtakörfunnar sem glatt hefur
fjölskyldufólk um árabil.
Kikka segir að húsnæðið sé stórt
og stefnan sé að nýta það sem best.
Þannig sé á stefnuskránni að setja
upp lítið hljóðver sem nýst geti höf-
undum til að taka upp hljóðbækur og
hverjum sem vill til að taka upp hlað-
vörp. Bókaverslun verður á efri hæð-
inni með fjölbreytt úrval að hennar
sögn en sérstaka áherslu á verk sjálf-
stæðra höfunda. „Þetta hús verður
bæði samlag og svo samastaður fyrir
fólk í nágrenninu,“ segir hún.
Kaffið á Bókasamlaginu kemur frá
Kaffibrugghúsinu sem kaffisérfræð-
ingurinn Sonja Grant rekur. Kikka
segir að vonir standi til að hægt verði
að opna í desember. „Við erum í því
skemmtilega ferli að leggja inn um-
sóknir um leyfi hjá Reykjavíkurborg.
Kaffibollarnir eru í skipi á leið til
landsins þannig að fólk verður
kannski að koma með eigin bolla fyrst
um sinn.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Framkvæmdir Bókasamlagið verður opnað í Skipholti 19 í næsta mánuði. Nú er unnið að því að innrétta kaffihúsið.
Athvarf fyrir bókafólk
og alvöruhverfiskaffihús
- Bókasamlagið opnar í Skipholti 19 - Sögufrægt húsnæði
Kikka M.
Sigurðardóttir
Lögreglan á Suðurnesjum er með til
rannsóknar andlát sex einstaklinga á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem
ætla megi að hafi verið ótímabær og
borið að með saknæmum hætti. Þá
rannsakar lögreglan einnig meðferð
fimm annarra sjúklinga sem rök-
studdur grunur er um að hafi verið
skráðir í lífslokameðferð að tilefnis-
lausu og með því hafi öryggi þeirra
verið ógnað.
Rannsóknin hófst í kjölfar skoð-
unar embættis landlæknis og kæru
aðstandenda konu sem lést árið 2019
gagnvart þremur starfsmönnum
stofnunarinnar sem sakaðir eru um
að hafa brugðist starfsskyldum sín-
um í tengslum við lífslokameðferðir.
Landsréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjaness að skipa
skuli tvo dómkvadda matsmenn til
að svara spurningum lögreglu í
tengslum við rannsóknina.
Andlát sex einstak-
linga rannsökuð
- Öryggi fimm annarra talið ógnað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjúkrahús Andlát til rannsóknar.
N1 skal innan tveggja vikna hefja
gröft á skurðum og niðursetningu
loftunarröra við hús í nágrenni olíu-
tanks fyrirtækisins á Hofsósi. Kem-
ur það fram í fyrirmælum sem Um-
hverfisstofnun hefur gefið út um
úrbætur vegna umhverfisslyss.
Íbúar urðu á árinu 2019 varir við
að bensínlykt barst upp úr niðurföll-
um í nágrenni við bensínstöð sem N1
rekur við Suðurbraut á Hofsósi,
einnig innadyra í að minnsta kosti
tveimur húsum. Eftir ítrekaðar
ábendingar kom í ljós að neðanjarð-
argeymir fyrir bensín var lekur. Var
hann tæmdur og tekinn úr notkun.
N1 hóf hreinsunaraðferðir um mitt
síðasta ár. Meðal annars voru elds-
neytisgeymar fyrirtækisins grafnir
upp og fjarlægðir. Aðgerðir sem
gripið var til í kjölfarið dugðu ekki til
að losna við áhrif bensínlekans.
Gerð var jarðvegsrannsókn sl.
sumar og Verkís falið að gera áætlun
um úrbætur. Í fyrirmælum Um-
hverfisstofnunar segir að úrbætur
skuli framkvæma í samræmi við úr-
bótaáætlunina. Markmið aðgerð-
anna er að þau hús sem orðið hafa
fyrir áhrifum mengunarinnar verði
sem fyrst íbúðarhæf og að styrkur
mengunar í þeim valdi ekki heilsu-
spillandi áhrifum.
Felast aðgerðirnar í að grafnir
verða skurðir og loftunarrörum
komið fyrir í þeim, samhliða áfram-
haldandi rannsóknum á styrk rok-
gjarnra efna í jarðvegi. Að auki fer
Umhverfisstofnun fram á að við út-
blástur loftunarröra skuli koma fyrir
kolasíu í þeim tilgangi að minnka þá
lykt sem berst út í andrúmsloftið.
Gryfjurnar eiga að vera fyrir
framan og aftan húsin á Suðurbraut
6, 8 og 10 og einnig á milli þeirra ef
það er framkvæmanlegt. Jarðvegur
þar sem mengun mælist yfir viðmið-
unarmörkum við gröft skal fjarlægð-
ur.
Eftir að blásarar hafa verið settir í
gang í loftunarholum ber fyrir-
tækinu að senda inn tillögu að vökt-
unaráætlun. Skal vöktun innanhúss
standa í að minnsta kosti ár eftir að
hreinsun lýkur. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Mengun Bensíntankur N1 stóð við
hlið verslunar KS á Hofsósi.
Strax verði hafin vinna við
loftun vegna mengunar
- Fyrirmæli um úrbætur vegna bensínleka á Hofsósi
Fjölbreytt starfsemi hefur ver-
ið í Skipholti 19 í gegnum ár-
in. Á jarðhæðinni þar sem
Bókasamlagið verður til húsa
var síðast veitingastaðurinn
Ruby Tuesday. Hann var rekinn
þar í tvo áratugi en var lokað
árið 2019. Á árum áður var
Radíóbúðin í þessu húsnæði
og þar á undan skemmti- og
veitingastaðurinn Röðull.
Helga Marteinsdóttir veit-
ingakona rak staðinn og tók á
móti gestum íklædd peysuföt-
um. „Við fáum sögu hverfisins
í fangið og munum halda utan
um hana,“ segir Kikka. „Ég sé
fyrir mér að við höfum sér-
stakan dag á hverju ári til
heiðurs Radíóbúðinni og Röðli.
Ég er komin með upphlutinn
hennar ömmu til að klæðast á
þessum degi,“ segir hinn nýi
vert í Skipholti 19.
Munu heiðra
sögu hússins
RADÍÓBÆR OG RÖÐULL
Afkoma ríkissjóðs á fyrstu níu mán-
uðum ársins er neikvæð um 138
milljarða króna, sem er þó 51 millj-
arði króna betri afkoma en áætlanir
í upphafi árs gerðu ráð fyrir.
Bætt afkoma skýrist af sterkari
tekjuvexti en gert var ráð fyrir. Sú
þróun hafði þegar komið fram á fyrri
helmingi ársins og er afkoman því í
samræmi við væntingar, að því er
kemur fram í tilkynningu um upp-
gjör ríkissjóðs.
Tekjur nema 621 milljarði króna
en áætlanir gerðu ráð fyrir 565 millj-
örðum króna og er það meginskýr-
ing á fráviki frá áætlaðri afkomu
tímabilsins. Tekjur hækka um 16%
frá sama tímabili fyrra árs.
Innheimta skatta og trygginga-
gjalda fyrstu níu mánuðina eykst um
14% frá sama tímabili í fyrra. Hluti
aukningarinnar er þó tilkominn
vegna áhrifa Covid-19-tengdra
frestana á innheimtu ríkissjóðs.
Afkoman 51 milljarði
betri en var áætlað
- 138 milljarða halli á rekstri ríkisins