Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 ✝ Birna Arin- bjarnardóttir fæddist á Ísafirði 2. maí 1958. Hún lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn 16. nóvember 2021. Foreldrar Birnu voru Svanhildur Petra Þorbjörns- dóttir, f. 19.2. 1938, d. 30.9. 2017, og Arinbjörn Guðmundur Ar- inbjarnarson, f. 30.1. 1937, d. 10.7. 1988. Systir Birnu er Edda Arinbjarnardóttir, f. 1.10. 1959. Birna eignaðist fjögur börn: Vignir Örn Hallvarðsson, f. 27.11. 1973, d. 25.10. 1975, Agnar Rósinkrans Hallvarðs- son, f. 8.3. 1976, d. 19.12. 2015, Kristín Ýr Júlíusdóttir, f. 4.7. 1987, og Hildur Júlíusdóttir, f. 22.2. 1989. Birna átti fjögur barna- börn og eitt barna- barnabarn. Fyrstu 11 ár ævi sinnar bjó hún á Ísafirði, en fluttist svo þaðan með fjölskyldu sinni til Hafnarfjarðar. Ár- ið 1981 flutti Birna svo til Danmerkur og bjó þar til æviloka. Hún lærði þroskaþjálfun í Kaupmannahöfn og starfaði að- eins við það í byrjun, en eftir það vann hún að mestu í ferða- bransanum. Útför fer fram í dag, 25. nóvember 2021, í Sundby Kapel, Kaupmannahöfn, klukk- an 13. Jeg teller stjernerne, jeg teller stjernerne til tankerne får vinger som jeg kan flyve på. (Ég tel stjörnurnar, ég tel stjörnurnar, þar til hugurinn fær vængi sem ég get flogið á) (Kim Larsen) Fyrir skemmstu fékk ég þær sorglegu fréttir að Birna æsku- vinkona mín hefði látist í Kaup- mannahöfn. Margar minningar leita á hugann. Við vorum jafn- aldra og leiðir okkar lágu sam- an þegar hún flutti í Hafnar- fjörð, þá vorum við 11 ára gamlar. Birna var einstaklega falleg stúlka og ekki spillti hvað hún var skemmtileg og kraft- mikil. Það var alltaf mikið líf og fjör í kringum hana og vinkon- uhópurinn var stór og líflegur. Birna miklaði ekki verkefnin fyrir sér, mér er það minn- isstætt þegar við fórum saman á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum einungis 14 ára gamlar. Þar söfnuðum við tómum ölflöskum af miklu kappi sem við seldum og keyptum okkur pylsur og alla minjagripina sem voru til sölu. Samt áttum við heilmikinn afgang þegar við sigldum aftur í land. Vinkona mín átti auðvelt með nám og sannaði það þegar hún lærði þroskaþjálfun í Kaup- mannahöfn. Hún starfaði í mörg ár hjá ferðaskrifstofunni Heklarejser sem hún rak ásamt manni sínum Júlíusi Pálssyni og þar sýndi hún vel hæfileika sína og dugnað. Birna eignaðist tvo syni en missti þá báða, það gekk að sjálfsögðu mjög nærri henni. En eftir lifa tvær ynd- islegar dætur, barnabörn og barnabarnabarn. Í gegnum tíðina hittumst við Birna öðru hvoru, ýmist á Ís- landi eða í Kaupmannahöfn, og bar aldrei skugga á vináttu okkar. Ég minnist vinkonu minnar með mikilli eftirsjá og hlýju og bið Guð að styrkja alla ástvini hennar. Hvíldu í friði, elsku Birna. Þín vinkona, Þóra Sigurþórsdóttir. Fjörutíu ár en samt eins og það hafi verið í gær sem við hittumst fyrst. Svo falleg, skemmtileg, orkumikil og úr- ræðagóð. Við áttum svo margt sameiginlegt, deildum gleði og erfiðleikum, oftast samt svo ótrúlega gaman hjá okkur. Hér og nú rifjast upp ótal atvik sem vitna um drífandi þína þegar upp komu fyrirvaralaust að- stæður sem leysa þurfti úr án tafar, svo sem þegar ungling- arnir okkar og nokkrir vinir komu glorsoltnir, úrvinda og hraktir af regnsósa Hróar- skelduhátíð og voru umsvifa- laust drifnir í bað, útveguð hrein föt og settir við ríkulegt matarborð sem galdrað var fram líkt og hendi væri veifað. Þannig gæti ég lengi haldið áfram að rekja alla þá mann- kosti og gæsku sem þú hafðir til brunns að bera. En elsku besta vinkona, þú áttir einnig sjálf við erfiðan sjúkdóm að stríða sem hreif þig í burtu svo langt fyrir ald- ur fram. Í mínum huga umlyk- ur þig þó aldrei annað en sól- skin og ást. Innilegustu samúðarkveðjur til Kristínar Ýrar og Hildar og fjölskyldna þeirra, sem og ann- arra aðstandenda. Elsa María. Birna Arinbjarnardóttir ✝ Pétur Eggert Stefánsson fæddist 24. maí 1935 í Grímsey. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri 14. nóv- ember 2021. Pétur Eggert ólst upp hjá móð- ur sinni, Birnu Stefánsdóttur, í Grímsey og tók sér sem föð- urnafn nafn afa síns, Stefáns Eðvaldssonar. Pétur Eggert átti tvö systk- ini, þau Guðnýju Geirsdóttur, f. 29. september 1940, og Gunnar Stefán Ásgrímsson, f. 5. júní 1954. Þau eru bæði lát- in. Pétur Eggert bjó í Grímsey allan sinn barnsaldur og langt fram á fullorðinsár. Hann hóf skólagöngu sjö ára hjá Sæ- mundi Dúasyni í Barnaskól- anum í Grímsey. Pétur fór að að sér fósturdótturina Theo- dóru Kristjánsdóttur, f. 27. desember 1963. Þau byggðu sér hús í Grímsey og fékk húsið nafnið Sólbrekka. Pétur og Sigrún bjuggu stærstan hluta síns búskapar í Gríms- ey, fluttu til Hríseyjar 1976 og leiðir þeirra skildi árið 1983. Pétur flutti til Akureyr- ar frá Hrísey árið 1984 og vann þar ýmis störf, þó lengst í Kaffibrennslunni. Pétur keypti sér aftur hús í Hrísey árið 1994 og reri þá frá Hrís- ey og vann í Fiskvinnslustöð KEA í Hrísey á veturna. Árið 1985 tóku þau saman Pétur og Jóna Kjartansdóttir, f. 23.11. 1922, d. 28.3. 2020. Þau bjuggu lengst í Kot- árgerði 4 á Akureyri. Jóna og Pétur voru dugleg að ferðast og voru einlægir aðdáendur harmonikutónlistar. Síðustu árin bjuggu Pétur og Jóna á hjúkrunarheimilinu Lög- mannshlíð á Akureyri. Pétur Eggert Stefánsson verður jarðsunginn frá Höfða- kapellu á Akureyri í dag, 25. nóvember 2021, klukkan 13. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat sækja sjóinn 10 ára gamall á bát- um í eyjunni og upp frá því var hann öll sumur á sjó sem barn og unglingur. Pétur seig í björgin í Grímsey eftir eggjum, hann háf- aði lunda og vann hann áfram með þess tíma verk- unaraðferðum. Pétur hafði un- un af dýrum og var laginn við þau, hann var með kindur al- veg þar til hann flutti frá Grímsey. Pétur var trillukarl í húð og hár. Hann lét smíða fyrir sig trillu árið 1967 og hana skírði hann Hrönn EA 66. Á Hrönn reri Pétur til árs- ins 2007. Pétur giftist Sigrúnu Sig- urðardóttur úr Eyjafirði árið 1960 og eignuðust þau dótt- urina Ingibjörgu Unni 15. maí 1967. Ári áður höfðu þau tekið Pabbi kvaddi okkur 14. nóv- ember sl. eftir stutta legu vegna beinbrots. Það var í hans anda að láta hafa sem minnst fyrir sér, hann hugsaði yfirleitt um aðra fyrst. Pabbi þurfti snemma að hafa fyrir lífinu, fór snemma að vinna og tók snemma ábyrgð. Ég var svo lánsöm að ég fór sem fóstur- barn til Péturs og Sigrúnar fram í Grímsey og þar átti ég góð og falleg bernskuár. Í minningunni var alltaf gott veð- ur og nóg að gera fyrir duglega krakka. Pabbi var yfirleitt ein- hvers staðar nálægur, hugsa um féð, fella net, í dagróðrum, smíða, rækta eða hvað annað sem féll til. Ég var mikið með pabba í verkunum og fannst það notalegt. Notalegt að setj- ast á garðabandið og spjalla á meðan ærnar tuggðu tugguna sína. Notalegt að sigta grá- sleppuhrognin og horfa ofan í sigtið og sjá marglita bleiktóna hrognabelgina springa og síast í gegnum sigtið. Pabbi var þeirrar gerðar að hann hafði nú yfirleitt ekki mörg orð um hlut- ina en kom þeim gjarna frá sér á íslensku ef svo bar undir. Hann var dagfarsprúður og var sólarmegin eins og hann orðaði það sjálfur einhvern tíma. Hann var glaðsinna og alltaf stutt í brandara hjá honum. Snúa út úr og stríða, þar var hann á heimavelli, að gera góð- látlegt grín fannst honum gam- an. Ég man vel eftir kvöldunum heima í Sólbrekkru þegar fjöl- skyldan sat og hlustaði á skemmtiþætti í útvarpinu, Svavar Gests og fleiri. Síðar horfðum við saman á sjónvarp- ið og íslenskir skemmtiþættir alltaf í uppáhaldi. Helst ef nóg var af söng og gleði. Pabbi var ekki mikill maður á velli og barst ekki á, en samt var hann svo stór, stór í huga okkar sem þekktum hann vel. Pabbi var alltaf barngóður og þess nutum við systur. Síðar hófst nýr kafli hjá honum þegar barnabörnin fæddust eitt af öðru. Pétur afi gaf alltaf fallegar amælis- og jólagjafir, honum fannst gaman að velja eitthvað fallegt á krakkana, var ótrúlega naskur á smekk og stærðir. Hann fylgdist alla tíð vel með sínu fólki og gladdist á merkum tímamótum barnabarnanna. Pabbi var náttúrubarn, rækt- un, nýting á því sem náttúran gaf og umgangast náttúruna af virðingu fylgdi honum alla tíð. Hann var trillukall í marga ára- tugi og í frítíma sínum stundaði hann meðal annars veiðar í vötnum. Pabbi háfaði lunda og verkaði, pabbi ræktaði rófur, kartöflur og rabarbara, tíndi ber og allt var nýtt eins og hægt var. Pabbi greindist með parkin- son árið 2009 og upp frá því setti sjúkdómurinn mark sitt á hann smátt og smátt. Hann tók greiningunni og skerðingu á færni í framhaldinu með mestu ró og skynsemi. Frá 1. maí 2018 dvaldi pabbi á dvalarheimilinu Hlíð á Ak- ureyri en 7. febrúar 2019 flutti hann á hjúkrunarheimilið Lög- mannshlíð á Akureyri. Þar undi hann sér vel og þar leið honum vel. Hann var í „vinnu“ þar og honum fannst hann hafa hlut- verk og það fannst honum gott. Starfsfólkið var honum gott og stúlkurnar natnar við aðstoð og aðhlynningu. Pabbi kallaði þær „stúlkurnar sínar“ og hældi þeim við hvert tækifæri. Hann átti það til að bjóða þeim upp í dans, alltaf glaður og alltaf gaman. Þannig ætla ég að muna pabba, glaðan. Theódóra. Elsku Pétur afi. Það er svo margt sem kemur fram í hug- ann þegar ég sest niður til að skrifa nokkur orð til minningar um þig. Flestar tengjast þær einhverjum ærslagangi og fjöri og allar eru þær góðar. Fyrst eru það allar ferðirnar af Stóru bryggju yfir á Litlu bryggju með Hrönn eftir löndun. Það var alltaf til Afakex og við fengum að prófa að stýra og hjálpa til við að binda. Þú kenndir okkur að umgangast trilluna og bryggjuna og virtist aldrei verða þreyttur á að hafa okkur með og gantast við okk- ur. Áður en þú keyptir húsið við Brekkugötuna þá gistir þú stundum hjá okkur á Austur- veginum og ég man hvað það var gaman og spennandi. Ég man líka þegar „við“ byggðum kofann okkar saman og hvað það var gaman að flagga fána þegar grindin af honum var tilbúin. Þannig kenndir þú manni, með því að leyfa manni að hjálpa til og hafa fyrir því að gera hlutina skemmtilega og spennandi. Við fengum bút af efni hjá mömmu, afgang af efni sem hún hafði notað sem fóður í kápur á mig og Hrund, það var síðan heftað við afgangs- spýtu og hún negld við kofann. Síðan voru teknar myndir og ég man hvað ég var stolt af þessari byggingu. Þetta er ein besta gjöf sem við systkinin höfum fengið og eru stundirnar óteljandi sem við lékum okkur þar, og núna barnabarnabörn- in. Einnig man ég eftir öllum heimsóknunum á Hlíðargötuna og síðar í Kotárgerðið. Alltaf var eitthvað gott til að borða, og eitthvað sætt, alltaf eitthvað sætt. Enda tala dætur mínar um afa með rúsínurnar. Þar var alltaf til dót handa okkur, farið í eltingarleiki og ærslast og haft gaman. Þegar við horfðum saman á íþróttir fylgdu því æv- inlega sögur af því þegar þú spilaðir með landsliðinu í Spán- arferð ’59 og vannst auðvitað, eða þegar þú settir heimsmetið þarna um árið. Þú varst svo sannfærandi að það var erfitt að trúa þér ekki. Eftir því sem maður varð eldri reyndi maður að þræta fyrir þetta, en þá bættist bara við söguna og hún varð enn betri. Ég man eftir helgarferð til þín á Hlíðargöt- una þar sem ég fékk að gista hjá þér og þú kenndir mér mannganginn. Þú áttir tafl- menn en fannst ekki taflborðið svo þú teiknaðir það upp og sýndir mér hvernig. Ég man líka eftir því að rétt fyrir jól þegar ég var í 10. bekk og ný- flutt inn á Akureyri, að þú hó- aðir í mig til að hjálpa þér við að pakka inn jólagjöfum. Þú þurftir sko enga hjálp við það, jólapakkarnir frá þér voru allt- af þeir flottustu, alltaf glans- andi pappír og mikið krullu- band. En þú vissir að ég myndi missa af einhverju af jólaund- irbúningnum heima í Hrísey og bauðst mér þess vegna að vera með. Þú varst mikið jólabarn og ég mun alltaf muna sér- staklega vel eftir þér og jóla- skrautinu þínu á aðventunni, annað er ekki hægt. Það er svo margt sem flýgur í gegnum hugann við að rifja þetta upp og eins og áður segir allt eru það góðar og skemmtilegar minningar. Hvíldu í friði elsku afi, en samt ekki of miklum, ég vona nú að það sé eitthvert stuð hjá þér á himnum og skellt í eins og eitt harmónikkuball annað slagið. Dröfn Teitsdóttir. Elsku afi, Við systkinin eig- um margar minningar af þér, bæði nýjar og gamlar. Sú nýj- asta er líklegast sú þegar ég, Klara, kom með Brimi í heim- sókn til þín og þú gafst honum súkkulaðirúsínur og leyfðir honum að skoða skipalíkanið þitt. Eftir það var nafnið Pétur afi innstimplað hjá drengnum. Við systkinin eigum margar æskuminningar, trúðum því sem dæmi staðfast í mörg ár að þú hafir verið stjarna með íslenska handboltalandsliðinu á þínum yngri árum og hlust- uðum á glæstar sögur á meðan við fengum afakex og mjólk í húsinu þínu í Hrísey. Minning- arnar eru í takt við þetta, það var alltaf stutt í húmorinn og slegið á létta strengi og þess munum við minnast. Hvíldu í friði elsku Pétur afi. Ég, Siguróli, man hvað afi var alltaf léttur. Orðheppinn, ótrúlega fyndinn og svalur. Mér fannst hann algjör töffari. Ég leit mikið upp til hans og fannst mjög gaman með hon- um. Ég man við horfðum oft á laugardögum á þýska boltann þar sem hann svoleiðis ruglaði í mér að hann væri gömul landsliðskempa og markahrók- ur og ef mig misminnir ekki var hann í eitthvert skiptið að segja mér frá glæstum snóker- ferli sínum líka. Þetta var allt auðvitað algjör þvæla en það að ég hafi gleypt við sögunum segir sennilega meira til um mitt háa álit á afa heldur en sannfæringarmætti hans, því í minningunni var hann hálf- hlæjandi á meðan hann sagði þessar sögur. Það var frábært að hafa hann nálægt okkur bæði í Hrísey og á Akureyri og heimsóknir til afa stóðust alltaf væntingar. Hann átti alltaf til eitthvað gott að borða og tók oft þátt í leikjum með því að heldur betur kveikja í stemmn- ingunni. Þegar ég hugsa um afa þá sé ég brosið hans og heyri hláturinn hans. Fallegur og jákvæður. Ég sakna þín afi. Hvíl í friði. Minningar mínar, Gígju, af afa einkennast af bros á vör, miklum hlátrasköllum og gleði. Afi var nefnilega svo glaðlynd- ur og alltaf stutt í húmorinn. Mér þykir gríðarlega vænt um þann tíma sem afi var mikið í húsinu sínu í Hrísey. Á sumrin hjólaði ég til hans stundum oft á dag að athuga hvað hann væri að bralla og aldrei klikk- aði það að í skápnum í eldhús- inu leyndust annaðhvort súkkulaðirúsínur eða frón kremkex sem ég hef aldrei kallað annað en afakex. Ým- islegt hef ég brallað með hon- um í gegnum árin en í mínum allra bestu minningum er Hrönn yngri frænka mín með. Í hvert einasta skipti sem við fórum til afa var rauði skopp- araboltinn dreginn fram og far- ið í sparkó á ganginum eins og við kölluðum það. Þar sparkaði afi af sér inniskónum og hvað eina og við frænkurnar velt- umst um af hlátri á gólfinu. Þetta er aðeins brotabrot úr hafsjó af frábærum minningum sem ég á af afa og ég mun sakna hans og skemmtilega húmorsins mikið. Hvíl í friði elsku afi minn, þín verður saknað. Gígja, Hrund, Klara og Siguróli Björgvin Teitsbörn. Pétur Eggert Stefánsson Útför í kirkju Stuðningur og sálgæsla þegar á reynir utforikirkju.is Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.