Morgunblaðið - 25.11.2021, Page 22

Morgunblaðið - 25.11.2021, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 ✝ Gunnar Sig- urgeirsson var fæddur í Reykjavík 30. nóvember 1971. Hann lést á heimili sínu Skógarbæ 16. nóvember 2021. Hann ólst upp og bjó mestalla sína ævi í Kópavogi, en síðustu tæpu tvö ár- in bjó hann á Skóg- arbæ við Árskóga í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigurgeir Eiríksson húsamálari, fæddur 10. maí 1926, dáinn 18. ágúst 2004 og Jóhanna Gunn- arsdóttir, fyrrverandi starfskona á Vífilsstaðaspítala, fædd 22. október 1931. Hann var yngstur þriggja systkina, eldri systkini hans eru: Þórdís Sigurgeirsdóttir, f. 30. apríl 1963 og Vermundur Arnar Sigurgeirsson, f. 19. októ- ber 1967. Börn Þórdísar: Arnar Geir Jónasson, f. 26. október 1992 og Hanna Rún Jónas- dóttir, f. 21. september 1995. Gunnar var ókvæntur og barnlaus. Eftir grunnskóla fór Gunnar í Iðnskól- ann í Reykjavík, þar sem hann lagði stund á rennismíði. Hann kláraði mestallt námið en lauk ekki sveins- prófi. Hann vann ýmis verkamannastörf í gegnum árin, starfaði til að mynda á tímabili með föður sín- um við húsamálun. Einnig vann hann um tíma hjá JB Bygginga- félagi, hjá Sóma, Málmsteypu Þorgríms, Skógrækt Kópavogs og síðustu árin vann hann hjá Bónus. Útförin fer fram frá Hjalla- kirkju í Kópavogi 25. nóvember 2021, klukkan 13. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Elsku Gunnar minn. Nú ertu farinn frá okkur allt of snemma. Enginn veit ævi sína fyrr en öll er, og Þeir góðu deyja ungir, stendur einhversstaðar og það á nú heldur betur við, því nú hef ég misst góðan bróður. Hjálpsaman, ljúfan og góðan. Það fór ekki mikið fyrir þér og þú sóttist ekki í fjöldann, en því tryggari varstu okkur sem næst þér stóðum. Það verður skrýtið að hafa þig ekki með okkur í öllu því sem fjöl- skyldan tekur sér fyrir hendur og nú þegar jólin nálgast kemst ég ekki hjá því að hugsa til þess hve tómlegt verður án þín. Mátt- arvöldin hafa þó leyft okkur að finna aðeins fyrir því sl. tvö og hálft ár, því í mars 2019 urðu mikil veikindi til þess að þú gast ekki verið með okkur eins mikið og áður. Þá tók hjólastóllinn við, stofnanir og nýtt heimili þar sem þér var sinnt af alúð. En þú varst þarna ennþá, við gátum heimsótt þig og jafnvel sótt þig í heim- sókn, a.m.k. til að byrja með. Núna verðum við bara að ylja okkur við minningarnar og þær eru ófáar. Ég mun alltaf minnast þess með hlýju þegar við þvæld- umst um heiminn saman, fyrir löngu síðan, ég ung kona og þú bara 17 ára stráklingur. Þá þvældumst við um Evrópu með bakpokana og tjöldin á bakinu, skoðuðum kirkjur, hallir og sól- ríkar strendur. Og svo öll hin ferðalögin með fjölskyldunni, sem eru orðin ansi mörg. Við munum líka minnast skrýtna húmorsins og aðdáunar á Herra Bean, hnyttinna tilsvara, sér- viskunnar, að ekki sé nú minnst á alla nammipokana. Elsku Gunni minn, góða ferð í sumarlandið, við hittumst þar þó síðar verði. Þín systir, Þórdís Sigurgeirsdóttir. Í dag er borinn til grafar æskuvinur minn Gunnar Sigur- geirsson. Okkar kynni hófust fyrir um 40 árum þegar ég flutti í sama hverfi og hann í Kópa- vogi. Með okkur tókst fljótlega góð vinátta sem hélst fram á síð- asta dag en samskiptin voru þó mismikil eftir tímabilum í lífi okkar. Í gegnum vinskapinn við Gunnar kynntist ég elskulegri móður hans Jóhönnu sem sýndi mér ávallt mikla gestrisni og oft- ar en ekki bauð mér uppá ein- hverja góða hressingu með Gunnari þegar ég kom á heimili þeirra. Föður Gunnars kynntist ég einnig ágætlega en hann féll frá fyrir allnokkrum árum síðan. Ég hef fengið að vera þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að koma margsinnis í heimsókn til þeirra í sveitina á bæinn Litla-Bakka norður í Miðfirði, þar sem fjöl- skylda Gunnars dvelur oft og þá sér í lagi á sumrin. Gunnar veiktist mjög alvar- lega í mars 2019 og lá lengi inni á spítala. Við tók mikil endur- hæfing en eftir þetta áfall var hann bundinn hjólastól og gat því miður lítið tjáð sig í tali. Síð- ustu tvö árin bjó Gunnar á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ og naut þar góðrar umönnunar. Gunnar hefði orðið fimmtugur í lok þessa mánaðar en hefur nú verið kallaður á brott allt of fljótt. Það er sárt að þurfa að sjá svo snemma á eftir þeim trausta og góða vini sem Gunnar var. Fyrir vináttuna í gegnum tíðina vil ég þakka. Ég votta móður hans Jóhönnu og systkinum hans, þeim Dísu og Venna, mína dýpstu samúð. Megi minningin um góðan dreng lifa. Lars Kjartan Persson. Gunnar Sigurgeirsson ✝ Jóna Guðrún Kortsdóttir fæddist 28. febrúar 1934 í Vestmanna- eyjum. Hún lést í faðmi fjölskyld- unnar á Landspít- alanum á Landakoti þann 11. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Kort Ey- vindsson, f. 1. des- ember 1901, d. 21. ágúst 1964, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 17. mars 1909, d. 23. janúar 2001. Systkini Jónu eru Jón Sigurbergur Korts- son, f. 30. apríl 1939, og Eygló Kortsdóttir, f. 29. maí 1940. Jóna giftist Guðmundi Antoni Bergþóri Guðmundssyni, f. 13. október 1935, í október árið 1962 í Dómkirkjunni. Foreldrar hans voru Guðmundur Katarínus Gíslason, f. 23. janúar 1902, d. 31. janúar 1986, og Ágústa Jón- asdóttir, f. 24. ágúst 1904, d. 5. maí 1981. Dætur Jónu og Guðmundar eru 1) Ingibjörg Hrefna, f. 16. nóvember 1962, maki Jón Ólafur Halldórsson, f. 2. janúar 1961. Börn Ingibjargar og fyrri maka eru a) Jóna Bergþóra Sigurð- ardóttir, f. 9. mars 1981, maki Guðmundur Vigfússon, f. 28. apríl 1975, börn þeirra eru Silja, f. 15. nóvember 2003, Harpa, f. 6. júní 2007 og Aron, f. 9. mars 1971, barn hennar er Eiríkur Kort Daxx Annetts, f. 10. apríl 2010. Jóna var fædd í Vestmanna- eyjum og flutti síðar með for- eldrum sínum til Torfastaða í Fljótshlíð þar sem hún ólst upp. Móðurforeldrar hennar, Jón og Guðrún, bjuggu þar og stunduðu búskap ásamt foreldrum hennar. Ung var hún farin að hjápa til við búskapinn og var hún mikil hestakona. Hún gekk í barna- skóla í Fljótshlíð og fór eftir fermingu í Héraðsskólann á Laugarvatni. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur er Jóna réð sig í vist hjá ráðherrahjónununum Jó- hanni Hafstein og Ragnheiði Thors. Jóna var gjalderi í Út- vegsbankanum á Hlemmi er hún kynntist eiginmanni sínum og vann þar til ársins 1963 er annað barn þeirra fæddist. Ásamt hús- móðurstörfum kom hún að ýms- um rekstri ásamt eiginmann- inum og má þar nefna fraktflutn- inga, útgerð og steypustöð. Jóna vann einnig um árabil í mötu- neyti Borgarspítala. Á síðari hluta starfsævinnar rak hún ásamt systur sinni og eiginmanni matvöruverslun. Eftir að hún hætti að vinna var hún dugleg í hannyrðum. Síðasta mánuðinn dvaldi Jóna á Landakoti, deild L5.Útför Jónu verður frá Grafarvogskirkju í dag, 25. nóvember 2021, kl. 13. Samkvæmt sóttvarnalögum mega þeir sem eru með neikvæð hraðpróf koma í athöfnina. At- höfninni verður streymt á: https://youtu.be/WrSliO3QSXc Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat 2010, b) Sigríður Auðunsdóttir, f. 10. september 1984, maki Eggert Sig- urvinsson, f. 5. júní 1983, barn þeirra er Lilja Sól, f. 23. októ- ber 2010, c) Ágústa Katrín Auðuns- dóttir, f. 16. mars 1990, maki Brynjar Jóhannsson, f. 23. desember 1987, barn þeirra er Kári, f. 11. maí 2021. Börn Jóns og fyrri maka eru Tinna Ýr Jónsdóttir, f. 5. september 1997, og Heiðrún Katla Jónsdóttir, f. 11. maí 2000 2) Guðbjörg Gíslína, f. 18. desem- ber 1963, maki Sigurður Jónas Elísson, f. 5. júní 1956, börn þeirra eru a) Anton Örn, f. 12. apríl 1982, b) Elías Viljar, f. 6. nóvember 1986, maki Vigdís Arna Helgadóttir, f. 10. júlí 1993, börn þeirra eru Anna Dís Birg- isdóttir, f. 23. mars 2015, og Ern- ir Viljar Elíasson, f. 13. maí 2020. 3) Ágústa Katrín, f. 19. sept- ember 1965, maki Lárus Sig- urbjörn Guðmundsson, f. 5. nóv- ember 1965, börn þeirra eru a) Ólafía Lára, f. 19. apríl 1989, maki Haukur Ingi Heiðarsson, f. 13. október 1986, börn þeirra eru Lárus Heiðar, f. 8. febrúar 2017, og Jón Ágúst, f. 5. apríl 2019, og b) Karólína Rut, f. 1. júní 1995. 4) Guðrún, f. 7. janúar Elsku mamma og tengda- mamma hefur kvatt okkur. Það er svo margs að minnast og margar fallegar og ljúfar minn- ingar sem koma upp í hugann. Mamma var mikil hestakona, bæði þegar hún var að alast upp í sveitinni og einnig þegar hún og pabbi höfðu keypt Torfastaði í Fljótshlíð, þar sem hún ólst upp. Þá voru keyptir nokkrir reiðhest- ar og fórum við fjölskyldan um næstum hverja helgi í hlíðina og var mikill spenningur að fara í út- reiðartúra. Skemmtilegast var að fara niður á aur og leyfa hest- unum að þeytast áfram á mjúk- um sandinum. Oft var glatt á hjalla í sveitinni og alltaf allir vel- komnir. Mamma talaði alltaf um hvað það væri mikilvægt að mennta sig. Lagði mikla áherslu á mennt- un og hvatti okkur dæturnar áfram í námi og starfi. Hún fór sjálf í Héraðsskólann á Laugar- vatni, en Guðrún amma hennar styrkti hana til þess náms. Hún var mjög þakklát að hafa fengið þetta tækifæri, þar sem ekki var mikið um peninga í sveitinni á þessum tíma. Þeim hjónum þótti gaman að ferðast, bæði innanlands og er- lendis, og nutu þess að fara til Spánar á efri árum. Síðasta utan- landsferðin var árið 2013 er þau fóru í heljarinnar siglingu með skemmtiferðaskipinu Costa Mediterranea í Kyrrahafinu og síðan yfir Atlantshafið. Mamma sagði að það ættu allir að fara í svona siglingu a.m.k. einu sinni á ævinni. Hún sagði að helsti fjársjóður hennar væru dæturnar og barna- og barnabarnabörn. Hún var ein- staklega ljúf og góð og hafði yndi af að fá okkur í heimsókn, taka nokkur spil ef færi gafst, tala um daginn og veginn og fá fréttir af sínu fólki. Mamma var alltaf stoð og stytta í lífi okkar Lalla, hvort sem það var barnapössun eða önnur verkefni, alltaf var sjálfsagt að rétta hjálparhönd og erum við þakklát fyrir ást hennar og um- hyggju. Nú er komið að síðustu sigl- ingunni. Góða ferð elsku mamma. Hvíl í friði. Þín Ágústa Katrín og Lárus Sigurbjörn. Í dag kveðjum við hana elsku- legu ömmu mína. Amma Jóna var góð fyrirmynd á mörgum sviðum. Hún var nægjusöm og sagði mér oft söguna af því þegar hún átti eina dúkku og lék sér með leggi og skel í sveitinni. Það er enginn vafi á því að hún amma mín var mjög klár og talnaglögg og leysti hún hverja þrautina á fætur annarri í hinum ýmsu þrautabókum og tölvuleikj- um. Hún var líka mjög flink í skrafli og að leysa krossgátur. Hún hafði gaman af því að spila hin ýmsu spil og spiluðum við oft rommí, manna, kana, ólsen ólsen og fleiri spil saman. Hún amma er fyrsta manneskjan sem ég þekkti sem átti Game Boy og leyfði hún mér að spila Tetris á honum. Hún var ótrúlega dugleg að tileinka sér nýja tækni og not- aði tölvuna til ýmissa verka á gamals aldri. Amma las mikið þegar hún hafði sjón til en hlustaði á bækur þegar sjónin var farin að daprast. Við áttum margar góðar stundir á bókasafninu saman. Þegar hún kláraði allar almennilegu bæk- urnar á íslensku fékk hún lánaðar bækur á norsku, dönsku og sænsku. Amma var mjög flink í hönd- unum. Hún prjónaði ótrúlega hratt og vel og prjónaði m.a. fyrir „Húfur sem hlæja“. Seinasta teppið sem hún prjónaði áður en hún hætti að sjá almennilega var teppi fyrir eldri son minn, prjón- að árið 2017. Áður en hún missti sjón bjó hún til hvert perlulista- verkið á fætur öðru, málaði og gerði fallegar pennasaumsmynd- ir svo eitthvað sé nefnt. Amma fór oft með mér í sund og stundaði sundleikfimi af miklu kappi á tímabili. Eitt sinn, sem svo oft áður, fórum við eftir sund- ið heim til þeirra ömmu og afa og fengum okkur grænmetispítu. Amma hafði gaman af að rækta ýmislegt í glugganum og þennan dag var agúrkuplanta í gluggan- um. Hún sýndi mér risastóra gúrkuna en ég hef aldrei séð hvorki fyrr né síðar jafn stóra gúrku. Pítan var mjög góð og svo fórum við að spila eins og oft áð- ur. Síðan heyrðist hvellur. Þar sem að amma og afi bjuggu í Efra-Breiðholtinu, grunaði okk- ur að það hefði verið hleypt af byssu en við sáum ekkert þegar við litum út um gluggann. En þegar okkur var litið á gúrku- plöntuna hafði gúrkan sprungið með þessum miklu látum og það voru gúrkuslettur úti um allt. Hún amma hafði gott hjarta, var mikil félagsvera, sýndi manni alltaf áhuga og hvatti mann áfram í því sem maður tók sér fyrir hendur. Henni var umhug- að um að maður passaði upp á heilsuna og að maður væri dug- legur að koma í heimsókn eða hafa samband. Hún mætti á alla tónleika mína þegar hún hafði heilsu til og þótti mér mjög vænt um það. Ég er þakklát fyrir allt sem amma kenndi mér og allar þær gæðastundir sem við áttum sam- an. Þökk sé þér amma, þitt góða hjartalag. Góði Guð þig geymi og gefi að ég aldrei gleymi þeim minningum sem mig nú dreymir. Hvíl í friði elsku amma mín og Guð gæti þín. Þín Ólafía. Elsku amma mín. Ég trúi því varla að þú sért farin, mér finnst ég geta komið í heimsókn til ykkar afa og þú verður þar. Við áttum eftir að gera svo margt saman, fara í aðra ferð í þetta skiptið til að heimsækja Berg og ég átti eftir að koma og syngja aftur fyrir þig, en svona er víst lífið. Þú ert alla vega komin á betri stað og ert ekki lengur að kveljast af verkjum. Ég á svo margar fallegar minningar með þér, en ég mun ekki telja þær allar upp hér þó mig langi til þess. Við höfum allt- af verið mjög nánar og ég held það sé vegna þess að ég var alltaf svo mikið hjá ykkur afa, Vest- urbergið var eiginlega mitt ann- að heimili. Við áttum margar góðar stundirnar að dunda okkur eitthvað. Við fórum oft til Sig- rúnar heitinnar, í sund og á leik- völlinn fyrir aftan húsið. Þú kenndir mér að spila og ég mun sakna þess að hafa ekki okkar skemmtilegu spilastundir á með- an afi horfir á sjónvarpið. Þú áttir það til að rifja upp skemmtilegar minningar sem ég lifði mig í gegnum. Þú sagðir mér frá því þegar þú og vinkona þín týndust í Sankti Pétursborg. Þið hefðuð stoppað lögreglumann og spurt til vegar en hann hefði ekki skilið ykkur fyrr en þú prufaðir að tala við hann á þýsku, þá skildi hann þig og hjálpaði ykkur að komast aftur á hótelið. Mér fannst það svo ótrúlegt þegar þú sagðir mér frá því, en sá það alveg fyrir mér. Þú varst líka alltaf að minna mig á, að þegar ég var lítil og átti að fara að sofa í hádeginu, hafði ég endað með að syngja þig í svefn og farið fram að horfa á sjónvarp- ið með afa, en ég man eftir að þú sagðir mér alltaf söguna um Rauðhettu og úlfinn til að fá mig til að sofna, en það hafði ekki virkað svo ég spurði hvort ég mætti syngja og þér fannst svo gaman að hlusta á mig svo ég söng fyrir þig. Ég er svo glöð að við gátum farið saman í fyrra í okkar skemmtilegu ferð á Snæ- fellsnesið, þú varst svo hissa hvað þú værir með mikla matarlyst, en ég var svo ánægð að þú skemmtir þér vel. Þið afi voruð líka alltaf svo dugleg að mæta á allar dans- sýningarnar, kór- og einsöngs- tónleikana og þið sátuð næstum því alltaf á fremsta bekk. Það voru ótalmargar ferðirnar sem við fórum til að fá okkur kjúkling, það var næstum það eina sem ég vildi á tímabili og þú varst svo ánægð með það því afi vildi aldrei borða né sjá kjúkling. Við fórum líka svo oft saman í ísbúðina að fá okkur ís. Það mætti halda að ég hafi verið að svelta þegar ég kom til ykkar því þú spurðir alltaf hvort ég vildi ekki fá mér aðeins meira. Takk fyrir allar skemmtilegu og fallegu stundirnar elsku amma mín. Þín verður sárt saknað, ég elska þig. Þín ömmustelpa, Karólína. Í dag kveð ég elsku ömmu mína sem ég á svo margar góðar minningar um. Amma var mjög gestrisin kona og hún vildi alltaf geta boðið manni upp á eitthvað þegar mað- ur kom heim til þeirra. Enda var síðustu ár alltaf til kex eða ís hjá ömmu og afa svo þau gætu boðið manni upp á. Ef ég afþakkaði fannst ömmu það alltaf mjög leið- inlegt að maður skyldi ekki vilja neitt hjá þeim. Hún var einnig mjög sparsöm kona og vildi nýta allan mat sem best. Ég minnist þess að þegar ég flutti í bæinn bjó ég á sjöundu hæðinni í Vesturberginu þar sem afi var húsvörður og þau bjuggu á fyrstu hæðinni. Ég var í mat hjá þeim fyrstu önnina mína í háskól- anum og eitt sinn var soðinn fisk- ur í matinn. Þegar við vorum bú- in að borða varð einn biti af fiski eftir. Þá heyrðist í ömmu „ohh, ég eldaði aftur of mikið í dag“. Það var í hennar huga ekki gott að hafa afgang af matnum nema hægt væri að nýta hann. Amma var afar stolt af sínum afkomendum og maður fékk oft að heyra hrós frá henni um dugn- að. Hún hafði samt skoðanir á því sem maður lærði. Þegar ég mætti heim til hennar og afa eftir að hafa hætt í verkfræði eftir einn dag og skipt yfir í líffræði þurfti hún að hugsa sig smá um og sagði svo að þetta væri allt í lagi, frænka okkar væri nýbúin að fá góðan styrk í doktorsnámi sínu í líffræði. Elsku amma, loksins fékkstu hvíldina þína en þér fannst graut- fúlt að vera orðin svona lúin. Enda varstu mikil félagsvera og fannst mjög leiðinlegt að missa af veislum eða öðrum viðburðum vegna heilsunnar. Ég minnist þín með söknuði en er þakklát fyrir þær góðu stundir sem ég átti með þér. Sigríður. Jóna Guðrún Kortsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.