Morgunblaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 ✝ Kristinn Guð- mundsson fæddist á Patreks- firði 16. júlí 1948. Hann lést í bílslysi á Hvallátrum 14. nóvember 2021. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Jóhann Kristjánsson bóndi, f. 2.5. 1907 í Kolls- vík, lést á Patreks- firði 27.1. 1962 og Unnur Er- lendsdóttir húsmóðir, f. 9.2. 1915 á Hvallátrum, lést í 18.5. 1998 á Kristnesi í Eyjafirði. Þau bjuggu í Breiðuvík 1935-1949 og Vatnsdal við Patreksfjörð 1949- 1962. Unnur brá búi og bjó lengst af eftir það í Grímsey. Kristinn var fimmti í röð sex systkina. Þau eru Bergþóra Kristbjörg, f. 4.5. 1936, maki Haraldur Jóhannsson, Erlend- ur, f. 23.2. 1939, drukknaði í Vatnsdal 13.6. 1960, Ólína Sig- urbjört, f. 11.9. 1941, d. 6.9. 2021, maki Örn Geirdal Gíslason (skildu), Egilína Kristjana Ólafía, f. 18.3. 1945, makar Þór- arinn Kristjánsson (skildu) og Eggert Haraldsson, og Gyða. f. 16.7. 1948, maki Marías Sveins- son. Dóttir Kristins og Margrétar er Jóna Vigdís, ritari bæj- arstjóra Kópavogsbæjar, f. 19.9. 1972 í Reykjavík. Fyrir átti Mar- grét börnin Báru Mjöll, f. 20.11. 1963, maki Helgi Magnús Bald- vinsson og Ómar Þór, f. 6.10. 1965, maki Margrét Rósa Sig- urðardóttir. Fyrri maki Jónu er Alexander Ómarsson og saman eiga þau dótturina Emilíu Alex- andersdóttur, f. 7.9. 2001, nem- anda við Háskóla Íslands. Jóna Vigdís er gift Stefán Þorvalds- syni lungnalækni og eru þau bú- sett í Kópavogi ásamt dætr- unum Emilíu og Ásthildi Lilju, dóttur Stefáns. Kristinn gekk í barnaskólann í Örlygshöfn í Rauðasands- hreppi og þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hann nam trésmíðaiðn við Iðnskólann í Reykjavík. Kristinn var um skeið háseti á skipum Eimskipa- félags Íslands, en lengst af var hann sjálfstætt stafandi trésmið- ur og refaskytta í Rauðasands- hreppi og í Vesturbyggð eftir sameiningu Barðastrand- arhrepps og Rauðasandshrepps. Hann bjó lengst af í Kópavogi en fyrir tæpum áratug flutti hann aftur vestur að Hvallátrum. Kristinn var hagleikssmiður og endurbyggði m.a. Sauðlauks- dalskirkju. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 25. nóv- ember 2021, klukkan 15. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Tvíburasystk- inunum Kristni og Gyðu var komið í fóstur sínu á hvor- um bænum á Hval- látrum og ólust þau þar upp til fullorð- insáranna. Fósturforeldrar Kristins voru Guð- mundur Ásgeir Er- lendsson, f. 13.9. 1909, bóndi og vita- vörður á Hvallátrum og móð- urbróðir Kristins, og Jóna Hall- dóra Jónsdóttir húsmóðir, f. 25.4. 1908, d. 12.7. 1985. Fóst- ursystur Kristins voru tvíbur- arnir Gróa Sigurveig, f. 25.5. 1937, d. 23.6. 1995 og Guðbjört Þórdís, kölluð Stella, f. 25.5. 1937, d. 22.6. 2012. Makar Einar Jónsson (1935-1991) og Aðal- steinn Grétar Guðmundsson (1936-2005). Kristinn kvæntist Margréti Sigurrós Ingvadóttur, f. 1.11. 1946 í Reykjavík, d. 18.4. 2020 í Kópavogi. Foreldrar hennar voru hjónin Ingvi Marteinn Þor- geirsson, f. 4.10 1924 í Hafnar- firði, d. 3.11. 2002 í Keflavík og Vigdís Bjarnadóttir, f. 12.11. 1925 í Reykjavík, d. 9.6. 2007 í Reykjavík. „Glaður og reifur skyli guma hver,“ stendur í gamalli bók. Þessi orð komu mér í hug við sviplegt fráfall frænda míns og vinar Kristins Guðmundssonar, Kidda á Látrum eins og hann var jafnan kallaður af sveitungum sínum og vinum. Hann var tíður gestur á heimili foreldra minna og síðar á mínu heimili og fjöl- skyldu minnar. Að sumarlagi dvaldi hann jafnan á Látrum um lengri eða skemmri tíma. Ég fór snemma að taka eftir hve orð- heppinn hann var, lífsglaður og lá nokkuð hátt rómur sem er ætt- arfylgja en móðir mín og hann voru systkinabörn. En það voru mun fleiri mannkostir í fari Kidda en orðkynngin. Hann var listasmiður og svo vandvirkur að af bar enda voru húsasmíðar hans aðalstarf meðan starfsþrek entist. Má þess víða sjá stað í hans fæðingarsveit. Áhugamál hans voru fjölbreytt en þó mun skotveiðin hafa verið þar fyrir- ferðarmest. Hann var grenja- skytta sveitarinnar um langt ára- bil, stundum einn en oftast með aðstoðarmann. Ég átti því láni að fagna sextán ára gamall að fá að vera byssuberi hjá Kidda og að- stoðarmaður næstu sjö vor. Það ásamt því að vera uppalinn á þeim stað þar sem mikið er um tófur ýtti mjög undir áhuga minn á þessu merkilega dýri. Ekki minnkaði áhuginn við að hlusta á ótal flóknar tófusögur hjá Kidda marga bjarta sumarnóttina sem við gengum saman að grenjum. Þó var það svo að þó að Kidda væri létt um mál hafði hann að hætti allra góðra veiðimanna óendanlega þolinmæði og þrjósku og gat setið klukku- stundum saman hreyfingarlaus og steinþegjandi og haft ná- kvæmar gætur á umhverfinu. Margoft kom það fyrir að hann var að segja mér annaðhvort tófusögu eða sögu af skondnu fólki sem hann hafði kynnst að þá var það að hann fleygði sér niður fyrirvaralaust og sussaði. Brást þá aldrei að tófa hafði skotist milli steina. Ég held að annað- hvort hafi hann séð með hnakk- anum eða sem sennilegra er að um hafi verið ræða hina með- fæddu og langþjálfuðu athyglis- gáfu hans. Er vinnuþrekið tók að dvína vegna ýmissa áfalla fluttist hann alfarið að Látrum úr Kópa- vogi þar sem hann hafði átt sitt heimili ásamt Möggu sinni í ára- tugi og smíðað víða á suðvestur- horninu. Á uppvaxtarárum Kidda var blómleg byggð á Hvallátrum. Í bæjarhverfinu voru nokkrir bændur sem lifðu jöfnum hönd- um á landbúnaði, sjósókn og nytj- um af bjarginu. Bjargið var og er slík matarkista að það á engan sinn líka á landi hér. Kiddi var potturinn og pannan í umfangs- mikilli nýtingu þessara hlunn- inda, framan af sem virkur þátt- takandi en eftir að heilsan bilaði tilsjón með nýtingu þessara hlunninda með hjálp ættingja sinna og vina. Í ljóði Sveinbjarn- ar Egilssonar stendur: „Römm er sú taug er rekka dregur föð- urtúna til.“ Þetta sannaðist á Kidda enda hafði hann oft sagt að á Látrum vildi hann lifa sínar hinstu stundir, hann stóð við það. Við fjölskyldan sendum Jónu og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hilmar Össurarson frá Kollsvík. Það er mikið áfall að fá þær sorglegu fréttir að æskufélagi og vinur til 68 ára hafi látist í bílslysi á heimaslóðum. Kristinn Guð- mundsson, eða Kiddi, kenndur við Látra þar sem hann ólst upp hjá fósturforeldum sínum, Ás- geiri Erlendssyni og Jónu Jóns- dóttur, fram til fullorðinsáranna og auk þess var hann þar öll vor og sumur á Hvallátrum við eggja- töku í Látrabjargi og grenja- vinnslu í Rauðasandshreppi. Kiddi var tveimur árum eldri en ég og hafði hann því oftast for- ystu um það sem við tókum okkur fyrir hendur, aðallega í leik, en einnig í starfi meðan við vorum börn og unglingar. Af honum lærði ég margt. Á fullorðinsárun- um héldum við góðu sambandi. Vorum saman í stjórn landeig- endafélagsins Bjargtanga, sótt- um um í nafni félagsins styrk til að merkja fornminjar á Hvallátr- um og til að gera bílastæði við verbúðatóftirnar á Brunnum syðst í Látravík og á Bjargtöng- um. Einnig fékk félagið styrk til að reisa sjóvarnargarð við ver- búðirnar, sem sjórinn var farinn að naga í. Þetta sýnir umhyggju Kidda fyrri heimasveit sinni. Við Kiddi leiðsögðum göngufólki í Ferðafélagi Íslands um Rauða- sand og Látrabjarg í meira en áratug og fátt þótti skemmtilegra en að hlusta á Kidda segja sögur af lifandi og liðnum í hreppnum, en Kiddi var mikill sögumaður með ótrúlegt minni. Honum var einnig umhugað um að ferða- menn gætu notið náttúru Látra- bjargs án þess að náttúran bæri skaða af. Kiddi var smiður að at- vinnu og liggja eftir hann mörg verk sem sýna hve mikill völund- arsmiður hann var. Endurgerð kirkjunnar í Sauðlauksdal er skýrt merki um það. Í ferðum okkar fyrir FÍ tjöld- uðum við m.a. í Kirkjuhvammi á Rauðasandi þar sem Dröfn Árna- dóttur, sem síðar varð kona mín, rak Franska kaffihúsið. Úr því varð vinskapur þeirra upp frá því. Fastur liður í dvöl okkar á Látrum og í Kirkjuhvammi á Rauðasandi var að fá Kidda í mat og þau kvöld voru fljót að líða við áheyrn í sögum af svæðinu. Einn- ig var Kiddi einn af mikilvægum heimildarmönnum við skráningu Árbókar FÍ 2020, Rauðasand- shreppur hinn forni, sem við Ólafur B. Thoroddsen rituðum. Því miður missti Kiddi heils- una löngu áður en starfsævin var á enda og hrakaði honum eftir því sem árin liðu. Hann flutti þá vest- ur á Látra og bjó þar seinustu ár- in. Hann missti konu sína Mar- gréti Sigurrós Ingvadóttur fyrir ári, og fékk það mjög mikið á hann. Við Dröfn vottum dóttur hans og fjölskyldu, sem og systrum hans og fjölskyldum þeirra og öll- um vinum hans, okkar dýpstu samúð. Gísli Már Gíslason. Rauðasandshreppur hinn forni var samsettur úr nokkrum að- skildum sveitarhlutum. Þeir voru Fjörðurinn, Sandurinn, Höfnin og Víkurnar. Látrar tilheyrðu Víkunum. Látrar eru útvörður hreppsins í vestri. Látrar eru reyndar ekki einungis vestasti hluti litla samfélagsins í Rauða- sandshreppi, heldur einnig Ís- lands og Evrópu allrar. Kiddi var Látramaður. Hann var nokkrum árum eldri en ég og því umgengumst við kannski ekki svo mikið á uppvaxtarárum okk- ar, bæði vegna fjarlægðar og ald- ursmunar. Svo fór hann burt til að mennta sig, vinna og stofnaði fjölskyldu eins og margir aðrir. Kiddi fór reyndar aldrei alveg í burtu. Hann mætti yfirleitt vest- ur þegar fór að vora eins og far- fuglarnir. Í áratugi sinnti hann grenjavinnslu í sveitinni af mikl- um áhuga og metnaði. Hann var aufúsugestur á hverjum bæ í sveitinni hvort sem var í þeim er- indagjörðum eða þegar litið var inn án sérstaks erindis. Glað- sinna gestur og ótæmandi brunn- ur af sönnum og/eða vel krydd- uðum sögum eftir atvikum og þörfum. Þær voru sagðar af jafn- miklum þrótti og hann sinnti grenjavinnslunni. Í gegnum tóf- una kynntumst við vel. Ég gekk með honum á sínum tíma á þekkt greni í nágrenninu heima, lá með honum á grenjum og hann sagði mér til um meðferð skotvopna. Kiddi var mikið náttúrubarn sem naut sín best í einhverju slíku brasi. Hann hafði arnaraugu sem kom sér vel í glímunni við skolla. Allar götur frá þessum árum vor- um við góðir kunningjar. Það var alltaf gaman að hitta Kidda, rifja upp fyrri tíma og heyra skemmti- legar sögur af mönnum og mál- efnum. Kiddi flutti vestur að Látrum fyrir nokkrum árum. Hann bjó þar einn upp frá því. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt yfir haust og vetur. Þegar fjölgaði aftur á móti á Látrum vor og sumur og sumardvalarfólk og gestir streymdu að til skemmri og lengri dvalar þá naut Látra- maðurinn sín til fullnustu. Skraf- hreifinn, greiðvikinn og gestris- inn. Þannig er gott að minnast Kidda. Hann var smiður góður og lag- færði og gerði upp nokkrar bygg- ingar í hreppnum þar sem vand- virkni og gott smiðsauga var nauðsynlegt. Þar má helst minn- ast á kirkjuna í Sauðlauksdal í því sambandi sem hann gerði sem nýja. Seinni árin voru samskipti okkar að mestu einu sinni á ári. Hann hringdi yfirleitt undir vorið og bað um leyfi til að fara á þau greni heima á Móbergi sem hann hafði tök á að skoða. Það var allt- af auðsótt. Í þessum samtölum var sólarhæðin yfirleitt tekin og gjarna litið um öxl. Hann kom þá oft inn á hvað búseta og mannlíf í okkar gamla hrepp hafði látið undan síga. Jarðir vel flestar farnar úr búrekstri, íbúum fækk- að mikið og mannlíf ekki svipur hjá sjón frá því sem áður var. Svona gengur þetta til í afskekkt- um sveitum sem láta undan síga í nútímasamfélagi, hvað sem svo verður. Nú er Kiddi horfinn og jörðin heima seld svo þessi sam- töl verða ekki fleiri. Eftir sitja góðar minningar frá áratuga kunningsskap við Kidda á Látr- um. Ég votta dóttur hans og öðr- um ættingjum mínar innilegustu samúðarkveðjur við sviplegt frá- fall góðs drengs. Gunnlaugur Júlíusson frá Móbergi. Félagar mínir tengdir málm- iðnaði og fjölskyldur þeirra fengu úthlutaðar íbúðir í stigahúsi í Fossvogi árið 1967. Við byggingu hússins nutum við ómetanlegra hæfileika Kristins Guðmunds- sonar og varð það meðal annars til þess að verkið gekk mjög vel. Við Ásta eiginkona mín fengum hann til að reisa með okkur sum- arbústað, sem tók aðeins sex vik- ur að gera fokheldan. Það var skemmtilegt og fróðlegt að spjalla við Kidda, hann var fróður um verklegar framkvæmdir til sjávar og sveita og hafði ríka frá- sagnargáfu til að bera. Hann fann alltaf hagkvæmar og vand- aðar lausnir enda stóðust verk hans ströngustu kröfur. Við erum honum afar þakklát fyrir hans hröðu handtök og vandvirkni og traustan vinskap í gegnum tíðina. Við flytjum Jónu og fjölskyldu einlægar samúðarkveðjur. Alfreð og Ásta. Elsku hjartans pabbi minn var dökkur yfirlitum með ævintýra- glampa í bláu augunum sínum. Hann var með afbrigðum uppá- tækjasamur og framkvæmda- glaður, brasari og brallari, snyrtipinni, veiðimaður og dýra- vinur í senn. Hann var hjálpsam- ur, bóngóður, mikill sagnamaður og enn þá meiri knúsari sem heilsaði mér alltaf með rembings- kossi. Örlögin geta verið svo ósköp grimm og lífið tekið krappa beygju á einu andartaki. Nú er pabbi lagður af stað í sína hinstu ferð og ekkert okkar fékk tæki- færi til að kveðja. Elsku pabbi minn, ég þakka þér af öllu hjarta fyrir allt sem áttum við saman. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Þín dóttir, Jóna Vigdís. Kristinn Guðmundsson ✝ Kristín Har- aldsdóttir fæddist 25. októ- ber 1952 í Reykja- vík. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítala í Foss- vogi 14. nóvember 2021. Foreldrar hennar voru hjón- in Haraldur Þórð- arson, f. 5.10. 1910, d. 15.7. 1989, bæjarstarfsmaður og síð- ar verktaki, og kona hans Rannveig Björnsdóttir, f. 21.11. 1910, d. 20.5. 2001, hús- móðir og voru þau bæði fædd í Reykjavík. Kristín átti sjö þeir Óskar Sigurðsson, f. 11. febrúar 1976, og Einar Sig- urðsson, f. 17. mars 1981. Eig- inkona Einars er Stefanía Ösp Guðmundsdóttir, f. 9. nóv- ember 1988. Börn þeirra eru þau Matthías Árni Einarsson, f. 11. nóvember 2013, og Elísa Karen Einarsdóttir, f. 10. október 2017. Kristín gekk í skóla Ísaks Jónssonar fyrst, en var svo í Breiðagerðisskóla eftir það og kláraði gagnfræðapróf við Réttarholtsskóla. Hún vann hin ýmsu störf, m.a. á saumastofu, í verslun og á leikskóla. Hún starfaði um árabil sem sérhæfður starfsmaður á skurðdeild, en síðustu árin starfaði hún m.a. við umönnun á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hennar fer fram í dag, 25. nóvember 2021, klukkan 13 í Langholtskirkju. systkini og eru fimm á lífi. Systk- ini hennar eru: Margrét, f. 21.11. 1930, d. 17.5. 1932, Björn Hreið- ar, f. 16.10. 1934, Aðalheiður Mar- grét, f. 5.4. 1938, d. 9.6. 2002, Björg- vin, f. 15.6. 1942, Gylfi, f. 20.3. 1944, Petrína, f. 11.3. 1948, og Þórður, f. 11.3. 1948. Árið 1975 giftist Kristín Sigurði Helga Óskarssyni, f. 4. október 1953, frá Reykjavík, d. 9. júní 2020, en þau skildu árið 1998. Börn þeirra eru Mig langar að minnast elsku- legrar móður minnar, Kristínar Haraldsdóttur, sem féll frá brátt eftir langvinn veikindi. Föstudagskvöldið 12. nóvem- ber sl. fór ég ásamt kærustu minni til móður minnar til að kveðja hana. Ástæðan fyrir þeirri heimsókn var sú að við vorum að fara morguninn eftir til Spánar. Fór vel á með okkur þessa kvöld- stund og var móðir mín mjög hress þetta kvöld, eftir að hafa verið nýlega útskrifuð af Land- spítalanum. Við þrjú áttum góða stund yfir kaffibolla og rifjuðum upp gamlar minningar frá ferða- lögum innan- og utanlands sem við mæðgin höfðum farið í saman. Mig grunaði ekki þegar við sát- um þarna og rifjuðum upp gaml- ar minningar að þetta yrði í síð- asta sinn sem ég ætti samskipti við móður mína í lifanda lífi. Þegar við kvöddum hana var hún mjög ánægð eftir skemmti- lega kvöldstund. Þremur tímum eftir þessa heimsókn veiktist hún alvarlega og lést svo skömmu síð- ar. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið þessa stund með móður minni og náð að kveðja hana þó svo að það hafi verið á öðrum forsendum. Við mamma vorum mjög náin og hún kom oft til mín í mat og voru það ávallt notalegar stundir. Ég er stoltur af henni að hafa haft betur í baráttunni við Bakk- us. Hún var virkur félagi í AA- samtökunum og náði að hjálpa öðrum að ná tökum á sínum vanda með því að miðla af reynslu sinni. Hún hafði verið edrú í 18 mjög góð ár. Hún hafði einnig mikinn áhuga á mannrækt og andlegum málefnum. Hún var mjög trúuð og bað fyrir öllum sem minna máttu sín og sínu fólki. Hún var einstaklega hlý og góð kona, með sterkar skoðanir og var mjög réttsýn á þá sem henni þótti vænt um. Hún hafði áhuga á pólitík og öðrum málefn- um líðandi stundar. Hún elskaði alla og var mikill dýravinur og átti sjálf m.a. einn kött, hana Lukku, sem dó úr veikindum fyrir nokkrum árum, en henni þótti líka afskaplega vænt um köttinn minn, Timma. Hvað börn varðar þá elskaði hún barnabörn sín mjög mikið og hefði viljað fá meiri tíma með þeim áfram. Þeirra stunda sem ég átti með móður minni á ég eftir að sakna mikið því hún var mér hin allra besta vinkona og móðir. Ég mun ávallt elska þig af öllu mínu hjarta mamma. Þinn sonur, Óskar. Mig langar með þessu ljóði að kveðja elskulegu systur mína. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guð geymi þig elsku Stína mín og veiti drengjunum þínum og fjölskyldum þeirra styrk í sorg- inni. Þín systir Petrína (Peta). Kristín Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.