Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 ✝ Gunnar Moritz Steinsen fædd- ist 28. mars 1928 í Laugardælum í Flóa. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 12. nóvember 2021. Foreldrar hans voru Steinn Stein- sen verkfræðingur, f. 20.6. 1891, d. 19.2. 1981 og Anna Steinsen húsfreyja, f. 30.6. 1893, d. 7.7. 1965. Gunnar átti einn bróður, Eggert Steinsen, f. 5.12. 1924, d. 15.1. 2010, maki Steinunn Steinsen, f. 7.1. 1930, d. 1.3. 2014. Börn þeirra eru: Rúnar Hans, maki Guðrún Guð- mundsdóttir; Steinn, d. 2014, maki Ásta María Björnsdóttir; Anna, maki Sigurður Már Ein- arsson; Ragnheiður, maki Stef- án Árnason; Jón, d. 1995, maki Brynja Andreassen Sigurð- ardóttir. Birgir Rafn Birgisson, f. 31.10. 1976. Gunnar fæddist á heimili móðurforeldra sinna í Laug- ardælum. Hann bjó í Reykjavík til ársins 1934 þegar hann flutti til Akureyrar þar sem faðir hans tók við starfi bæjarstjóra. Gunnar varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1947. Hann lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla Íslands 1951 og prófi í byggingaverk- fræði frá DTH í Kaupmanna- höfn 1957. Gunnar vann hjá Ís- lenskum aðalverktökum 1957 og hjá Vatnsveitu Reykjavíkur á árunum 1958 til 1975 með hléum þar sem hann sinnti ver- fræðistörfum á eigin vegum. Hann vann hjá Ístaki 1975 til 1976, Miðfelli 1976 til 1978 og verkfræðistofunni Fjarhitun 1978 til 1981. Gunnar starfaði hjá tæknideild Húsnæðisstofn- unar ríkisins frá 1981 þar til hann fór á eftirlaun 1998. Gunnar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 25. nóvember 2021, klukkan 11. Athöfninni verður streymt á: http://laef.is/gunnar-steinsen Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Eiginkona Gunn- ars var Sjöfn Zop- honíasdóttir leik- skólakennari, f. 22.6. 1931, d. 27.9. 2014. Foreldrar hennar voru Zop- honías Sigfússon pípulagningameist- ari, f. 27.7. 1901, d. 11.4. 1974 og Lilja Bjarnadóttir hús- freyja, f. 31.10. 1906, d. 16.7. 1985. Sjöfn átti þrjú systkini, Soffíu, f. 27.12. 1934, d. 17.12. 2014, maki Örn Þór Karlsson, f. 23.10. 1929, d. 11.6. 2014, Bjarna, f. 11.8. 1942, og Herdísi, f. 9.4. 1948, maki Páll Tryggvason, f. 29.7. 1953. Börn Sjafnar og Gunnars eru: 1) Snorri, f. 17.10. 1966, maki Hróðný Njarðardóttir, f. 21.3. 1972, dóttir þeirra er Kristrún Sjöfn, f. 12.7. 2012. 2) Lilja Anna, f. 28.5. 1973, maki Það eru fimmtán ár síðan Snorri fór með mig í Vesturberg 19 til að kynna mig fyrir for- eldrum sínum Gunnari og Sjöfn. Þau tóku strax vel á móti mér, sérstaklega þegar Gunnar heyrði að ég hefði tengingu við Akureyri. Það var oft fyndið þegar við Gunnar spjölluðum saman að hann gerði alltaf ráð fyrir að ég þekkti alla sem hann þekkti á Akureyri. Ég reyndi að benda honum á það, en það var greinilega mun skemmtilegra að tala við mig, gerandi ráð fyrir að ég þekkti þetta fólk. Það var al- veg ótrúlegt hvað Gunnar mundi, það var hægt að fletta upp í honum eins og alfræðiorða- bók. Hann var svo ættfróður, gat tengt alla eins og Íslend- ingabók og svo vissi hann allt um íþróttir, sérstaklega frjálsar. Það var mjög kært á milli Gunn- ars og Sjafnar og það var mikill missir þegar hún féll frá. En hann var ótrúlega duglegur bú- andi einn í Vesturberginu, keyr- andi út í Bónus og annað sem þurfti að útrétta. Gaman þótti honum að fá fólk í heimsókn til að spjalla við og duglegur var hann að keyra af og til í mat alla leið vestur í bæ til okkar, hvern- ig sem viðraði. Honum þótti gaman að fylgjast með barna- barninu sínu vaxa og dafna og glotti oft að mörgu sem hún sagði og gerði. Hann hafði gam- an af því hvernig hún ráðskaðist með foreldra sína. Við vorum lánsöm að geta farið oft með Gunnari til Akureyrar, þar sem hann undi sér alltaf vel og þreyttist aldrei á að rifja upp gamla tíma, ásamt því að heim- sækja mágkonu sína og fjöl- skyldu, sem alltaf tók rosalega vel á móti honum. Sumarið 2020, þegar Gunnar var aðeins orðinn slappur, náði hann að fara með okkur bæði til Akureyrar og Ísa- fjarðar. Þar naut hann þess að fara á veitingastaði og panta sér lambasteikur með rjómasósu og borða með bestu lyst. Hann naut þess einnig að fara upp í Arn- arholt í Borgarfirði og fylgjast með syni sínum planta eða gera að kofanum. Elsku Gunnar, takk fyrir samveruna, hvíl í friði. Hróðný. Við fráfall elskulegs föður- bróður míns Gunnars Steinsen koma upp í hugann margar fal- legar minningar. Ég var svo lán- söm að alast upp í húsi með föð- urömmu og afa ásamt foreldrum og systkinum. Gunnar var á þessum árum einhleypur og kom oft til okkar og voru það dýr- mætar samverustundir. Gunnar átti grænan Chrysler á þessum árum og ef ég sá hann birtast henti ég öllu frá mér og hljóp inn til að hella á könnuna og finna til sykurkarið. Ég var svo lítil að ég gat bara rétt hald- ið við ketilinn þegar mamma hellti upp á. Man að mér þótti þetta mikið ábyrgðarhlutverk sem ég tók mjög alvarlega en líka með mikilli gleði. Bræðurnir pabbi og Gunnar voru alla tíð miklir vinir, þó svo að þeir væru ekki alltaf sammála og gátu rökrætt fram og til baka það sem var efst á baugi hverju sinni. Þeir voru þó alltaf sam- mála um að byrja daginn á því að lesa Morgunblaðið, öðruvísi byrja ekki dagar! Þeir höfðu báðir mikinn áhuga á ættfræði og fylgdi yfirleitt öllum sögum hverra manna viðkomandi væri og alltaf betra ef þeir gátu rakið ættir þeirra saman: „Þetta er nú frændi minn,“ og næstbest ef hann var skólabróðir Gunnsa bróður eða Eggerts bróður. Gunnar var ekki eingöngu fróður um ættfræði heldu um hin ýmsu málefni og með af- brigðum minnugur. Reyndar sagði Gunnar nýlega við mig þegar ég heimsótti hann: „Anna, ég þarf ekki að muna allt, ég er orðinn 93 ára,“ og svo glotti hann. Við Siggi eigum afskaplega góðar minningar frá síðustu heimsóknunum í Vesturbergið. Þá var setið og spjallað um alla heima og geima – dásamlegar stundir sem við minnumst með miklum kærleika og þakklæti. Eftir síðustu jólaheimsóknina í Vesturbergið sagði Siggi að nú mættu jólin koma fyrir sér! Þegar ég var lítil bar Gunnar sig illa af því að hann ætti engin börn og vorkenndi ég honum svo mikið að það endaði með því í að ég gaf honum annan fótinn og svo tókst honum að fá mig til að gefa sér hinn nokkru seinna. Í tæp sextíu ár hefur hann átt fæturna en ég er loks orðinn eig- andi að þeim aftur þar sem talið er að þetta sé ekki eign sem erf- ist. Einn daginn kom Gunnar að máli við mömmu og vildi bjóða henni í bíltúr og sýna henni dá- lítið. Það var keyrt að Sólvalla- götu í Reykjavík og þar var mamma kynnt fyrir konunni sem síðar varð eiginkona Gunn- ars, henni Sjöfn. Gunnar fór síð- an með mömmu inn í herbergi benti stoltur ofan í vöggu – þetta er sonur minn! Ég fékk svo skömmu síðar líka að fara og skoða fallega drenginn í vöggunni. Gæfan hans Gunnars var að hitta hana Sjöfn sína og eignast börnin sín, fyrst Snorra og síðan Lilju Önnu. Ég segi stundum í gríni við Snorra og Lilju Önnu að Gunnar hafi dekrað mig eins og prinsessu þar til þau hafi mætt og eyðilagt allt, en það er auðvit- að ekki satt, hann hélt áfram að vera mér einstaklega góður frændi sem mér hefur alltaf þótt óskaplega vænt um og held að það hafi verið gagnkvæmt. Elsku Snorri og Lilja Anna, það er búið að vera aðdáunar- vert að fylgjast með hve vel þið hafið hlúð að pabba ykkar síð- asta spölinn sem var honum erf- iður. En alltaf var sama hlýjan og stoltið í röddinni þegar hann talaði um ykkur og sagði hann mér hvað hann væri ykkur þakk- látur fyrir að hugsa svona vel um sig þegar hann gæti það ekki sjálfur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku Snorri, Hróðný og Kristrún Sjöfn og Lilja Anna og Birgir Rafn frá okkur Sigga. Anna Steinsen. Gunnar Steinsen kvaddi þenn- an heim 12. nóvember sl., níutíu og þriggja ára. Það er sannarlega margs að minnast og þakka fyrir þegar ég kveð Gunnar mág minn. Ég kynntist honum á mínum unglingsárum þegar hann tengd- ist fjölskyldunni, í upphafi sem barnsfaðir stóru systur minnar Sjafnar, og síðar eiginmaður eins og títt er í íslenskri menn- ingu. Sjöfn var 17 árum eldri en ég og mín fyrirmynd og trausti bakhjarl. Ég minnist þess að það hafi hvarflað að mér þá að Gunn- ar væri bæði nokkuð við aldur og heldur umfangsmikill fyrir systur mína. En slíkir smámunir hurfu fyrir mannkostum Gunn- ars því alla tíð var hann mér og síðar minni fjölskyldu sama stoð og stytta og systir mín. Vest- urberg 19, heimili Gunnars og Sjafnar, var okkar allra í fjöl- skyldunni sem annað heimili; á námsárunum þegar efnin voru lítil vorum við tíðir gestir í mat og kaffi, athvarf þegar við bjuggum í útlöndum og vorum að koma í stuttar heimsóknir, fastur viðkomustaður þegar við komum til Reykjavíkur og börn- in okkar tóku sér bólfestu í Vest- urberginu þegar þau þurftu samastað í borginni um lengri eða skemmri tíma. Jafnvel kött- inn tók Gunnar að sér þegar við vorum í vandræðum. Alltaf gest- risni og allir velkomnir. Gunnar var mikill lestrarhest- ur enda var hann afar fróður um margt. Vil ég sérstaklega nefna íþróttir og ættfræði sem voru honum hugleikin. Það var nánast sama í hvaða ólympíugrein var borið niður, Gunnar kom með nafn, ártal og árangur, og það gat verið langt aftur í tímann, minni hans var óbrigðult enda fylgdist hann grannt með. Dís dóttir okkar sem hafði yndi af ól- ympíuleikunum elskaði að horfa á þá með Gunnari, „hann veit allt um alla ólympíuleika“ var hennar sannfæring. Sjálfur var Gunnar liðtækur íþróttamaður, stundaði lengi íshokkí, spilaði bæði með Akureyrarliðinu og Reykjavíkurliðinu. Hann var ótrúlega flinkur og fimur þessi stóri maður. Gunnar bjó á Akureyri frá sex ára aldri og þar til hann fór til náms í verkfræði. Hann hafði af- skaplega sterkar taugar til bæj- arins og gjörþekkti hús, götur og fólk frá þeim tíma sem hann bjó þar. Gunnar gat rakið ættir og uppruna flestra bæjarbúa og sama var að segja um húsin. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá Gunnari, „spyrjum Gunnar að þessu“ var viðkvæðið þegar vafamál þessu lútandi kom upp. Akureyri var honum afar hjartfólgin og þegar hann kom síðast í heimsókn, þá um ní- rætt, gekk hann sig upp að hnjám til að komast á sína uppá- haldsstaði og fá yfirsýn yfir breytingar sem höfðu orðið í bænum. Gunnar las verkfræði við Kaupmannahafnarháskóla og varð honum tíðrætt um þann tíma sem hann bjó þar. Fyrir tveimur árum gerðum við hjónin það að gamni okkar að fara í pílagrímsför á þá staði sem Gunnari voru hugleiknastir, allar lýsingar stóðust nema hvað „Nellan“, hans uppáhaldsstaður, var ekki opin lengur. Ég votta börnum Gunnars og Sjafnar, Snorra og Lilju Önnu, og fjölskyldu samúð mína og þakka Gunnari samfylgdina. Herdís Zophoníasdóttir. Gunnar svili minn fluttist ung- ur til Akureyrar þegar faðir hans, Steinn Steinsen verkfræð- ingur, gerðist bæjarstjóri 1934 og sat það embætti lengst allra til 1958 og ólst Gunnar upp á Akureyri frá 6 ára aldri og tók miklu ástfóstri við æskustöðvar sínar , ræktaði vel, og var í raun meiri Akureyringur en flestir innfæddir sem ég, Akureyringur sjálfur, þekki og átti hann þó engar ættir hingað að rekja. Á fullorðinsárum kom Gunnar oft í heimsókn og fór þá lengi vel einn í langar gönguferðir um gamlar slóðir. Mætti reglulega á MA-hátíðir og hélt sambandi við nokkra sinna gömlu skólafélaga. Ungur stundaði Gunnar skauta og ísknattleik af miklum áhuga og vel fram á fullorðinsár eftir að hann kom frá verkfræði- námi í Kaupmannahöfn. Ísinn var oft nálægur, bernskuheim- ilið, Höpfner, stóð við Pollinn sem þá lagði reglulega en ekki lengur. Langt er síðan þar var mannheldur ís með fjölbreyttu mannlífi. Íþróttaáhuginn var al- gildur og ekki komið að tómum kofunum ef það vantaði upplýs- ingar um gömul met. Skipti þá ekki máli hvort þau voru innlend eða erlend og mátti treysta stál- minni Gunnars sem nýju neti. Mér lærðist snemma að stofna ekki til ágreinings um stað- reyndir. Í samtali við Gunnar, kominn hátt á níræðisaldur, barst málið að ósigri Napoleons við Waterloo. Þar nefndi Gunnar alla hershöfðingja í óvinaher keisarans, lýsti aðkomu þeirra að orrustunni í smáatriðum og gangi hennar. Ég hafði heimsótt þennan vígvöll 2 árum áður og lesið mér nokkuð vel til um og í furðu og forvitni spurði ég Gunnar hvort hann hefði nýlega verið að lesa sér til. Svarið kom í sjálfu sér ekki á óvart en samt: Nei, það skildi einhver bók um þetta eftir í herberginu sem ég tók á leigu þegar ég kom til Hafnar 1951! Gunnar var giftur Sjöfn, elstu systur af þremur, og ég Herdísi þeirri yngstu og áttum við sam- leið í tæp 50 ár. Í Höfn kynntist Gunnar lífsförunaut sínum og byggðu þau sér heimili að Vest- urbergi 19, fastur viðkomu- og griðastaður fyrir stækkandi fjöl- skyldu mína um lengri og skemmri tíma, hvort sem komið væri um lengri eða skemmri veg, sumar sem vetur, jól, áramót eða páska og það vafðist ekki fyrir svila mínum og mágkonu að búa mér rými og lána mér um lengri tíma, þá í námi, besta herbergi hússins til lestrar. Sum barnanna leituðu í stærðfræð- ibúðir Gunnars í þeirri fræða- glímu og var vel sinnt. Vegna aldursmunar voru Gunnar og Sjöfn mér að ýmsu leyti sem tengdaforeldrar og Sjöfn börn- um mínum meir en frænka. Eitt barnanna hélt lengi vel að Gunn- ar væri frændi sinn. Þannig um- gekkst hann ungviðið. Gunnar átti gott líf. Sagði svo sjálfur kominn á tíræðisaldurinn. Til merkis var að hann þurfti engra lyfja við og hafði aðeins dvalið á sjúkrahúsi í 4 nætur allt sitt líf. Má til sanns vegar færa. Það var sterkt í honum. Nú hefur Gunnar svili minn hallað á eftir sér og honum fylgt síðasta spölinn. Við áttum góða samleið um langan tíma. Takk fyrir mig og mína. Eftirlifandi sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur Páll Tryggvason. Gunnar Moritz Steinsen ✝ Ragnar Tryggvason fæddist á Dalvík 8. september 1932. Hann lést á Dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri 17. októ- ber 2021. Foreldrar hans voru Tryggvi Kristinn Jónsson frystihússtjóri á Dalvík, f. 3. nóv. 1906, d. 20. des. 1991, og Ragna Pálsdóttir húsmóðir, f. 24. nóv. 1909, d. 12. sept. 1932. Hálf- systkini Ragnars eru Kristín Hólmfríður Tryggvadóttir, f. 14. ág. 1936, d. 9. sept. 2018, og Jóhann Tryggvason, f. 11. des. 1938. Eiginkona Ragnars var Hulda Dalrós Ásgrímsdóttir inius, Ragnar og Kristófer Már. 4) Elfa Björk, f. 24. ágúst 1961, gift Siguróla Kristjánssyni. Börn þeirra eru Hulda, Hrafn- hildur, Kristján og Þóra. 5) Ragna, f. 29. júní 1963, börn hennar eru Sigurbjörg, Vala Björk og Þórir Már. Ragnar starfaði við ýmislegt, ungur stefndi hann á nám í raf- virkjun en eftir að hafa farið túr á síðutogara ílengdist hann þar sem bátsmaður og vélstjóri um alllangt skeið. Hann starfaði við akstur leigubíla og langferðabíla, rak smurstöð, var bóndi á Hálsi í Öxnadal en lauk starfsferlinum sem versl- unarmaður hjá Húsasmiðjunni á Akureyri. Helstu áhugamál hans fyrir utan lestur bóka og ljóða voru bílar, skip og flugvélar en hann gat meðal annars nafngreint stóran hluta fiskveiðiflotans af myndum. Vegna aðstæðna fór útför Ragnars fram í kyrrþey frá Akureyrarkirkju 22. nóvember 2021. húsmóðir og verka- kona, f. 31. maí 1934, d. 22. apríl 2004. Foreldrar Huldu voru Ás- grímur Halldórs- son og Sigurrós Kristinsdóttir, lengst af bændur á Hálsi í Öxnadal. Börn þeirra eru: 1) Linda Hrönn, f. 16. mars 1955, gift Júlíusi Snorrasyni. Börn þeirra eru Birgir Þór, Helga og Orri. 2) Ívar, f. 26. júlí 1956, giftur Þóru Hjörleifsdóttur. Börn þeirra eru Vilborg Hjörný, Eva Huld, Jeff Chris og Egill Þór. 3) Tryggvi Kristinn, f. 28. júní 1959, í sambúð með Sigríði Baldursdóttur. Börn Tryggva eru Gerður Rogers, Agnes Tul- Raggi tengdó var flottur karl og þurfti að stíga marga ölduna í gegnum lífið. Strax við fæðingu fékk hann fyrstu ágjöfina er móðir hans lést í kjölfar fæðing- ar hans. Hann var settur nokk- urra daga gamall, vafinn inn í sæng, ofan í smjörlíkiskassa og sendur með ferjunni Drangi frá Dalvík til Akureyrar í faðm ömmu sinnar, Þóru Sigurðar- dóttur. Þar ólst hann upp við gott atlæti og átti sér draum um að verða flugmaður. Ekki rættist sá draumur og þá hugði hann á nám í rafiðn en eftir að hafa farið einn túr á sjó á táningsaldri sá hann að mun meira væri upp úr því að hafa og gaf rafvirkjunina upp á bátinn. Hann var lengst af munstrað- ur á gömlu síðutogarana, Harð- bak, Hringbak og fleiri, og er fram leið á skuttogara. Hann kom víða við og sigldi ungur um heimsins höf og kynntist lífinu úti í hinum stóra heimi! Stofnaði fjölskyldu með eiginkonu sinni, Huldu Ásgrímsdóttir, og eignuð- ust þau fimm börn saman. Ég kynntist Ragnari fyrst árið 1976 þegar við Ívar, eldri sonur hans, fórum að stinga saman nefjum. Þá var hann að mestu hættur á sjónum og var bóndi á Hálsi í Öxnadal, æskuheimili Huldu. Þau bjuggu á Hálsi í tíu ár og fluttu þá til Akureyrar og Ragnar vann ýmis verslunar- störf og endaði vinnuferilinn hjá Húsasmiðjunni. Ragnar var myndarmaður á velli og fyrst man ég eftir honum í heyskap með sígarettuna í öðru munnvikinu, hendandi til bögg- um. Algjör töffari og fyrstu árin áttu árurnar okkar ekki mikla samleið en er á leið kunni ég bet- ur og betur að meta mannkosti hans. Hann var duglegur og mjög einbeittur, t.d. þegar hann setti sér markmið eins og að hætta að reykja eða létta sig, þá var stefnan sett og markinu náð fljótt og vel án nokkurra vand- kvæða. Ragnar var vel gefinn bæði til munns og handa. Hann var lunk- inn handverksmaður og átti ekki í neinum vandræðum með að breyta gömlu húsi í fínan sum- arbústað sem og að lagfæra og dytta að öðrum húseignum sem þau Hulda áttu. Hann unni bóklestri og það var eitt það síðasta sem hann naut að gera eftir að sjónin fór að gefa sig, þá nýtti hann dagana í að hlusta á ýmiss konar hljóð- bækur. Hann kunni kynstrin öll af ljóðum og gat held ég þulið all- an skáldskap Káins og Davíðs Stefánssonar utan að og margt annað. Hann mundi vísu ef hann heyrði hana einu sinni og minnið sveik hann ekki fram á síðustu stund. Hann sýndi mikið æðru- leysi og seiglu í glímunni við elli- kerlingu sem fór ekki um hann mildum höndum síðustu æviárin. Ég kveð Ragnar með þökk og virðingu fyrir samveruna og allar sögurnar sem gáfu mér sýn inn í viðburðaríkt líf manns sem kvaddi sáttur eftir að hafa stigið ölduna í tæp níutíu ár. Þóra Hjörleifsdóttir. Ragnar Tryggvason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.