Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
allt að50%afsláttur
25%af öllum barnavörum
Himinn
Buxur
Nú kr. 4.493.-
Kr. 5.990.-
Öld Flíspeysa
Nú kr. 5.243.-
Kr. 6.990.-
Vindur úlpa
Nú kr. 14.243.-
Kr. 18.990.-
Eldur Jakki
Nú kr. 9.743.-
Kr. 12.990
Eldur Buxur
Nú kr. 5.993
Kr. 7.990.-
.-
.-
Himinn
Hettupeysa
Nú kr. 5.243.-
Kr. 6.990.-
„HANN KEMST EKKI LANGT. EKKI MEÐ
ALLAR ÞESSAR FERÐATAKMARKANIR
VEGNA COVID.“
„JÓN, ÞÚ GETUR SNÚIÐ VIÐ. VIÐ GÁTUM
OPNAÐ ÚTIDYRNAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að heita því að vera
aldrei aftur aðskilin,
ekki eina einustu stund.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER EITTHVAÐ
SLÆMT AÐ FARA
AÐ KOMA FYRIR
BRAK
EN EKKI
FYRIR MIG
BÍLLINN
MINN!
SKIPULAGSLEYSI ER
MESTI VEIKLEIKI MINN!
HA! HLJÓMAR
EINSOG LETI!
HVATVÍSI ER MESTI STYRUR MINN!
gripi og upp í stóra gripi. Svo er gam-
an að segja frá því að ég er svolítið
mikið að vinna með svona rúnnaða
víra í dag, sem er kannski vísun í
veru mína hjá Jóhannesi meistara
mínum og sveinsverkefni mitt, þótt
ég sé að vinna öðruvísi með þá í dag.“
Anna María hefur verið með tals-
vert af nemum í gegnum tíðina. „Ég
hef verið með átta stelpur og svo einn
strák sem var að ljúka náminu hjá
mér, en hann byrjaði í upphafi Covid.
Mér finnst gaman að vera með nema
og ég kynnist yngri kynslóð af gull-
smiðum í gegnum samstarfið.“
Anna María fer ekki langt frá
Skólavörðustígnum til að stunda
tómstundir, því Kramhúsið er á
næsta horni og þar hefur hún verið í
magadansi í tíu ár. „Kramhúsið er al-
gjör gimsteinn í miðbænum og það er
mjög skemmtilegur kjarni í kringum
hópinn í magadansinum. Við ætlum
einmitt að dansa á afmælisdaginn og
fagna þessum tímamótum mínum og
ég mun því dansa og hrista mig yfir
60 ára línuna,“ segir hún hress.
Fjölskylda
Anna María á synina Mána Egils-
son, f. 20.7. 1991, og Sveinbjörn
Egilsson múrara, f. 3.6. 1997, með fv.
sambýlismanni sínum, Agli Ingi-
bergssyni, f. 10.1. 1962.
Systkini Önnu Maríu eru: 1)
Kristinn, f. 29.5. 1945, d. 20.2. 2018;
2) Sigurður, f. 1.3. 1949; 3) Árni, f.
7.10. 1952, og 4) Sveinbjörn, f. 10.7.
1955.
Foreldrar Önnu Maríu voru hjón-
in Sveinbjörn Sigurðsson húsa-
smíðameistari og einn stofnandi
Meistarafélags húsasmiða, f. 3.10.
1919, d. 27.5. 2007, og Helga Krist-
insdóttir húsfreyja, f. 1.6. 1923, d.
21.3. 2019. Þau bjuggu í Reykjavík.
Anna María
Sveinbjörnsdóttir
Helga Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Otti Guðmundsson
skipasmiður í Reykjavík
Guðrún Ottadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristinn Pétursson
blikksmíðameistari í Reykjavík
Helga Kristinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Anna Kristjana Bjarnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Pétur Jónsson
blikksmiður, stofnaði Blikksmiðju JBP 1883 í
Rvk. og annar stofnandi Glímufélags Ármanns
Valgerður Jóhanna Jónsdóttir
fór til Vesturheims 1899 frá
Bessastöðum í Álftaneshreppi, Gull.
Jón Sveinbjörnsson
bóndi á Litlu-Háeyri,
Stokkseyrarsókn,
Árn. og hreppstjóri á
Bíldsnesi í Grafningi
Herdís Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurður Oddsson
skipstjóri og síðar hafnsögumaður í Reykjavík
Steinunn Sigurðardóttir
húsfreyja í Landakoti á
Miðnesi
Oddur Jónsson
bóndi í Landakoti á Miðnesi
Ætt Önnu Maríu Sveinbjörnsdóttur
Sveinbjörn Sigurðsson
byggingameistari í Rvk.
og einn af stofnendum
Meistarafél. húsasmiða
Sigmundur Benediktsson sendi
mér góðan póst á þriðjudag:
„Hér hefur varla orðið albjart í
marga daga og þoka um nætur svo
mér varð á að yrkja þessa drótt-
kveðnu vísu um ástandið“:
Skammdegisógn.
Togast á dimmir dagar
drunga með byrði þunga.
Salir nú byrgjast sólar
synda ei bláar lindir.
Sorta í stjörnur svertast
sýna ei geisla línur.
Næturlangt sálin nötrar
næðist á veikum þræði.
Á feisbók rifjar Indriði á Skjald-
fönn upp þessa stöku Stephans G.
Stephanssonar:
Undarleg er íslensk þjóð!
Allt sem hefur lifað,
hugsun sína og hag, í ljóð
hefur hún sett og skrifað.
Og þessa stöku lét Stephan
fylgja:
Hlustir þú og sé þér sögð
samankveðna bagan:
Þér er upp í lófa lögð
landið, þjóðin, sagan.
Þessi visa Stephans ber yf-
irskriftina „Líf“:
Allt er lífs, því líf er hreyfing,
eins ljóðsins blær og krystalssteinn
– líf er sambönd, sundurdreifing –
sjálfur dauðinn þáttur einn.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar í
Boðnarmjöð: „Undanfarið hef ég
sótt Sturlungunámskeið hjá Baldri
Hafstað. Þar var rætt um Guðmund
góða, Gissur jarl og vænan slatta af
Sturlungum. Þó að ég hafi lítinn
skilning á þessum fræðum reyndi
ég draga saman allan lærdóm minn
í þremur sundurlausum limrum. Ég
vil skjóta því hér inn, að ný útgáfa
af Sturlungu á vegum Fornrita-
félagsins kemur út á næstu dögum.
Út af öllu var barist og engu
er til orustu þrefhundar gengu
svo í stríði um völd
á sturlungaöld
fjölmargir marbletti fengu.
Stormurinn stefnulaus æddi
svo Sturlunga vígmóða mæddi
því fátt var um grið
þó glöddust þeir við
hve Gissuri sárlega blæddi.
Gissur var geðillur kálfur
og Guðmundur hálfgerður álfur
en Sturla var einn
svo stæltur og hreinn
enda ritar hann söguna sjálfur.“
Stefán B. Heiðarsson orti á
mánudag:
Móti vindi maður fer
í myrkri á göngustígnum.
Kuldalegur kappinn er
í kuldagalla sínum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limrur um Sturlungu