Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 Trönuhrauni 8 – 565 2885 | Bíldshöfða 9 – 517 3900 | stod.is Bakbelti í miklu úrvali Við veitum þér stuðning Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal hefst á morgun, 26. nóvember, og stendur yfir til 6. desember með fjölda viðburða. Sérstök áhersla er lögð á verk í vinnslu og verkin sem sýnd eru allt frá því að vera fyrstu drög yfir í að vera fullkláruð verk sem þegar hafa verið sýnd. Á vef hátíðarinnar, lokal.is, kemur fram að á henni sé fagnað sýningum sem eru litlar að umfangi og einkennast af listrænni leit. Frestað fram í janúar Eva Rún Snorradóttir, listrænn stjórnandi Lókal, segir að upp- haflega hafi hátíðin átt að hefjast í dag, 25. nóvember, með sýningunni Engar flatkökur í erfidrykkjunni en henni hafi verið frestað fram í jan- úar. Annað kvöld verði því fyrsta sýning hátíðarinnar í Tjarnarbíói, En mig langar ekki í börn – verk í vinnslu. „Þetta er vettvangur fyrir fram- úrstefnusviðslist og tilraunasviðslist í Reykjavík og við erum með sjö ís- lensk verk sem eru ný. Sum eru ennþá í vinnslu og sum er verið að frumsýna og þetta eru ýmist opin rannsóknarferli eða fyrstu skissur. Við erum með „human specific“ verk þar sem einungis sex manns komast að í einu og svo erum við með eins konar „happening“ sem gerist heima hjá listakonunni,“ segir Eva um há- tíðina og bætir við að ein erlend sýn- ing sé á dagskránni en eina hafi þurft að afbóka vegna Covid. Á dagskránni er A Thousand Ways, sýning heimsþekkts leikhóps, 600 Highwaymen, sem er í raun þátttökuverk. „Það eru einungis tveir áhorfendur í einu á þessari sýningu sem er óvænt stefnumót ókunnugra á miðju leiksviði. Það eru takmarkaðir miðar í boði og engin áhugamanneskja um sviðslist ætti að láta þetta fram hjá sér fara,“ segir Eva. „Svo erum við með handrita- smiðju og útgáfu, erum að gefa út bók í ár, rit sem við köllum Syrpu sýnisrits sviðshandrita og þar eru handrit og handritabrot af text úr handritum sviðslistaverka sem eru ýmist Excel-skjöl eða teikningar eða hefðbundið handrit,“ segir Eva og verður sú bók til sölu í Tjarnarbíói og mögulega víðar. Sögurhingur með konum En mig langar ekki í börn – verk í vinnslu er, eins og nafnið ber með sér, verk í vinnslu. „Þetta er rann- sóknarverk með konum sem hafa kosið að eignast ekki börn,“ segir Eva og er beðin um að útskýra betur hvers konar sýning sé þarna á ferð- inni. „Þetta kallast söguhringur og þá eru konurnar með og áhorfendur sitja í hring með þeim. Við erum með alls konar form á þessari hátíð,“ seg- ir Eva. Og talandi um alls konar form þá er á dagskrá verk sem er símaver. „Alla hátíðina verður hægt að hringja í eitt símanúmer og hlusta á þrjú örverk í vinnslu eftir þrjá lista- menn. Eins og þegar þú hringir í banka,“ segir Eva um þetta forvitni- lega verk. Það sé eitt þeirra sem spruttu upp úr ástandinu í kórónu- veirufaraldrinum. Önnur nálgun Eva segir um verk hátíðarinnar að þau séu öðruvísi upplifanir en geng- ur og gerist í leikhúsi og fáir komist að. En þarf fólk þá að hafa brenn- andi áhuga á leiklist sem listformi til að njóta þess sem er í boði? „Nei, ég myndi einmitt ekki segja það, þetta er margt þannig að verið er að rann- saka eitthvert málefni og fólk þarf bara að vera opið og leitandi. Við komum bara öðruvísi að miðlinum,“ svarar Eva. Lókal er ekki þematengd hátíð en Eva segir að þó sé að þessu sinni ákveðið þema, þ.e. handrit, út af fyrrnefndri útgáfu og handrita- smiðju sem staðið er fyrir. „Og sam- starfsaðilar okkar eru Miðstöð ís- lenskra bókmennta, Bókmennta- borgin og Borgarbókasafnið og svo er Símaverið líka áhersla á handrit. Svo erum við bara það lítið samfélag að við pikkum bara upp og styðjum það sem er í gangi hverju sinni hjá listamönnum í sviðslistasenunni,“ bætir Eva við. Grímuskylda er á öllum sýningum en aðeins krafist niðurstöðu úr hrað- prófi á viðburði þar sem gestir eru fleiri en 50 en þeir eru í Tjarnarbíói. Frekari upplýsingar má finna á lokal.is. Framúrstefna og tilraunir - Leiklistarhátíðin Lókal hefst á morgun með rannsóknarverkinu En mig lang- ar ekki í börn – verk í vinnslu - Allt frá drögum yfir í fullkláruð verk á dagskrá Hringekja Kynningarmynd fyrir En mig langar ekki í börn – verk í vinnslu eftir Írisi S. Skúladóttur. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir Eva Rún Snorradóttir Meðal myndverka sem verða boðin upp á árlegu jólaperluuppboði Gall- erís Foldar má nefna fágæt verk eftir Guðmund Thorsteinsson – Mugg og Ásgrím Jónsson, auk verka sem voru á fyrstu sýningu sem sett var upp á Kjarvalsstöðum. Verkin sem boðin eru upp eru til sýnis í húsakynnum gallerísins á Rauðarárstíg til 29. nóvember en þá lýkur uppboðinu sem er á vefn- um uppbod.is. Í tilkynningu frá Galleríi Fold segir að um jólin sé „venja að bjóða upp á úrval af því allra besta sem finnst í húsi hverju og er Fold upp- boðshús þar engin undantekning“. Þá er greint frá því að meðal verka verði boðin upp nokkur eftir Jóhannes S. Kjarval. „Tvö þeirra voru á frægri yfirlitssýningu Kjar- vals árið 1973, var það opnunarsýn- ingin í húsi sem þá kallaðist einfald- lega Myndlistarhúsið á Miklatúni og hlaut síðar nafnið Kjarvalsstað- ir. Fjörutíu þúsund manns sóttu sýninguna. Verkin af sýningunni sem boðin verða upp eru hið fallega Portrett af Karítas og Þingvalla- mynd, falleg landslagsmynd með kúbísku ívafi. Auk þess eru tvö olíu- verk á uppboðinu, lítið abstrakt- verk í kúbískum stíl og mynd af verum í vatni og svo tvær teikn- ingar, hausamynd og landslag.“ Af verkum frumherjanna sem boðin verða upp má nefna litla olíu- mynd sem Ásgrímur Jónsson mál- aði í Kaupmannahöfn árið 1901, óvenjustórt verk eftir Þórarin B. Þorláksson og fágæta blómaupp- stillingu eftir Mugg. Þá er boðin upp blómauppstilling eftir Kristínu Jónsdóttur, Reykjavíkurmynd eftir Jón Stefánsson, tvö verk eftir Gunnlaug Scheving sem sýna eitt hans vinsælasta mótív, sjómenn að taka inn hákarl, og mynd af mjalta- konu eftir Jóhann Briem. Úrval abstraktverka er á upp- boðinu, m.a. eftir Karl Kvaran, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason og Kristján Davíðsson, Braga Ásgeirsson og Valtý Péturs- son. Þá eru boðin upp verk eftir Al- freð Flóka, Óla G., Gerði Helgadótt- ur og marga fleiri. Kyrralífsmynd Blómauppstilling eftir Mugg er á jólaperluuppboði Gallerís Foldar. Fjölbreytileg verk eftir frumherjana, abstraktmeistara og fleiri á jólauppboði Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hlaut í vikunni tvær tilnefningar til bandarísku Grammy-verðlaunanna sem eru ein þau þekktustu í heimi og eru þetta hans fyrstu tilnefningar til þeirra. Ólafur er tilnefndur fyrir lög af plötu sinni Some kind of peace sem kom út í fyrrahaust, annars vegar í flokki raf- og danstónlistar fyrir lagið „Loom“ sem hann vann með breska tónlistarmanninum Bonobo, og hins vegar „The Bottom Line“ sem er tilnefnt fyrir bestu út- setningu fyrir hljóðfæri og söng. „Eftir að hafa náð mér af mesta spennufallinu er mér efst í huga þakklæti til samferðafólks míns því enginn er eyland. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ tilnefningur til Grammy-verðlauna og það er mér ótrúlegur heiður. Ég lagði ómælda orku og ást í some kind of peace og óneitanlega gaman að fá svona viðurkenningu fyrir,“ er haft eftir Ólafi í tilkynningu. Verðlaunin verða afhent í lok jan- úar á næsta ári. Ólafur hefur áður hlotið virt verðlaun, hlaut Bafta fyrir tónlist sína við þættina Broadchurch og nýverið tilnefningu til Emmy- verðlauna fyrir tónlist sína við þætt- ina Defending Jacob. Friðsæll Ólafur á umslagi plötu sinnar Some kind of peace. Tilnefndur til Grammy- verðlauna - Ólafur hlýtur tvær tilnefningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.