Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Side 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021 „Ég held að reynsla mín muni gagnast öllum. Ég held ég sé eini for- maður verkalýðsfélags sem hefur beina reynslu af launaþjófnaði og kem því með nýtt sjónarhorn inn í starfið,“ segir Agnieszka og segir að þrifafyrirtækið hafi reynt að svindla á sér og Kynnisferðir hafi svindlað á sér og öðru starfsfólki. „Þessir atvinnurekendur voru stöðugt að svindla og fundu alltaf nýjar leiðir til þess, til þess að spara pening.“ Hvað segja Kynnisferðir þegar þeir lesa þetta í blaðinu? „Þeir vita að þetta er satt því þeir hafa endurgreitt mér og öðru starfs- fólki sem varð fyrir barðinu á þessu.“ Í starfi sínu hjá Kynnisferðum tók Agnieszka að sér hlutverk trún- aðarmanns félgsmanna Eflingar á vinnustaðnum og gegndi því hlut- verki frá 2015-2019. „Það er ólaunuð staða og í henni felst að hjálpa verkafólki við að eiga samskipti við verkalýðsfélagið og það gengur líka í hina áttina; verkalýðs- félagið getur átt samskipti við vinnu- staðinn í gegnum trúnaðarmanninn. Trúnaðarmaður er brúin þar á milli, ásamt því að reka mál starfsfólks gagnvart atvinnurekendum,“ segir Agnieszka. „Þetta var mikil vinna. Margir af mínum vinnufélögum töluðu hvorki íslensku né ensku og því var ég að hjálpa þeim að leita réttar síns. Ég varð fyrir miklu aðkasti af hálfu yfir- manna fyrir að standa á mínu og berjast fyrir réttindum samstarfs- manna minna og reyndi ég oft að kæra það til hærra settra yfir- manna.“ Að vernda minni máttar Árið 2019 tók Agnieszka við sem varaformaður Eflingar og hefur unn- ið náið með Sólveigu Önnu, allt þar til 31. október þegar hún lét af störfum. Hvernig var að vinna með Sól- veigu? „Ég studdi hennar pólitíska sjón- arhorn og fannst mjög mikilvægt starf sem hún vann í þágu félags- manna. Auðvitað viljum við nú halda áfram með hennar góða starf og höf- um stuðning starfsfólksins hér. Það eru allir að hjálpa okkur að koma öllu í samt lag aftur.“ Var erfitt að setjast í stól for- mannsins, og það svona skyndilega? „Það var ekki erfitt því sem vara- formaður vissi ég að ein af mínum skyldum væri að taka við sem for- maður ef eitthvað gerðist. Þannig að ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um.“ Hefur þú alltaf viljað hjálpa fólki, eða hvað drífur þig áfram? „Já, ég held ég hafi alltaf viljað hjálpa fólki, alveg frá því ég var í grunnskóla. Ég var alltaf að vernda þá sem ekki gátu varið sig,“ segir hún og brosir. „Þegar ég var að vinna hjá þrifa- fyrirtækinu var ég stöðugt að reyna að hjálpa öðru fólki sem þurfti á hjálp að halda, án þess kannski að hugsa um það. Svo þegar ég vann hjá Kynnisferðum var ég enn meira í þessu hlutverki sem trúnaðarmaður en sá fljótt að ég hafði ekki nógu mik- inn frítíma til að sinna þessu jafn vel og ég hefði viljað. Áður en ég var kosin varaformaður hafði ég hugsað að ég gæti séð mig vinna að verka- lýðsmálum.“ Leitt að sjá Sólveigu fara Við snúum okkur að erfiðari málum og ræðum afsögn Sólveigar, sem eins og fyrr segir segist hafa verið hrakin úr starfi af starfsmönnum Eflingar. Hvernig er andrúmsloftið núna á skrifstofunni? „Það er að batna,“ segir vara- formaðurinn Ólöf Helga Adolfs- dóttir. „Það eru allir leiðir að sjá á eftir Sólveigu því þau deila með henni draumnum um betri framtíð með meiri réttindum fyrir verkafólk. Það var erfitt að sjá hana fara en það er allt að komast í samt lag hér. Við höfum verið að vinna með vinnu- staðasálfræðingi sem mun fram- kvæma vinnustaðaúttekt til að greina vandann og leita úrbóta.“ Er ekki einhver mótsögn í þessu; fólkið var óánægt með hana en finnst nú leitt að sjá hana fara? „Ég held að það sé ekki endilega rétt að starfsfólk hafi verið óánægt með Sólveigu; þarna inni starfar fólk sem vildi gagngert taka þátt í henn- ar baráttu. En það var óánægja með ákveðin atriði í vinnuumhverfinu og samskiptum og farið fram á úrbæt- ur. Síðan kemur í ljós að Sólveig var líka óánægð með ákveðna hluti í samskiptum við starfsfólk. Liður í vinnustaðaúttektinni er að skoða þetta og reyna að fyrirbyggja sam- bærilegan vanda í framtíðinni. Við upplifum hlutina á mismunandi hátt. Þetta var upplifun Sólveigar og það var alfarið ákvörðun hennar að hætta.“ Ertu að segja að Sólveig hafi þá mögulega misskilið skoðanir og vilja starfsfólksins? „Hún hefur rétt á því sem ein- staklingur að skilja hlutina á sinn hátt. Ég held að við viljum frekar einblína nú á framtíðina því við erum með 27.000 félagsmenn sem þurfa að fá þá þjónustu sem þeir eiga skilið. Hér er fólk sem er viljugt að hjálpa fólki,“ segir Agnieszka og segir starfsfólkið, sem telur fimmtíu manns, sýna þeim tveimur mikinn stuðning. Viljum bara þjóna fólkinu Agnieszka hefur orðið. „Við erum hér fyrir félagsmenn okkar eins og ég benti á. Ég studdi af öllu mínu hjarta starf Sólveigar en hún valdi að hætta og það var alfarið hennar ákvörðun, sem við virðum. Nú þarf að sjá um að allt starf hér geti haldið áfram. Við höldum áfram að vinna eins og venjulega að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Þetta er eins og skip og við þurfum að halda því á floti,“ segir hún. „Skiljanlega er fólk forvitið að vita hvað hefur gerst hér en ég er viss um að flest fólk hefur upplifað ágreining á sínum vinnustað og vill ekki endi- lega að það fari í fjölmiðla. Okkur finnst rétt að taka á þessum málum hér innanhúss og nú viljum við ein- blína á framtíðina,“ segir Ólöf. „Við viljum bara þjóna fólkinu okkar. Fólkið okkar er mikilvægt; ekkert annað.“ Einn starfsmanna Eflingar, Tryggvi Marteinsson, var rekinn ný- lega og segir Agnieszka það hafa ver- ið ákvörðun stjórnarinnar. Tryggvi tjáði sig síðar á samfélagsmiðlum og sagði miður fallega hluti þar. Tryggvi er sá sem er ásakaður um að hafa hótað að vinna Sólveigu mein og seg- ist hafa goldið þess að vera „Íslend- ingur og karlmaður“, en fjarlægði þó þau orð úr færslu sinni. Einnig talaði hann um að Efling væri orðin „pólska útgáfan af stéttarfélagi“. Hvernig bregðist þið við slíkum yf- irlýsingum? „Ég er ekki reið út í hann; að hann skuli sjá hlutina í þessu samhengi. Ég finn til með honum í dag. Hann vill líklega ekki viðurkenna mistök sem hann gerði,“ segir Agnieszka og segir þær ekki geta gefið upp ástæðu uppsagnarinnar, enda séu það trún- aðarupplýsingar. Sögð hvöss og erfið Það er komið að varaformanninum og mál að skyggnast aðeins á bak við tjöldin og heyra af hennar lífi. „Ég er alin upp í Hafnarfirði og kem úr stórri fjölskyldu; ég á sjö systkini. Ég eignaðist barn ung, átján ára, og náði ekki að klára stúd- entspróf en er einmitt að vinna í því núna. Ég lærði til flugs og er með flugmannspróf og hef unnið nú næst- um fimm ár sem hlaðmaður hjá Ice- landair á Reykjavíkurflugvelli,“ segir Ólöf en eins og lesa hefur mátt um í fjölmiðlum var Ólöfu sagt upp án skýringa. Hún gegndi þar starfi trúnaðarmanns í mörg ár. „Þeir gáfu upphaflega upp þá ástæðu að það hefði orðið trúnaðar- brestur en sú ástæða var aðeins gefin upp munnlega. Síðar á fundum var mér sagt að það væri vegna sam- skiptaörðugleika. Ég var sögð hvöss í máli og erfið. Þegar ég var gerð að trúnaðarmanni ákvað ég strax að vinna það starf af heilum hug og berjast. Þegar ég tek eitthvað að mér gef ég mig alla í það. Ég varð því að berjast fyrir samstarfsfólk mitt og það komu upp mál vikulega,“ segir Ólöf sem segir það fjarstæðu að Icelandair hafi ekki vitað að hún væri trúnaðarmaður eins og þeir hafa haldið fram. „Ég var í stöðugu sambandi við yfirmenn mína, í gegnum tölvupóst, í gegnum samtöl og í síma. Í öllum tölvupóstum skrifa ég undir: Ólöf Helga Adolfsdóttir, trúnaðarmaður. Einnig var ég öryggistrúnaðar- maður. Þeir áttu því ekki að geta sagt mér upp en segja að ég hafi ekki endurnýjað stöðu mína sem trúnaðarmaður eftir tvö ár, því Efl- ing hafi ekki tilkynnt þeim það. Þeir skýla sér á bak við það,“ segir Ólöf og segir það ólöglegt að segja upp trúnaðarmönnum. „Það er venjan að ef maður til- kynnir ekki til Eflingar að maður sé hættur sem trúnaðarmaður sé litið á það þannig að hann haldi starfinu áfram. Ég veit um nokkra sem unnu sem trúnaðarmenn hjá Icelandair í áratugi og endurnýjuðu aldrei form- lega hjá Eflingu,“ segir hún og bætir við: „Varðandi öryggistrúnaðar- mannastarfið segjast þeir hafa lagt niður öryggisnefnd þegar Air Ice- land Connect sameinaðist Ice- landair. Mér var aldrei sagt að ég væri ekki lengur öryggistrún- aðarmaður.“ Ólöf segist gjarnan vilja gamla starfið sitt aftur, en segir erfitt að ’ Ég studdi af öllu mínu hjarta starf Sólveigar en hún valdi að hætta og það var alfarið hennar ákvörðun, sem við virðum. Nú þarf að sjá um að allt starf hér geti haldið áfram. Við höldum áfram að vinna eins og venjulega að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Þetta er eins og skip og við þurfum að halda því á floti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.