Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Side 15
Boðað er til félagsfundar fimmtudaginn
25. nóvember, kl. 18:00 á Stórhöfða 31, 1. hæð.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Tillaga um sameiningu Félags hársnyrtisveina við Félag
iðn- og tæknigreina. Fyrri umræða.
2. Lagabreytingar, fyrri umræða:
a) 3. gr., um félagsmenn, skilgreining og skilyrði aðildar.
b) 16. gr., um fjölda stjórnarmanna.
c) 17. gr., um kosningu stjórnar.
d) 20. gr., um fjölda fulltrúa í trúnaðarráð.
3. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs:
a) 2.–4., 7.–8. og 10. gr.
b) Bornar fram í einu lagi, fyrri umræða.
Stjórn FIT
Boðað er til félagsfundar fimmtudaginn
25. nóvember, kl. 19:30 á Stórhöfða 31, 1. hæð.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Sameining Félags hársnyrtisveina og Félags iðn- og
tæknigreina. Síðari umræða.
2. Lagabreytingar, síðari umræða:
a) 3. gr., um félagsmenn, skilgreining og skilyrði aðildar.
b) 16. gr., um fjölda stjórnarmanna.
c) 17. gr., um kosningu stjórnar.
d) 20. gr., um fjölda fulltrúa í trúnaðarráð.
3. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
a) 2.–4., 7.–8. og 10. gr.
b) Bornar fram í einu lagi, síðari umræða.
4. Önnur mál.
Stjórn FIT
fimmtudaginn 25. nóvember.
Vegna fyrirhugaðrar sameiningar Félags
hársnyrtisveina við Félag iðn- og tækni-
greina er boðað til tveggja félagsfunda í FIT
til að afgreiða tillögu um sameiningu Félags
hársnyrtisveina við FIT og lagabreytingar
sem slík sameining kallar á.
Vakin er athygli á að fundirnir eru báðir sama
daginn og boðið verður upp á veitingar á milli
funda.
Félagsmenn þurfa að framvísa neikvæðum hrað-
prófsniðurstöðum fyrir fund og vera með grímur.
FÉLAGS-
FUNDIR
FIT
F U N D A R B O Ð !
svara því hvað hún myndi gera núna
byðist henni það, þar sem hún hefur
nú nóg að gera sem varaformaður
Eflingar.
„Ég myndi þiggja starf mitt aftur
og byrja þá á að taka orlof sem ég á
inni. Ef Icelandair drægi uppsögn
mína til baka væru þeir um leið að
viðurkenna að uppsögnin hefði verið
ólögmæt. Hvað gerist þá verður að
koma í ljós rétt eins og það mun skýr-
ast síðar hvað gerist í kosningunum í
mars,“ segir Ólöf.
Feta í fótspor feðra sinna
Þær segja báðar of snemmt að segja
til um hvort þær hyggist gefa kost á
sér í kosningunum en taka fram að
þær muni báðar eftir sem áður sitja
áfram í stjórn Eflingar eftir þær.
Ólöf segist alltaf hafa haft áhuga á
að hjálpa fólki en viðurkennir að hún
hafi sem ung kona ekki fyllilega gert
sér grein fyrir þeirri baráttu og þeim
fórnum sem færðar hafi verið til að
tryggja verkafólki mannsæmandi
kjör.
„Ég var dæmigert íslenskt ung-
menni og hugsaði ekki um þessi mál.
Mér fannst sjálfgefið að fólk hefði
réttindi en vissi ekki mikið um barátt-
una sem lá að baki. Hlutirnir voru
bara eins og þeir voru og ég áttaði
mig ekki á því að það var fólk sem
hafði þurfti að berjast. Ég er alin upp
við það að pabbi var í stjórn VH, sem
nú er hluti af VR, og kom gjarnan
með honum á skrifstofuna,“ segir
Ólöf.
„Já er það?“ skýtur Agnieszka inn í.
„Það kemur skemmtilega á óvart
að heyra það því ég vissi þetta ekki,
en pabbi var einmitt formaður í stétt-
arfélagi í Póllandi og ég var gjarnan
með honum á skrifstofunni eftir
skóla.“
Þannig að þið eruð á einhvern hátt
báðar að feta í fótspor feðra ykkar?
„Já,“ svarar Agnieszka og brosir.
Gífurlega stressandi tími
Við snúum okkur að málefnum og
störfum trúnaðarmanna en það voru
einmitt trúnaðarmenn Eflingar sem
Viðar og Sólveig gagnrýndu í fjöl-
miðlum.
Við höfum rætt aðeins trúnaðar-
menn, en spurningin er sú: Hver er
tilgangur trúnaðarmanna ef þeir
mega í raun ekki vera rödd starfs-
fólksins án þess að vera gagnrýndir
opinberlega?
„Trúnaðarmenn eru alltaf í
óþægilegri stöðu því þeir þurfa að
hlusta á fólkið sitt en eru ekki endi-
lega sammála alltaf. Samt sem áður
þurfa þeir að vinna í þágu þess og
bera fram bónir, og ég man að ég
þurfti sjálf að gera það þegar ég
var trúnaðarmaður. Ég var kannski
ekki alltaf sammála en það var mín
ábyrgð að þjóna fólkinu,“ segir
Agnieszka og segir trúnaðarmenn
innan stéttarfélags vera í annarri
stöðu en trúnaðarmenn annarra
fyrirtækja þar sem það vantar þá í
raun þriðja aðilann, stéttarfélagið,
sem hægt sé að leita til til að leysa
ágreiningsmál.
„Við þurfum að skoða þessi mál
betur í framtíðinni því við sjáum
núna að þetta virkar ekki vel eins og
það er í dag,“ segir Agnieszka og
Ólöf bætir við:
„Við teljum trúnaðarmenn ákaf-
lega mikilvæga og við eigum í góðu
sambandi við trúnaðarmennina á
skrifstofu Eflingar.“
Finnst ykkur þessi gagnrýni í fjöl-
miðlum óverðskulduð?
„Við getum verið sammála um að
þessi fjölmiðlaumfjöllun um málefni
skrifstofu Eflingar hefur ekki verið
góð og ekki starfseminni til góðs.“
Einn ykkar stjórnarmanna, Guð-
mundur Baldursson, hefur verið
gagnrýndur af stjórninni. Hvað viljið
þið segja um það?
„Við erum stjórn samansett af
mismunandi fólki og auðvitað eru
ekki allir sammála alltaf. Okkur leyf-
ist að gagnrýna hvert annað, það er
þannig sem við vinnum.“
Nú vildi hann að þú, Agnieszka,
segðir líka af þér, hverju svarar þú
því?
„Hann var reiður og ég get ekki
erft það við hann. Þetta er líka skoð-
un sem honum er frjálst að hafa og
viðra. Hann verður að svara fyrir
það hvort skoðun hans hafi breyst.“
Eitt af því sem hann kallaði eftir
var að þið mynduð tala við fjölmiðla,
af hverju biðuð þið þar til núna?
„Við höfum verið að fókusera á
Eflingu. Við viljum vinna vinnuna
okkar,“ segir Ólöf.
„Ég hætti að svara símanum þeg-
ar fjölmiðlar hringdu því við þurft-
um að passa upp á að starfsemin
gæti haldið áfram. Starfsfólkið var
mjög óánægt með alla fjölmiðla-
umræðuna og vildum við tryggja að
meðlimir Elfingar fengju áfram sína
þjónustu. Ég vil líka bæta við að það
var nóg að gera í vinnunni fyrir. Síð-
an jókst vinnan við að taka við sem
formaður og svo kom þessi krísa of-
an á allt annað. Ég á líka fjölskyldu
og þau eiga líka skilið að ég sinni
þeim. Þetta hefur verið gífurlega
stressandi tími og ég hef ekki haft
neinn tíma fyrir viðtöl. Við fengum
stærðarinnar verkefni í fangið og
höfum gert okkar besta til að halda
á því, en auðvitað viljum við eiga í
góðu sambandi við fjölmiðla og
svara spurningum þeirra eftir bestu
getu,“ segir Agnieszka.
Hafði ekki slíka drauma
Agnieszka og Ólöf hafa nú unnið
saman í nokkrar vikur og segja sam-
starfið ganga vel.
„Við störfum saman á jafnréttis-
grundvelli því ég trúi að allar
ákvarðanir eigi að vera teknar af
fleira fólki en bara einum ein-
staklingi. Ég er mjög glöð að Ólöf
var til í að stíga inn og taka að sér
þessar skyldur,“ segir Agnieszka og
brosir.
Viljið þið breyta einhverju nú þeg-
ar þið eruð við stjórnvölinn?
„Við viljum bara hafa hér opið fyr-
ir meðlimi Eflingar og halda áfram
að þjóna þeim. Augljóslega erum við
að stíga inn í alls kyns verkefni sem
hafa verið á dagskrá lengi og höfum
ekki hugsað okkur neinar stórar
breytingar. Við verðum enn í stjórn
eftir kosningar og horfum fram á
kjaraviðræður á næsta ári,“ segir
Ólöf.
„Áður en það allt byrjar viljum við
ganga úr skugga um að vinnustaðir
hafi trúnaðarmenn. Við viljum ein-
blína á það líka því það er gífurlega
mikilvægt og ég vil sjá fleiri trún-
aðarmenn,“ segir Agnieszka.
Munuð þið fylgja sömu
hugmyndafræði og Sólveig kom með
til Eflingar?
„Já, tvímælalaust. Hvernig er ekki
hægt að vilja það? Hún vildi bæta
kjör láglaunafólks og krafðist úrbóta
fyrir láglaunakonur, sem halda
þessu samfélagi saman. Hver getur
ekki verið sammála þessu?“ segir
Agnieszka og brosir.
Hefði þér, Agnieszka, dottið í hug
þegar þú komst hingað fyrir fimm-
tán árum að þú yrðir formaður
verkalýðsfélags?
„Nei, ég hafði ekki slíka fáránlega
drauma,“ segir hún og hlær.
„Það skaðar mjög þá atvinnurekendur sem eru heiðarlegir og
fara að lögum. Þeir sem svindla borga fólki of lág laun, hunsa
lög um orlof og réttindi og ég get sagt þér að þeir eru mjög
hugmyndaríkir þegar kemur að aðferðum til að svindla,“ segir
Agnieszka um þá atvinnurekendur sem svindla á starfsfólki sínu.
Morgunblaðið/Ásdís
21.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15