Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021
HÖNNUN
Hönnunin minnir á búðina þar sem nemar í Hogwarts úr Harry Potter-myndunum keyptu bækur.
Bókabúðin er afar falleg að utan en enn fallegri að innan.
Tröppur hlykkjótta stigans eru málaðar dökkrauðar og fara vel við dökka handriðið.
Fegurð og töfrar bókabúðarinnar
Í Porto í Portúgal má
finna eina fallegustu
bókabúð heims,
Livraria Lello.
Texti og myndir:
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
B
ókabúðin Livraria Lello lætur
ekki mikið yfir sér að utan; er
kramin á milli annarra bygg-
inga á götu einni í miðbæ Porto,
þeirrar fallegu borgar. En þegar inn
er komið er ekki laust við að maður
taki andköf; bókabúðin, sem oft er
talin ein sú fegursta í heimi, stendur
sannarlega undir þeim titli. Að
koma þar inn er líkt og að ganga inn
í listaverk eða kvikmyndasett í æv-
intýramynd, enda hefur gjarnan
verið talað um að hún hafi verið inn-
blástur rithöfundarins J.K. Rowling
að útliti Hogwarts-galdraskólans í
frægu bókunum um Harry Potter.
Því miður hefur rithöfundurinn ný-
lega tjáð sig um að hún hafi aldrei
stigið fæti inn í bókabúðina, sem er
afar sérstakt þar sem hún bjó í
Porto í tvö ár. Hver myndi ekki vilja
sjá þessa bókabúð!
Yfir hundrað ára gömul
Livraria Lello er yfir hundrað ára
gömul, stofnuð í lok nítjándu aldar
af bræðrunum José og António
Lello og var upphaflega bókafyr-
irtæki. Bókabúðin sjálf var svo
stofnuð 13. janúar 1906 í núverandi
mynd og var gerð upp fyrir nokkr-
um árum, enda sjálfsagt orðin lúin.
Útskornir veggir, hillur og stigar
með rauðum teppum blasa við
ásamt mósaíkþakglugga til að
hleypa inn smá birtu í þessa töfra-
veröld bóka.
Selt er inn í búðina og gjarnan röð
fyrir utan. En fyrir þá sem tíma að
borga 15 evrur en ekki fimm er
hægt að sleppa röðinni. Sem betur
fer er fáum hleypt inn í einu og nóg-
ur tími til að njóta án þess að vera í
mannþröng.
Erfitt er að lýsa bókabúðinni nán-
ar því orð duga varla. Myndirnar
tala sínu máli og segja meira en þús-
und orð!
Þegar inn er komið blasir dýrðin við, útskornir veggir og loft eru sannkölluð
listasmíð. Ef bók er keypt fæst inngangseyririnn til baka.