Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021 LÍFSSTÍLL Þ að er indælis ilmur í loftinu í kringum Jóhönnu Guð- mundsdóttur, enda er borðið hlaðið ilmkertum sem hún hefur þróað og hannað. Jóhanna býður upp á kaffi og sest niður með blaða- manni til að segja honum söguna af því hvernig hún endaði í kertagerð. Það er sannarlega ekki það eina sem hún hefur gert á lífsleiðinni, en hún hefur búið á Miami í Bandaríkjunum í 35 ár ásamt fjölskyldu sinni. „Ég byrjaði fyrst að vinna við förðun sem ég hafði lært í Frakk- landi og vann við það í fimm ár. Ég ferðaðist mikið um allt Karíbahaf og farðaði módel fyrir tískuljós- myndir,“ segir hún og segist hafa þurft að leita sér að nýrri vinnu eftir að eldri sonur hennar fæddist því vinnutíminn var allt of langur. „Ég fékk þá vinnu í Bath & Body Works og sá þar um nýtt svæði þar sem til sölu var algjör nýjung á þessum tíma, og það voru ilmkerti,“ segir Jóhanna og segist á þeim tíma ekki hafa haft mikið vit á ilmkertum. Það átti sannarlega eftir að breyt- ast. Besta afmælisgjöfin Eftir að hafa rekið barnafataversl- un um hríð og starfað lengi í við- skiptum stórverslana sem inn- kaupastjóri og fleira er Jóhanna nú komin á kaf í kertagerð. Það er nokkur aðdragandi að því ævintýri. „Ég hef alltaf verið ofsalega hrif- in af góðum kertum og ef ég gef gjafir gef ég gjarnan góð ilmkerti sem mér finnst næra sálina svo vel. Svo þegar Covid skall á í fyrra fór ég að grúska á netinu og lesa mér til um kerti. Ég var búin að kaupa slatta af kertum og langaði að gera eitthvað með þetta en vissi ekki al- veg hvað. Svo á afmælinu mínu í ágúst í fyrra fórum við út að borða, í fyrsta sinn í faraldr- inum, og þegar við komum heim beið mín nokkuð óvænt. Það var búið að skreyta borð- stofuborðið með alls konar kertaföndri; körfum með vaxi, glösum, blöðrum og kveikjum. Ég spurði bara: Hvað er þetta? Jón, maðurinn minn, og yngri sonur minn sögðu þá að ég ætti nú að fara að búa til mín eigin kerti,“ segir hún og seg- ist að vonum hafa orðið yfir sig glöð. „Þetta var skemmti- legasta afmælisgjöf sem ég hef fengið!“ Misvel heppnaðar tilraunir Daginn eftir byrjaði Jó- hanna að fikta við að blanda saman efnum og reyna að búa til kerti. „Þetta var hörmung. Það tókst ekki og það var engin lykt og það slokknaði alltaf á kveikjunum. Ég sá að þetta var ekki eins auðvelt og ég hélt. Ég fór því að gúgla og þá opn- aðist mér nýr heimur. Ég byrjaði á því að panta mér bækur og las mikið og komst að því að þetta er blanda af vísindum og list,“ segir Jóhanna, sem lagðist í mikla vinnu við kerta- gerð. „Núna í rúmt ár hefur heimili mitt verið undirlagt af þessu en ég hef alla daga allan daginn verið að prófa mig áfram með vax, kveiki og ilm- olíur. Mér finnst þetta svo dásam- legt! Ég er endalaust að finna góða lykt og er að athuga hvernig mis- munandi lykt lætur mér líða. Ég var þá, öllum þessum árum eftir að ég vann í kertadeildinni, að skilja hvernig þessir ilmir hafa áhrif á okkur,“ segir Jóhanna og segist hafa lagst í mikla rannsóknarvinnu því hún vildi eingöngu vinna með nátt- úruleg efni en oft eru óæskileg efni í bæði vaxi og ilmolíum. „Ekki er allt vax það sama. Það er heldur ekki hlaupið að því að setja olíu í vax,“ segir Jóhanna, sem fikr- aði sig áfram eins og vísindamaður á tilraunastofu þar til hún var ánægð með útkomuna. „Ég vildi hafa kertin náttúruleg og vistvæn og eingöngu hráefni í hæsta mögulega gæðaflokki,“ segir Jóhanna, sem upplifað hefur ýmsar hindranir á leiðinni. „Ég er þrisvar næstum búin að kveikja í húsinu. Eitt skiptið spurði ég son minn hvort honum fyndist ekki lyktin góð af ilmolíunni sem ég var að hita, en hann svaraði að hann fyndi nú bara brunalykt. Ég svaraði „æ, hvað þú ert leiðinlegur“ en leit svo við og sá bara eld! Það er gott að hann er slökkviliðsmaður,“ segir hún og brosir. Kertin búin til heima Eftir allt grúskið, fiktið og tilraunir sem sumar heppnuðust og aðrar ekki var Jóhanna orðin sérfræð- ingur í kertagerð og nú var mál að finna viðskiptahugmynd sem gæti virkað. Þá kviknaði sú hugmynd að í stað þess að selja tilbúin kerti, að selja kassa með bestu fáanlegu hrá- efnum til kertagerðar. Jóhanna vildi leyfa fólki að njóta þess að búa til sín eigin hágæðailmkerti þar sem það er svo skemmtilegt. Nú er varan tilbúin en öll hráefni til kertagerð- arinnar eru í smart litlum pappa- kassa og fyrirtækið By Krummi var stofnað, en varan gengur undir nafninu Reykjavík Candle Co. Frænka Jóhönnu, Sigrún Ýr Hjör- leifsdóttir, hefur verið hennar hægri hönd og séð um hönnun og útfærslu á vörunni með henni. „Ég hef leyft nokkrum að prófa að föndra kerti úr krummakassanum og öllum finnst þetta mjög gaman. Þetta er skemmtilegt og gefandi föndur,“ segir Jóhanna og leyfir blaðamanni að finna ilminn af heimatilbúnu kerti. „Draumurinn er að vera með lítið kertastúdíó, halda námskeið og vera með línu af kertum og öðrum vörum, en í dag eru krummakassarnir ein- göngu seldir á Íslandi í takmörkuðu upplagi á vefsíðunni bykrummi.is.“ Ilmkerti næra sálina svo vel Jóhanna Guðmundsdóttir hefur komið víða við í lífinu en hún hefur starfað við förðun, innkaup og viðskipti. Nú eiga handunnin ilmkerti hug hennar allan. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Ég sá að þetta var ekki eins auðvelt og ég hélt. Ég fór því að gúgla og þá opnaðist mér nýr heimur. Ég byrjaði á því að panta mér bækur og las mikið og komst að því að þetta er blanda af vísindum og list,“ segir Jóhanna. Morgunblaðið/Ásdís Í kössunum er allt til kertagerðar. Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Calia Pier Ítalskt, gegnlitað nautsleður Stakir sófar: 3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr. 2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr. 2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr. Tungusófi með rafmagni í sæti 615.000 kr.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.