Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021 LESBÓK HÓTANIR Kvikmyndin Jai Bihm hefur slegið í gegn á Indlandi. Í myndinni er fjallað um kúgun jaðarsam- félaga í landinu. Fjallar hún um lögmann, sem tekur að sér að berjast fyrir eiginkonu manns, sem var handtek- inn fyrir rangar sakargiftir og dó í vörslu lögreglu 1993. Maðurinn var úr röðum dalíta eða hinna ósnertanlegu eins og lægsta stéttin kallast í kerfi hindúa. Þótt myndin sé vinsæl hefur hún vakið reiði í hér- aðinu Tamil Nadu þar sem hún gerist og þykir fólki þar að sér vegið. Stjórnmálamaður í héraðinu hét meira að segja að greiða hverjum þeim sem gengi í skrokk á aðal- leikaranum, Saravanan Sivakumar, sem þekktur er undir nafninu Suriya, 100.000 rúpíur (um 180 þúsund krónur). Nýtur hann nú lögregluverndar. Fær lögregluvernd Mynd af Suriya á auglýsingu fyrir myndina „Jai Bhim“. AFP KVIKMYNDAVERIÐ Miramax hefur stefnt leikstjóranum Quentin Tarantino fyrir að ætla að selja stafrænan rétt að hlutum úr myndinni Pulp Fiction frá 1994 á uppboði. Um er að ræða síður úr handriti sem ekki voru notaðar og upptökur af umsögnum um þær. Bálkakeðjutæknin er notuð til að tryggja að verkið sé einstakt og ófalsað og ber það skil- greininguna NFT (Non-Fungible Token) og á við um fyrirbæri eða upplýsingar, sem skil- greindar hafa verið með dulkóðun og verður ekki skipt út fyrir neitt annað. Áður var lítið mál að búa til afrit á netinu, en með þessari tækni er komið í veg fyrir það. Miramax stefnir Tarantino AFP Quentin Tarantino Herman Artuc spilar á plastbrúsa. Spila á rusl SKRANBAND Tóm dós, lampast- andur og snærisspotti. Það sem er rusl í augum eins getur orðið tónlist í eyrum annars. Tyrkneska tríóið Fungistanbul býr til hljóðfæri úr rusli og spilar á þau á plötum sínum og tónleikum. Markmiðið er að ýta undir endurnýtingu og hafa fleiri hljómsveitir farið sömu leið. „Við höfðum ekki hugmynd um að við myndum búa til okkar hljóm þegar við byrjuðum,“ sagði Roni Aran í viðtali í hjóðveri hljómsveit- arinnar innan um bílaverkstæði í Istanbúl. „Við vorum hissa á útkom- unni og áheyrendur líka.“ Þríeykið í Fungistanbul kallar tónlist sína Austurlandarusl eða „Trash Oriental“. AFP G uðlaugur Hörðdal og Karl Torsten Stallborn stofnuðu hljómsveitina bara tveir ár- ið 2016. Þá var Kalli sessjónleikari í hljómsveit Gulla, Fufanu. Þeir urðu rosa góðir vinir og fóru að vinna sam- an. Þetta var svona hliðarverkefni, þeir eitthvað að leika sér uppi í stúd- íói. Það er svo seinna sama ár sem ég dett einhvern veginn inn í þetta,“ seg- ir Sölvi Magnússon um það hvernig hljómsveitin Skrattar varð til. Fjórða plata þeirra, Hellraiser IV, kom út í ágúst síðastliðnum og var fagnað með útgáfutónleikum í október. Núna eru meðlimirnir fimm, en auk Guðlaugs, Karls og Sölva skipa hljómsveitina þeir Jón Arnar Kristjánsson og Kári Guðmundsson. „Ég hafði aldrei verið í hljómsveit áður. Það er skemmtilegt að í fyrsta tónlistarmyndbandinu þeirra, fyrir lag sem heitir This City’s Gonna Cry, þar sést ég,“ heldur Sölvi áfram. „Ég þekkti strákana en hafði ekkert heyrt í þessu bandi, þetta voru fyrstu tón- leikarnir þeirra. Þar sést ég horfa á þá og þú sérð það bara á svipnum á mér að mig langar að gera eitthvað svona. Það er geðveikt næs að geta skoðað þetta myndband núna og sjá þennan svip, það mætti eiginlega segja að ég hafi sigrað. Þetta átti bara að vera eitthvert eitt lag, ég hafði samið einhvern texta og við ákváðum að prófa það bara.“ Margir koma að verkefninu Jón Arnar bættist svo við þegar Skrattar gáfu út aðra plötu sína, Og djöfullinn sjálfur, árið 2017. Kári bættist síðan í hópinn nýlega, til þess að spila á bassa, en hann hafði þó að sögn Sölva komið að gerð allra laga frá upphafi hljómsveitarinnar. „Hann var alltaf með okkur í stúdíóinu. Þess vegna þegar kemur að svona kred- itlistum og þannig þá höfum við alltaf bara „Skrattar“ og ekkert meira því það eru svo margir sem koma að þessu, sérstaklega á Skúlagötu- tímanum. Þá voru bara allir uppi í stúdíói að vinna og bara gera þetta svo náttúrulega,“ segir hann og vísar til þess tíma þegar stúdíói var haldið úti á Skúlagötu, þar sem ýmsir komu saman og sköpuðu tónlist. Sölvi segir hlutverkaskiptinguna innan hljómsveitarinnar vera mjög á reiki. „Við skiptum hljómsveitinni bara bróðurlega á milli okkar því við vitum ekkert hver gerir hvað.“ Sölvi og Karl eru báðir í framlínu hljómsveitarinnar og hafa samið sína eigin texta. „Það er svo skrítin pæling að vera með tvo front-menn. Mér finnst eiginlega ekki til neitt hallær- islegra en það virkar samt hjá okkur og það kemur mér á óvart. Yfirleitt skrifa ég það sem ég syng og Kalli það sem hann syngur en við hjálp- umst líka alveg að.“ Fer okkur frekar vel Spurður út í nafn hljómsveitarinnar segir Sölvi: „Ég held að það hafi bara verið töff, svo finnur maður bara fleiri ástæður eftir því sem lengra líður. Okkur finnst svo gaman að breyta svörunum, það eru svo leiðinleg svona viðtöl við hljómsveitir sem eru of einlæg.“ Hann nefnir til dæmis að ein af skýringunum sem þeir hafi gef- ið upp hafi verið að skrattar þýði „að hlæja“ á sænsku, ein meðlimanna, Karl, er hálfsænskur svo alltaf þegar þeir strákarnir hafi komið saman þá hafi fjölskyldan hans sagt: „De skrattar så mycket.“ „Þannig að það er einhver hugmynd líka. En aðal- ástæðan er held ég að okkur finnst þetta fara okkur frekar vel.“ Hellraiser IV er fjórða plata Skratta. Áður en Sölvi slóst í hópinn höfðu Skrattar gefið út tvær EP- plötur, sú fyrsta var kölluð In the Night en önnur bar titilinn Hellraiser II. „Okkur fannst það geggjað. Hell- raiser er rosa hallærislegt nafn, Hell- raiser II er svolítið epískt. Mér fannst engin önnur hugmynd virka nema að kalla þessa fjórðu plötu Hell- raiser IV. Við vorum búnir að vera að melta þetta lengi og vinnum alltaf Hættulegasta popphljóm- sveit landsins Fjórða plata hljómsveitarinnar Skratta, Hellraiser IV, kom út í haust. Innblásturinn kemur víða að og þeir kalla sig sígarettupopphljómsveit og það er bara ein regla: besta hugmyndin vinnur. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Karl Torsten Stallborn, Guðlaugur Hörðdal, Sölvi Magnússon, Kári Guðmundsson og Jón Arnar Kristjánsson eru Skrattar. NÝR ÞÁTTUR SMARTLAND MÖRTUMARÍU Þættir Mörtu Maríu Jónasdóttur, Heimilislíf, hafa algerlega slegið í gegn en fyrsti þáttur fór í loftið í júní 2017. Árni Matthíasson vann sem bátsmaður á togara þegar hann hnaut um ástina og saman keyptu þau draumahúsið. Ef þau hefðu vitað hvað það væri mikil vinna að gera upp hús þá hefðu þau líklega aldrei keypt það.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.