Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 04.12.2021, Síða 1
Þar sem stálinmætast stinn Gefast aldrei upp 5. DESEMBER 2021SUNNUDAGUR Liðkast ummálmbeinið 19 dagar til jóla Jóladagatalið er ájolamjolk.is Edith OlivaresFerreto, fram-kvæmdastjóriAmnestyInternationalí Mexíkó, ogbaráttukonanWendy AndreaGalarza segjafrá ofbeldi ogmorðum í heima-landinu. 14 Hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Val- berg hafa skrifað bók um götu allra landsmanna. 18 Trivium fær glimrandidóma fyrir nýjustubreiðskífu sína. 28 Mörg andlit Laugavegar L A U G A R D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 285. tölublað . 109. árgangur . Mitsubishi Eclipse Cross PHEV Nýja ljósið í skammdeginu HEKLA · sími 590 5000 · Laugavegi 170 · hekla.is/mitsubishisalur *Um áramót falla niður ívilnanir stjórnvalda og þar með niðurfellingar á virðisaukaskatti sem eru um 960.000 kr. Komdu í heimsókn í dag og gæddu þér á jólalegum veitingum. Tryggðu þér nýjan tengiltvinnbíl fyrir áramót á frábæru verði frá aðeins 5.490.000 kr. til afhendingar strax. Sparaðu 960.000 kr.* 20 dagar til jóla Jólasveinalitabókin er á jolamjolk.is HEFUR TEKIÐ MARGAR U-BEYGJUR BARNSLEG GLEÐI EMIL Í KATTHOLTI Á SVIÐI 42MARGRÉT ERLA 18 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veiran sem getur valdið blóðþorra í laxi hefur fundist í dauðum fiski í fleiri kvíum hjá Löxum fiskeldi á Gripalda í Reyðarfirði. Þótt ekki hafi orðið vart við að fiskurinn sé sýktur hefur verið ákveðið að flýta heldur slátrun úr öllum kvíum á Gripalda í öryggisskyni og hvíla svæðið. Meinvirkt afbrigði staðfest Matvælastofnun fékk í gær niður- stöður úr raðgreiningu á sýnum sem tekin voru í sýktu laxakvínni hjá Löxum fiskeldi í Reyðarfirði. Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma, segir þær staðfesta að þar sé á ferð- inni hið meinvirka afbrigði ISA-veir- unnar sem veldur blóðþorra, eins og íslenskir sérfræðingar höfðu slegið föstu. Er það í fyrsta skipti sem sjúk- dómurinn er staðfestur hér á landi. Strax var gengið í að slátra öllum laxi upp úr kvínni og farga honum. Gísli segir að rannsóknarfólk á Til- raunastöð Háskóla Íslands í meina- fræði á Keldum sé í framhaldinu að athuga fingraför veirunnar, hvort þau finnist í nágrannalöndum eða hvort stökkbreytingin hafi orðið í kvínni í Reyðarfirði eins og Gísli hef- ur talið líklegast. Sýni sem tekin voru úr dauðum fiski í nálægum kvíum sýna að ISA- veiran er þar. Ekki er vitað hvort þar sé að finna meinvirka afbrigðið sem veldur blóðþorra. Laxinn lítur vel út, að sögn Gísla, og sýnir ekki sjúk- dómseinkenni. Eigi að síður hefur verið ákveðið að flýta slátrun upp úr þeim tíu kvíum sem eftir eru á Grip- alda. Stefnt er að því að slátrun verði lokið fyrir páska en ef sjúkdómurinn hefði ekki komið upp hefði verið slátrað í áföngum fram á næsta haust. Segir Gísli að með þessu náist að hvíla svæðið í heilt ár, áður en far- ið verður að huga að útsetningu seiða þar að nýju. Athuga með sláturskip Í kvíunum er eftir um það bil 1,1 milljón laxa, samtals um fjögur þús- und tonn að þyngd. Fiskurinn verður unninn til manneldis enda er veiran skaðlaus fólki og berst ekki með af- urðum. Laxar fiskeldi eru að huga að því að fá erlent sláturskip til aðstoð- ar, einkum til að slátra minnsta lax- inum sem síður hentar í vinnslulínu laxasláturhúss Búlandstinds á Djúpavogi. Laxinn verður unninn um borð og landað í Danmörku. Gísli tekur fram að rannsóknir sýni að blóðþorri leggist ekki á villta laxastofna. Slátrun úr sjókvíum flýtt - ISA-veiran hefur fundist í laxi í fleiri kvíum hjá Löxum fiskeldi í Reyðarfirði - Slátrun flýtt í öryggisskyni þótt ekki hafi fundist sýking og svæðið hvílt lengur Kauptilboð hefur verið lagt fram í dýrustu þakíbúðina á Austurhöfn við Hörpu í Reykjavík. Um er að ræða 354 fermetra horníbúð sem er m.a. með útsýni yfir höfnina til vesturs. Þetta herma heimildir blaðsins en kaupverðið mun vera milli 500 og 600 milljónir og þar með það hæsta sem greitt hefur verið fyrir íbúð í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Fulltrúar Austurhafnar vildu ekki tjá sig um málið en félagið hefur nú selt tæplega 50 íbúðir af 70. Fram kom í fjölmiðlum um daginn að ein af dýrustu þakíbúðunum á Austurhöfn hefði verið seld en henni var í umfjöllun ruglað saman við íbúðina sem nú hefur verið seld. Sú íbúð var sögð kosta 480 millj- ónir króna. baldura@mbl.is Morgunblaði/Arnþór Horníbúð Mikið útsýni er yfir höfnina frá umræddri þakíbúð. Dýrasta íbúð í sögu Íslands Líkt og venjan hefur verið undanfarin ár var Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur breytt í eins konar jólaskóg í gær. Leikskólabörnum var þá boðið á opnun skógarins, en auk þeirra gerðu stjörnuhjónin Grýla og Leppalúði sér einnig ferð í jólaskóginn. Sungin voru jólalög, gengið í kringum jólatréð og boðið var upp á heitt kakó og smákökur í tilefni opnunarinnar. Þetta er tí- unda skiptið sem salnum er breytt í jólaskóg. Morgunblaðið/Eggert Kakó, piparkökur og jólalög með Grýlu og Leppalúða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.