Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 2

Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 MEÐ DINNU OG HELGA ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU 2022 Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót! Við bjóðum beint flug vikulega til Ítalíu, þar sem farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna. Kláfur tengir skíðasvæðin Pinzolo og Madonna, svo auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin. Dinna og Helgi hafa mikla reynslu af skíðaferðum og ævintýrum enda voru þau ung gefin saman í skíðaskála í Bláfjöllum. Innifalið, flug, gisting, flutningur á skíðabúnaði, íslensk fararstjórn og innritaður farangur VERÐ FRÁ:117.900 KR. á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn í tvíbýli með hálfu fæði SKÍÐI 2022PINZOLO EÐAMADONNA ÍSLENSK FARARSTJÓRN OG FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI INNIFALIÐ Í VERÐI Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vatnsrennsli í Gígjukvísl var síðdegis í gær um 1.600 rúmmetrar á sekúndu og jókst hratt. Bú- ist er við að vatnsmagn verði í hámarki á sunnudag. Allt fylgir þetta hræringum í Grímsvötnum, en íshellan yfir þeim hefur sigið um 27-28 metra á sl. tíu dögum. Því fylgir að vatn langt umfram meðalrennsli streymir nú undan Skeiðarárjökli í farveg Gígjukvíslar. Starfsmenn Vegagerðar fylgjast vel með at- burðarásinni í Grímsvötnum, en talið er ólík- legt að jökulhlaup hafi áhrif á samgöngur. Kemur þar til að núverandi brú á Gígjukvísl, sem var tekin í notkun 1998, var hönnuð með það fyrir augum að standast minni jökulhlaup, 3.000-5.000 rúmmetra á sekúndu. Í stærri hlaupum væri mögulegt að rjúfa veg og hleypa vatni fram hjá án þess að brúin eða mannvirki henni tengd skemmdust. „Við erum á vaktinni við Gígju og fylgjumst með stöðu mála. Ég hef þó í sjálfu sér litlar áhyggjur af brúnni, sem á mikið inni,“ sagði Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Höfn, í samtali við Morgun- blaðið. Ágætt veður var í gær við Gígjukvísl og í Öræfum; léttskýjað og fimm stiga frost. Spáð er svipuðu veðri á svæðinu næstu daga. Vísindamenn hafa sagt að með hlaupi í Grímsvötnum, það er þegar léttir á vatnsmagni og þar með þrýstingi á svæðinu, aukist lík- urnar á eldgosi. Ekki er þó af neinni vissu hægt að segja til um hvort framvindan verði nákvæmlega sú. sbs@mbl.is Ljósmynd/Jón Grétar Sigurðsson Flugsýn Þungur straumur og mikið vatn var í Gígjukvísl þegar þessi mynd var tekin síðdegis í gær. Vegagerðin telur þó að brúin sem hér sést muni vel standast áraun þessara miklu hamfara. Gígjukvísl í hámark á sunnudag - Vatnsrennsli í vexti - Hræringar í jökli og hellan sígur - Mannvirki standist - Eldgos ekki útilokað Norðmaðurinn Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, sigraði hinn rússneska Ian Nepomniachtchi (Nepó) í sjöttu einvígisskák þeirra um heimsmeistaratitilinn í skák í gær. Skákin var sú lengsta í sögu heimsmeistaraeinvíganna og léku leikmennirnir í yfir átta klukkutíma. Síðustu fimm skákir í einvíginu enduðu með jafntefli, en þeir munu tefla 14 einvígisskákir nema annar þeirra nái 7½ vinningi áður en 14 skákum er lokið. Carlsen hafði hvítt og tefldi hann drottningarpeðinu fram í fyrsta leik. Skákin þróaðist yfir í svo- nefnda Katalan-byrjun. Í leik 26 skipti Carlsen á drottningu sinni og tveimur hrókum Nepós. Leikmenn- irnir voru í miklu tímahraki en báðir fengu möguleika á að ná yfir- burðum í skákinni. Eftir leik 40 fengu þeir aukalega klukkutíma í umhugsunartíma og eftir það mat tölvan það svo að skákin væri hníf- jöfn. Carlsen er þekktur fyrir að geta kreist vatn úr steini í endatafli og fékk hann Nepó til þess að gefast upp í leik 136. logis@mbl.is »27 AFP Skák Teflt verður með styttri umhugsunartíma ef allt verður jafnt eftir 14 skákir. Fyrst verða tefldar fjórar skákir með 25 mínútna umhugsunartíma. Carlsen tekur for- ystuna í einvíginu - Spiluðu í yfir átta klukkutíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.